Fréttablaðið - 26.10.2008, Síða 35
SUNNUDAGUR 26. október 2008 19
N1-deild karla
Stjarnan-FH 27-31 (15-14)
Mörk Stjörnunnar (skot): Fannar Friðgeirsson
9 (15/1), Fannar Þorbjörnsson 6 (6), Hermann
Björnsson 5 (11), Vilhjálmur Halldórsson 3 (12),
Kristján Kristjánsson 2 (5), Daníel Einarsson 1
(1), Ragnar Helgason 1 (2), Ólafur Sigurjónsson
(1), Hrafn Ingvason (1), Guðmundur Guðmunds-
son (3)
Varin skot: Svavar Ólafsson 8/1 (24/43 33,3%),
Styrmir Sigurðsson 4 (12 33,3%), Árni Þorvarðar-
son 7 (14 50%)
Hraðaupplaup: 6 (Fannar F. 3, Fannar Þ. 2,
Daníel)
Fiskuð víti: 1 (Hermann)
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk FH (skot): Guðmundur Pedersen 8/3
(10/4), Aron Pálmarsson 8 (15), Ólafur Guð-
mundsson 7 (13), Ásbjörn Friðjónsson 4 (8),
Sigurður Ágústsson 3 (3), Jón Helgi Jónsson 1
(2), Hjörtur Hinriksson (1), Guðni Már Kristinsson
(1), Ari Þorgeirsson (1)
Varin skot: Magnús Sigmundsson 5 (19 26,3%),
Daníel Andrésson 15 (28 53,6%)
Hraðaupplaup: 5 (Sigurður, Aron, Jón, Guð-
mundur, Ólafur)
Fiskuð víti: 4 (Sigurður, Aron, Sigursteinn,
Ólafur)
Utan vallar: 10 mínútur
STAÐA EFSTU LIÐA
1. FH 6 3 2 1 +8 8
2. Akureyri 6 4 0 2 +5 8
3. Valur 6 3 2 1 +19 8
4. Fram 5 3 1 1 +9 7
N1-deild kvenna
Valur-Haukar 22-24 (12-8)
Mörk Vals (skot): Hrafnhildur Skúladóttir 13/5
(20/5), Íris Ásta Pétursdóttir 2 (4), Eva Barna
2 (7), Hildigunnur Einarsdóttir 1 (1), Dagný
Skúladóttir 1 (3), Kristín Guðmundsdóttir 1 (4),
Ágústa Edda Björnsdóttir 1 (5/1), Drífa Skúladótt-
ir 1 (7), Anna Grímsdóttir 0 (1).
Varin skot: Berglind Hansdóttir 25/2(49/3, 51%)
Hraðaupphlaup: 2 (Íris Ásta, Eva).
Fiskuð víti: 6 (Drífa 2, Íris Ásta, Eva, Hildigunnur,
Ágústa Edda).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Hauka (skot): Tatjana Zukovska 7 (13),
Ramune Pekarskyte 5 (17), Hekla Hannesdóttir
4 (5), Hanna G. Stefánsdóttir 4/1 (10/3), Nína
Arnfinnsdóttir 2 (4), Herdís Hallsdóttir 1 (1), Nína
K. Björnsdóttir 1 (3), Ester Óskarsdóttri 0 (2).
Varin skot: Guðrún Bryndís Jónsdóttir 22 (44/6,
50%).
Hraðaupphlaup: 2 (Hanna 2).
Fiskuð víti: 3 (Nína 2, Hanna).
Utan vallar: 4 mínútur.
Fylkir-Grótta 24-26 (11-14)
Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 6, Katrín Andrés-
dóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 3, Sunna María
Einarsdóttir 3, Hanna Rut Sigurjónsdóttir 3, Ásdís
Rut Guðmundsdóttir 3, Nataly Sæunn Valencia 1,
Kristín Kara Collins 1.
