Fréttablaðið - 15.10.2008, Qupperneq 23
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
HEILDARLAUSNIR
Í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrval
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
AMG AUKARAF í Kópavogi er eitt þeirra fyrirtækja sem selur
fjarskiptabúnað og annast ísetningu á aukarafbúnaði í bifreiðar. Má
þar nefna búnað eins og talstöðvar, símabúnað ýmiss konar og gps-
tæki sem koma sér til dæmis vel í jeppaferðum um hálendið.
„Við sérútbjuggum fjóra bíla og
fjórar kerrur og sú vinna hefur
staðið yfir í nokkra mánuði. Bílun-
um hefur öllum verið breytt fyrir
44 tommu dekk,“ segir Hjalti
Hjaltason sem ásamt starfsfólki
Arctics Trucks undirbýr leiðang-
ur um Suðurskautslandið á vegum
South Pole Race 2008, fyrstu
gönguskíðakeppninnar á svæð-
inu.
Tveir bílanna og allar kerrurn-
ar fara í skip í dag áleiðis til
Höfðaborgar í Suður-Afríku.
Hjalti og Gísli munu fljúga til Suð-
urskautslandsins 1. desember og
verða þar í átján daga áður en
keppendurnir og seinni tveir bíl-
arnir koma. Þeir eru einir Íslend-
inga í þessu ævintýri en hvert er
erindið? „Við byrjum með að
kanna leiðir upp á hájökulinn og
reyna að koma eldsneyti sem víð-
ast með fram væntanlegri göngu-
leið sem nær um 2.500 kílómetra
inn á ísbreiðuna. Síðan munum við
þjónusta keppendur og kvik-
myndatökufólk frá BBC,“ lýsir
Hjalti.
Um glænýja Toyota-bíla er að
ræða en þeir munu ekki koma til
baka því leiðangurstjórinn hefur
selt þá rússneskri rannsóknarstöð
á Suðurskautslandinu að sögn
Hjalta. Hvað um hreint land, fag-
urt land? „Það eru fjölmargar
þjóðir með verkefni á svæðinu og
mikið magn af tækjum. Okkar
bílar uppfylla ströngustu meng-
unarlöggjöf í heimi og þeir eyða
miklu minna eldsneyti en ef það
ætti að keyra sömu þyngd á snjó-
bíl eða snjósleðum. Í upphafi áttu
að vera margir snjósleðar með
gönguskíðaleiðangrinum og bara
tveir bílar. En við útreikninga kom
í ljós að það borgaði sig að sleppa
snjósleðunum og fjölga bílunum.“
Hjalti ætlar að sofa í tjaldi á
jöklinum frá 20. desember til 15.
febrúar ef allt fer samkvæmt
áætlun. „Það eru jól og áramót,
fertugsafmæli og ein gifting í
hópnum þannig að mikið verður
um hátíðahöld,“ segir hann hlæj-
andi. En er hann vanur akstri á
ís?
„Já. Margir Íslendingar hafa
samt ferðast meira á jöklum en
ég. Ég kem fyrst og fremst að
þessu sökum tækniþekkingar á
bifreiðunum.“ gun@frettabladid.is
Á leið á suðurskautið
Ísbreiður suðurskautsins bíða ævintýramannanna Hjalta Hjaltasonar verkefnastjóra og Gísla Jónssonar
tæknistjóra hjá Arctic Trucks. Þeir munu aka þar um á breyttum Toyota Hilux-bílum sem fara í skip í dag.
Hjalti var í þann veginn að kveðja um sinn tvo af væntanlegum fararskjótum sem
fyrirtækið Arctic Trucks hefur gert ferðbúna á Suðurskautslandið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA