Fréttablaðið - 30.07.2008, Síða 8
8 30. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
KASTALI SEM S
EGIR KEX!
FYRIR FLOTTAS
TA KASTALANN
ER GLÆSILEG
ÆVINTÝRAFER
Ð TIL ORLANDO
Í VERÐLAUN.
www.n
athan.is
1 Hve margir jarðskjálftar
fundust á Grímseyjarsvæðinu á
mánudaginn?
2 Hve mörg hús er gert ráð
fyrir að víki fyrir nýja Listahá-
skólanum?
3 Hvaða þekkti kokkur lenti í
lífsháska í Vestmannaeyjum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
BANDARÍKIN, AP Næsti forseti
Bandaríkjanna tekur við tæplega
fjörutíu þúsund milljarða króna
halla á ríkissjóði Bandaríkjanna,
samkvæmt áætlunum Bandaríkja-
stjórnar.
Hallinn er sá mesti í sögu Banda-
ríkjanna í krónum talið. Hallinn
varð þó stærra hlutfall landsfram-
leiðslunnar sum árin á níunda og
tíunda áratugnum.
Hallinn skýrist meðal annars af
lægri skatttekjum vegna stöðnun-
ar í efnahagslífinu og skattalækk-
ana og af styrkjum til heimila sem
ætlað er að hleypa lífi í efnahag-
inn.
Hallinn er raunar vanmetinn í
áætlun Bandaríkjastjórnar. Utan
hennar fellur tæplega sjö þúsund
milljarða króna stríðskostnaður
og kostnaður vegna björgunar
fjármálafyrirtækjanna Fannie
Mae og Freddie Mac.
Demókratar á Bandaríkjaþingi
hafa gagnrýnt fjármálastjórn rík-
isstjórnar George W. Bush Banda-
ríkjaforseta.
Bush tók við góðu búi árið 2001
eftir tíu ára hagvaxtarskeið og
þriggja ára afgang á rekstri ríkis-
sjóðs. Halli var hins vegar á
rekstri ríkissjóðs árið 2002 sökum
skattalækkana, hægara efnahags-
lífs og stríðskostnaðar. - gh
Halli á rekstri ríkissjóðs Bandaríkjanna fjárlagaárið 2008 fjörutíu þúsund milljarðar:
Methalli í Bandaríkjunum
BARACK OBAMA OG JOHN MCCAIN Næsti forseti Bandaríkjanna tekur við erfiðu búi
árið 2009. NORDICPHOTOS/AFP
ÚTIVIST „Sumarið hefur verið
óvenjugott, einkum á Suður- og
Vesturlandi, og þá eru berin fyrr
á ferðinni en í venjulegu ári,“
segir Hörður Kristinsson grasa-
fræðingur.
Hörður segir marga þætti
þurfa að vinna saman til þess að
stuðla að góðri berjasprettu.
„Viss skeið í blómgun plantna
geta verið mjög viðkvæm fyrir
skakkaföllum svo sem frostköfl-
um og einnig þarf til hlýtt og sól-
ríkt sumar,“ segir Hörður.
Þurrkar geta valdið lakari
berjasprettu en ella. „Eftir mjög
þurr sumur geta komið fram
ágæt ber á vissum stöðum þar
sem jarðraki er mikill en lítið
þess á milli.“
Snjólega á vorin skiptir miklu
máli, einkum fyrir aðalbláber, að
sögn Harðar. „Aðalbláber finnast
venjulega hvergi þar sem ekki er
snjóþungt yfir vetrartímann.“
Hörður segir bláberin venju-
lega ekki vera orðin að megin-
hluta vel þroskuð fyrr en í kring-
um 20. ágúst. Fyrr sé þó hægt að
tína þroskuð ber sem finnist inn
á milli verr þroskaðra berja.
„Þroskuð ber má þó finna fyrr
við góðar aðstæður og þau eru
fyrr á ferðinni þegar tíðarfarið
er gott.“
- ht
Gott tíðarfar, einkum sunnan- og vestanlands í sumar, flýtir fyrir berjasprettu:
Bláberin fyrr á ferðinni í ár
Í BERJAMÓ Yfirleitt má gera ráð fyrir því
að meginhluti berja sé orðinn nógu
þroskaður til að hægt sé að fara í berja-
mó í kringum 20. ágúst.
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti gaf á mánudag
leyfi sitt til að hermaður verði
tekinn af lífi. Þetta er í fyrsta sinn í
meira en hálfa öld sem Bandaríkja-
forseti staðfestir dauðadóm yfir
hermanni.
Hermaðurinn, sem heitir Ronald
A. Gray, var sakfelldur fyrir fjögur
morð og átta nauðganir, sem hann
framdi fyrir um tuttugu árum.
Bandarísk lög kveða svo á að
ekki megi taka hermenn af lífi
nema forseti gefi til þess leyfi.
Síðast veitti Dwight Eisenhower
slíkt leyfi árið 1957 og var sá
hermaður tekinn af lífi árið 1961.
