Fréttablaðið - 15.10.2008, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 15. október 2008
Breski grínistinn Graham Norton tók Ísland fyrir í
síðasta þætti sínum á sjónvarpsstöðinni BBC 2.
Þegar hann gekk inn í salinn sagði hann: „Þið
áhorfendur virðist vera vel upp lagðir. Það lítur
ekki út fyrir að þið hafið verið með ævisparnaðinn
ykkar í íslenskum banka.“ Þegar hlátrasköllunum
linnti sagði hann að Ísland væri nefnilega farið á
hausinn, ekki verslunin Iceland heldur landið sjálft.
Hann gerði svo nokkurt grín að því að verslunin
Iceland færi ekki á hausinn á meðan Kerry Katona
væri að auglýsa vörur þeirra, en hún hefur sætt
talsverðri gagnrýni fyrir þétt vaxtarlag sitt. Í lokin
óskaði Norton svo öllum Íslendingum sem væru að
horfa á þáttinn góðs gengis, á mjög svo kaldhæðinn
hátt.
Gerði grín að Íslandi
Kjartan Pétur Sigurðsson,
leiðsögumaður með meiru,
hefur birt myndir af sumar-
bústöðum margra ríkustu
manna Íslands á vefsíðu
sinni. Mikil umræða hefur
skapast um bústaðina.
„Ég hef aldrei fengið svona mikil
viðbrögð. Sjálfsagt passa þessar
myndir vel inn í umræðuna um
þessar mundir,“ segir Kjartan
Pétur Sigurðsson leiðsögumaður
sem birt hefur myndir af sumar-
höllum íslenskra auðmanna á
bloggsíðu sinni. Leiðsögumaðurinn
nafngreinir ekki mennina sem eiga
bústaðina en segir þetta vera sitt
innlegg í umræðuna um þátt auð-
jöfranna í þeim skakkaföllum sem
íslenskt efnahagslíf hefur mátt
þola að undanförnu.
Leiðsögumaðurinn tók mynd-
irnar úr mótorsvifdreka og hafði
legið á sumum þeirra í dágóðan
tíma. En í ljósi undangenginna
atburða fannst Kjartani við hæfi
að sýna almenningi þær nú á
photo.blog.is.
Þegar Kjartan er spurður um
viðbrögðin kemur í ljós að hann
hefur flúið land og býr nú í Dan-
mörku. „Ég fór fyrir mánuði, var
alveg kominn með upp í kok af
þessu ástandi hérna og hafði sjálf-
ur rekist á nokkra veggi,“ bætir
hann við.
Kjartan segist hvergi banginn
við það að valda einhverri úlfúð
innan ríkukarla-samfélagsins og
hefur reyndar þá tilfinningu að
fólk sé minna hrætt við auð-
jöfrana. „Auðvitað var maður á
báðum áttum hvort maður ætti að
birta myndirnar en þetta er bara
mín leið til að berjast fyrir okkar
réttindum.“ Á huldu liggur hverjir
eiga hvern bústað og Kjartan vildi
ómögulega upplýsa það. Við einn
stendur þó á heimasíðunni að þar
sé í byggingu bústaður eins Kaup-
þingsforstjóranna en óhætt er að
segja að mörgum þætti hreinlega
fínt að geta átt svona hús, hvað þá
að nota þau þegar stund gefst milli
stríða.
freyrgigja@frettabladid.is
Leiðsögumaður birtir um-
deildar myndir á bloggi sínu
ÓHRÆDDUR Myndbirtinar Kjartans hafa vakið mikla athygli og er augljóslega enn
einn vinkillinn um það góðæri sem ríkt hefur hér á landi.
Hrollvekjandi draugasaga
fyrir hugrakka krakka.
Hvað leynist í gamla leðurstólnum
sem pabbi hennar Eyju kaupir á fornsölu?
Eitt er víst að það er EKKERT GOTT!
Um Ballið á Be
ssastöðum:
„Gerður Kristný
sýnir hér enn á
ný að hún er
frábær barnab
ókahöfundur ...“
berglind häsl
er, dv
KALDHÆÐINN Graham Norton
óskaði íslenskum áhorfendum
góðs gengis í síðasta
þætti sínum,
á mjög svo
kaldhæð-
inn hátt.