Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2008, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.09.2008, Qupperneq 2
2 14. september 2008 SUNNUDAGUR FÓLK „Hann stóð sig eins og hetja,“ segir Anna Berglind Júlísdóttir, móðir sex ára drengs sem festist í lyftu í hálftíma í gær. Viktor Karl Halldórsson hefur lært samkvæmisdansa frá því hann var þriggja ára. Eins og venjulega á laugardögum ók móðir Viktors honum frá heimili fjöl- skyldunnar í Þorlákshöfn til að fara í tíma í Dansskóla Jóns Pét- urs og Köru á fjórðu hæð í Borgar- túni 6 í Reykjavík. Með í för var þriggja ára systir Viktors sem ein- mitt í gær var að fara í sinn fyrsta danstíma. Það var því í mörg horn að líta hjá Önnu. „Hann fór á undan inn í lyftuna og ég var að svipast um eftir stelp- unni þegar dyrnar lokuðust. Ég ýtti á hnappinn en það var of seint og lyftan fór af stað,“ segir Anna. Þegar niður á fyrstu hæð var komið opnaðist lyftan ekki. „Hann var orðinn hræddur og sparkaði í lyftuhurðina svo hún stoppaði nokkrum sentímetrum ofar en hún átti að gera og dyrnar opnuðust ekki,“ útskýrir Anna. Stefán Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri dansskólans, segist strax hafa hringt í neyðarsíma Héðins-Schindler sem flytji lyft- una inn. „Maður sem var á bak- vakt var kominn eftir tíu eða fimmtán mínútur. Síðan liðu aðrar tíu eða fimmtán mínútur þangað til honum tókst að opna lyftuna og hleypa stráknum út,“ lýsir Stefán atburðarásinni. Litli drengurinn var að sögn Stefáns og Önnu alveg furðu róleg- ur í prísundinni. „Hann snökti bara dálítið en við mamma hans gátum spjallað við hann í gegn um rifu á dyrunum. Þegar hann slapp loksins út þáði hann ekki heitt kakó sem ég veit að honum finnst gott heldur vildi ólmur komast í réttirnar eins og áður hafði verið ákveðið,“ segir Stefán sem telur hugsanlegt að högg drengsins á lyftuhurðina hafi valdið því að hún stöðvaðist. „Það er afar mikilvægt að svona hlutir séu í lagi. Ég geri ráð fyrir að þetta skýrist eftir helgi.“ Anna segir Viktor áður hafa komist í hann krappan. „Þegar hann var á fjögurra ára réðst á hann hund- ur þegar hann var í heimsókn hjá frænku sinni í Fljótshlíð- inni. Hund- urinn bara trylltist í boltaleik, skellti stráknum og beit hann í eyra, höfuð og öxl. Það sást varla í drenginn fyrir blóði,“ rifjar Anna upp sem þvertekur fyrir að atvikið í gær bindi enda á dansferil Viktors litla. „Við mætum í dansskólann næsta laugardag. Og förum saman upp með lyftunni.“ gar@frettabladid.is Það sást varla í drenginn fyrir blóði. ANNA BERGLIND JÚLÍSDÓTTIR MÓÐIR VIKTORS flugfelag.is Skráðu þig í Netklúbbinn REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR VESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY Félagar í Netklúbbnum fá fyrstir upplýsingar um tilboð og nýjungar í tölvupósti. Alltaf ódýrast á netinu www.flugfelag.is Góður þorramatur Rannsókn Matvælastofnunar og Heilbrigðseftirlits sveitarfélaga á þorramat gaf til kynna að verkun á honum væri mjög góð. Aðeins eitt sýni af 79 reyndist ekki fullnægjandi. Að því er segir í skýrslu um rannsókn- ina er þetta mun betri niðurstaða en í fyrri eftirlitsverkefnum á örverum í þorramat. HOLLUSTA LÖGREGLUMÁL Ekið var á gangandi vegfaranda til móts við bátaskýl- ið á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði um