Fréttablaðið - 14.09.2008, Page 47
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
KLÓKUR ERTU,
EINAR ÁSKELL
KARDEMOMMU
BÆRINN
H A R T
Í B A K
SÆDÝRA
S A F N I Ð
SUMAR
L J Ó S
UTAN GÁTTA
AF ÁSTUM MANNS
OG HRÆRIVÉLAR
HEIÐUR
MACBETH
ÞRETTÁN DA-
ETERINN
K V Ö L D
FRIDA
08/09ÍVANOVENGISPRETTUR
ÁSTIN ER DISKÓ-
LÍFIÐ ER PÖNK
SÁ LJÓTI
SKILABOÐASKJÓÐAN
Þjóðleikhúsið
l e i k h ú s i ð þ i t t !
ÖKKUBUKKA
Í ÓÐAMANS-
K O R T A S A L A N Í F U L L U M G A N G I
G A R Ð I
w w w . l e i k h u s i d . i s M i ð a s a l a Þ j ó ð l e i k h ú s s i n s 5 5 1 1 2 0 0 / m i d a s a l a @ l e i k h u s i d . i s
Forsíða Menningar er samsett
sjálfsmynd eftir Braga Ásgeirs-
son frá upphafsárum hans í
myndlist, en í gær var opnuð á
Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á
ferli þessa afkastamikla lista-
manns sem rekur sextíu ára feril
hans. Bragi stundaði nám í
Handíða- og myndlistarskólanum
frá 1947-1950 og framhaldsnám í
Kaupmannahöfn, Ósló og
München áratuginn á eftir. Bragi
var fyrstur
manna að
taka aftur
til við
grafík og
fylgdi þar í
fótspor
Guðmundar
frá Miðdal
og Jóns
Engilberts.
Hann hefur
á ferli
sínum hlotið
fjölda starfsstyrkja frá erlendum
aðilum enda víðförull í samsýn-
ingum víða um lönd. Hann er
heiðursfélagi í Íslenskri grafík og
hefur haft mikil áhrif, bæði sem
kennari og gagnrýnandi hjá
Morgunblaðinu. Hann er sá
íslenskra myndlistarmanna sem
hefur um langt árabil skrifað
yfirlitsgreinar um erlenda
myndlist frá ferðum sínum
beggja vegna Atlandshafsins.
Bragi var ásamt Erró frum-
kvöðull í popplist á íslandi með
samsettum myndum með
þrívíðum nytjahlutum, brúðuand-
litum og öðru sem til féll. Hann
hefur alla tíð verið afar leitandi í
sköpun sinni og lagt óhræddur á
ný mið en ekki látið njörva sig í
grónar götur.
Samfara sýningunni á Kjarvals-
stöðum kemur út bók hjá
forlaginu Opnu með yfirliti um
feril hans í ritstjórn Þorodds
Bjarnasonar en hann mun í dag
vera með leiðsögn um sýninguna
á Kjarvalsstöðum kl. 15.
Ferill Braga
rakinn
Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður.