Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 18
26
• Miövikudagur 13.'janúar'1982.
Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
Bandarískur
vidskilnaður
önnur tilraun. (Starting Over).
Sýningarstaður: Iláskólabió
Leikstjóri: Alan J. Pakula.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds (Phil Potter), Jill Clayburgh
(Marilyn Holmberg), Candice Bergen (Jessica Potter).
Handrit: James L. Brooks eftir sögu Dan Wakefield.
Myndataka: Sven Nykvist.
Framieiðendur: Alan J. Pakula og James L. Brooks fyrir Para-
mount, 1979.
Söguþráður: — Hjónaband Phil, sem er lausamaður I blaða-
mennsku, og Jessicu, sem semur og syngur popplög, er að fara i
hundana, og að frumkvæði Jessicu flytur Phil að heiman. Hann
fer i heimsókn til bróður sins og konu hans, og býr siðan um sig i
einstaklingsibúð þar i nágrenninu. Fyrir milligöngu bróður
sins og mágkonu kynnist hann ýmsum stúlkum, þar á meðal
Marilyn, sem er fóstra. Með þeim tekst brátt náið samband.
Nokkru eftir að Jessica og Phil eru löglega skilin, og sama dag-
inn og Marilyn flytur inn til Phil til reynslu, kemur Jessica i
heimsókn og i ljós kemur, að Phil er enn mjög háður fyrrverandi
eigmkonu sinni. Hann þarf þvi að gera upp við sig, hvor er hon-
um meira virði, Jessica eða Marilyji.
■ Jill Clayburgh (Marilyn) og Burt Reynolds (Phil) i „önnur
tilraun”.
■ Arið 1978 hlaut Jill Clay-
burgh verðlaun fyrir besta
leik i kvenhlutverki á kvik-
myndahátiðinni i Cannes fyrir
„An Unmarried Woman” sem
Paul Mazusky leikstýrði. Sú
mynd sagði frá giftri konu,
sem skyndilega sá skilnað
blasa við sér, og viðbrögðum
hennar og reynslu eftir
skilnaðinn.
„önnur tilraun”, sem nú er
sýnd i Háskólabió, var gerð
árið eftir, 1979, og er nánast
endurtekning á fyrri mynd-
inni, nema hvað hlutverkum
er breytt. Nú er fylgst með ný-
skildum karlmanni, og Jill
Clayburgh leikur ekki frá-
skildu konuna heldur þá ó-
giftu, sem nælir að lokum i
karlmanninn.
En þótt þannig sé augsýni-
lega veriðaö nýta sér vinsæld-
ir „An Unmarried Woman”
viö gerð þessarar myndar, þá
breytir það engu um, að hún
hefur aö mörgu ieyti heppnast
mjög vel. Þar er fjallað um
viðkvæm vandamál, skilnað
og áhrif hans á þá, sem i
skilnaðinum lenda, og nánustu
vini og vandamenn, af skiln-
ingi og glettni. Myndin er fyrst
og fremst létt og skemmtileg,
en ber þess þó oft merki, að
hún miðast við bandariskar
aðstæður. Jill Clayburgh og
Candice Bergen fara mjög vel
með hlutverk sin, og Burt
Reynolds tekst furðanlega að
smeygja sér úr hefðbundnu
kvikmyndahlutverki sinu.
—ESJ.
Elias
Snæland
Jónsson .
skrifar
* * önnur tilraun
X Eilifðarfanginn
★ Hvell-Geiri
¥ Góðir dagar gleymast ei
★ ★ ★ Stjörnustrið II
★ Jón Oddur og Jón Bjarni
★ ★ örtröð á hringveginum
★ ★ Flótti til sigurs
★ ★ ★ Útlaginn
Stjörnugjöf Tímans
* * *• * frábær • * ★ ★ mjög: góð - * * góð ■ * sæmlleg ■ O léleg