Fréttablaðið - 05.05.2008, Síða 8
5. maí 2008 MÁNUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
03
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Rekstrarvörustyrkir RV 2008
RV veitir árlega styrki til félaga og samtaka sem sinna þörfum samfélagsverkefnum og
leggja alúð við umhverfi sitt. Styrkirnir eru í formi vöruúttekta hjá RV sem styrkþegar
geta nýtt vegna reksturs eða til fjáröflunar.
Í ár verða veittir þrír rekstrarvörustyrkir og þurfa umsóknir um þá að berast á netfangið
styrkir@rv.is fyrir 18. maí nk.
Í umsókn skal gerð grein fyrir þeim félögum sem sækja um styrk og verkefnum sem njóta
eiga góðs af styrkveitingu.
Tilkynnt verður um val á styrkþegum þann 5. júní nk. á heimasíðu fyrirtækisins.
RV er sérhæft dreifingarfyritæki
sem sinnir þörfum fyrirtækja og
stofnana fyrir almennar rekstrar og
hreinlætisvörur.
RV leggur sérstaka áherslu á
heildarlausn hreinlætis- og
öryggismála, svo og hjúkrunarvörur
fyrir stofnanir og einstaklinga.
Fyrirtækið var stofnað 18.maí 1982.
RV á og rekur fyrirtækið RV Unique í
Rödekro á Suður-Jótlandi. RV Unique
þjónar viðskiptavinum í Danmörku og
Norður-Þýskalandi.
Nánari upplýsingar
á heimasíðu RV: www.rv.is
MÓTTAKA UMSÓKNA ER HAFIN
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ
Háskólinn á Akureyri
Lögfræði B.A. / M.L.
Kynntu þér nám við Háskólann á Akureyri
á www.haskolanam.is
ALÞJÓÐLEG ÁHERSLA
LOTUKENNSLA OG SÍMAT
FRAMÚRSKARANDI KENNARAR
LITLIR NÁMSHÓPAR
Sara Halldórsdóttir,
nemi á lokaári í B.A.-námi
Fór í einn vetur sem
skiptinemi til Kína
Vigdís Ósk Sveinsdóttir,
nemi í lokaári í M.L.-námi
Fulltrúi hjá
Lögmönnum Höfðabakka
Ingólfur Friðriksson,
B.A. í lögfræði 2006
Starfar hjá fastanefnd
Íslands í Genf
UMHVERFISMÁL Í forsíðuumfjöllun
bandaríska fréttavikuritsins News-
week um „umhverfismál og for-
ystu“ segir að þeir leiðtogar landa
heims sem vilji sýna og sanna að
þeim sé alvara með að vilja fram-
fylgja nútímalegri umhverfis-
verndarstefnu hefðu gott af því að
„líta í norður“ til Íslands.
„Á Íslandi, landi sem er betur
þekkt fyrir þorsk en nýjustu
umhverfistækni, koma 80 prósent
orkunotkunar frá endurnýjanlegum
orkugjöfum, vatnsafls- og jarðhita-
virkjunum,“ segir þar. Rakið er að
þetta sé afrakstur áratuga uppbygg-
ingar og nú vilji íslenska ríkisstjórn-
in flytja þessa þekkingu á nýtingu
endurnýjanlegra orkugjafa út.
Með stuðningi stjórnvalda séu
íslensk fyrirtæki að fara með sér-
þekkingu sína á þessu sviði til staða
eins og Djíbútí, Kína og Suður-Kali-
forníu.
„Þótt Ísland kunni með ríkuleg-
um náttúrulegum orkulindum
sínum og fáu íbúum að vera í ein-
stakri aðstöðu gætu leiðtogar ann-
arra þjóða fengið eina eða tvær
góðar hugmyndir með því að bóka
far til Reykjavíkur,“ skrifar
Newsweek.
Blaðið segir íslensku ríkisstjórn-
ina fjárfesta í rannsóknum sem
miða að því að efla sérþekkingu
Íslendinga á nýtingu endurnýjan-
legra orkugjafa. Hins vegar er sagt
vera spurningarmerki yfir því að
hve miklu leyti önnur lönd geti leik-
ið það eftir sem gert hefur verið
hér á landi, einkum að því er varðar
nýtingu jarðhita.
Í greininni er einnig rakið hvern-
ig umhverfismál og aðgerðir gegn
loftslagsbreytingum hafa stórlega
vaxið að mikilvægi í hugum kjós-
enda út um allan heim. Sú hugar-
farsbreyting þrýsti á stjórnmála-
leiðtoga, þar á meðal George W.
Bush Bandaríkjaforseta, að koma
sér upp „grænum trúverðugleika“.
audunn@frettabladid.is
Grænir leiðtog-
ar læri af Íslandi
Í nýjasta hefti vikuritsins Newsweek er athygli vakin
á árangri Íslands í nýtingu endurnýjanlegra orku-
gjafa og möguleikunum á útbreiðslu þessa árangurs.
GRÆN FORYSTA Íslenski forsætisráðherrann er hér í hópi „tíu lykilleikmanna“ í nýju
grænu heimsbyltingunni sem Newsweek segir að fylgjast beri með.
NORÐURLÖND Norðurlandaþjóðirn-
ar ætla að vinna saman að því að
finna lausn á vandamálinu með
erlenda sígaunabetlara í löndun-
um. Bo Lindroos, sendiráðsmaður
Finna í Stokkhólmi, hefur lagt til
að Norðurlandaþjóðirnar vinni
saman að því að þrýsta á Rúmen-
íu í gegnum Evrópusambandið, að
sögn Helsingin Sanomat.
Harmóníkuleikandi sígaunar
frá Rúmeníu flæða nú yfir Finn-
land og Svíþjóð og stöðugt fleiri
þeirra leita á náðir félagslega
kerfisins í Svíþjóð. Yfirvöld í lönd-
unum eru óánægð með þróunina,
sérstaklega vegna þess kostnaðar-
auka sem sígaunarnir valda félags-
lega kerfinu.
Borgaryfirvöld í Helsinki
hyggja á herferð í Rúmeníu til að
upplýsa íbúa þar um að betlarar
fái ekki félagslega aðstoð í Finn-
landi og að betlarabörn verði sett
á fósturheimili. - ghs
Norðurlönd bregðist við aðstreymi sígauna:
Vilja losna við betlarana
SPILA Á GÖTUM Sígaunar frá Rúmeníu
flæða yfir Svíþjóð og Finnland, leika þar
á hljóðfæri og þiggja peninga fyrir.
PAKISTAN, AP Hæstaréttardómar-
arnir sem Pervez Musharraf,
forseti Pakistans, rak úr
embætti á síðasta ári munu taka
við embættum sínum á ný 12.
maí næstkomandi.
Nawaz Sharif, sem er fyrrver-
andi forsætisráðherra og leið-
togi annars stærsta flokksins í
núverandi ríkisstjórn, skýrði frá
þessu að loknum löngum samn-
ingaviðræðum hans og Asifs Ali
Zardari, núverandi forsætisráð-
herra, um það hvernig hægt yrði
að hrinda þessu í framkvæmd.
Leiðin sem farin verður er sú,
að þingið samþykkir ályktun um
að dómararnir snúi aftur, og þá
getur forsætisráðherra sam-
dægurs veitt þeim embættin á
ný. - gb
Samkomulag stjórnarflokkanna í Pakistan:
Dómarar snúa aftur
PERVEZ MUSHARRAF Endurkoma reknu
dómaranna gæti gert honum ókleift að
sitja mikið lengur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP