Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 7
Miövikudagur 13. janúar 1982. .7 erlent yf irlit ■ ■ UM næstu helgi fara fram for- setakosningar i Finnlandi eöa réttara sagtkjörá 301kjörmanni. Kjörmennirnir skipa kjörþing, er endanlega velur forsetann. Kjörmennirnir eru yfirlýstir stuöningsmenn einhvers fram- bjóöandans, en þeir fd kosna kjörmenn i samræmi viö at- kvæöatölu sina. Kjörmaöur er skyldur til aö kjósa þann frambjóöanda, sem hann styöur i fyrstu atkvæöa- greiöslu á kjörþinginu. 1 annarri atkvæöagreiöslu hefur hann ó- bundnar hendur. 1 þriöju at- kvæöagreiöslu, sem jafnframt er sií siöasta, veröur valiö milli þeirra tveggja, sem fengu flest atkvæöi i annarri atkvæða- greiöslunni. Heimilt er aö kjósa hvern sem er i annarri atkvæðagreiðslunni. Þá þarf valiö ekki lengur að vera bundið viðþá, sem buðu sig fram. Þannig er talið liklegt, að nafn Karjalainens komi mjög á dag- skrá viö aðra atkvæðagreiðsluna nú, ef til hennar kemur. Það er viss styrkur fyrir hann, að hann er sá maður, sem Rússar virðast treysta bezt.Hann hefurþó aldrei hlotiö það orð að vera sérstakur fylgismaður þeirra. Þess vegna gætu borgaralegu flokkarnir sætt sig við hann. Mikill áhugi rikir i Finnlandi i I Mauno Koivisto Koivisto er Hann fær fylgi frá öllum flokkum sambandi við forseta- kosningarnar. Það má líka segja, að þetta séu fyrstu forseta- kosningarnar þar i 25 ár, eöa siðan Kekkonen náöi kosningu i fyrsta sinn. Eftir það var hann ó- vinnandi og menn vissu það fyrir- fram. EF MARKA má skoðanakann- anir, nýtur frambjóðandi jafnaðarmanna, Mauno Koivisto, langmest fylgis af frambjóðend- unum. Það styrkir stöðu hans m.a. aö hafa gegnt forsetaem- bættinu að undanförnu i veikind- um Kekkonens. Samkvæmt skoðanakönnunum fær hann um 60% atkvæða. Verði úrslitin i samræmi við það, fær hann það marga kjörmenn kjörna, að hann ætti að ná kjöri strax I fyrstu at- kvæðagreiðslu á kjörþinginu. Þaö má nokkuð ráða persónu- fylgi Koivistosaf þvi, að i siðustu þingkosningum fékk flokkur hans, Jafnaðarmannaflokkurinn, 24% greiddra atkvæða. Koivisto virðist til viðbótar fá fylgi frá öllum flokkum. Þannig færfram- bjóðandi Sameiningarflokksins, sem er ihaldsflokkur landsins, Harri Holkeri, ekki nema um 12% i skoðanakönnunum, en flokkur- inn fékk um 22% atkvæða i siðustu þingkosningum. Litlu skárri er útkoman hjá Miðflokknum. Frambjóðandi hans, Johannes Virolainen, fær 11% samkvæmt skoðanakönnun- um, en flokkurinn fékk 17% i siðustu þingkosningum. Verst ætlar þó útkoman að veröa hjá Kommúnistaflokknum. Allar horfur virðast á að fram- bjóðandi hans fái sáralftið fylgi, en ftokkurinn fékk 18% atkvæð- anna i siðustu þingkosningum. Mikill meirihluti af kjósendum hans virðist ætla að kjósa Koivisto. Ef útkoman verður á þá leið, er þetta meira en slæmur fyrir- boði hjá kommúnistum. Mikill kofningur hefur átt sér stað innan Kommúnistaflokksins undanfarin árog gæti mikill ósigur hansífor- ■ Jan-Magnus Jansson. setakosningunum orðið honum lítt bætanlegt áfall. Svo virðist einnig, að hið mikla fylgi.sem Koivistonýtur, verði til að efia