Fréttablaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 15. október 2008 21
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 15. október
➜ Kvikmyndir
22.00 Heimildarmyndabíó Sýndar
verða myndirnar Íslensk alþýða og
Fríar fantasíur í Kling & Bang galleríi,
Hverfisgötu 42.
➜ Tónleikar
12.30 Kvartett Sigurðar Flosasonar
frumflytur ný verk í Norræna húsinu,
Sturlugötu 5.
20.00 Klezmertónleikar Söngsveitin
Fílharmónía ásamt systkinunum Ragn-
heiði og Hauki Gröndal og þjóðlaga-
sveit hans, verða með tónleika í Nes-
kirkju við Hagatorg.
20.00 Klassík á Kjarvalstöðum
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleik-
ari leikur klassísk verk. Kjarvalstaðir, v/
Flókagötu.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Að læra án þess að þjást
Michael Serge heldur fyrirlestur í
Háskólanum á Akureyri, Sólborg L201,
v/ Norðurslóð.
➜ Sýningar
Prjónaheimur Lúka Systurnar Gunn-
hildur og Brynhildur Þórðardætur sýna
hönnun á munstri fyrir íslensku ullina
á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands. Sýn-
ing in hefur verið framlengd til 19. okt.
Opið alla daga vikunnar nema mánu-
daga kl. 11.00-17.00.
➜ Síðustu Forvöð
Kristín Tryggvadóttir sýnir í Reykjavík
Art Galery, Skúlagötu 30. Sýningin
stend ur til 17. okt. og er opin alla daga
nema mánudaga.
➜ Myndlist
Hallur Karl Hinriksson sýnir í Gallerí
Fold, Rauðaárstíg 14. Sýningin stendur
til 19. okt. og er opin alla virka daga kl.
10.00-18.00, lau. kl. 11.00-16.00 og sun.
14.00-16.00.
Furðudýrafræðasafn Hr. og Fr. Rees.
Listamennirnir og hjónin Samuel og
Marina Rees sýna í Menningarmið stöð-
inni Skaftfell, Austurvegi 42, Seyðis firði.
Sýningin er opin miðvikudaga til föstu-
daga frá 13.00 - 16.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Vesturport sýnir sviðsetningu Gísla
Arnar Garðarssonar á Woyzek í
New York í vikunni. Nær fimmtíu
manna flokkur hélt til New York á
sunnudag og eru þrjár sýningar á
verkinu á vegum BAM-hátíðarinn-
ar. Gísli Örn segir hrakfarir í fjár-
málalífi þjóðarinnar hafa lítil áhrif
á starfsemi Vesturports, fram
undan séu sýningarferðir á hátíðir
víða um lönd, bæði á Hamskiptun-
um og Woyzek. Þá komi til álita að
æfa Rómeó og Júlíu upp og fara
með stykkið á leikför. Boð leiklist-
arhátíða skoði flokkurinn gaum-
gæfilega og þekkist einungis þau
sem tryggja fulla fjárhagslega
aðkomu að sýningum Vesturports
erlendis, enda hafi flokkurinn notið
takmarkaðs stuðnings frá einkaað-
ilum til sýningarferðalaga, fái jafn-
vel ekki styrki úr Thalíu, ferðasjóði
Reykjavíkur og Icelandair.
BAM-hátíðin hefur um langt
árabil verið ein helsta blandaða
listahátíð New York um árabil og
er mikill heiður fyrir Vesturport
að fá þar aðgang. Hún var lengi
vel nátengd framvörðum í listalífi
borgarinnar og leggur ríka áherslu
á blöndu listgreina í nýsköpunar-
verkefnum. Sýning Vesturports á
æskuverki Georg Buchner var
unnin í samstarfi Leikfélags
Reykjavíkur, Bite-hátíðarinnar í
Barbican, Old Vic-leikhússins í
London og Vesturports. Hún var
frumsýnd hér á landi í Borgarleik-
húsinu 2005 og var það í fyrsta
sinn sem Nick Cave gekk til sam-
starfs við Vesturport. Nú mun
vera í bígerð sviðsetning á öðru
sígildu verki þýskra bókmennta í
samstarfi Nick Cave við Vestur-
port á Faust eftir Goethe.
pbb@frettabladid.is
Woyzek sýndur
í New York
Hádegistónleikaröð á vegum Háskóla
Íslands hefur síðustu vetur gert sitt til að
gleðja tónlistarunnendur á höfuðborgar-
svæðinu enda metnaðarfull og áhuga-
verð dagskrá. Það er því mörgum eflaust
fagnaðarefni að tónleikaröðin fer af stað
á nýjan leik með tónleikum Kvartetts
Sigurðar Flosasonar í Norræna húsinu í
hádeginu í dag. Kvartettinn mun þar
frumflytja nýja tónlist eftir Sigurð.
