Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 11

Tíminn - 13.01.1982, Blaðsíða 11
Miövikudagur 13. janúar 1982. ÞAU SPÁ... Gunnar Askell Jósteinn Sigurdór Ómar Jón Einar Björgvin Agnes Atli Kristinn Sigurbergur. „Það er vænlegra að veðja á Tottenham” — segir Atli Magnússon sem spáir þeim sigri gegn Middlesboro Gunnar Páll Ingólfsson hliómlm. „Þetta er erfiður leikur og getur farið á hvorn veginn sem er en ætli ég spái ekki jafntefli i leik Birmingham og Everton”. Áskell Þórisson blaða- maður: „Ég hef trú á þvi að West Ham vinni þennan leik gegn Brighton þó að þeir leiki á úti- velli”. Jósteinn Kristjánsson framkv.stj.: „Ætli þessum leik verði ekki frestað eins og svo oft hefur komið fyrir undanfarið en mað- ur verður að hafa varnagla ef þeir nú myndu leika þennan leik Leeds og Swansea og spái þvi að Leeds vinni.” Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður: „Það þýðir nú ekkert að tala um það að Wolves vinni Liver- pool þó að þeir leiki i minum búningi (Skagabúningnum) þá hafa þeir verið lélegír undan- fariðog ég spái þvi að Liverpool vinni þennan leik.” Ómar Ragnarsson fréttamaður: „Ég set prikið mitt á United þeir komast ekki upp með það að fara að slaka neitt á og tel ég að þeir vinni Coventry.” Jón Skaftason borgar- fógeti: „Ég er nú frekar litið fyrir að spá jafntefli i leikjum og hef hugsað mér að spá Aston Villa sigri gegn Notts. County þó að þeir leiki á útivelli.” Einar Bollason kenn- ari: „Southampton vinnur þennan leik gegn Nottingham Forest þeir eru með miklu betra lið og Forest á ekki möguleika gegn þeim.” Björgvin Schram for- stjóri: „Stoke eru sterkir á heima- velli og ég tel að þeir vinni Ars- enal á laugardaginn ef leikið verður.” Agnes Bragadóttir blaðamaður: „Auðvitað sigrar Ipswich þá hjá Sunderland þó' svo að Ips- wich leiki á útivelli og heldur þar með sinu striki á toppnum. Það horfir ekki gæfulega hjá Sunderlandliðinu og ég hef enga trú á að heimavöllurinn eigi að þessu sinni eftir að auka við stigafjölda þess. Annars er þessi spádómur þessar vikurnar óttalegt frat, þvi það er allt eins vist að þessum leik verði frestað og hlutkestið verði látið ráða um það hver úrslitin verða.” Atli Magnússon dag- skrárfulltrúi: „Það er vænlegra að veðja á Tottenham i þessum leik gegn Middlesboro enda leika þeir á heimavelli.” Kristinn Jörundsson bankamaður: „Man. City náði aðeins jafn- tefli gegn Stoke á heimavelli og þvi tel ég ekki miklar likur á þvi að þeir nái að sigra W.B.A. á heimavelli þeirra og segi að Al- bion fari með sigur af hólmi.” Sigurbergur Sigsteins- son kennari: „Guð minn almáttugur þetta er agalegur leikur. Ég spái heimasigri mér þykir hann lik- legri i þessum leik Sheffield W. og Blackburn.” Steve Archibald sést hér I harðri baráttu i leik meö Tottenham. Tveir nýir HEnn einu sinni gerði veðrið á Bretlandseyjum okkur stóran grikk i Getraunaleikn- um. Aðeins tveir leikir fóru fram sem voru á seðlinum og höfðu okkar spekingar þeir Illugi Jökulsson og Hannes Hafstein rangt fyrir sér. Tveirbætastþviinn i leikinn i stað þeirra og það eru þeir Kristinn Jörundsson og Sigur- bergur Sigsteinsson sem hafa báðir leikið knattspyrnu og ættu þvi öllum hnútum að vera kunnugir. Þau tiu sem fyrir voru spá þvi að nýju og nú er bara að sjá til með veðrið. — röp. Nafn 19 leikvika Leikir Spá 1. Gunnar Fáll Ingólfsson hljóml.m. <3) Brimingham-Evcrton X 2. Askell Þórisson blaöamaður (4) Brighton-West Ham 2 * 3. Jósteinn Kristjánsson framkvstj. (2) \ Leeds-Swansea 1 4. Sigurdór Sigurdórsson blaöamaður (6) Livcrpool-Wolves 1 5. ómar Ragnarsson fréttamaöur (7) Man. United-Coventry 1 6. Jón Skaftason borgarfógeti (2) Notts. C.-Aston Villa 2 7. Einar Bollason kennari (2) Southampton-Nottingham F. 1 8. Björgvin Schram forstjóri (2) Stoke-Arsenal 1 9. Agnes Bragadóttir blaöamaöur <2) Sunderland-Ipswich 2 10. Atti Magnússon dagskrárf. (2) Tottenham-Middlesboro 1 11. Kristinn Jörundsson bankamaöur (nýr) W.B.A.-Man. City 1 12. Sigurbergur Sigsteinsson kennari (nýr) Sheff. W.-Blackburn ' 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.