Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 13
Miövikudagur 13. janúar 1982. 21 íþróttir „Sárt að skora ekki úr vítinu” — sagði Þorbergur eftir leikinn ■ „Þaö var sárt að skora ekki úr vitakastinu, ég skaut allt of fast i gólfið og boltinn för yfir”, sagði Þorbergur Aðalsteinsson i sam- tali viö Timann eftir leikinn. Þegar 11 minútur voru til leiks- loka, var staðan 15—14 fyrir A- Þjóðverja, Ólafur brunaði upp völlinn, brotið var á honum og dæmt vitakast. Þorbergur tók vit- ið, en skaut i gólfið eins og áður sagði. „Það var erfitt að finna smugu hjá Schmidt markverði. Hann lokar gjörsamlega öllu markinu. í stað þess að skjóta svona fast hefði maður frekar átt að skjóta laust undir hann. Ég hugsa að það hefði gefið betri raun. Austur- Þjóðverjarnir eru með geipilega sterkt lið. Vörnin og mark- vörðurinn vinna mjög vel saman. Mér finnst að allt undir 5 marka tapi gegn svona liði sé nokkuð gott”. — röp. „Vel hægt að sigra þetta lið” „Þetta var nokkuð góður leik- ur að minu mati. Að visu voru kaflaskipti i honum eins og verða vill, en við þurfum ekkert að skamm^st okkar fyrir frammi- stöðuna, þrátt fyrir tap”, sagði Hilmar Björnsson, þjálfari lands- liðsins eftir leikinn. „Þjóðverjarnir eru i mjög sterku likamlegu ástandi og þarna var leikinn handknattleik- ur á alþjóðlegan mælikvaröa. Ég get sætt mig við nokkur af mörk- unum, sem við fengum á okkur. Það er ekkert slæmt að fá á sig 19 mörk i leik. En verst þótti mér um öll mörkin sem við fengum á okkur úr hraðaupphlaupum Þjóð- verja. Þar þurfum við að lagfæra leik okkar. Það er vel hægt að sigra þetta lið og á góðum degi is- lenska liðsins getum við vel sigr- að”. M Jóhannes Atlason ■ Alfreð Gislasyni hefur tekist að brjótast I gegn um vörn Þjóðverjanna og skjóta framhjá Schmidt markveröi, en boitinn rataðiekkirétta leiði markið. TimamyndEl Naumt tap Islands gegn A-Þjódverjum Frábært lið A-Þjóðverja sigraði íslenska landsliðið 19:17 í Laugardalshöll ígærkveldr ■ islenska landsliðið í hand- knattleik getur svo sannarlega borið höfuðið hátt þrátt fyrir tveggja marka tap, 17-19, gegn austur-þýska landsliðinu, núver- andi Ólympiumeisturum i gær- kveldi. A tima leit út fyrir að is- lenska liðið myndi tapa stórt, en strákarnir tóku sig á svo um munaði, með þá Þorberg Aðal- steinsson sem aðalmanninn úti á vellinum og Kristján Sigmunds- son ekki siðri i markinu. Kristján varði ekki færri en 11 skot i leiknum og flest þeirra al- veg meistaralega og Þorbergur skoraði 7 mörk. Austur-þýska liðið er geysilega sterkt lið sem leikur mjög hraðan og harðan handknattleik. Á stundum voru leikmennirnir austan að mjög grófir i vörninni, en dönsku dómararnir misstu þó aldrei tök á leiknum, þótt svo að islenskir, hrópglaðir áhorfendur vildu ekki alltaf una úrskurði þeirra. Gangur leiksins var sá að jafn- ræði var með liðunum framan af, Steindór skoraði fyrsta mark leiksins, eftir glæsilega linu- sendingu frá Guðmundi Guð- mundssyni og Þjóðverjarnir jöfn- uðu örstuttu siöar úr vitakasti. Þeir Þorbjörn Jensson, Þor- bergur Aöalsteinsson og Kristján Arason léku saman fyrir utan til að byrja með og tókst þeim að ná upp skemmtilegum hraða og góðri ógnun i spilinu. Þó virkaði Þorbjörn helst til ragur að nýta sér þau færi sem opnuðust hon- um. Stuttu siðar náðu Þjóðverjarnir forystu með góðu hraðaupp- hlaupi, staðan 2-1 og gekk fyrri hálfleikurinn þannig fyrir sig að þeir náðu forystunni og íslending- um tókst að jafna en aldrei að ná forystu. Það er svo um miðjan fyrrihálfleiksem Dreibrodt, no. 2 stekkur stórglæsilega upp og skorar og staðan er 5-4 