Fréttablaðið - 14.09.2008, Qupperneq 58
22 14. september 2008 SUNNUDAGUR
FÓTBOLTI FH vann auðveldan og
sanngjarnan 3-0 sigur á Íslands-
meisturum Vals í Kaplakrika í
gær. FH-ingar voru miklu betri
aðilinn allan leikinn en það tók
sinn tíma að komast á blað. Tryggvi
Guðmundsson skoraði tvö mörk
úr aukaspyrnu og lagði upp það
þriðja.
Það verður að segjast eins og er
að fótboltinn í fyrri hálfleik var
ekki merkilegur og leikurinn í
raun hundleiðinlegur. FH-ingar
stýrðu umferðinni en þeim gekk
afar illa að skapa sér færi. Sóknar-
spil Valsmanna var aftur á móti í
algjörum molum og þeir ógnuðu
FH-ingum afar lítið. Valur tapaði
baráttunni um miðjuna og send-
ingafeilarnir ákaflega margir og
liðinu gekk ekkert að halda boltan-
um innan liðsins. Meistararnir
voru hreint út sagt lélegir.
Glæsilegt mark frá Tryggva
Markalaust í leikhléi en aðstæður
hjálpuðu svo sem ekki leikmönn-
um en það var nokkuð hvasst, kalt
og rigndi hressilega á köflum.
Síðari hálfleikur hófst á svipað-
an hátt og sá fyrri. FH reyndi að
brjóta niður Valsvörnina og stíflan
brast ekki fyrr en rúmlega 25 mín-
útur voru eftir af leiknum. Þá skor-
aði Tryggvi glæsilegt mark beint
úr aukaspyrnu og kom FH yfir.
Tryggvi lagði síðan upp mark
fyrir Matthías áður en hann
skoraði aftur beint úr aukaspyrnu
en Tryggvi hafði heppnina með sér
þar sem boltinn breytti um stefnu
á varnarveggnum og Kjartan var
varnarlaus.
FH-ingar gengu frá leiknum á
tólf mínútna kafla og á meðan sat
Willum Þór, þjálfari Vals, með
hendur í skauti á bekk Vals og
gerði ekkert til að breyta gangi
mála. Hann skipti ekki inn af
bekknum fyrr en leikurinn var
búinn en hann hefði átt að skipta
mönnum inn miklu fyrr enda leik-
ur liðsins ekki upp á marga fiska.
Baráttan um Íslandsmeistara-
titilinn er þar með enn í járnum
en Valsmenn hafa misst af lest-
inni og táknrænt að þeir skyldu
endanlega tapa slagnum þar sem
þeir unnu titilinn í fyrra.
Hundraðasta markið
Seinna mark Tryggva í gær var
hans hundraðasta í efstu deild.
Hann fagnaði með því að sýna sér-
hannaðan bol með rómverska
tákninu C sem þýðir hundrað.
„Ég fór til Valsarans Henson í
vikunni og bað hann um að gera
þennan bol fyrir mig. Sagði honum
að ég myndi skora tvö gegn Val og
því yrði bolurinn að vera klár.
Hann fór nú bara að hlæja, kall-
inn,“ sagði Tryggvi léttur en hann
fór ekki í bolinn fyrr en í hálf-
leik.
„Það var markalaust í leikhléi
og það gekk ekki. Við urðum að
gera eitthvað og því skellti ég mér
í bolinn.“
Tryggvi gerir ráð fyrir að það
verði barátta um titilinn fram í
lokaumferð. „Keflavík vann líka
og mér skilst að þeir hafi verið
svolítið heppnir. Það er því bara
áframhaldandi barátta og við
verðum að vinna alla okkar leiki
til að verða meistarar. Það er ekk-
ert flóknara en það,“ sagði Tryggvi
sem hrósaði áhorfendum fyrir að
mæta og þá sérstaklega Mafíunni.
henry@frettabladid.is
Kópavogsvöllur, áhorf.: 602
Breiðablik Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–8 (6–2)
Varin skot Casper 2 – Hannes 3
Horn 8–7
Aukaspyrnur fengnar 8–9
Rangstöður 4–0
FRAM 4–3–3
Hannes Halldórsson 4
Jón Guðni Fjóluson 3
(45. Daði Guðm. 6)
Reynir Leósson 3
Auðun Helgason 3
Jón Orri Ólafsson 2
Halldór Hermann 6
Heiðar Geir Júlíusson 4
Paul McShane 3
(68. Viðar Guðjónss. 6)
Ívar Björnsson 4
Hjálmar Þórarinsson 5
Almarr Ormarsson 5
(59. Ingvar Þór Ólas. 6)
*Maður leiksins
BREIÐAB. 4–4–2
Casper Jackobsen 7
Arnór Aðalsteinsson 7
Srdjan Gasic 7
Finnur Orri Margeirs. 6
Kristinn Jónsson 7
Nenad Zivanovic 6
Arnar Grétarsson 7
Guðm. Kristjánsson 6
(66. Olgeir Sigurg. 6)
Jóhann Berg Guðm. 6
(72. Kristinn Steind. -)
Alfreð Finnbogason 7
(85., Magnús Páll -)
*Marel Baldvinss. 8
1-0 Marel Baldvinss. (8.), 2-0 Marel
(34.), 3-0 Alfreð Finnbogas. (63.)
