Fréttablaðið - 14.09.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
49,65%
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
24
st
un
di
r
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 46% meiri
lestur en 24 stundir og 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
14. september 2008 — 250. tölublað — 8. árgangur
Bæklingur fylgir með
inni í blaðinu í dag
í september
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tæki færi
STÖÐUG BARÁTTA
Auður Guðjónsdóttir
hjúkrunarfræðingur
ræðir um hræðilegt
slys Hrafnhildar dótt-
ur sinnar og tildrög
þess að hún stofnaði
Mænuskaðastofnun
Íslands.
HELGARVIÐTAL 10
FY
LG
IR
Í
D
A
G
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
menning
september 2008
VEÐRIÐ Í DAG
SKÚRAVEÐUR Í dag verða víða
suðaustan 8-13 m/s, hvassast
vestan til. Skúrir sunnan- og vestan-
lands en bjart með köflum norðan-
og austanlands. Hiti víða á bilinu
12-16 stig, hlýjast norðan til.
VEÐUR 4
11
14
15
11
12
FÓLK „Þetta er
eins og að temja
ljón, þessir fugl-
ar eru með svo
mikinn bit-
kraft og það er
ekki fyrir hvern
sem er að með-
höndla þá,“ segir
Halldór Hilm-
ir Helgason sem
ásamt konu sinni,
Elmu Helgadótt-
ur, á merkilegan
páfagauk, Pjakk
að nafni.
Fuglinn er af Golden Macaw-
tegund og dugði ekkert minna
en rafsuðuvettlingur til að taka
á honum. Að sögn Halldórs er
Pjakkur hið besta gæludýr.
„Hann kyssir, kveður, heilsar og
gerir allar kúnstir,“ segir Hall-
dór. Þau hjónin eiga auk þess tvo
aðra gauka, annan af Amazon-ætt
og hinn af kadúaætt. - ag / sjá síðu 26
Þrír páfagaukar á heimilinu:
Kyssir, heilsar
og gerir kúnstir
FH OG KEFLAVÍK UNNU BÆÐI
Tryggvi Guðmundsson og Guðmundur Stein-
arsson voru gulls ígildi fyrir sín lið í gær. 22
PJAKKUR
VIÐSKIPTI Eigendur og stjórnendur
hins danska Roskilde bank áttu í
leynilegum viðræðum við Kaup-
þing og FIH, dótturfélag Kaup-
þings í Danmörku, um yfirtöku
Kaupþings á bankanum fyrir nokkr-
um vikum. Málið var mjög langt
komið og sérfræðingar Kaupþings
höfðu fundað með yfirvöldum í
dönsku fjármálalífi sem voru mjög
áfram um að það gengi eftir. Undir
lokin kom hins vegar í ljós, að
erfiðleikar Roskilde voru mun
umfangsmeiri en áður var talið og
dró Kaupþing sig þá út úr viðræð-
unum og tilkynnti seðlabanka Dan-
merkur það. Daginn eftir, eða 29.
ágúst síðastliðinn, tók seðlabank-
inn Roskilde yfir, til að forða gjald-
þroti og dönsku fjármálakerfi.
Sigurður Einarsson, stjórnarfor-
maður Kaupþings, vildi ekkert láta
hafa eftir sér um málið í gær, en
samkvæmt upplýsingum Markað-
arins voru samningaviðræður mjög
langt komnar, þegar Kaupþing dró
samningamenn sína út úr viðræð-
unum. Áætlun lá á borðinu um að
taka bankann yfir gegn yfirtöku
skulda, en efnahagsreikningur
Roskilde nam ríflega 500 milljörð-
um króna á síðasta ári og hefðu
þetta því verið ein stærstu fyrir-
tækjakaup í íslensku viðskiptalífi.
