Fréttablaðið - 16.06.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Á heimili Evu Hrannar Hafsteinsdóttur eru kyn-
legar heimilisgyðjur sem hún hefur skapað.„Ég byrjaði að mála gyðjurnar í barneignaleyfi fyrir
sjö árum síðan og hef tekið nokkrar tarnir í þessu,“
segir Eva Hrönn, sem vill helst kalla sig lífslista-
mann. „Í fyrstu vann ég með þetta sérstak b
þegar ég var í myndlist kóleik
sjálfsmyndir þar sem ég var að tjá ólíkar hliðar á
sjálfri mér. Þetta var eftir að ég varð móðir og var
ég í raun að brjótast út sem kona,“ útskýrir Eva
Hrönn einlæg og líkir ferlinu við það þegar púpan
brýst út sem fiðrildi. Þettahvernig stúlk
Gyðjur og innri friður
Gyðjurnar sem hér gefur að líta vann Eva Hrönn árið 2005 þegar hún stóð á tímamótum í lífi sínu. Þá ákvað hún að hætta tíma-
bundið að vinna og málaði í heilt sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Pottablómin þarf að muna að vökva reglulega og líka þó að öll fjölskyldan fari burt í sumarfrí. Við þær aðstæður er nauðsynlegt að koma blóm-unum í fóstur eða fá einhvern til þess að koma og gefa þeim.
Gardínur getur verið skemmtilegt að hafa árstíðabundnar. Vera með sérstakar gardínur á veturna og aðrar á sumrin, setja upp jólagardínur á jólunum og páska-gardínur um páska. Oft þarf ekki meira til þess að allt virðist gjörbreytt.
Ruslaskápinn er tilvalið að hreinsa að innan með blautþurrkum sem hugsaðar eru til þess að þrífa klósett. Þar sem ruslið lendir stundum út fyrir fötuna er ágætt að nota eitthvað sótthreinsandi.
fasteignir 16. JÚNÍ 2008
Fasteignarsalan Húsanaust hefur til einkasölu
tæplega tvö hundruð fermetra endaraðhús í
Gvendargeisla.
H úsið er á tveimur hæðum m ðgóð i
Eldhús er með góðu skápaplássi og borðkrók. Bað-
herbergið er flísalagt með nuddbaðkari og góðri inn-
réttingu. Þvottahús er á neðri hæðinni.Á efri hæð er gott vinnurýmisvalir T
Góð lofthæð og garður
Úr stofunni er mikið og fallegt útsýni yfir Reykjavík og nágrenni.
PL 01 Svart PL 45 Silfur-
metallic
PL 20 Dökk Grá PL 22 Dökk Rauð PL 56 Dökk brún PL 42 Rauðbrún PL 80 Hvítt PL 55 Kopar -
metallic Aluzink Kopar
Fr
u
m
ÞAKRENNUKERFIá öll hús – allsstaðar
Úrval lita á lager
Það er engin ástæða til að horfa á h i
í svarthvítu SIBA ÞA
Létt í meðf
örum lang
ódýrast
Nú fer hver
að verða
síðastur
að ná sér í
Blaðbera
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
16. júní 2008 — 162. tölublað — 8. árgangur
STYRKTU ÁTAKIÐ!
Við höfum
opnað fyrir
söfnunar-
númerin
Bein útsending á föstu-
daginn á SkjáEinum
903 1000
903 3000
903 5000
10 12
10
10
14
HVASST Í dag verða norðaustan
13-18 m/s norðvestan til, annars
víða 8-13. Þurrt að mestu vestan til,
rigning austan og suðaustan til ann-
ars smá skúrir. Hiti 10-16 stig hlýjast
til landsins suðvestan til.
VEÐUR 4
Lífið var annað hvort
diskó eða pönk
Þorlákur Axel Jónsson fagnar
tuttugu og fimm ára útskriftar-
afmæli frá MA.
TÍMAMÓT 16
FASTEIGNIR
Á tveimur hæðum og
með timburverönd
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Pípari rekur
Rask-At
Stefán Sveinsson
einbeitir sér ekki
að klósett-
viðgerðum.
FÓLK 30
Stjörnugolf fyrir Neista
Þjóðþekktir Ís-
lendingar lemja
kúlurnar áfram
fyrir gott
málefni.
FÓLK 30
EVA HRÖNN HAFSTEINDÓTTIR
Gyðjurnar brjótast út
eftir ýmsum leiðum
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
UTANRÍKISMÁL Lítil viðbrögð urðu við hvalveiðum
Íslendinga innan Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og erfitt
að sjá að þær skaði framboð Íslands til öryggisráðs
SÞ. Hins vegar var mikið rætt um ísbjarnar drápið í
Skagafirði við fulltrúa Íslands hjá SÞ.
„Það hefur enginn talað um hvalveiðar við mig
eftir að hrefnuveiðar hófust á ný,“ segir Hjálmar W.
Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá
SÞ. Einhverjir hafi þó minnst á hvalveiðimálið við
samstarfsfólk hans hjá fastanefndinni.
„Hins vegar vakti hvítabjörnsdrápið mikla
athygli. Það voru margir sem komu að máli við mig
og þótti þetta hið undarlegasta mál,“ segir Hjálmar.
Hjálmar segir mynd af mönnum með riffla við
blóðugan ísbjörn slæma fyrir ímynd fyrir Ísland og
drápið hafi farið fyrir brjóstið á mörgum innan SÞ.
Hann segist þó hvorki hafa trú á því að ísbjarnar-
málið né hrefnuveiðar muni hafa neikvæð áhrif á
framboð Íslands.
