Fréttablaðið - 24.06.2008, Síða 18
[ ]
Samstilltur flokkur frískra kvenna hittist reglu-
lega klukkan níu á hverjum morgni í Hreyfingu í
Glæsibæ og tekur á í klukkutíma í ræktinni. Sum-
ar hafa haldið hópinn í yfir tuttugu ár og alltaf
æft í stöðvum Ágústu Johnson.
„Hér er ekki í boði að sofa yfir sig eða skrópa í marga
daga. Ef einhverja vantar er hringt í hana til að athuga
af hverju hún mæti ekki,“ segir Auður Tryggvadóttir
hlæjandi. Hún er ein af föstum þátttakendum í „níu“-
tímunum í Hreyfingu sem blaðamaður hitti þar á
staðnum einn föstudagsmorgun eftir fjörugan dans-
tíma hjá Kristni Mána Þorfinnssyni. „Við sleppum
aldrei tímum hjá honum,“ segir ein kvennanna. Hann
er líka ánægður með gellurnar sínar. „Þetta er flinkasti
níuhópur á Íslandi ef ekki í veröldinni,“ segir hann og
bætir við: „Þar er aldrei stigið feilspor.“
Hópurinn hefur haldið saman lengi, sumar í meira en
tuttugu ár, og alla tíð hist í stöðvum Ágústu Johnson.
Margar hafa hætt í tímans rás því þeim hefur dottið sú
fjarstæða í hug að fara að vinna á morgnana eins og
vinkonurnar orða það. Aðrar hafa hætt að vinna til að
geta stundað ræktina reglulega og nýjar hafa bæst við.
Konurnar segja níutímana fjölbreytta, „Það eru
danstímar, pallatímar, jóga og spinning og stundum er
lóðum lyft,“ lýsa þær og segjast yfirleitt fara í kaffi -
stofuna á eftir til að fá sér hressingu. Einu sinni í
mánuði koma þær með bakkelsi og leggja á borð og
síðan fara uppskriftir á milli á netinu á eftir. „Við
tölum voða mikið um mat,“ segja þær hlæjandi. „Einn
af kostunum við að vera í líkamsrækt er að maður má
borða líka. Það er stór hluti af ánægjunni. Svo hittumst
við líka utan stöðvarinnar, förum í leikhús, spa, dekur
og út að borða.“ segja þær.
En skyldu konurnar ganga að sínum pöllum og
tækjum vísum þegar þær koma í stöðina? „Já, við
helgum okkur viss stæði,“ segir ein. „Það er gott að
geta verið alltaf á sama stað, þá ruglast maður síður í
því hvað er vinstri og hvað er hægri! Maður er líka svo
vana fastur,“ segir önnur glaðlega og sú þriðja bætir
við: „Já, það er alltaf gott að hafa fundið sína fjöl.“
gun@frettabladid.is
Aldrei stigið feilspor
Níuhópurinn spræki: Anna María Petersen, Svandís Kristian-
sen, Bryndís Lúðvíksdóttir, Jóna Lár, Halldóra Baldvinsdóttir,
Anna Lár, Unnur Ólafsdóttir, Ásrún Guðmundsdóttir, Laufey
Hauksdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sólrún Óskarsdóttir,
Hlín Pálsdóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir, Kristín Vigfúsdóttir með
barnabarnið Kristínu Sölku Auðunsdóttur, Auður Tryggvadóttir
og Helga Arnþórsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er ekkert gefið eftir í
pallaæfingunum hjá Kristni
Mána í Hreyfingu í Glæsibæ.
FR
ÉT
TA
B
LA
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Rúm er húsgagn sem við notum á hverjum degi. Nauðsynlegt
er að vanda valið á rúmi, því svefninn er svo dýrmætur fyrir
heilsuna. Svefninn endurnærir og gerir okkur kleift að takast á
við daginn.
Höf›abakka 9 (sama hús og Hreyfigreining)
• Brasilískt súkkula›ivax
• Frábærar líkamsme›fer›ir sem losa flig
vi› appelsínuhú›, slit og slappa hú›!
• Leirvafningar, andlitsme›fer›ir,
för›un og fleira
• FRÁBÆR TILBO‹
Panta›u tíma í síma 557 3939
• Brasilískt súkkulaðivax
TILBOÐ: 4800 kr áður 5800 kr
• Frábærar líkamsmeðferðir sem losa þig
við appelsínuhúð, slit og slappa húð!
• FRÁBÆR TILBOÐ
Pantaðu tíma í síma 557 3939
HEYRNARÞJÓNUSTA
Við bjóðum fullkomnustu heyrnartækin frá danska framleiðandanum ReSound
Heyrnarþjónustan Heyrn ehf. Hlíðasmára 11. 201 Kópavogur. Sími 534 9600. netf: heyrn@heyrn.is
* Hágæða heyrnartæki með vindvörn
* Fyrstu hlaðanlegu heyrnartækin
* Einföld og þægileg í notkun
Tímapantanir í síma 534-9600
* Heyrnarþjónusta
* Heyrnarmælingar
* Heyrnartæki
* Ráðgjöf
Azure er nýjasta og háþróaðasta heyrnartæki
sem ReSound framleiðir.
Hugmyndin að baki Azure heyrnartækinu er að heyrn með því
verði eins eðlileg og frekast er unnt. Kristaltær tónn án takmarkana
og ama fyrir notandann - rétt eins og hann á að vera.
Azure flokkar ekki það sem notandinn fær að heyra og takmörkuð
stærð tölvuforrita afmarkar ekki hljóðvinnslu þess.
Nánari upplýsingar á www.heyrn.is
AZURE EFLIR HEYRN Á EÐLILEGAN HÁTT