hálftíuleytið í fyrrakvöld. Að sögn varðstjóra var kona á leið yfir götuna á gangbraut þegar keyrt var á hana. Hún var færð á slysadeild og kom í ljós að hún er fótbrotin. Léleg lýsing er á svæðinu og er talið að ökumaður- inn hafi ekki séð konuna. Þá missti ökumaður stjórn á bíl sínum á Gullinbrú um fjögurleyt- ið í fyrrinótt, með þeim afleiðing- um að bíllinn lenti á ljósastaur. Þrír voru færðir á slysadeild og er ökumaðurinn talinn nokkuð slasaður. - kg Léleg lýsing hamlaði sýn: Kona fyrir bíl á gangbraut Velti fjórhjóli í Sölvahrauni Ungur maður velti fjórhjóli sínu í Sölvahrauni á Landmannaleið um miðjan dag í gær. Var maðurinn flutt- ur með sjúkrabíl til Reykjavíkur með háls- og bakmeiðsli. SLYS INNHEIMTA Kona í Reykjanesbæ hefur orðið fyrir ítrekuðu ónæði um tveggja mánaða skeið vegna bílaskulda annarrar konu. Starfs- menn vörslusviptingar hafa ítrek- að hringt í hana til að rukka hana um ógreidda bílaskuld. Lesið hefur verið inn á símatalhólf hennar og stefnuvottur ætlaði að stinga stefnu inn um dyralúguna hjá henni. „Einhverra hluta vegna var alltaf haft samband við mig, þótt ég margreyndi að leiðrétta mis- skilninginn,“ segir konan. Hún vill ekki láta nafns síns getið af tillitssemi við skuldarann. Þær heita báðar tveimur nöfnum, sem eru hin sömu, en ekki í sömu röð. „Í fyrstu fékk ég skilaboð frá þeim um að þeir ætluðu að gera upptækan hjá mér bíl og báðu mig að hafa samband,“ segir konan. „Ég gerði það. Þeir voru þá með rétt heimilisfang og höfðu sett miða inn hjá viðkomandi konu. En svo hringdu þeir alltaf aftur og aftur, þótt ég segði þeim ítrekað að ég væri ekki rétta manneskjan. Það var eins og þeir tryðu mér ekki.“ Um daginn hringdi svo stefnu- vottur í konuna og spurði hvort hann mætti ekki setja stefnu inn um lúguna hjá henni. Konan gat komið í veg fyrir það. Í vikunni fékk hún svo skilaboð í símatal- hólf. Þá kváðust vörslusvipting- armenn vera staddir fyrir utan hjá henni og ætluðu að taka bíl. Þá var konunni nóg boðið. Hún hringdi í vörslusviptingu og hætti ekki fyrr en þeir strikuðu út síma- númer hennar sem skuldara. - jss Kona í Reykjanesbæ hefur ekki átt sjö dagana sæla vegna innheimtumanna: Lenti í margra vikna umsátri vegna skulda annarrar konu REYKJANESBÆR Konan sem fékk ítrekuð skilaboð og hringingar um að taka ætti bíl sem hún ætti býr í Reykjanesbæ. Sex ára fastur í lyftu eftir tíma í dansskóla Dansneminn Viktor Halldórsson stóð sig eins og hetja þegar hann festist einn í lyftu í Borgartúni í um hálftíma í gær. Framkvæmdastjóri dansskólans segir málið skýrast eftir helgi. Viktor var illa leikinn af hundi fyrir tveimur árum. VIKTOR KARL HALLDÓRSSON Ragnar, ertu ekkert hræddur um að það verði dæmd á þig laglína? „Nei, en það væri laglegt.“ Ragnar Hermannsson, sjúkraþjálfari og þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik, hefur lokið við gerð sinnar fyrstu plötu, Kall útí bæ. LYFTAN Bak við þessar luktu dyr hírðist Viktor Karl í um hálftíma og var frelsinu feginn þegar viðgerðarmanni tókst að opna fyrir honum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gær karlmann sem slasaðist í göngum í Skagafirði. Maðurinn var ásamt hópi gangnamanna á Staðarafrétt í námunda við Miðdal þegar slysið varð. Hann virðist hafa runnið til í skriðu með þeim afleiðingum að hann hlaut opið