Fréttablaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 36
20 1. september 2008 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Fjár má l og ma rka ður inn Þreyttur? Þreyttur á vinn- unni! Stundum langar mig bara að fara að gera eitt- hvað allt annað! Ég held að öllum líði þannig stundum! Úúúúú... Bíddu. Hvað? Þetta er falskt. Jájá. En þetta er satt. Krafs! Krafs! Krafs! Sandpappír Úúúúú Nú er þetta falskt og þú ert alveg steiktur. Ó, voldugi sfinx, hvert hverfur sólin á nóttunni!?!? Ef þú veltir því nógu lengi fyrir þér... ...mun svarið loks renna upp fyrir þér. Geisp! Ert þú ennþá á fótum? Já. Fyrst ég var að skipta um rafhlöðu í einum reykskynjara fannst mér ég alveg eins geta gert það í hinum líka. Þetta er ótrúlegt! Að ég sé svona hagsýnn og meðvitaður um öryggi? Nei. Að það séu til fjórar rafhlöður í húsi með þremur börnum og 800 leik- föngum. Flest höfum við okkar hugmyndir um Þýskaland, algerlega án tillits til þess hvort við höfum sótt það heim eður ei. Hugmyndir þessar eru grundaðar á þýskri menningu og sögu sem við teljum geta gefið okkur góða innsýn í sálarkima þýsku þjóðarinnar. Við vitum öll af þessu með nasistana og kommúnistana og sumir vita jafnvel eitthvað aðeins meira. En út frá fáum þekkingarbrotum hafa þjóðir heims komið sér saman um að Þjóðverjar séu afar nákvæm, dugleg og sjálfsörugg þjóð, þó svo að stundum virðist eilítið vanta upp á mannlegt eðli þeirra. Færri eru þó væntanlega meðvitaðir um að Þjóðverjar eru helstu framleiðendur sokka- garns í gervallri Evrópu, og þótt víðar væri leitað. Sokka- garnið sem frá þeim streymir í óteljandi kílómetravís er af margvíslegum gerðum; bómullar- og ullarblandað og litaglatt eða -dauft, bara eftir þörfum og löngunum hvers og eins. Þýska sokkagarnið er náttúrlega með eindæmum vandað og endingargott og ekki einu sinni viðkvæm- ustu fætur geta barmað sér undan kláða af völdum þess. Löngum hefur því verið haldið fram að þýsk framleiðsla sé vandaðri en annarra landa; hér skal ekki fullyrt um alla vöruflokka, en staðhæfing þessi á sannar- lega við um þýskt sokkagarn. Skemmst er frá því að segja að þessi gæðavara selst eins og heitar lummur í garnbúðum um víða veröld; Þjóðverjar hafa þannig gert mikið til að bægja kulda frá fótum mannkyns. Segja mætti að hér sé um nokkurs konar heimsyfirráð að ræða, en þó með öðrum formerkjum en þeim sem Þjóðverjar gerðu sér í hugarlund fyrir rúmum sextíu árum. Heimsyfirráð þýskra sokka NOKKUR ORÐ Vigdís Þor- móðsdóttir Meiri snerpa Þú átt valið Hver leiksýning er sýnd þétt og í takmarkaðan tíma. Það er því um að gera að skipuleggja leikhúsárið fyrirfram og tryggja sér miða á þær sýningar sem heilla mest. Þú velur þær fjórar sýningar sem þér finnst mest spennandi af glæsilegri dagskrá Borgarleikhússins. Áskriftarkort Hringdu í síma 568 8000 eða farðu á borgarleikhus.is F í t o n / S Í A NÚ FÁ SÉR ALLIR ÁSKRIFT! 4 leiksýningar á einungis 8.900 kr.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.