Jafnaðarmannaflokkinn. Samkvæmt skoðanakönnunum myndi flokkurinn fá 37% at- kvæða, ef kosið væri til þings nú, en hann fékk 24% atkvæða i siðustu þingkosningum, eins og áður segir. Sameiningarftokkur- inn myndi tapa eða fá um 17% i stað 22% i þingkosningunum siðustu. Miðflokkurinn myndi nokkurn veginn halda sinu eða fá 16% i stað 17% i þingkosningun- um. Hjá kommúnistum yrði hrun. FARI SVO, sem ekki virðast ml likur á,að Koivisto nái ekki kjöri i fyrstu atkvæðagreiðslunni á kjör- þinginu, mun hefjast mikið samningamakk á bak við tjöldin. Borgaralegu flokkarnir svo- nefndu munu reyna aðsameinast um frambjóðanda gegn honum og gæti þá orðið mjótt á mununum. Það gæti tryggt sigur Koivistos i annarri umferðinni, að þá hefur Veikko Vennamo, sem er i fram- boði fyrir Landsbyggöarflokkinn, heitið honum stuðningi. Sam- kvæmt skoðanakönnunum fær Vennamo um 2% atkvæöa og þvi nokkra kjörmenn kjöma. Senni- lega hefur stuðningsyfirlýsingin við Koivisto styrkt Vennamo. Hann mun einnig hafa grætt nokkuð á klofningnum i Mið- flokknum vegna samkeppni þeirra Virolainens og Karjalain- ens. óliklegt þykir, að borgaralegu flokkarnir geti sameinazt um Holkerieða Virolainen. Einna lik- legast þykir að þeir geti samein- azt um frambjööanda Sænska flokksins, Jan-Magnus Jansson, ritstjóra Hufudstadsbladet. Þaö getur þó dregið úr vonum Jans- sons, að honum virðist ætla að ganga illa i kosningunum, ef marka má skoðanakannanir. Skoðanakannanir telja, að hann fái ekki nema 1% atkvæða eða tæplega þaö. jjiggHr ; %4-iJ Þórarinn Þórarinsson, |1 — Jj ritstjóri, skrifar erlendar fréttir Gífurlegur taprekstur á olíu hreinsunar- stöðvum sl. ár — nam rúmlega 80 billjónum króna ■ Sú grein olíuiðnaðarins sem viö hvaö mesta erfiöleika hefur átt að striða er oliu- hreinsunin. Eftir öllum sólar- merkjum aö dæma, þá fara örðugleikar oliuhreinsunar- stöðva nú ört vaxandi. I meira en tvö ár hafa þeir sem reka oliuhreinsunarstöðvar gælt við þá tilhugsun að með auk- inni oliueftirspurn myndu erfiðleikar hreinsunar- stöðvanna dvi'na en raunin hefur orðið sú að eftirspurn hefur stórminnkað, og þar með gertvonir þeirra aðengu. Þetta kemur fram i grein um oliuhreinsun sem birtist i The Economist. Aðeins stórfelldur niður- skurður á oliuhreinsunar- iðnaðinum getur nú komið i veg fyrir að stórkostlegar peningaupphæðir fari i súginn á niunda áratugnum. Oliu- hreinsunariðnaðurinn tapaði á sl. ári um 10 billjónum dollara, sem svarar tilrúmlega 80 bi.ll- jóna islenskra króna. Talið er að þessi gifurlegi taprekstur ársins 1981 á oliuhreinsunar- stöðvum verði til þess að oliu- framleiðslufélögin neyðist nú að lokum til þess að gripa til stórfellds niðurskurðar. Þessar, og fleiri upplýsingar koma fram i ársskýrslu Al- þjóðlegu orkustofnunarinnar, (In t er na ti ona 1 Energy Agency) og er talið að skýrsla þessi eigi eftirað skjóta mörg- um oliuforstjórum stærstu oliufélaganna skelk i bringu en þau ráða yfir megninu af oliuhreinsunarstöðvum i heiminum. Samkvæmt skýrslu IEA er gert ráð fýrir þvi aö eftirspurn OPEC rikjanna eftir hreinsaðri oli'u hafi