ökklabrot Björgunarsveitarmenn fluttu lækni á vettvang sem hlúði að manninum þar til þyrlan kom á staðinn. Var maðurinn fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem gert var að sárum hans. - þo Þyrlan sótti gangnamann: Með opið ökkla- brot á afrétt DÓMSMÁL Baldur Örn Guðnason, fyrrverandi forstjóri Eimskips, hefur stefnt félaginu og krefst 140 milljóna króna vegna 22 mánaða eftirstöðva af starfsloka- samningi. Þetta kom fram í fréttum ríkissjónvarpsins í gær. Ekki náðist í Baldur í gær- kvöld en í fréttum ríkissjón- varpsins kom fram að þegar hann óskaði eftir því í nóvember í fyrra að láta af störfum fullyrti hann í bréfi til stjórnar félagsins að ágóði af rekstri félagsins hefði verið notaður til að „hylma yfir virðisrýrnun í flugrekstrin- um“. Þarna vísar hann til þess að flugfélagið Avion hafði áður keypt Eimskip. Baldur hefur aðeins fengið tvo mánuði greidda af starfslokasamningnum frá því að hann hætti í febrúar á þessu ári. - gar Fyrrverandi forstjóri: Krefst 140 millj- óna af Eimskip BALDUR GUÐNASON Ágreiningur er um starfslokasamning fyrrverandi forstjóra Eimskips. VIÐSKIPTI Endurskoðendur bresku ferðaskrifstofunnar XL Leisure Group sögðu af sér fyrir tveimur árum þar sem þeir töldu að stjórn félagsins hefði horft framhjá hugsanlegum bókhaldsbrotum. Þetta kom fram í vefútgáfu Lund- únablaðsins Sunday Times í gær- kvöld, en talsvert hefur verið fjall- að um gjaldþrot bresku ferðaskrifstofunnar síðustu daga í breskum fjölmiðlum og tengsl Íslands við hana. KPMG lét af störfum sem end- urskoðendur XL árið 2006 og gaf þá skýringu í bréfi til stjórnar félagsins, að stjórnin hefði ekki tekið nægilega alvarlega þær athugasemdir sem gerðar hefðu verið við uppgjör og reikninga félagsins. Kemur þar fram að greiðslur til birgja og annarra flugfélaga hafi meðal annars verið tafðar milli ársfjórðunga í því skyni að láta móðurfélagið Avion líta betur út á íslenskum hluta- bréfamarkaði. Financial Times segir að undir lok fyrri mánaðar hafi stjórnend- um XL verið orðið ljóst að gjald- þrot yrði ekki umflúið. Barclays banki og Straumur hefðu fjár- magnað daglegan rekstur ferða- skrifstofunnar í ríflega þrjú ár, en í kjölfar þrenginga á alþjóðlegum lánamörkuðum hefði Barclays tekið að kalla eftir greiðslum gjaldfallinna lána og ekki viljað tryggja endurfjármögnun. - bih Talsvert fjallað um tengsl Íslands við gjaldþrot XL Leisure í breskum fjölmiðlum: KPMG átaldi fegrað bókhald GJALDÞROT XL LEISURE GROUP Talsvert er fjallað um tengsl ferðaskrifstofunnar við Ísland í breskum fjölmiðlum. LÖGREGLUMÁL Til átaka kom í Breiðholti um fjögurleytið í fyrrinótt þegar tveir menn réðust að lögreglumönnum sem hugðust handtaka ökumann vegna gruns um ölvunarakstur. Að sögn varðstjóra lögreglunn- ar var bíllinn stöðvaður á mótum Suðurfells og Rjúpnafells. Þegar lögreglumenn hugðust handtaka ökumanninn brugðust farþegarn- ir tveir í bílnum, sem voru „blindfullir“, ókvæða við og réðust á lögregluþjónana í þeim tilgangi að frelsa hinn grunaða. Talsverð átök brutust út og gripu lögreglumenn til þess ráðs að nota varnarúða á mennina. Enginn slasaðist í átökunum en annar óróaseggjanna var handtekinn. Hann verður kærður fyrir líkamsárás. - kg Óróaseggir í Breiðholti: Réðust á lög- regluþjóna SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.