- gb
Bush Bandaríkjaforseti:
Heimilaði af-
töku hermanns
RONALD A. GRAY Fyrsta aftaka her-
manns í hálfa öld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRUNI Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins hafði talsverðan
viðbúnað þegar tilkynnt var um
eld í húsnæði Efnalaugarinnar
Fannar í Skeifunni síðdegis í gær.
Betur fór þó en á horfðist og ekki
logaði nema lítillega í þaki
hússins.
Slökkvilið rauf gat á þakið til að
slökkva eldinn, sem talið er að
kviknað hafi út frá reykröri, sem
er eins konar strompur, að sögn
varðstjóra slökkviliðs.
Mikill eldsmatur er í húsinu og
því sendi slökkviliðið tvo bíla á
staðinn. Einungis tók hálfa
klukku stund að slökkva eldinn
sem olli litlum skemmdum. - sh
Eldur í Skeifunni í Reykjavík:
Kviknaði í þaki
út frá strompi
REYKJAVÍK Ólöf Guðný Valdimars-
dóttir, fyrrum aðstoðarmaður
borgarstjóra, verður látin víkja úr
skipulagsráði Reykjavíkurborgar.
„Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri hafði samband og tjáði mér
að ég nyti ekki lengur trausts
hans,“ segir Ólöf. „Því myndi
hann tilnefna annan fulltrúa í
ráðið í minn stað.“
Ólöf segir Ólaf hafa vísað til
ummæla hennar um að hún teldi
ekki tímabært að taka afstöðu til
vinningstillögu vegna nýbygging-
ar Listaháskóla Íslands.
Ólöf reiknar með að borgar-
stjóri óski einnig eftir að hún víki
sem stjórnarmaður hjá Faxaflóa-
höfnum. „Ég hef ekki frekari
áhuga á að sitja sem hans fulltrúi
í nefndum og ráðum.“
Ólöf kveðst ekki ósátt við mála-
lok undir þessum kringumstæð-
um. „Mér finnst þó með ólíkind-
um hvernig þetta hefur borið
að.“
Skipulagsráð borgarinnar átti
að funda í dag en þeim fundi var
frestað. Helga Laxdal, lögfræð-
ingur á skipulags- og bygginga-
sviði, segir að það sé vegna flutn-
inga sviðsins milli staða en ekki
vegna mannabreytinga í ráðinu.
Borgarstjóri mun á næsta borg-
arráðsfundi leggja fram tillögu
um að Magnús Skúlason, fyrrver-
andi formaður Húsafriðunar-
nefndar, taki sæti Ólafar Guðnýj-
ar. „Ég vænti mikils af hans
störfum,“ segir Ólafur en vildi
ekki tjá sig um brotthvarf Ólafar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður borgarráðs, segir að ekki sé
vani að kjörnir fulltrúar leggist
gegn því hverjir sitja fyrir hönd
annarra flokka í ráðum og nefnd-
um á vegum borgarinnar.
„Það er ekki óvanalegt að gerðar
séu breytingar á skipan fulltrúa í
einstaka ráð og nefndir,“ segir Vil-
hjálmur. „Þarna er um að ræða
fulltrúa F-lista og ef sá flokkur vill
gera breytingar er ávallt orðið við
slíkum óskum.“
Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi
Vinstri grænna í borgarráði,
kveðst ekki vita dæmi þess að fólk
hafi þurft að víkja fyrirvaralaust
þegar skoðanaágreiningur komi
upp. „Þetta lítur út fyrir að vera
óyfirveguð ákvörðun sem er ekki
það sem borgin þarf.“
Ólöf lét af störfum sem aðstoðar-
maður borgarstjóra um síðustu
mánaðamót en sagði borgarstjóra
þá hafa farið þess á leit við hana að
hún sæti áfram í skipulagsráði.
„Það er málefni samstarfsflokks-
ins og borgarstjóra hverjir skipað-
ir eru fyrir þeirra hönd í nefndir
og ráð,“ segir Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir, formaður skipulagsráðs.
Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig
um málið. helgat@frettabladid.is
Ólöf Guðný vill ekki sitja
áfram í skjóli borgarstjóra
Fyrrverandi aðstoðarkona borgarstjóra telur með ólíkindum hvernig það bar að, að borgarstjóri ákvað að
tilnefna annan fulltrúa til setu í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar. Ólafur F. Magnússon vill ekki tjá sig.
ÓLÖF GUÐNÝ VALDIMARSDÓTTIR Fyrrverandi aðstoðarkona Ólafs F. Magnússonar víkur úr skipulagsráði eftir næsta borgarráðsfund.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég hef ekki frekari áhuga
á að sitja sem hans full-
trúi í nefndum og ráðum.
ÓLÖF GUÐNÝ VALDIMARSDÓTTIR
FYRRUM AÐSTOÐARKONA BORGARSTJÓRA
VEISTU SVARIÐ?