3-0
Magnús Þórisson (5)
FH 3-0 VALUR
1-0 Tryggvi Guðmundsson (64.)
2-0 Matthías Guðmundsson (72.)
3-0 Tryggvi Guðmundsson (76.)
Kaplakrikavöllur, áhorf.: 500
Jóhannes Valgeirsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–3 (4–1)
Varin skot Gunnar 0 – Kjartan 1
Horn 7–8
Aukaspyrnur fengnar 14–15
Rangstöður 7–6
FH 4–3–3 Gunnar Sigurðsson 6 - Ásgeir Gunnar
Ásgeirsson 6, Freyr Bjarnason 7, Dennis Siim 5 (56.
Guðmundur Sævarsson 5), Hjörtur Logi Valgarðsson 6
- Davíð Þór Viðarsson 7, Matthías Vilhjálmsson 3, Björn
Daníel Sverrisson 4 (86. Jónas Grani Garðarsson -)
- *Tryggvi Guðmundsson 8, Matthías Guðmundsson
6, Atli Viðar Björnsson 5 (73. Atli Guðnason -)
Valur 4–4–2 Kjartan Sturluson 4 - Rasmus Hansen
4, Atli Sveinn Þórarinsson 6, Barry Smith 5, Bjarni
Ólafur Eiríksson 4 - Hafþór Ægir Vilhjálmsson 2, Baldur
Bett 3, Sigurbjörn Hreiðarsson 4 (90. Steinþór Gíslason
-), Guðmundur Steinn Hafsteinsson 2 - Guðmundur
Benediktsson 4 (79. Albert Ingason -), Helgi Sigurðs-
son 5 (79. Henrik Eggerts -).
Fjölnisvöllur, áhorf.: 576
Fjölnir Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–13 (7–9)
Varin skot Þórður 7 – Ómar 5
Horn 7–8
Aukaspyrnur fengnar 7–10
Rangstöður 3–2
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhannsson 6
Guðjón Árni Antoníus.6
Kenneth Gustafsson 6
Hallgrímur Jónasson 7
Brynjar Guðmundss. 6
Magnús Sverrir Þorst. 5
(61. Símun Samuel. 7)
Hólmar Örn Rúnarss. 7
Hans Mathiesen 7
Patrik Redo 6
Jóhann Birnir Guðm. 6
(85. Hörður Sveinss. -)
*Guðmundur Steinar. 7
(89. Jón Gunnar Eyst. -)
*Maður leiksins
FJÖLNIR 4–5–1
Þórður Ingason 6
Magnús Ingi Einarss. 4
Óli Stefán Flóventss. 7
Ásgeir Aron Ásgeirs. 6
Gunnar Valur Gunn. 5
Ólafur Páll Snorras. 5
Gunnar Már Guðm. 7
Ólafur Páll Johnson 5
(80. Ómar Hákonar. -)
Ágúst Þór Gylfason 6
Pétur Georg Markan 6
Davíð Þór Rúnarss. 5
(80. Andri Valur -)
1-0 Gunnar Már Guðmundsson (35.)
1-1 Guðmundur Steinarsson (41.)
1-2 Jóhann Birnir Guðmundss. (66.)
1-2
Þorvaldur Árnason (7)
LANDSBANKADEILD KARLA
Keflavík 19 13 4 2 48-25 43
FH 18 12 2 4 41-19 38
KR 19 10 2 7 32-21 32
Valur 19 10 2 7 31-25 32
Fram 19 10 1 8 23-18 31
Breiðablik 18 8 6 4 37-25 30
Grindavík 19 7 3 9 25-35 24
Fjölnir 19 7 1 11 30-32 22
Fylkir 19 5 4 10 21-33 19
Þróttur 19 4 7 7 22-37 19
HK 19 4 3 12 23-41 15
ÍA 18 2 5 11 16-38 11
NÆSTU LEIKIR
Þróttur-ÍA sun. 14. sept. kl 16.00
Keflavík-Breiðablik mið. 17. sept. kl 17.15
Fram-FH mið. 17. sept. kl. 21.10
STAÐAN
FÓTBOLTI „Mér fannst þetta í okkar
höndum frá fyrstu mínútu til
þeirrar síðustu,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Breiða-
bliks, eftir 3-0 sigur liðsins á
Fram í gær en eftir leikinn munar
aðeins einu stigi á liðunum.
„Mörkin voru góð og ég er mjög
ánægður með spilamennskuna.
Við kæfðum Framara með því að
láta boltann ganga með jörðinni.“
Blikar ætla sér að krækja í
þriðja sæti deildarinnar og var
sigurinn í gær skref í átt að því.
