Fréttablaðið - 30.07.2008, Síða 10
10 30. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
KÍNA Kínversk stjórnvöld hafa ekki
staðið við loforð um að bæta mann-
réttindaástandið í landinu. Þvert á
móti hefur ástandið versnað.
Þetta fullyrða mannréttindasam-
tökin Amnesty International í nýrri
skýrslu og hvetja þar leiðtoga ann-
arra ríkja til að gagnrýna Kína.
Árið 2001, þegar Alþjóða ólymp-
íunefndin ákvað að Ólympíuleikar
skyldu haldnir í Kína árið 2008,
gáfu kínverskt stjórnvöld hátíðleg
loforð um bót og betrun í mannrétt-
indamálum.
Amnesty International hefur
síðan fylgst grannt með því hvort
við þessi loforð verði staðið og eink-
um skoðað fjögur svið mannrétt-
indamála sem varða sérstaklega
hugsjónir Ólympíuleikanna: dauða-
refsingu, misnotkun á refsivarð-
haldi, ofsóknir á hendur baráttu-
fólki og ritskoðun fjölmiðla.
Samtökin segja að undanfarið
hafi þúsundir manna verið hand-
teknir fyrir þær sakir einar að
hafa krafist mannréttinda og
umbóta í landinu. Margir þeirra
hafi verið dæmdir í nauðungar-
vinnu, jafnvel án réttarhalda.
Dæmi er tekið af Huang Qi, sem
var handtekinn fyrr í þessum mán-
uði og sakaður um að hafa ríkis-
leyndarmál í fórum sínum.
Amnesty telur að raunveruleg
ástæða handtökunnar sé störf hans
við að aðstoða fjölskyldur barna,
sem fórust í jarðskjálftanum mikla
í maí, við að höfða mál gegn stjórn-
völdum.
Þá eru fjölmiðlar enn ritskoðaðir
af fullri hörku og erlendir frétta-
menn hafa sumir hverjir sætt
ofsóknum af hálfu stjórnvalda.
Ekki er annað að sjá en að stjórn-
völd ætli að hindra fréttaflutning
af öllu, sem þau meta óæskilegt eða
viðkvæmt, meðan á Ólympíuleik-
unum stendur.
Samtökin fagna því reyndar að
nokkrar framfarir hafi orðið á sviði
dauðarefsinga, en þær framfarir
séu þó afar takmarkaðar.
Liu Jianchao, talsmaður utanrík-
isráðuneytis Kína, andmælti skýrsl-
unni í gær og sagði að þeir „sem
þekkja Kína muni ekki vera sam-
mála þessari skýrslu“.
Í skýrslunni gagnrýna samtökin
einnig Alþjóða ólympíunefndina
fyrir tregðu hennar til að gagn-
rýna kínversk stjórnvöld. Enn
fremur eru leiðtogar annarra
ríkja, þar á meðal þeir leiðtogar
sem ætla að fara á Ólympíuleik-
ana, hvattir til að beita Kínverja
þrýstingi og láta áhyggjur sínar í
ljós opinberlega.
gudsteinn@frettabladid.is
Kínverjar hafa ekki
staðið við loforðin
Ástand mannréttindamála hefur ekki batnað í Kína í aðdraganda Ólympíuleik-
anna, þrátt fyrir gefin loforð. Önnur ríki hvött til að gagnrýna Kína.
Svarta gullið er rándýrt, þetta vita allir
af biturri reynslu. Öll olíufélögin bjóða
þó afslætti gerist maður tryggur
viðskiptavinur þeirra. Svokallaðir
greiðslulyklar eru í boði hjá
flestum olíufélögum og gefa þeir
tvær krónur í afslátt af hverjum
lítra. Hægt er að hækka afsláttinn
upp í þrjár krónur fái maður
sér fyrirframgreitt kort.
En skiptir þessi afsláttur
einhverju máli? Tökum dæmi.
Miðum við bíl sem eyðir 10
lítrum á hundraðið og keyrður er
15.000 kílómetra á ári. Í því dæmi
þarf að kaupa 1.500 lítra af bensíni.
