Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 26.10.2008, Qupperneq 10
10 26. október 2008 SUNNUDAGUR F réttablaðið boðaði fimm manna hóp málsmetandi karla og kvenna til að deila með lesend- um framtíðarsýn sinni nú þegar þjóðin er komin að krossgötum og sitt sýnist hverjum um hvert skuli halda. Þeir sem sátu fundinn voru Hilmar Veig- ar Pétursson, framkvæmdastjóri hugbún- aðarfyrirtækisins CCP, Björk Guðmunds- dóttir tónlistarmaður, Jónas Haralz, fyrrum bankastjóri og efnahagsráðgjafi, Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur og rithöfund- ur, og María Huld Markan Sigfúsdóttir, tón- listarmaður úr hljómsveitinni Amiinu. Jónas mætti fyrstur í fundarherbergið til Jóns Sigurðar Eyjólfssonar blaðamanns og meðan fólkið var að tínast inn sagði hann frá fyrri þrengingum sem þjóðin hefur farið í gegnum. Björk hefur að undanförnu unnið með hópi ungs fólks að verkefninu Neisti, í samvinnu við Klak og Háskólann í Reykjavík, en það miðar að því að ýta undir nýsköpun og greiða götu sprotafyrirtækja í landinu. Spjallið fór því frá fyrri þrenging- um yfir í nútímann og að væntingum sem aldrei yfirgefa mannskepnuna, hversu hart sem heimurinn tekur á henni. En síðan beindist spurningin að þeirri yngstu í hópnum. BLM: Menn hafa verið að gera því skóna að þeir sem eldri eru og muni tímana tvenna eigi auðveldara með að komast í gegnum þessar þrengingar en yngri kynslóðir sem hafi verið aldar upp við hálfgerðar vellystingar muni eiga erfiðara með það. Hverju svarar þú þessu? María Huld: „Ég hef oft heyrt þessu fleygt. En ungt fólk hefur oft þurft að læra það að aðlagast breyttar aðstæður með skjótum hætti. Og nú eru enn einu sinni uppi algjörlega nýjar aðstæður sem fólk þarf að laga sig að. Þannig að ef ráðamenn eru einhverjir fulltrúar eldri kynslóðar og eiga aðeins tvö orð í forðanum þegar spurt er um lausnir; það er að segja „ál“ og „fisk- ur“ þá tel ég rétt að hafa frekar áhyggjur af þeim.“ Hilmar: „Ég held að þetta sé hárrétt, við ættum frekar að hafa áhyggjur af fólkinu sem bjó til þessa vitleysu og það var ekki unga kynslóðin. Hún var var upptekin við að búa til fyrirtæki eins og CCP meðan batteríið bjó til bankana.“ Nú þegar bankarnir eru farnir Björk: „En það er mikilvægt að byggja upp gott umhverfi til að starfa í. Ég hef á síð- ustu vikum verið í miklu sambandi við fólk sem er að vinna við sprotafyrirtæki og því ber flestu saman um að það sé varla grund- völlur til að starfa hérna þar sem reglugerð- irnar geri fyrirtækjum svo erfitt fyrir og stuðningur er af skornum skammti. Og ef því verður ekki breytt þá mun þetta fólk bara flýja land.“ Hilmar: „Ja, nú eru bankarnir farnir svo þá er loks hægt að fara að gera eitthvað.“ Þetta innískot Hilmars vekur nokkra kát- ínu. „Nei, það er satt. Þeir héldu uppi alls konar vitleysu hérna. Til dæmis allt of háu gengi þrátt fyrir að Samtök iðnaðarins og allir þeir sem hafa eitthvað um þessi mál að segja hefðu reynt að beina þeim frá villu síns vegar.