Stærstu lífeyrissjóðir Danmerkur
komu að því tilboði ásamt Kaup-
þingi í félagi við fleiri þarlendar
lánastofnanir. Danske bank átti að
koma að frekari fjármögnun eftir
yfirtökuna.
Viðræður um yfirtökuna tóku um
eina viku, en á þeim tíma var þegar
farið að fjalla talsvert um rekstrar-
erfiðleika Roskilde bank í dönskum
fjölmiðlum. Bankinn hefur farið
afar illa út úr verðlækkunum á
dönskum húsnæðismarkaði og var
kominn með eiginfjárstöðu niður
fyrir tilskilin lágmörk og þurfti að
afskrifa einn milljarð danskra
króna á fyrri helmingi ársins. - bih
Kaupþing átti að
taka yfir Roskilde
Viðræður stóðu yfir í um viku um yfirtöku Kaupþings og dótturfélagsins FIH í
Danmörku á Roskilde Bank. Rekstrarerfiðleikar danska bankans reyndust þó
miklu meiri en talið hafði verið og því tók danski seðlabankinn bankann yfir.
VALUR VANN TVO ÍSLANDSMEISTARATITLA Í GÆR Valsmenn eignuðust bæði Íslandsmeistara í meistaraflokki kvenna og 4. flokki
kvenna í gær. Fjórða flokks stelpurnar fengu að vera með þegar meistaraflokkurinn fagnaði Íslandsmeistaratitlinum þriðja árið í
röð og hér dást nokkrar þeirra að Íslandsbikarnum. sjá síðu 20 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
REYKJANESBÆR „Fyrstu vísbending-
ar benda til þess að allt að tíu
manns hafi villt á sér heimildir og
þeim verði vísað úr landi,“ segir
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður í Keflavík, um mál
hælisleitendanna sem húsleit var
gerð hjá í Njarðvík á fimmtudag.
Farzad Rahmanin, íranskur
hælisleitandi, sat fyrir utan
lögreglustöðina í Reykjanesbæ í
yfir þrjátíu klukkustundir í
fyrrinótt og í gær í mótmæla-
skyni. Hann sagðist ekki ætla að
hreyfa sig fyrr en hann fengi
peningana sem teknir voru af
honum í húsleitinni til baka, en
lögreglan keyrði hann heim í
gærkvöld. Jóhann segir málið
ekki lengur í sínum höndum,
heldur Útlendingastofnunar.
„Þessi mál eru flókin viðureignar,
og stundum verður saklaust fólk
fyrir óþarfa ónæði,“ segir Jóhann
R. Benediktsson. - kg
Hælisleitendur í Njarðvík:
Tíu verða
sendir úr landi
BANDARÍKIN „Íbúar hér í Houston
eru öllu vanir þegar kemur að
ofsaveðri. En margir eru niður-
brotnir af hræðslu við að mikið
eignatjón hafi orðið,“ segir Guð-
mundur Sigþórsson, sem búsettur
er í Houston í Texas. Fellibylurinn
Ike reið yfir Texas og Louisiana í
gær og olli miklum usla. Þrjú
dauðsföll má rekja til ofsaveðurs-
ins, auk mikils eignatjóns. Fjögur
þúsund manns búa nú við raf-
magnsleysi í Houston og nágrenni
og telja yfirvöld að allt að tvær til
þrjár vikur geti tekið að koma raf-
magni á að nýju.
Nokkuð dró úr vindhraða felli-
bylsins á leið hans yfir Texas. Olli
hann þó töluverðu tjóni. Talið er
að strandborgin Galveston hafi
orðið verst úti þegar mikill sjór
gekk á land, og er hún nánast öll á
floti.
Ike hélt norður eftir Texas í gær
og talið var að hann myndi ná til
Arkansas seint í gærkvöld eða
nótt. - kg / sjá síðu 4
Fellibylurinn Ike óð yfir Texas og Louisiana í gær og stefndi hraðbyri á Arkansas:
Óttast mikið eignatjón í Texas