Þjóðverj- unum i vil. Þá fer að siga á ógæfuhliðina hjá islenska liðinu, hinn svo- kallaði slæmi kafli, þar sem allt fer úr böndum. Sigurður Sveins- son geröi slæm mistök á þessum kafla: skaut framhjá.missti bolt- ann og sömu sögu er að segja um Alfreð Gislason. Þegar 20 minút- ur eru liðnar af fyrri hálfleik er staðan orðin 8-4, Þjóðverjum i vil, en á sama tima og leikur islenska liðsins einkenndist afdáðleysi og upplausn voru einkenni leiks Austur-Þjóðverjanna hraði öryggi og harka. Islenska liðið náði sér aftur á strik um stund, og þegar staðan var 9 mörk gegn 7 og tvær minút- ur voru eftir af fyrri hálfleik þá brutu Austur-Þjóðverjarnir gróf- lega á Guðmundi Guðmundssyni, þegar hann var kominn einn inn i teiginn i dauðafæri en dómurun- um yfirsást gjörsamlega að þarna væri um brot að ræða og Þjóðverjarnir brunuðu upp i hraðaupphlaup og staðan orðin 10-7. Þetta voru afdrifarik dómaramistök á þýðingar- miklum tima fyrir islenska liðið og Þjóðverjum tókst svo að bæta enn einu markinu við fyrir hálf- leik: staðan i hálfleik þvi 11-7. Siðari hálfleikur hélst jafn framan af og áttu þeir Þorbergur Aðalsteinsson og Guðmundur Guðmundsson glæsilegan leik þá. Það var með ólikindum hvernig Guðmundur reif sig fram úr austur-þýsku risunum i hraða- upphlaupunum og skoraöi bein- linis meö fjöllin á bakinu. Um miðbik siðari hálfleiksins þurfti Kristján að fara úr mark- inu um hrið því hann varði bolt- ann með andlitinu og fékk blóð- nasir en skömmu siðar kom hann inn á aftur og stóð enn sem fyrr fyrir sfnu. A 15. minútu siðari hálfleiks er staðan 15-12 fyrir Þjóðverja og þá skoraði Þorbergur með glæsilegu langskoti. Rétt á eftir kemst Guð- mundur inn i sendingu hjá Þjóö- verjunum og brunar upp i hraða- upphlaup með Schmidt, no. 6 á bakinu, en tókst samt sem áöur að skora af haröfylgi — staðan 15-14. Troöfull Laugardalshöllin ærðist úr kæti við þennan jöfnunarmöguleika og voru Is- lendingarnir nú óspart studdir. A 19. minútu hálfleiksins kemur svo jöfunarfæriö á silfurbakka, þegar Ólafur Jónsson fær dæmt viti — en Þorbergur skaut i gólfið og yfir markið. Næstu minútur eftir þetta var dauft yfir islenska liðinu og staöan skyndilega orðin 19-15, en Steindóri og Guðmundi tókst aðeins að rétta úr kútnum með eitt mark hvor og lokatala leiksins varð 19-17. tslenska liðið átti á köflum ágætan dag, sýndi hraðan og skemmtilegan handknattleik en of mikið var um að Þjóðverjarnir fengju að skora óáreittir úr hraöaupphlaupum. Auk Viking- anna þriggja sem þegar hafa verið nefndir sem stjörnur leiks- ins má nefna ágætan leik Stein- dórs og Kristjáns Ara. Þjóðverjarnir voru frábærir með markvöröinn Schmidt, , skyttuna Dreibrodt, skyttuna Wahl og linumanninn Weigert i fararbroddi. Mörk Islands: Þorbergur 7, Guömundur 3, Steindór, Siggi og Kristján 2 og Þorgils 1. Mörk Austur-Þýskalands: Dreibrodt, Wahl og Kruger 4 hver, Weigert 3, Rost, Pester og Doering 1 hver. —AB Verður Jóhannes landsliðsþjálfari? ■ „Stjórn KSl bauð mér þetta starf og mér er engin launung á þvi að ég hef mikinn áhuga á þvi”, sagði Jóhannes Atlason, fyrrum fyrirliði landsliðsins i knattspyrnu og þjálfari Fram i samtali við Timann i gær. Stjórn KSl hefur boðið Jó- hannesi að gerast þjálfari lands- liðsins i knattspyrnu og taka við erfiðu hlutverki af Guðna Kjartanssyni, sem hefur ákveðið að taka sér hvfld frá þjálfun i bili. Jóhannes sagði að frekari við- ræður um þetta mál færu fram nú i vikunni og að öllum likindum yrði þá gengið frá i lok vikunnar hvort af þessari ráðningu Jó- hannesar yrði. röp-.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.