Meira varð úr ísbjarnardrápinu vegna þess að
mynd af ísbirni prýddi forsíðu vikuritsins
Newsweek nokkrum dögum áður en Skagfirðingar
vógu björninn. Þar voru ísbirnir notaðir sem dæmi
um dýr í útrýmingarhættu.
Kosið verður í október milli Ís lands, Tyrklands og
Austurríkis um tvö sæti í öryggisráðinu. - bj
Ekki talið að ísbjarnardráp eða hvalveiðar hafi áhrif á öryggisráðsframboð Íslands:
Meira rætt um ísbjörn en hvali
SJÁVARÚTVEGUR Mörg útgerðar-
fyrirtæki bregðast nú við hækkun
eldsneytisverðs með því að gera
breytingar á skipum sínum svo að
þau brenni svartolíu í stað skipagas-
olíu. Meðal þeirra er Eskja, sem
hefur látið koma fyrir búnaði í
skipinu Aðalsteini Jónssyni SU í
þessum tilgangi. „Þetta er það
útspil sem við getum leikið gegn
hækkandi olíuverði,“ segir Haukur
Björnsson, framkvæmdastjóri
Eskju. „Stundum er svart olía
reyndar ekki svo mikið ódýrari en
skipagasolía en eins og staðan er
nú getur þetta sparað okkur um 70
til 100 þúsund á sólar hring.“
Nú er verið að gera slíkar
breytingar á skipinu Álsey í eigu
Ísfélagsins í Vestmannaeyjum.
„Svo er verið að kanna hvort hægt
sé að gera slíkar breytingar á
öðrum skipum,“ segir Hörður
Óskars son, fjármálastjóri Ísfélags-
ins. Hann segir að hugsanlega geti
þetta þó þýtt hærri útgjöld vegna
viðhalds. Sams konar breytingar
verða einnig gerðar á tveimur
skipum Brims í haust, að sögn
Guðmundar Kristjánssonar for-
stjóra.
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu hafa árleg útgjöld
útgerðarfyrirtækjanna í landinu
þrefaldast á fjórum árum. „Árið
2004 borguðu útgerðarfyrirtækin
sex milljarða í eldsneytiskostnað
en samkvæmt mínum útreikningum
er þessi kostnaður um átján
milljarðar í dag,“ segir Sveinn
Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
hjá LÍÚ. Hann segir að fyrir fjórum
árum hafi um átta prósent af
tekjum fyrirtækjanna farið í elds-
neytiskostnað en í dag sé hlutfallið
um 22 prósent.
Haukur Björnsson hjá Eskju sér
þó einnig spaugilegu hliðarnar á
ástandinu. „Olíureikningarnir eru
orðnir svo háir að við þurfum eigin-
lega áfallahjálp í hvert sinn sem
við fáum þá senda. Það ætti eigin-
lega að senda einn prest með þeim.“
- jse
Útgerðir skipta yfir í
svartolíu til að spara
Eldsneytiskostnaður útgerðarfyrirtækja hefur þrefaldast á fjórum árum.
Útgerðir skipta nú úr skipagasolíu yfir í svartolíu til að draga úr kostnaði.
BRUNI Engan sakaði þegar eldur
kviknaði í rúmdýnu á efri hæð
einbýlishúss á Eyrarbakka í
gærkvöldi. Átta ára drengur var í
herberginu þegar eldurinn
kviknaði, líklega út frá rafmagni.
„Það er skrítið ský í herberginu
mínu,“ tilkynnti drengurinn
foreldrum sínum eftir að hafa
flúið reykinn niður stigann.
Gestkomandi maður tók þá til
sinna ráða og slökkti eldinn með
vatni úr garðslöngu.
Slökkvilið reykræsti húsið og
hreinsaði upp vatn. Að sögn
varðstjóra lögreglu á Selfossi
myndast hættulegur reykur sem
getur innihaldið blásýru þegar
svampur eins og sá sem var í
dýnunni brennur. - sh
Eldur í rúmdýnu lítils drengs:
Skrítið ský var
eitraður reykur
UTANRÍKISMÁL Ólafi Ragnari
Grímssyni hefur verið boðið að
halda erindi í Columbia-háskóla í
Bandaríkjunum
í haust. Erindi
Ólafs verður
hluti af funda-
röð skólans þar
sem erlendir
þjóðarleiðtogar
hafa rætt
heimsmálin.
Örnólfur
Thorsson
forsetaritari
segir að Susan
Fuhrman, rektor kennaraskóla
Columbia-háskóla, hafi borið Ólafi
boð forseta skólans, Lee C.
Bollinger. Ólafur Ragnar hefur
ekki svarað erindinu, en Örnólfur
segir allar líkur á því að hann taki
þátt.
Athygli heimsins beindist að
fundaröð háskólans þegar
Mahmoud Ahmadinejad, forseti
Írans, hélt erindi í september í
fyrra. Þar hélt hann því meðal
annars fram að samkynhneigð
fyrirfyndist ekki í Íran. - bj
Forseta boðið til Columbia:
Ólafur í kjölfar
Ahmadinejads
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
Ekki með á HM
Sex marka
sigur Íslands
á Makedóníu
nægði ekki
fyrir farseðli til
Króatíu.
ÍÞRÓTTIR 25
VEÐRIÐ Í DAG
LANDGANGURINN KLIFINN Farþegar biðu í röð eftir að komast af íslenskri foldu og aftur um borð í skemmtiferðaskipið AIDA frá
Genúa á Ítalíu sem lá við festar í Reykjavíkurhöfn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI