Fréttablaðið - 26.10.2008, Qupperneq 26
6 matur
Fiskbollurnar hennar Kristínar frá Prestshúsum í Vík eru vel þekktar meðal yngstu og elstu borgara
Víkur í Mýrdal.
Kristín starfar sem matráður á dval-
arheimili staðarins þar sem hún eldar
líka fyrir grunnskólann og leikskólann. Oft
eru þar um 140 manns í mat.
„Yfirleitt geri ég bollurnar af fingrum fram,“
segir Kristín þegar hún er beðin um uppskrift að
fiskbollunum en fæst þó til að punkta niður hráefn-
in og miðar uppskriftina við sex til átta. Stundum
kveðst hún breyta til með því að brytja papriku
smátt og setja út í deigið. Spurð hvað henni finnist
best við bollurnar svarar Kristín brosandi. „Það
besta er að þær borðast alltaf vel.“ - gun
BORÐAST ALLTAF VEL
Þegar matreiða skal án þess að eyða fúlgum fjár koma fiskbollur sterkar inn.
Kristín Einarsdóttir í Vík gerir oftast bollurnar af fingrum fram.
Búbót ÓDÝR, GÓÐUR OG HOLLUR MATUR
MATREIÐSLUBÓKIN
Þeir sem luma á brauðvélum á heimilum sínum eru heppnir því fátt er
notalegra en að finna ilm af nýbökuðu brauði þegar komið er í eldhúsið
í morgunsárið. Bókin Brauð, kökur og annað góðgæti geymir fjölda
spennandi uppskrifta sem hentar að baka í slíkum vélum. Mældir eru
nákvæmir skammtar í hnoðunarskálina, prógramm valið og tímastillir
settur í gang. Svo er brauðið tilbúið
á þeim tíma sem óskað er.
Brauð, kökur og annað góðgæti
kom út árið 2003 og er eftir Fríðu
Sophiu Björnsdóttur. Auk fjöl-
breyttra brauð- og kökuuppskrifta
birtir hún uppskriftir að súpum og
alls konar kæfum og sultum.
Áherslan er þó á að kenna fólki að
nýta möguleika brauðvélarinnar
því, eins og hún segir í formálan-
um, „fjölbreytileg heimabökuð
brauð breyta einföldustu máltíð í
veislu“. - gun
Góð brauð breyta ein-
földustu máltíð í veislu
1 kg ýsa (gott að hakka ýsu og
þorsk saman)
4 laukar, hakkaðir
3 egg
1 msk. salt
2 msk. Aromat
1 tsk. pipar
1 tsk. sítrónupipar
2 dl mjólk
1 1/2 bolli kartöflumjöl
2 1/2 bolli hveiti
2 tsk. lyftiduft
Hrærið fisk, lauk og krydd
saman. Bætið eggjum og
mjólk í og síðast þurrefnun-
um. Hrærið allt vel. Mótið
bollurnar með ískúluskeið
sem dýft er í vatn á milli
og steikið í olíu á pönnu.
Sjóðið í 10 til 15 mínútur.
Berið kartöflur og ferskt
grænmeti fram með
bollunum, ásamt laukfeiti
eða einhverskonar sósu.
GÓÐAR Í KREPPUNNI
Gott grænmeti
er gulls ígildi.
Fiskbollur
Kristínar með
kartöflum og fersku
grænmeti.
M
YN
D
IR
/Þ
Ó
RI
R
KJ
A
RT
A
N
SS
O
N
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
IM
A
G
ES
BLÓÐMÖR OG LIFRARPYLSA
Lifrarpylsa varð vinsæl á íslenskum heimilum í lok 19. aldar. Kvenna-
fræðarinn eftir Elínu Briem kom út um áramótin 1888/89 og þar voru
meðal annars uppskriftir að lifrarpylsu. Lifrarpylsunnar er þó getið í
íslenskum heimildum frá 18. öld.
Blóðmör er fyrst nefnd í heimildum á 17. öld en gæti hafa þekkst fyrr.
Blóðmör er til dæmis þekkt sem viðurnefni í Noregi frá miðöldum,
segir á visindavefur.is, og að orðið slátur merki allt kjötmeti af slátur-
dýrum þótt það sé yfirleitt notað yfir lifrarpylsu og blóðmör.
Við gerð lifrarpylsu er hakkaðri lifur hrært saman við mjólk, salt,
haframjöl og rúgmjöl og mör bætt út í eftir smekk.
Í blóðmör er hrært saman blóði, vatni, salti,
haframjöli og rúgmjöli og mör. Stundum
er rúsínum eða fjallagrösum bætt út í
til bragðbætis.
Vambirnar úr skepnunni eru
notaðar undir hræruna en í
dag eru líka mikið not-
aðar tilsaumaðar
gervivambir.
Ó