Fréttablaðið - 14.09.2008, Side 22
14. september 2008 SUNNUDAGUR4
…eða með öðrum orðum hefur þú áhuga á
að star fa á a lþjóðlegum vettvangi?
ВЫ ЗАИНТЕРЕСОВАНЫ РАБОТАТЬ
В МЕЖДУНАРОДНОЙ КОМПАНИИ?
Actavis Group hf. Dalshrauni 1 220 Hafnarfirði s 535 2300 f 535 2301 @ actavis@actavis.com w www.actavis.com
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis starfa um 11 þúsund einstaklingar í 40 löndum,
sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðarfullum einstaklingum til starfa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Actavis leitast við að ráða starfsfólk sem:
• sýnir metnað í hverju því sem það innir af hendi
• sýnir viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustulund
• leggur áherslu á samvinnu, því í sameiningu komumst
við lengra en við getum ein
• ber virðingu fyrir auðlindum sínum og sýnir hagkvæmni í
daglegum störfum
• hefur nægan sveigjanleika til að geta gripið tækifærin
sem því gefast
• sýnir framsækni og lætur hlutina gerast
Nánari upplýsingar veita Erla Hrönn Diðriksdóttir, edidriksdottir@actavis.com
og Harpa Þ. Böðvarsdóttir, hbodvarsdottir@actavis.com.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 22. september nk.
Sérfræðingur í skráningadeild
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og felur í sér
ráðgjöf og þátttöku í þróunarverkefnum ásamt öðrum
deildum þróunarsviðs, samantekt skráningargagna fyrir ný lyf
þróuð á Íslandi til markaðssetningar á markaði
Evrópusambandsins og víðsvegar um heim, uppfærslur á
skráningargögnum ásamt því að svara athugasemdum og
annmarkabréfum yfirvalda. Einnig er um að ræða samskipti
við viðskiptavini og skráningaryfirvöld um tæknileg atriði er
snerta skráningarmál auk upplýsingagjafar um
skráningargögn til annarra deilda fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf á sviði
raunvísinda, s.s. lyfjafræði, matvælafræði eða sambærilega
menntun. Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð
vinnubrögð.
Fulltrúi breytingaumsókna
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis Group. Fulltrúi
breytingaumsókna aðstoðar m.a. við skipulagningu
breytingaumsókna er varða flutning á framleiðslu,
gæðalýsingu á lokaafurð og við upplýsingagjöf til
viðskiptavina.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf, kostur ef það
er í heilbrigðisvísindum. Gerð er krafa um mjög góða ensku-
og tölvukunnáttu, nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Starfsmaður í þróunardeild lyfjaforma
Starfið, sem er 60-70% starf, tilheyrir þróunarsviði Actavis
Group og felur í sér samsetningu tækja og undirbúning fyrir
tilraunaframleiðslu, þrif og frágang á rannsóknarstofu og
þátttöku í framleiðslu tilraunalota og prófunum á þeim.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf, iðnmenntun er
kostur en ekki skilyrði. Reynsla af vinnu við flókinn vélabúnað
er kostur. Gerð er krafa um góða ensku- og tölvukunnátta,
nákvæm og vandvirk vinnubrögð.
Starfsmaður í lyfjapökkun
Starfið tilheyrir framleiðslusviði Actavis hf., dótturfyrirtæki
Actavis Group. Í starfinu felst pökkun á töflum í glös og
þynnur, þrif á pökkunarvélum og pökkunarsvæði, eftirlit
með pökkunarlínum, stillingar og breytingar á tækjabúnaði,
skjalfesting og sýnataka. Starfsmenn í framleiðslu fara í
gegnum mikla þjálfun og þurfa að geta tileinkað sér mjög
sérhæfð vinnubrögð.
Við leitum að einstaklingi með stúdentspróf, iðnmenntun
eða sambærileg menntun er kostur. Gerð er krafa um
nákvæm og vandvirk vinnubrögð sem og enskukunnáttu.
Í lyfjapökkun er um að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á
þrískiptum vöktum. Unnið er viku í senn á hverri vakt, alla
virka daga en fjóra daga þegar um er að ræða næturvaktir.