minnkað um 11% áriö 1990, frá þvi sem hún var mest, áriö 1979, en þá var eftirspurnin 38 milljónir tunna á dag. Jafnvel toppárið 1979 var framleiðslugeta oli'u- hreinsunarstöðvanna 25% meiri en eftirspurn OPEC rikjanna var eftir unnum oliu- vörum. Þrátt fyrir þessa staðreynd þá komu geysilegir sjóðir stóru oliufélaganna ásamt ótta, byggðum á fölskum for- sendum um að oliuskortur væri i uppsiglingu i veg fyrir að oliufyrirtækin tækju þá strax á vandanum. Nú, þegar verðfali á oliu blasir við ásamt auknum framleiðslukostnaði geta fyrirtækin hins vegar ekki lengur stutt oliu- hreinsunarstöðvar sinar með niðurgreiðslum og fjárfram- lögum. I skýrslunni er talið að framleiðslugeta hreinsunar- stöðvanna umfram eftirspurn, nái um 50% 1985 og spáir skýrslan þvi' einnig að hún verði komin i 52% árið 1990. Verst mun þetta koma niður á Vestur-Evrópu en þar eru stærstu oli'uhreinsunarstöðvar veraidar. Það virðist þviekkertannað blasa við en^ að oliu- hreinsunarstöövum i stórum stil verði lokað nú á næstunni bæði i Evrópu og Amerlku. —AB ■ Fjárkröggur oliuhreinsunarslöóva um hciin allan hal'a aldrci vcrið mciri cn nú. Þcssi sliið kann að vcrða cin þcirra sem lokað vcrður á næstunni. BANDARtKIN: Utanrikisráðherra Bandarikjanna, Alexander Haig, hefur skorað á utanrikisráðherra NATO rikjanna að fram- fylgja yfirlýsingu sinni frá i fyrradag i Brussel varðandi ástandið i Póllandi, i verkum, en láta ekki sitja við orðin tóm. Sagði hann að litið yrði eftiraf sjálfsvirðingu NATO rikjanna, ef ekki yrði gripið til aðgerða. Haig sagði, að yfirlýsing utanrikis- • ráðherranna um refsiaðgerðir gegn Sovétrikjunum, ef ástandið i Póllandifæriekkibatnandi,sameinaðiNATO rikin i þvi til hvers konar aðgerða skyldi gripið. Haig sagði þetta á fundi meö utan- rikisráðherrunum i Brussel i gær. PÓLLAND: Háttsettur starfsmaður pólska kommúnistaflokks- ins,Urbansky,sagði i gær að refsiaðgerðir gegn flokksfélögum, sem brotið hefðu siðareglur flokksins héldu áfram. Urbansky er yfirmaður þeirrar deildar flokksins sem hefur með flokksaga að gera, sagði að flokkurinn myndi fljótlega losa sig við þá sem brotlegir hefðu gerst við reglur flokksins,. GENF: Samninganefndir Bandarikjanna og Sovétrikjanna hafa að nýju tekið upp viðræður i Genf i Sviss um takmörkun kjarn- orkueldflauga iEvrópu.Nefndirnar hittust i fyrsta sinn I gær.frá þvi aö Reagan, Bandarikjaforseti ákvað refsiaðgerðir gegn Sovétrikjunum vegna ástandsins i Póllandi. Fundurinn stóð i að- eins 2 tima i gær. PAKISTAN: Utanrikisráðherra Pakistan hefur sagt að Pakistan muni fara út i friöar- og afvopnunarviðræður við Indland með einlægni og trú á hið góða að leiðarljósi. Sagði hann að Indland hefði yfir höfuö enga ástæðu til þess að óttast árásarhættu frá Pakistan. FLÓRIDA: Flórida hefur ekki farið varhluta af vetrarkuldum þeim sem geisað hafa um Bandarikin og Evrópu. Herma fregnir þaðan nú að ávaxtauppskeran i Flórida (gem aö mestu er ótind enn, sé nú að verulegu leyti ónýt og það sem enn sé heilt sé i stórri hættu vegna kuldanna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.