“ Jónas: „Grundvallarverkefnið núna er að koma gjaldeyris- og gengismálum í lag. Það höfum við í rauninni aldrei gert. Við áttum lengi vel engan seðlabanka, við vorum með gullfótinn sem aðili að myntbandalagi Norð- urlanda, en það fór allt út um þúfur í fyrri heimsstyrjöldinni og varð aldrei endurreist. Svo höfum við verið með þennan litla gjald- miðil svo okkur hefur í raun alltaf skort festu. Nú er aðeins ein leið fær og það er myntbandalag Evrópu sem felur það í sér að við göngum inn í Evrópusambandið. Þegar við höfum gert það fáum við þann grundvöll undir okkar atvinnulíf og okkar viðskipti sem við höfum ekki haft áður.“ Breytingarnar gerast hægt Ari Trausti: „Ég held ég verði að flækja þetta aðeins. Menn eru að tala um hið nýja Ísland en ég stórefast um að eitthvað slíkt sé í uppsiglingu. Slíkar breytingar verða ekki til á einu ári, þær gerast á áratug eða meira. Og forgöngumenn slíkra breytinga eru dreifðir um allt þjóðfélagið. Þeir eru ekki í einum samtökum. Enda sjáið þið það að eina lausnin sem er í sjónmáli verkalýðs- hreyfingarinnar er innganga í Evrópusam- bandið. Hún hefur aldrei verið virk í neinu aðhaldi eða verið mótvægi gegn þessu sem verið hefur að gerast frekar en stjórnvöld. Þannig að ég treysti ekki því fólki sem bjó til þetta ástand til að byggja upp eitthvað nýtt. Þessir forgöngumenn eru heldur ekki af einni kynslóð. Til dæmis lék kreppukynslóð- in gamla með í þessum leik núna alveg jafnt og sumt ungt fólk. Svo þetta er ekki spurs- mál um aldur heldur hugmyndafræði, sið- ferði og það að geta setið á strák sínum frek- ar en að sleppa sér í græðginni. Vegna þess að ójöfnuðurinn í samfélaginu jókst á þess- um síðustu sex árum, ég held að allir séu sammála um það, meira að segja þeir sem höfðu það gott og voru hlynntir þeirri þróun sem var að eiga sér stað. Sjálfur er ég alveg sannfærður um það að tugþúsundir Íslend- inga fóru algjörlega á mis við allar þær vellystingar sem annars viðgengust í þessu góðæri. Þannig að nú verðum við að koma umræðu og stefnumótun í gang í þjóðfélaginu og vissulega mun það leiða til þess að til verður eitthvað nýtt en ég tel að það verði þó ekki svo frábrugðið því sem við þekkjum. Kapítalisminn hefur gengið í gegnum kreppur og yfirleitt alltaf náð sér og aðlag- ast, nú koma til dæmis umhverfismálin inn í. Þannig að ég tel að við séum ekkert að fara gjörbreyta landinu eða heimsmynd okkar svona í einni svipan.“ Hilmar: „En ef þetta er ekki nóg til að koma okkur í Evrópusambandið þá spyr ég mig nú bara hvað þurfi að ganga á svo við komum okkur þangað inn. Ef við förum ekki inn í Evrópusambandið þá fara fyrirtækin þangað bara sjálf.“ Skortir sjálfstraust til að hætta í bandingja- leiknum Ari Trausti: „En það er með okkur Íslend- inga að við erum alltaf bandingjar einhvers. En nú þurfum við að koma okkur úr þessum bandingjaleik því á meðan við leikum hann getum við aldrei spunnið okkar örlagavef sjálf heldur látum við alltaf leika okkur út í horn þar sem við síðan neyðumst til að taka þá einu leið sem liggur úr stöðunni. Einu sinni vorum við bandingjar Dana, þá þurft- um við að sitja og standa eins og þeir vildu. Svo tókst að skera á þau tengsl en þá kemur upp ákveðin þjóðfélagsþróun sem kalla mætti stóriðjustefnu. Þar er engin lausn á nokkrum sköpuðum hlut önnur en að moka hingað inn erlendum peningum eða fyrir- tækjum. Svo er landsbyggðin bandingi kvótakerfisins og getur í raun ekkert gert því þetta kerfi er svo bandvitlaust. Og nú erum við einn ganginn enn komin út í horn og neyðumst við til að ganga inn í Evrópu- sambandið til að komast þaðan út.