Fréttablaðið - 22.10.2008, Page 10
10 22. október 2008 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUMÁL „Foreldrar þolenda
hafa hringt í okkur nú í haust til
að fá aðstoð vegna svona mála.
Við töldum þau vera þess eðlis að
við vísuðum foreldrunum til lög-
reglu.“
Þetta segir Guðberg K. Jóns-
son, verkefnastjóri SAFT, samfé-
lags fjölskyldu og tækni, um
klám einelti ungra barna. SAFT er
vakningarátak um örugga tækni-
notkun barna og unglinga á
Íslandi.
Fréttablaðið hefur að undan-
förnu greint frá því athæfi barna
ellefu ára og eldri, að nota svæsið
netklám til að hrella jafnaldra
sína og leggja þá í einelti. Jafnvel
hefur dýraklám verið notað í þess-
um tilgangi. Myndirnar sækja
börnin á klámsíður og kenna þær
við þolendurna með einum eða
öðrum hætti. Þessu er síðan dreift
á netinu.
„Ég er ánægður með að Frétta-
blaðið skuli taka þetta mál upp,“
segir Guðberg. „Við þurfum með
einhverjum hætti að ýta við for-
eldrum þannig að þeir taki þessa
umræðu upp heima fyrir, brýni
fyrir börnunum að nota netið á
ábyrgan hátt og yfirfæra þá sið-
ferðiskennd sem við notum í dag-
legum samskiptum yfir á sam-
skipti á netinu.“
Guðberg segir enn fremur að
talsmenn SAFT muni fara í grunn-
skóla landsins í vetur með erindi
til foreldra, kennara og nemenda.
„Þá er í vinnslu kennsluefni á
myndböndum um örugga og
jákvæða netnotkun. Þessu verður
dreift í alla grunnskóla á næst-
unni. Enn fremur vinnum við að
gerð lestrarbókar fyrir yngsta
stigið í grunnskólum. Við vitum
að sex ára börn eru komin á netið.
Það verður mjög mikill þungi
lagður á að efla siðferðiskenndina
og yfirfærslu á góðum siðum í
samskiptum yfir á netið. Þetta er
rétt eins og umferðarfræðslan.
Það verður að fara með þetta í
yngstu bekkina.“
Spurður um aðkomu foreldra
að netnotkun barna sinna segir
Guðberg foreldrana verða að
kynna sér málin. Góð byrjun sé
að fara inn á SAFT.is þar sem séu
ýmsar upplýsingar og heilræði.
Síðan þurfi að taka umræðu
heima fyrir með börnunum um
tækifæri og hættur netsins. Þetta
sé miklu skynsamlegri ábyrgð
heldur en að loka alveg á netið,
því þá sé verið að loka á ýmislegt
jákvætt.
„Þetta er sá raunveruleiki sem
við búum við. Börn eru á netinu.
Netið er gott tæki svo fremi það
er notað á skynsamlegan hátt. Það
er ábyrgð foreldra að setja sig
inn í það hvað netið hefur að bjóða
og hvað ber að varast. Þetta er
hluti af uppeldinu, en verður ekki
afgreitt einungis í skóla.“
jss@frettabladid.is
Við þurfum með einhverj-
um hætti að ýta við for-
eldrum þannig að þeir taki þessa
umræðu upp heima fyrir.
GUÐBERG K. JÓNSSON
VERKEFNASTJÓRI SAFT
LÍNUDANSARA HLEKKIST Á Kínverski
línudansarinn Ti Aishan fær aðstoð
eftir að honum mistókst að ganga
á línu milli fjallstinda í Zhangjiajie í
Hunan-héraði í Kína. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur til að
greiða 350 þúsund krónur í sekt til
ríkissjóðs fyrir að hafa haft í
fórum sínum tæp 79 grömm af
kannabisefnum. Efnin, sem hann
ætlaði til sölu, hafði hann falið í
járnkassa í ferðatösku sinni þegar
lögregla stöðvaði hann við komu
ferjunnar Herjólfs til Vestmanna-
eyja á þjóðhátíð í sumar.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi.
Hann gekkst tvisvar undir sáttir á
síðasta ári vegna fíkniefnabrota.