„Ég er sérstaklega ánægður
með hversu sannfærandi sigur-
inn var í kvöld og nú þurfum við
að halda áfram á sömu braut,“
sagði Ólafur.
Það voru erfiðar aðstæður í
Kópavoginum í gær og völlurinn
mjög blautur. Það virtist henta
Blikum mun betur og þeir höfðu
tögl og hagldir. Mikil deyfð var
yfir liði Fram og leikmenn liðsins
virkuðu á köflum áhugalausir.
Marel Baldvinsson reyndist
varnarmönnum Fram mjög erfið-
ur og skoraði tvö fyrstu mörk
leiksins í fyrri hálfleik. Marel átti
mjög góðan leik og hefði með smá
heppni getað skorað þrennu.
Alfreð Finnbogason innsiglaði
síðan sigur Blika í seinni hálfleik
með ansi laglegu marki.
„Það var kjaftshögg fyrir okkur
að lenda undir og svo fengum við
dauðafæri sem ekki nýttust. Við
vorum í erfiðleikum og þegar
þriðja markið kom var þetta bara
spurning um að klára leikinn og
komast inn í heitt bað,“ sagði Þor-
valdur Örlygsson, þjálfari Fram,
eftir leik.
- egm
Blikinn Marel Baldvinsson skoraði tvennu í 3-0 sigri Breiðabliks á Fram á Kópavogsvellinum í gær
Framarar voru auðveld bráð fyrir Blika
HÆTTULEGUR Blikinn Alfreð Finnboga-
son í kapphlaupi við Auðun Helgason í
Fram í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tryggvi afgreiddi Valsmenn í lokin
Tryggvi Guðmundsson fór mikinn þegar FH skellti arfaslöku liði Vals í Krikanum í gær. FH-ingar hanga
því aftan í Keflvíkingum í toppbaráttunni en Íslandsmeistararnir úr Val eru endanlega úr leik.
MAÐUR LEIKSINS Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö mörk beint úr aukaspyrnum og lagði síðan upp það þriðja í 3-0 sigri FH á
Valsmönnum í Kaplakrikanum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Keflvíkingar höfðu
fimm stiga forskot á toppi deild-
arinnar fyrir leikinn gegn Fjölni
en heimamenn sigldu nokkuð
lygnan sjó rétt ofan við fallsvæð-
ið. Leikurinn fór fram við erfiðar
aðstæður og var nokkuð fjörug-
ur, en að lokum fór svo að Kefl-
víkingar unnu góðan sigur og
halda því fimm stiga forskoti í
efsta sæti deildarinnar þegar ein-
ungis þrjár umferðir eru eftir.
Keflavík byrjaði leikinn betur.
Báðum liðum gekk frekar illa að
halda boltanum á blautum vellin-
um en þau færi sem komu fengu
Keflvíkingar. Það var því nokkuð
gegn gangi leiksins þegar Gunn-
ar Már Guðmundsson kom Fjölni
yfir með marki eftir hornspyrnu
eftir rúmlega hálftíma leik. Ómar
Jóhannsson í marki Keflavíkur
hefði getað gert betur og nýtti
Gunnar sér mistök hans.
Eftir markið settu Keflvíking-
ar meiri kraft í sóknina og það
skilaði sér með jöfnunarmarki
fyrir hálfleik. Markahæsti leik-
maður deildarinnar, Guðmundur
Steinarsson, skoraði þá með góðu
marki úr teignum eftir sendingu
Patrik Redo.
Seinni hálfleikur var rólegri en
sá fyrri og hvorugt liðið náði
verulegum tökum á leiknum.
Baráttan var mikil og blautur
völlurinn gerði liðunum erfitt
fyrir. Fjölnir komst næst því að
jafna þegar Guðjón Árni Antoní-
usson setti boltann í stöngina á
eigin marki, en nær komust þeir
ekki. Lokatölur því 2-1, Keflavík í
vil, og þeir halda því fimm stiga
forskoti á FH á toppnum.
Guðmundur Steinarsson átti
góðan leik fyrir Keflavík, skoraði
fyrra markið og lagði upp það
síðara og hann var ánægður í
leikslok. „Þetta var gríðarlega
mikilvægur sigur gegn flottu og
vel spilandi liði. Við vorum mjög
ákveðnir að ná sigri hér í dag
eftir að hafa tapað fyrir þeim á
heimavelli. Við áttum að vera
búnir að skora þegar þeir komust
yfir en það eru ákveðin þroska-
merki á liðinu að ná að jafna og
komast yfir eftir það,“ sagði
markahæsti leikmaður deildar-
innar í leikslok. - sjj
Guðmundur Steinarsson var maðurinn á bak við sigur Keflavíkur á Fjölni í gær:
Baráttusigur hjá Keflvíkingum
DAUÐAFÆRI Fjölnismaðurin Pétur Georg Markan er hér kominn einn í gegn á
móti Ómari Jóhannssyni, markverði Keflavíkur, en hann náði ekki að skora.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR