Fréttablaðið - 14.09.2008, Blaðsíða 59
SUNNUDAGUR 14. september 2008 23
Verslunareigendum ber skylda til að verðmerkja
allar vörur samkvæmt lögum. Þetta á jafnt við
inni í verslunum sem í búðargluggum. Verð-
merking á að vera vel sýnileg og ekki má fara á
milli mála til hvaða vöru hún vísar.
Oft getur verið ertt að átta sig á hagkvæmustu
kaupunum þar sem úrval af vörum er mikið og
pakkningar misstórar. Til að auðvelda þér að
bera saman verð hafa því verið settar reglur
sem skylda verslunareigendur til að gefa upp
mælieiningarverð vöru, auk söluverðs.
Notaðu rétt þinn.
Neytendastofa
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • Bréfasími 510 1101
postur@neytendastofa.is • www.neytendastofa.is
GRINDAVÍK 1-3 FYLKIR
0-1 Haukur Ingi Guðnason (9.)
0-2 Ian Jeffs (39.)
1-2 Marinko Skaricic (43.)
1-3 Halldór Hilmisson (50.)
Grindavíkurvöllur, áhorf.: 610
Einar Örn Daníelsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–11 (4–8)
Varin skot Zankarlo 5 – Fjalar 3
Horn 5–8
Aukaspyrnur fengnar 9–10
Rangstöður 2–1
Grindavík 4–5–1 Zankarlo Simunic 5 - Bogi Rafn
Einarsson 5 (81. Emil Daði Símonarson -), Zoran Stamen-
ic 4, Marinko Skaricic 5, Jósef Kristinn Jósefsson 4 - Scott
Ramsay 3, Jóhann Helgason 4 (46. Aljosa Gluhovic 6),
Eysteinn Húni Hauksson 7, Orri Freyr Hjaltalín 4 - Tom-
asz Stolpa 4 (Alexander Veigar -), Gilles Mbang Ondo 4
Fylkir 4–5–1 Fjalar Þorgeirsson 7 - Andrés Már
Jóhannesson 7, Þórir Hannesson 6, Valur Fannar
Gíslason 6, Kjartan Ágúst Breiðdal 7 - Ingimundur Níels
Óskarsson 7, Kristján Valdimarsson 6, Halldór Arnar
Hilmisson 7, Ian David Jeffs 7 (90. Davíð Þór Ásbjörnsson
-), Jóhann Þórhallsson 5 (79. Friðrik ingi Þráinsson -)
- *Haukur Ingi Guðnason 9 (53. Allan Dyring 3)
FÓTBOLTI Fylkir vann mikilvægan
útisigur á Grindavík, 3-1, í fall-
baráttu Landsbankadeildar karla.
Fylkir er nú fjórum stigum frá
fallsæti þegar þrjár umferðir eru
eftir.
Fylkir skipti um þjálfara ekki
alls fyrir löngu og var allt annað
að sjá til liðsins en í síðustu
deildarleikjum.
„Það er ekkert léttari andi í lið-
inu, bara öðruvísi nálgun. Við
gátum þetta allan tímann en þetta
var ekki að smella. Það small
núna og það er frábært. Við lyft-
um okkur upp fyrir Þrótt sem er
gríðarlega mikilvægt fyrir
okkur,“ sagði Valur Fannar Gísla-
son, fyrirliði Fylkis, í leikslok.
„Þetta var líka svona í bikar-
leiknum á móti Fjölni og var þetta
í raun framhald af þeim leik. Við
höldum ótrauðir áfram. Þetta er
undir okkur komið, við þurfum að
klára þetta sjálfir og við erum að
gera það.“
Fylkir sigraði andlaust lið
Grindavíkur sannfærandi og var
besti leikmaður heimamanna,
Eysteinn Húni Hauksson, allt
annað en sáttur en hann virtist
vera eini leikmaður liðsins sem
lagði sig fram og vildi vinna
leikinn.
„Ég ætla ekki að segja það. En
ég var að hugsa þetta sama inni í
klefa. Það vantar þennan sanna
baráttuanda. Það er eins og það sé
einhver þreyta í mönnum og
þegar maður lítur í andlitin á
mönum þá er ekki sérlega bjart
yfir. Þessu þurfum við að kippa í
lag hver og einn. Það er fyrir
neðan allar hellur að bjóða upp á
svona.
