Fréttablaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar 6.11 13.27 20.42 5.50 13.12 20.32 Í dag er mánudagurinn 1. september, 245. dagur ársins. 1. GREIN: „Láttu ekki standa þig að verki.“ 2. GREIN. „Ef þú ert gripinn áttu að biðjast fyrirgefningar án þess að slá til blaðamanna.“ Þér verður fyrirgefið. Það krefst þess enginn að þingmaður hafi óbrenglaða dóm- greind. 3. GREIN. „Varðandi ferðalög skaltu forðast að fljúga á Saga Class og kúldrast aftur í gripaflutn- ingadeildinni, nema um sé að ræða langt flug sem hvorki byrjar né endar á íslenskum flugvelli.“ 4. GREIN. „Varðandi dagpeninga- neyslu maka skaltu forðast að fljúga með maka þínum til og frá landinu í sömu vél og forðast þannig óþarfa kjaftagang.“ Gott er að senda makann deginum áður til að taka upp úr töskunum. Fyrir heim- komu er gott að taka aukadag og fara í gufu og nudd og líta vel út í fjölmiðlaviðtölum um það gífur- lega hlutverk sem bíður Íslands í alþjóðaviðskiptum. 5. GREIN. „Varðandi skipanir vina þinna í embætti er lykilatriði að koma á gagnvirku samkomulagi við aðra stjórnmálamenn.“ Þeir skipa þína fulltrúa óskylda sér í embætti og þú launar greiðann með því að gauka góðum póstum að ættingjum þeirra. 6. GREIN. „Mikilvægt er að viður- kenna aldrei fjárhagsleg tengsl við fyrirtæki.“ Hlutabréf eða stofnfé á þínu nafni sem snuðrarar finna samt skaltu útskýra sem tannfé eða skírnargjafir sem þú hafir gleymt og aldrei talið nokkurs virði. 7. GREIN. „Á öllum fundum í kjör- dæmi þínu skaltu óhikað bjóða upp á góðar veislur og ómælt áfengi.“ Annars halda kjósendur þínir að þú sért valdalaus aumingi. 8. GREIN. „Mútur: Ef einhver klórar manni á bakinu er ráðlegt að mynda hring með fleiri aðilum sem klóra hver öðrum duglega á bakinu. Ef hringurinn er nógu stór er engin leið til þess fyrir blaðasnápa að grafa upp hver sat hvar í hringnum og klóraði hverjum fyrir hvað.“ 9. GREIN. „Varðandi laxveiðar og boðsferðir ber að tryggja að veiði- bækur og boðslistar komi ekki fyrir almenningssjónir.“ 10. GREIN. „Varðandi nauðsyn- legar og óhjákvæmilegar embætta- veitingar sem allir sjá að eru bara spilling er nauðsynlegt að taka sér frí í hálfan dag og koma veiting- unni á staðgengil sinn í ráðherra- starfi.“ Til þess eru staðgenglar. Frumvarp til laga um hæfi- lega spillingu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.