Fréttablaðið - 15.09.2008, Síða 37
MÁNUDAGUR 15. september 2008 21
Jessica Alba hefur vakið tals-
verða athygli fyrir þátttöku sína í
nýrri herferð sem á að fá ungt
fólk í Bandaríkjunum til að nýta
sér kosningarétt sinn.
Myndirnar sýna leikkonuna
hálfbera í bindingum og með límt
fyrir munninn. Hún segist þó ekki
sjá eftir myndatökunni, sem
stjórnað var af ljósmyndaranum
Marc Liddel og hún skammast sín
ekkert fyrir útkomuna.
Haft er eftir henni: „Mér leið
ekki illa meðan á myndatökunni
stóð. Ég dáist að verkum Marcs
því þau segja sögu og hann
framkallar alvöru tilfinningar
með myndum sínum.“
Þá finnst henni málstaðurinn
þess virði að berjast fyrir. „Ef
maður skráir sig ekki og kýs ekki
til þess að bæta ástandið í
landinu, þá er maður í raun að
reyra sjálfan sig niður og
múlbinda sig.“
Jessica Alba í
bindingum
ÓHRÆDD Alba hvetur fólk til að nýta sér
kosningaréttinn á áberandi hátt.
Paris Hilton og Idol-kynnirinn
Ryan Seacrest munu leiða
saman hesta sína og þróa
sjónvarpsþætti. Þeir verða ekki
með raunveruleikasniði, eins og
flest annað sem parið hefur
komið að, heldur verður lagst í
handritavinnu. Paris Hilton má
bráðlega sjá á MTV þar sem
þáttaröðin Paris Hilton‘s My
New BFF verður sýnd, en
þar leitar hótelerfinginn
sér að nýrri vinkonu.
Fyrirtæki Seacrests
framleiðir hins vegar
raunveruleika þættina
Keeping Up with the
Kardashians, þar sem
vinkona Parisar, Kim
Kardashian, er í aðalhlutverki.
Ekki er vitað um hvað
sjónvarpsþáttaröð skötuhjúanna
mun fjalla, eða hver kemur til með
að skrifa handrit, en þau munu
hafa verið í viðræðum um þetta
samstarf svo mánuðum skiptir.
Paris og Ryan
gera þætti
FRÁ KIM TIL PARIS Fyrirtæki
Ryans Seacrest framleiðir nú
raunveruleikaþætti með vinkonu Parisar,
Kim Kardashian, í aðalhlutverki.
Tískuvikunni í New York er nú lokið og Lond-
on tekur við. Á pöllunum í New York-borg sást
töluvert af samfestingum í ýmsum mynd-
um, sem henta öllu frá afslöppuðum degi
heima við til fínustu kvöldverðarboða.
Samfestingar fyrir
öll tækifæri
Flottur samfestingur og
jakki í stíl hjá 3.1 Phillip
Lim. NORDICPHOTOS/GETTY
Marc by Marc Jacobs
sýndi þennan sport-
lega samfesting fyrir
rólega daga.
Þessi samfestingur
hjá Derek Lam
jafnast á við fínasta
samkvæmiskjól.
Afslappaður samfest-
ingur Derek Lam er
gerður töffaralegri
með vel sniðnum
svörtum jakka og
hælaskóm.