Nýju verkin eru fjögur talsins og segir
Sigurður þau nokkuð ólík innbyrðis. „Oft
er það þannig að maður er að semja tón-
list með eitthvert tiltekið tilefni eða flytj-
anda í huga og þá myndast einhver sam-
eiginlegur þráður sem tengir verkin í
það og það skiptið. Þessi nýju lög eru
aftur á móti öll samin meðfram öðrum
verkefnum og því er lítið sem sameinar
þau.“
Sigurður hefur annars í nógu að snúast
þessa dagana því auk þess að koma fram
með sínum eigin kvartett sem og ýmsum
öðrum hljómsveitum stendur hann einn-
ig í tónlistarútgáfu. „Helsta verkefnið
hjá mér um þessar mundir er að reyna að
koma út diski þar sem ég leik einleik með
Sinfóníuhljómsveit Íslands,“ segir Sig-
urður. „Upptökum er lokið, en verkefnið
er reyndar í smá hléi núna vegna efna-
hagsástandsins. Það þarf náttúrulega að
framleiða sjálfan diskinn erlendis og það
er erfitt og dýrt í augnablikinu að koma
framleiðslunni af stað. En við bíðum bara
og sjáum hvað setur.“
Aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000
krónur. Eldri borgarar og öryrkjar fá mið-
ann á 500 kr., en aðgangur er ókeypis fyrir
nemendur við Háskóla Íslands. Tónleik-
arnir hefjast stundvíslega kl. 12.30. - vþ
Sigurður frumflytur á Háskólatónleikum í dag
SIGURÐUR FLOSASON Kemur fram á Háskóla-
tónleikum í dag ásamt kvartetti sínum.
Kl. 22
Tvær heimildarmyndir verða frum-
sýndar í Kling og Bang galleríi,
Hverfisgötu 42, kl. 22 í kvöld. Um
að ræða myndina Fríar fantasíur
eftir þau Markús Bjarnason og
Guðnýju Rúnarsdóttur og myndina
Íslensk alþýða eftir Þórunni
Hafstað. Viðburðurinn fer fram á
vegum Sequences-listahátíðarinn-
ar og er aðgangur að honum
ókeypis.
Það var fullt á sunnudagskvöld í
Neskirkju þegar söngsveitin Fíl-
harmónía hélt þar tónleika á
sunnudag. Í kvöld gefst öllum
þeim sem misstu af sunnudagstón-
leikunum tækifæri til að mæta og
sjá og heyra kórinn flytja þjóð-
lagatónlist gyðinga frá Austur-
Evrópu, klezmer, sem hefur átt
sívaxandi vinsældum að fagna hér
á landi á liðnum árum. Með Fíl-
harmóníunni koma fram systkinin
Ragnheiður og Haukur Gröndal og
þjóðlagasveit hans. Magnús Ragn-
arsson er stjórnandi tónleikanna.
Þau systkin Haukur og Ragn-
heiður hafa átt mikinn þátt í að
vekja athygli á þessari litríku og
fjörugu tónlist hér á landi. Í henni
blandast saman forn stef úr trúar-
legri tónlist gyðinga við dans- og
þjóðlagatónlist Evrópu og Mið-
Austurlanda, ekki síst úr grískri
og tyrkneskri alþýðutónlist. Hauk-
ur Gröndal stofnaði íslensk-
dönsku klezmerhljómsveitina
Schpilkas, sem hefur gefið út tvær
hljómplötur, en Ragnheiður söng
með hljómsveitinni. Ragnheiði
Gröndal þarf ekki að kynna fyrir
íslenskum tónlistarunnendum.
Hún hefur sungið sig inn í hug og
hjörtu landsmanna og gefið út
fjórar sólóplötur sem allar hafa
náð miklum vinsældum og sungið
með ýmsum hljómsveitum auk
Schpilkas. Söngsveitin hélt
klezmertónleika með þeim syst-
kinum haustið 2007 sem þóttu
takast afar vel.
Í hljómsveitinni leika auk
Hauks, Erik Qvick á trommur,
Matthías Stefánsson á fiðlu, Vadim
Fedorov á harmóníku og Þorgrím-
ur Jónsson á kontrabassa. Tónleik-
arnir í kvöld hefjast kl. 20 í Nes-
kirkju (við Hagatorg). Miðar fást í
versluninni 12 tónum á Skóla-
vörðustíg og við innganginn. - pbb
Klezmer á konsert
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL, SÖNGKONA
LEIKLIST Úr sýningunni sem flutt verður í þrígang í New York í vikunni. Ólafur Egill og
Árni Pétur gera tilraunir á Ingvari Sigurðssyni. MYND: LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Auglýsingasími
– Mest lesið