Verkefnastjóri fyrir BBraun
á sölu- og markaðssviði
Starfið tilheyrir sölu- og markaðssviði Actavis Group.
Verkefnastjóri ber ábyrgð á markaðssetningu vara frá
fyrirtækinu BBraun sem Actavis er með umboð fyrir á Íslandi.
Starfið felur m.a. í sér kynningar á hjúkrunar- og
læknavörum, gerð markaðsáætlana og utanumhald um
pantanir í samvinnu við sölu- og markaðsstjóra.
Verkefnastjóri tekur auk þess þátt í uppbyggingu á ímynd
Actavis.
Við leitum að einstaklingi með háskólapróf í hjúkrunarfræði
eða sambærilega menntun á heilbrigðissviði. Þekking og
reynsla af sölu- og markaðsmálum er æskileg. Gerð er krafa
um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis Group og annast sölu
á lyfjum og lyfjahugviti fyrir samstæðuna til annarra
lyfjafyrirtækja sem selja lyf undir eigin vörumerkjum. Á meðal
viðskiptavina Medis eru öll stærstu samheitalyfjafyrirtæki í
Evrópu. Hjá Medis er stefnt að því að vera fyrst á markað með
ný samheitalyf um leið og einkaleyfi falla úr gildi.
Sérfræðingur
- Business Development
Starfið felur í sér sölu og samningagerð á lyfjatengdu hugviti
og lyfjum til viðskiptavina Medis erlendis, samskipti við
umboðsmenn og dótturfélög erlendis, tilboðsgerð og
samskipti við viðskiptavini og leit að nýjum
viðskiptatækifærum.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun á sviði
lyfjavísinda eða hliðstæða menntun, starfsreynsla á sviði
samningagerða og krefjandi samskipta er kostur.
Verkefnastjóri
- Launch Coordination
Starfið felst aðallega í að verkefnastýra innleiðingu lyfja inn á
nýja markaði, að hafa yfirsýn yfir stöðu mála og eftirfylgni
verkefna. Starfið felur í sér samræmingu og samskipti við
erlenda viðskiptavini, framleiðslueininga innan og utan Actavis
og aðrar deildir innan fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun á sviði
vörustjórnunar, verkfræði eða hliðstæða menntun og/eða
reynslu af verkefnastjórnun. Viðkomandi þarf að vera
skipulagður og góður að vinna í hóp. Gerð er krafa um
nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð. Enska töluð og rituð
skilyrði.
Sérfræðingur
– Finance and Administration
Starfið felst í mánaðarlegum uppgjörum Medis ehf, vinnslu
stjórnendaupplýsinga, gerð skammtíma- og langtíma
fjárhagsáætlana og stuðning við starfsmenn og söluskrifstofur
Medis erlendis.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun í
viðskiptafræðum, starfsreynsla í uppgjörsvinnu nauðsynleg.
Um er að ræða krefjandi starf í alþjóðlegu umhverfi. Gerð er
krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Krefjandi störf hjá
framsæknu fyrirtæki
í alþjóðlegu umhverfi
Sölu- og markaðsfulltrúar vefmiðla
365 miðlar óska eftir öflugum sölu- og markaðsfulltrúum við auglýsingasölu á vefmiðla
félagsins.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu af sölustörfum og er reynsla af auglýsingasölu
á fjölmiðlum æskileg.
Viðkomandi þarf að vera heiðarlegur og ábyrgur, úrræðagóður og með góða þjónustulund.
Hann þarf jafnframt að hafa til að bera brennandi áhuga á vefnum og fjölmiðlum.
Launakjör eru árangurstengd og hér er því gott tækifæri fyir metnaðarfullt fólk.
Umsóknarfrestur er til 29. september. Frekari upplýsingar veitir Freyr Einarsson,
freyr@365.is. Sótt er um á vef 365 miðla - 365midlar.is/storf-hja-365.
Vefmiðlar 365 eru í miklum vexti og Visir.is er annar vinsælasti vefur landsins með fleiri
fréttir á dag en nokkur annar fjölmiðill á vefnum. Auk þess að vera sterkur fjölmiðill er Visir.is
vefgátt 365 miðla inn á fjölbreytta fjölmiðla félagsins: Fréttablaðið, Bylgjuna, Stöð 2 o.fl.