Við vorum ekki að gera neitt
inni á vellinum. Við vorum eins og
menn sem voru mættir í leiðinlega
vinnu og bíða eftir að þetta gerðist
af sjálfu sér og yrði flautað af. Það
vantaði þennan sanna keppnis-
anda,“ sagði Eysteinn. - gmi
Fylkir vann öruggan sigur á slöku Grindavíkurliði og náði 4 stiga forystu á HK:
Fylkismenn fjarlægðust fallsætið
FRÁBÆR Haukur Ingi Guðnason átti
stórleik með Fylki í Grindavík í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI KR skaust upp í þriðja
sæti Landsbankadeildar karla með
2-1 sigri gegn botnbaráttuliði HK.
Varamaðurinn Atli Jóhannsson
skoraði sigurmarkið á 89. mínútu.
„Það var ekki leiðinlegt að koma
inn með þessum hætti. Annars
fann maður sig náttúrlega vel í
rigningunni, þetta var bara svona
hálfgert Eyjaveður,“ segir Eyja-
peyinn Atli.
Vallaraðstæður voru annars
gríðarlega erfiðar á KR-vellinum
vegna úrhellisrigningar en leik-
mennirnir létu það ekki á sig fá og
buðu upp á einkar fjörugan leik.
HK-ingar voru meira með bolt-
ann framan af leik án þess þó að
finna glufu á þéttum varnarmúr
KR-inga. Vesturbæingar voru svo
fljótir að snúa vörn í sókn og
fyrsta mark leiksins kom einmitt
upp úr vel skipulagðri skyndisókn
á 18. mínútu.
Guðmundur Pétursson fékk
stungusendingu upp hægri kant-
inn og kom boltanum á fjærstöng
á Gunnar Örn Jónsson sem lagði
hann út í teiginn og þar mætti
Jónas Guðni Sævarsson og skor-
aði af stuttu færi. Kennslubókar-
dæmi um góða skyndisókn.
HK-ingar jöfnuðu svo leikinn
undir lok fyrri hálfleiks þegar
Sinisa Kekic skoraði úr víti og
þannig stóðu leikar þegar flautað
var til hálfleiks.
Seinni hálfleikur var ekki mikið
fyrir augað. Lítið var um opin
marktækifæri og leikurinn ein-
kenndist af miðjumoði, illa tíma-
settum tæklingum og feilsending-
um á báða bóga. Sigurmark
varamannsins Atla Jóhannssonar
á 89. mínútu fyrir KR, kom því
eins og þruma úr heiðskíru lofti.
KR batt þar með enda á þriggja
leikja sigurgöngu HK en það var
enginn uppgjafartónn í fyrirliðan-
um Gunnleifi, sem var að vanda
öflugur í marki HK.
„Stöðu okkar vegna í deildinni
komum við hingað til þess að taka
þrjú stig. Það skiptir engu hver
mótherjinn er, við komum til að
vinna og ef það gengur ekki þá
gengur það bara ekki. Við höldum
bara ótrauðir áfram og næst er
það Grindavík,“ segir Gunnleifur
ákveðinn. - óþ
Atli Jóhannsson tryggði KR öll stigin gegn HK:
KR stoppaði HK
Á SKOTSKÓNUM Jónas Guðni Sævarsson skoraði fyrsta mark KR gegn HK. Hér er
hann á ferðinni í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
2-1
KR-völlur, áhorf.: 1032
KR HK
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 19–12 (10–2)
Varin skot Stefán Logi 2 – Gunnleifur 7
Horn 13–4
Aukaspyrnur fengnar 12–16
Rangstöður 7–1
HK 4–4–2
*Gunnleifur Gunnleif. 7
Finnbogi Llorens 7
Ásgrímur Albertsson 6
Erdzan Beciri 5
Hörður Árnason 7
Hörður Magnússon 6
(86. Hörður Már -)
Finnur Ólafsson 5
Almir Cosic 6
(61. Goran Brajkovic 5)
Aaron Palomares 6
Sinisa Kekic 6
(65. Rúnar Már 4)
Iddi Alkhag 5
*Maður leiksins
KR 4–4–2
Stefán Logi Magnús. 6
Skúli Jón Friðgeirss. 5
Grétar Sigurðarson 7
Pétur Marteinsson 6
Guðm.Reynir Gunn. 6
Gunnar Örn Jónsson 6
(77. Atli Jóhannsson -)
Jónas Guðni Sævars. 7
Bjarni Guðjónsson 4
(84., Óskar Haukss -)
Viktor Bjarki Arnarss. 7
Guðmundur Péturss. 7
Björgólfur Takefusa 4
1-0 Jónas Guðni Sævarsson (18.)
1-1 Sinisa Kekic, víti (41.)
2-1 Ati Jóhannsson (89.)
Þóroddur Hjaltalín (6)