Með tveggja krónu afslætti er
sparnaðurinn 3.000 krónur á ári,
4.500 krónur með þriggja krónu
afslætti. Kannski ekki mikill
sparnaður, en eitthvað þó! Þess
ber þó að geta að margir keyra
mun minna en 15.000 km á ári og
eru á sparneytnari bíl. Þar af
leiðandi er sparnaðurinn í mörgum
tilfellum mun minni en þetta.
Afsláttur olíufyrirtækja:
Þrjú þúsund kall á ári
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI neytendur@frettabladid.is
Á TORGI HINS HIMNESKA FRIÐAR Hermaður fylgist með kínverskum ferðamönnum sem sitja á bekk í Peking. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LEITAÐ Á VEGFARANDA Indverskur
lögreglumaður í Srinagar í Kasmír-
héraði lyftir að gamni sínu vegfaranda
meðan á aðgerðum lögreglu stóð.
Vegfarendur voru stöðvaðir og leitað
á þeim af ótta við fleiri sprengjuárásir.
NORDICPHOTOS/AFP
AKUREYRI „Þetta er bara hið besta mál. Við
munum láta þetta standa yfir verslunar-
mannahelgina,“ segir Sigrún Björk Jakobs-
dóttir, bæjarstjóri Akureyrar. „Á svona
góðviðrisdegi er ekki hægt annað en að vera
ánægður með þetta. Fólk hefur verið að
setjast í sólbað og hafa það gott,“ segir
Sigrún.
Þökur voru lagðar á hellulagt Ráðhústorg-
ið á Akureyri í gærnótt. „Við vorum sex
sem gerðum þetta,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, verslunareigandi og sá sem
skipulagði verkið. Hann segir að fjölga
þurfi grænum svæðum á Akureyri því þeim
hafi fækkað töluvert undanfarin ár.
Ákveðið var á fundi hjá innanbúðarfólki
hjá Akureyrarbæ að þökurnar fengju að
standa fram yfir helgina. „Líklega verður
þetta tekið niður eftir helgina því það var
ekkert búið að undirbúa undirlagið eða
niðurföll. Þökurnar voru bara settar beint
ofan á stéttina,“ segir Sigrún.
Hún útilokar þó ekki að þetta gæti verið
til frambúðar. „Akureyringar hafa lengi
haft áhuga á því að gera torgið grænt
aftur,“ segir Sigrún en nokkuð er síðan
hellulagt var yfir grænt Ráðhústorgið.
Setja átti upp stórt hringsvið á Ráðhús-
torgið um verslunarmannahelgina sem
getur ekki staðið á grasinu og verður því
flutt um set.
- vsp
Túnþökur voru lagðar yfir Ráðhústorgið á Akureyri um niðdimma nótt:
Þökur fá að standa fram yfir helgi
RÁÐHÚSTORGIÐ Farið var í sólbað á grasilögðu Ráðhús-
torginu í gær og góða veðursins notið til hins ýtrasta.
MYND/SINDRI
ORKUMÁL Hafist var handa í
fyrradag við að bora fyrstu
tilraunaholuna í leit að heitu vatni
við austanverðan Þorskafjörð að
því er fram kemur á vef Reyk-
hólahrepps. Er það gert með
fimm milljóna króna framlagi
Orkuráðs. Hófst leitin við
Skiphöfða í landi Hlíðar.
Að því er segir á reykhólar.is
verður borað niður á fimmtíu
metra dýpi til að byrja með og
niðurstaðan metin. „Ef leitin ber
þann árangur sem vonast er til
munu Hofsstaðir, Kinnarstaðir og
Hótel Bjarkalundur njóta góðs af
heita vatninu. Ekki síst myndi
hitaveita létta rekstur Bjarka-
lundar verulega,“ segir á
reykholar.is. - gar
Tilraunaboranir í Þorskafirði:
Hótel og bæir
fái heitt vatn
BANDARÍKIN, AP Atvinnulausi
vörubílstjórinn Jim D. Adkisson
myrti í fyrradag tvo og særði sex
sem viðstaddir voru söngleik
barna í Sameiningarkirkju í
Tennessee-ríki í Bandaríkjunum.
Maðurinn skildi eftir bréf þar
sem hann sagðist reiður kirkjunni
vegna frjálslyndra viðhorfa
hennar, einkum í garð samkyn-
hneigðra. Fyrrverandi eiginkona
mannsins var áður kirkju-
meðlimur.
Kirkjumeðlimum tókst að
yfirbuga manninn áður en hann
myrti fleiri. Hann er nú í haldi
lögreglu. - gh
Morð í Sameiningarkirkju:
Bílstjóri myrti
tvo í kirkju
JIM D. ADKISSON Lögregla telur að
gremja vegna atvinnuleysis hafi átt þátt
í ódæði Adkissons. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skreið í klukkustund
Erlend ferðakona fótbrotnaði í gær
þar sem hún var á ferðalagi um
Mývatnssveit. Hún þurfti að skríða í
heila klukkustund áður en hún komst
að þjóðveginum þar sem henni var
veitt hjálp. Konan bíður nú aðgerðar á
sjúkrahúsinu á Akureyri.
SLYS
Aukin aðstoð í Vestur-Afríku
Matvælastofnun Sameinuðu þjóð-
anna tilkynnti í gær að hún ætlaði
að auka matvælaaðstoð í vestur-
hluta Afríku til að ná til 1,4 milljóna
fleira fólks. Svæðið hefur orðið illa
úti sökum hækkandi matvæla- og
eldsneytisverðs.
AFRÍKA
PAKISTAN, AP Pakistönsk yfirvöld
greindu frá því í gær að Abu
Khabab al-Masri,
háttsettur al-
Kaídaliði, væri
meðal sex sem
drepnir voru í
loftárás Banda-
ríkjamanna í
Pakistan í
fyrradag.
Árásin hefur
vakið nokkra
reiði í Pakistan
þar sem margir
telja hana brjóta
á fullveldi Pakistana.
Bandarísk stjórnvöld segja al-
Masri hafa verið sérfræðing sem
þjálfaði hryðjuverkamenn í
notkun eiturefna og sprengja.
Bandaríkjaher segist ekki hafa
framkvæmt árásina. Líklegt er að
hún hafi verið gerð að undirlagi
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA með mannlausri Predator-
flugvél. - gh
Loftárás í Pakistan vekur reiði:
Al-Kaídaliði
meðal fallinna
ABU KHABAB
AL-MASRI
VÍSINDI Deildarmyrkvi á sólu
verður sjáanlegur frá Íslandi á
föstudaginn. Deildarmyrkvinn
hefst klukkan korter yfir átta á
föstudagsmorgun og lýkur tæpum
tíu mínútum yfir tíu.
Í deildarmyrkva gengur tunglið
að hluta til fyrir sólina og birtist
sólin þá sem sigð af völdum
tunglsins í skamma stund, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá Stjörnuskoðunarfélagi
Seltjarnarness.
Stjörnuskoðunarfélagið verður
með sólskoðun á Austurvelli
þegar deildarmyrkvinn verður á
föstudagsmorgun, ef veður
verður hagstætt. - þeb
Deildarmyrkvi á sólu:
Deildarmyrkvi
sést á Íslandi
LÖGREGLUMÁL Karlmaður sem
reyndi að hjóla ölvaður var
handtekinn í miðborg Reykjavík-
ur aðfaranótt þriðjudags.
Lögregla fékk tilkynningu um
reiðhjólamann sem ók hjóli sínu
ansi skrykkjótt á Laugavegi.
Maðurinn, sem er um fertugt,
náðist í Austurstræti og var
handtekinn. Hann var verulega
ölvaður, tók afskiptum lögregl-
unnar mjög illa og neitaði meðal
annars að segja til nafns.
Lögregla færði manninn á
lögreglustöð þar sem hann var
látinn sofa úr sér áfengisvímuna.
- þeb
Karlmaður í Austurstræti:
Hjólaði fullur
um miðbæinn
Sautján ölvaðir við akstur
Sautján ökumenn voru teknir ölvaðir
og fjórir undir áhrifum fíkniefna á
höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Fimmtán karlar voru teknir ölvaðir
og tvær konur, en fimm þeirra voru
jafnframt próflausir.
LÖGREGLUFRÉTT