“ Jónas: „Það sem við áttum að gera var að ganga í Evrópusambandið árið 1992 í stað- inn fyrir að fara inn í Evrópska efnahags- svæðið. Því þegar við förum inn í það feng- um við algjört frelsi til að stofna fyrirtæki erlendis, flytja fjármagn og vörur frjálst milli landa og þar fram eftir götunum. Þetta frelsi sem okkur áskotnaðist þarna er það sama og aðrar Evrópuþjóðir búa við en þær hafa líka byggt heilt öryggiskerfi sameigin- legrar myntar og sameiginlega seðlabanka í kringum það. Við stöndum hins vegar fyrir utan þetta kerfi og það er grundvallar- ástæðan fyrir því hvernig fyrir okkur er komið í dag.“ Björk: „Mér finnst eins og það vanti sjálfstraust í okkur Íslendinga. Eins og þú, Ari Trausti, bentir á þá þurfum við alltaf að vera að fara í lið með einhverju landi til þess að finnast við vera verðug í stað þess að koma fram af sjálfstrausti og vera bara hróðug af menningu okkar eins og hún er. Það færi okkur miklu betur en að vera að hengja okkur utan í einhverja aðra af ein- tómri minnimáttarkennd. Ég sé til dæmis ekkert eftir því að hafa stofnað þessar hljómsveitir sem enginn skildi nokkuð í þegar ég var 16 ára frekar en að vera í ein- hverju U2-coverbandi eins og þá tíðkaðist og bíða eftir því að frægðin bankaði upp á.“ Hilmar: „Guð sé lof fyrir að þú skildir ekki hafa farið þá leið.“ Hugarfarsbreytingu, takk! María Huld: „Ef við erum að hugsa um lausnir þá myndi ég frekar óska eftir hug- arfarsbreytingu heldur en einhverjum nýjum prins á hvítum hesti sem kæmi til að leysa bankana af. Því ef þú breytir ekki hugarfarinu þá gerir þú alltaf sömu mistök- in. Ég vona að þetta áfall sem við höfum orðið fyrir núna verði til þess að við látum af þessum jarðýtuhroka. Við höfum nefni- lega farið offari á jarðýtunni, rutt öllu frá sem fyrir varð á leið okkar til að verða best og mest. Við skelltum líka skollaeyrum við hverju því sem minnti okkur á það að okkur gætu orðið á mistök. Í staðinn fyrir þennan hroka vildi ég að kæmi stolt; stolt yfir því hver við erum með öllu sem því fylgir.“ Kunnum að skapa en ekki að fara með peninga Hilmar: „Íslendingasögurnar eru hugar- heimur, það sem Björk gerir er viss hugar- heimur, Latibær er hugarheimur, það sem við í CCP gerum er viss hugarheimur og við sköffum virðisauka hér á Íslandi fyrir 50 milljónir dollara, ég hef ekki fylgst nógu vel með í morgun til að vita hvað það er í íslenskum krónum. Það er hreinn virðis- auki, ekki eins og í áliðnaðnum þar sem afurðin er flutt inn og síðan út og aðeins sáralítill virðisauki situr eftir. En í hinum tilfellunum verður virðisaukinn til úr hug- myndum fólks. Þetta er það sem við erum góð í, þetta er það sem útlendingar kaupa af okkur. Við kunnum hins vegar ekkert með peninga að fara og höfum aldrei gert. Það er heldur ekki okkar sterkasta hlið að setja lög þannig að við eigum bara að láta alvöru fag- fólk í Brussel sjá um gera fyrir okkur reglu- verkið og halda utan um peningastefnuna meðan við einbeitum okkur að því sem við gerum best. Það er í raun alveg ótrúlegt að meðan allir eru búnir að átta sig á þessu skuli kerfis- karlar sem enn eru að reyna að átta sig á því hvernig maður sendir ímeil vera að ríg- halda í regluverk sem er fyrir löngu úr sér gengið.