Fréttablaðið - 09.06.2008, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 09.06.2008, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 9. júní 2008 13 Aseta ehf. | Tunguháls 19 | 110 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is Kom inn! UMRÆÐAN Árni Páll Árnason skrifar um Baugsmálið Sigurður Kári Kristjánsson, sessunautur minn á Alþingi, hefur lýst því að hann telji óeðli- legt að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingar- innar, hafi tjáð sig um niðurstöðu Hæstaréttar í Baugsmálinu í yfirlýsingu, því hún sé utanríkis- ráðherra og dómsmál ekki á for- ræði utanríkisráðuneytisins. Þetta er auðvitað fráleit röksemda- færsla. Baugsmálið hefur haft veruleg áhrif á íslenska þjóðmálaumræðu í sex ár og fá mál vakið jafn mikla athygli. Margir hafa verið þeirrar skoðunar að í þessu máli hafi lög- regla og ákæruvald farið offari. Nú þegar niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir, þar sem sú skoðun er staðfest, væri fullkomlega óeðli- legt ef allir stjórnmálamenn þegðu þunnu hljóði á þeirri forsendu að lögregla og dómstólar heyrðu undir dómsmálaráðherrann og hann einn mætti tjá sig um málið. Fjölmiðlar leituðu eftir afstöðu formanns Samfylkingarinnar eins og annarra stjórnmálaleiðtoga og hún kaus að svara þeim með því að gefa út yfir- lýsingu um sína afstöðu. Í yfirlýsingu formanns Samfylk- ingarinnar segir: „Víðfeðmasta opinbera rannsókn síðari ára, sem hófst í tilefni af tilteknum kredit- reikningi, hefur nú verið til lykta leidd í Hæstarétti Íslands eftir sex ára meðferð í réttarkerfinu sem kostað hefur ógrynni fjár. Hæsti- réttur veitti öllum sem komu að útgáfu þessa tiltekna reiknings sýnilega jafna og réttláta máls- meðferð. Bersýnilegt er að dóm- stólar kveða upp úr um að umfang rannsóknarinnar og ákæranna sem gefnar voru út upphaflega var alls ekki í samræmi við tilefnið. Óhjá- kvæmilega hljóta íslensk stjórn- völd að draga lærdóma af þessari útkomu.“ Það væri hægt að skilja uppnám Sigurðar Kára ef í yfirlýsingunni væri verið að deila við dómarann. Svo er ekki. Þvert á móti er þar lýst trausti á dómstólunum og tekið fram að þeir hafi veitt öllum jafna og réttláta málsmeðferð. Og hvað er það þá sem fer svona fyrir brjóstið á honum? Er það sú setn- ing að stjórnvöld eigi að draga lær- dóma af þessari útkomu? Það markar þá tímamót í íslenskum stjórnmálum ef það á að verða við- tekin regla að stjórnvöld og stjórn- málamenn eigi ekkert að læra af dómum Hæstaréttar og virða að vettugi þá leiðbeiningu sem fram kann að koma í dómum um með- ferð opinbers valds og réttindi borgaranna. Stjórnmálamenn eru ekki embættismenn Sigurður Kári tengir yfirlýsingu formanns Samfylkingarinnar við stöðu hennar sem utanríkisráð- herra og leggur út af þeirri stöðu á þann veg að þar sem dómsmál séu ekki utanríkismál eigi utanríkis- ráðherra ekkert með að tjá sig um niðurstöðu dómsins. Þetta er auð- vitað fráleit staðhæfing og sýnir mikinn misskilning á hlutverki stjórnmálamanna. Lærdómar af Baugsmálinu ÁRNI PÁLL ÁRNASON Eru formenn stjórnarflokkanna, utanríkisráðherra og forsætisráðherra, að fara út fyrir verk- svið sitt og inn á verksvið fjármála- ráðherra þegar þau ræða fjárlagaramma næsta árs? Og á þá Björn Bjarnason dómsmálaráðherra einn að mega tjá sig um Baugsmál- ið, af því það er dómsmál? Ein- hvern veginn slær sú kenning mann nokkuð skringilega. For- menn ríkisstjórnarflokka hafa auð- vitað fullt umboð til að tjá sig um hvaða álitamál sem er, rétt eins og formenn annarra flokka, óháð því hvaða ráðherraembættum þeir gegna. Formaður Samfylkingar- innar tjáir sig um öll þau pólitísku álitamál sem hún kýs að tjá sig um í umboði kjósenda Samfylkingar- innar og þingflokks hennar. Þar fyrir utan eru stjórnmálamenn ekki embættismenn sem starfa á tilteknu fagsviði, heldur fulltrúar kjósenda sinna og starfa í þeirra umboði. Þjóðfélagsleg álitamál verða aldrei flokkuð í hólf og stjórnmálamönnum skammtaður réttur til að tjá sig um þau. Hvaða lærdóma má draga? En hvaða lærdóma má svo draga af útkomu Baugsmálsins? Nefna má tvennt: Í fyrsta lagi að rannsóknarvald og ákæruvald sé ekki á sömu hendi í flóknum málum af þessum toga. Það fer ekki vel á því að lög- reglurannsókn sæti ekki sjálf- stæðri, gagnrýnni og óháðri athug- un hjá ákæruvaldinu, áður en ákæra er gefin út. Í nýsamþykkt- um lögum um meðferð sakamála, sem samin voru af réttar- fars nefnd, felst að ákæruvald í efnahagsbrotamálum verði flutt frá lögreglustjórum til sjálfstæðra héraðssaksóknara og aðskilnaður rannsóknar og saksóknar þannig betur tryggður. Í öðru lagi þarf að fara vel með mikið vald. Kreditreikningurinn sem markaði upphaf Baugsmáls- ins gaf greinilega fullt tilefni til rannsóknar og ákæru enda hafa þeir sem komu að útgáfu hans nú hlotið dóm fyrir aðild sína að honum. Í ljósi niðurstöðu Hæsta- réttar er hins vegar ekki hægt að horfa framhjá því að fátt bendir til að hann hafi gefið tilefni til þeirrar umfangsmiklu lögreglu- rannsóknar og saksóknar sem nú hefur staðið í sex ár og kostað til- tekna einstaklinga mikinn sárs- auka og fjármuni og íslenska skattborgara hátt í einn milljarð króna. Þeim mannauði og fjár- munum hefði án efa verið betur varið til að takast á við önnur brýnni úrlausnarefni í réttar- vörslukerfinu. Höfundur er þingmaður Samfylk- ingarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.