Þá hefur hann fengið skilorðs-
bundinn fangelsisdóm fyrir
þjófnað, tilraun til þjófnaðar og
vopnalagabrot. - jss
Tekinn á þjóðhátíð í Eyjum:
Með kannabis-
efni í járnkassa
Frysting myntkörfulána
Viðskiptaráðuneytið
Ríkisstjórnin hefur beint þeim tilmælum til hinna nýju ríkisbanka að
þeir frysti afborganir og vexti af myntkörfulánum þar til ró kemst á
gjaldeyrismarkaðinn, sérstaklega vegna húsnæðismála, komi fram ósk
þar að lútandi frá skuldara. Þeim tilmælum er beint til bankanna að þeir krefji skuldara ekki
um auknar tryggingar né láti skuldara undirgangast nýtt greiðslumat vegna þessara tíma-
bundnu frystingar á myntkörfulánum.
Fjármálaráðherra mun á næstu dögum leggja fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum
um stimpilgjöld, þar sem lagt er til að skjöl sem ge n eru út á tímabilinu frá gildistöku
laganna til 1. janúar 2009 og fela í sér breytingar á skilmálum á fasteignaveðskuldabréfum
einstaklinga verði undanþegin greiðslu stimpilgjalda.
Í ljósi framangreinds er athygli skuldara hjá hinum nýju ríkisbönkum vakin á því að þeir geti
óskað eftir frystingu á myntkörfulánum, óháð efnahag sínum.
Í tilmælunum var því einnig beint til ríkisbankanna að þeir bjóði viðskiptavinum sínum í
greiðsluer ðleikum upp á sams konar úrræði og Íbúðalánasjóður hefur gert, sbr. ils.is.
Óskum hefur verið beint til annarra fjármálafyrirtækja að veita sömu fyrirgreiðslu.
Brýnt að ýta
við foreldrum
Foreldrar þolenda klámeineltis hafa leitað aðstoðar
hjá SAFT. Verkefnastjóri segir að brýna verði fyrir
börnunum að nota netið á ábyrgan hátt.
NETNOTKUN BARNA Verkefnastjóri SAFT segir foreldra verða að taka umræðu með
börnum sínum um tækifæri og hættur netsins. Það sé hluti af uppeldinu en verði
ekki einungis afgreitt í skóla. NORDICPHOTOS/GETTY
EFNAHAGSMÁL „Ég var með sex
Pólverja í vinnu í sumar en nú eru
fjórir farnir heim og tveir eftir,“
segir Damian Kulesza en hann
rekur byggingafyrirtækið Alexa
hér á landi.
Hann á Bar Polonia í Hafnar-
firði en þar eru Pólverjar vanir
að koma saman. „Maður heyrir
það alveg og sér að þeim fer
fækkandi en sem betur fer kemur
líka fólk af öðrum þjóðernum til
okkar á barinn,“ segir hann en
bætir þó við að Íslendingar séu
frekar sjaldséðir á staðnum.
En þótt fjöldi Pólverja hverfi
úr landi eru þeir einnig margir,
að sögn Damians, sem geta ekki
farið og er hann sjálfur einn af
þeim.
„Ég kemst ekki neitt eins og
staðan er, ég á íbúð og er með
himinhá lán. Það er náttúrlega
engin leið að selja íbúðina núna,
ég veit að fólk á meira að segja í
erfiðleikum með að losna við bíl-
inn. Þannig að ég pakka ekki
saman og fer með fjölskylduna
sisvona. Ég ætla hins vegar að
bíða og sjá til hvort ástandið batni
ekki.“
Hann segist vita til þess að
fjöldi Pólverja hafi farið til
heimalandsins en einnig til vinnu
í Þýskalandi og á Norðurlöndun-
um. - jse
Pólskur athafnamaður segir löndum sínum fækka hér á landi:
Eignamenn komast ekki heim
EKKERT FARARSNIÐ Á HJÓNAKORNUN-
UM Þótt Pólverjum fækki hér á landi
fara þau Aleksandra Janczynska og
Damian Kulesza ekki neitt að sinni enda
ekki hægt að losa sig sisvona við eignir
og hverfa á braut eins og staðan er.
MYND/JÓN SIGURÐUR