“ Björk: „Það var einmitt þetta sem fólkið í sprotafyrirtækjunum segir mér, það erfið- asta við þetta eru reglugerðirnar sem eru bara svolítið „SÍS“. Eins og það að fólk getur ekki verið með sína eigin osta á bóndabæj- unum því það verður það að senda alla mjólkina, það er svolítil kommúnistalykt af þessu. Það getur ekki verið með heimaslátr- un. Þetta er algjör synd því Ísland gæti orðið svona eins og Toskana á Ítalíu þar sem lítil matvælafyrirtæki blómstra en það er ekki hægt hérna vegna allra þessara reglu- gerða. Og nú þegar þessi kreppa hrellir okkur þá er fullt af hæfu bankafólki að missa vinn- una og það þarf að búa til fyrirtæki fyrir allt þetta hæfa fólk. Þess vegna væri það að hoppa í álver alveg rosaleg synd.“ María Huld: „Já, það væri alveg stórkost- legt ef það væri ekki einblínt svona á fáar leiðir í verðmætasköpuninni. Ég á marga vini sem finna sér ekki farveg hérna þar sem fjölbreytnin er svo takmörkuð.“ Björk: „Gott dæmi um þetta er fyrirtæk- ið Orf líftækni sem er frábært fyrirtæki. Það framleiðir prótín fyrir fyrir læknis- rannsóknir, lyf og iðnað úr byggi. Og það þarf að borga fullt orkuverð fyrir sín gróðurhús en á sama tíma borgar Alcoa einn fimmta. Það er fullt af fólki sem myndi vilja rækta grænmeti og fleira, það myndi kannski gera það ef það nyti sömu forréttinda. „Er ekki farinn að hugsa svona langt“ Ari Trausti velti fyrir sér óðagotinu sem einkennir oft vinnubrögð okkar Íslendinga og gagnrýndi að við skyldum af skammsýni sífellt hugsa í skyndilausnum. Jónas varð þá hugsað til skólafélaga síns frá því í Stokkhólmi árið 1938. „Þá var erfitt að fá peninga að heiman rétt eins og nú. Einn félagi minn sem var rétt að því kominn að taka lokapróf átti við þennan vanda að etja svo hann spurði mig einn morguninn hvort ég gæti lánað sér fyrir morgunmat svo ég lánaði honum eina krónu. Svo fer hann af stað en ég kalla á eftir honum: „En vantar þig ekki fyrir hádegisverði líka?“ og hann svarar. „Nei, ég hugsa aldrei svo langt fram í tímann.“ Sagan vekur mikla kátínu og Jónas bætir við: „En þessum manni farnað- ist afar vel að námi loknu.“ Hilmar: „Já, við Íslendingar kunnum að redda okkur en það sem þarf að gera er að búa til stöðugt starfsumhverfi, það er hlut- verk stjórnmálamanna. Þeir eiga að búa til þetta umhverfi en ekki vera að búa til störf, fólkið sér sjálft um það.“ Björk: „Og þó að við Íslendingar hugsum oft ekki langt þá er þetta verkefni sem ég er í núna með sprotafyrirtækjunum hugsað sem langhlaup sem byrjaði fyrir átta vikum, það er að segja fyrir hrun bankanna. Rétt eins og langhlaupið sem hófst þegar ég var 16 ára að flakka á milli staða í rútu til að spila fyrir fólk og jafnvel án þess að borða í marga daga. Það leið á löngu, og ég fór oft á hausinn, áður en það fór að gera sig.“ Beint í það sem við gerum best Yfirvaldið heldur ekki í við fjöruga þjóðina og því þarf að breyta. Áföllum fylgir oft hugarfarsbreyting og það er það sem þjóðin þarf núna frekar en nýja lausn sem kemur eins og prins á hvítum hesti og býðst til að leysa bankana af. ÞAÐ ER MARGT SKONDIÐ ÞÓ AÐ STAÐAN SÉ ALVARLEG Aðstæður eru vissulega slæmar og viðmælendur höfðu ýmislegt út á framgang stjórnvalda að setja en þó verður staðan seint svo slæm að ekki megi brosa í kampinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.