Mörk Gróttu: Anett Köbli 7, Harpa Baldursdóttir
6, Arndís María Erlingsdóttir 4, Ragna Karen
Sigurðardóttir 4, Laufey Guðmundsdóttir 3,
Hildur Andrésdóttir 1, Karólína Gunnarsdóttir 1.
Fram-FH 32-24 (17-12)
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 10, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 5, Ásta B. Gunnarsdóttir 4,
Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Sara Sigurðardóttir
3, Marthe Sördal 3, Karen Knútsdóttir 2, Hildur
Knútsdóttir 1, Elísa Viðarsdóttir 1.
Mörk FH: Hildur Þorgeirsdóttir 10, Ebba Særún
Brynjarsdóttir 3, Guðrún Helga Tryggvadóttir 3,
Herdís Guðmundsdóttir 2, Birna Haralds-
dóttir 2, Ingibjörg Pálmadóttir 2, Sigrún Gilsdóttir
1, Birna Íris Helgadóttir 1.
STAÐAN Í DEILDINNI
1. Stjarnan 5 5 0 0 +31 10
2. Haukar 5 4 0 1 +13 8
3. Valur 5 3 0 2 +16 6
4. HK 5 2 0 3 -5 4
5. Fram 5 2 0 3 +2 4
6. Grótta 5 2 0 3 -16 4
7. FH 5 2 0 3 -7 4
8. Fylkir 5 0 0 5 -34 0
ÚRSLIT
HANDBOLTI FH tyllti sér á topp N1-
deildar karla við hlið Vals og Akur-
eyrar þegar Hafnfirðingar lögðu
Stjörnuna, 31-27, í gær.
Stjarnan mætti mun ákveðnari
til leiks og náði mest fjögurra
marka forystu í fyrri hálfleik en
kaflaskil urðu í leiknum undir lok
fyrri hálfleiks.
FH minnkaði muninn í eitt mark
fyrir hlé, 15-14, með því að skora
tvö síðustu mörk hálfleiksins og
bætti um betur í upphafi þess síð-
ari þegar liðið skoraði sjö fyrstu
mörkin og náði sex marka forystu,
21-15.
„Við mættum andlausir til leiks.
Þetta virkaði ekki hjá okkur í
byrjun enda héldu þeir forskotinu
fram að hálfleik. Við peppuðum
hver annan upp í hálfleik og
komum tvíefldir til leiks í síðari
hálfleik. Við slátruðum þeim á
fyrstu mínútunum,“ sagði Aron
Pálmarsson, leikstjórnandi FH.
FH náði mest átta marka for-
ystu í síðari hálfleik en Stjarnan
náði að minnka muninn í tvö mörk
þegar tvær mínútur voru eftir af
leiknum.
„Við slökuðum of mikið á og
tókum ótímabær skot. Við megum
ekki detta í þann pakka. Við erum
svolítið í þessu. Við verðum að
læra að halda haus allan leikinn.
Ég skrifa þetta á reynsluleysi en
við lærum með hverjum leiknum,“
sagði Aron.
Patrekur Jóhannesson, þjálfari
Stjörnunnar, var ekki sáttur við
þátt dómaranna undir lokin þegar
FH skoraði tvö síðustu mörk leiks-
ins og tryggði sér fjögurra marka
sigur.
„Það verða mikil læti í FH-
áhorfendum í lokin og þá missa
dómararnir haus eins og við í byrj-
un hálfleiksins. FH-ingarnir voru
þeir einu sem héldu haus allan
leikinn,“ sagði Patrekur.
„Fyrstu 10 mínúturnar í síðari
hálfleik missa menn haus. Það er
kannski hluti af því að vera með
nýtt lið og unga leikmenn.“ - gmi
FH gerði góða ferð í Garðabæ í gær og er nú komið á topp N1-deildar karla eftir 31-27 sigur:
Öskubuskubyrjun FH heldur áfram
FRÁBÆR Aron Pálmarsson skoraði átta
mörk fyrir FH í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Kvennalandslið Íslands
leikur fyrri leik sinn gegn Írlandi
í umspili um laust sæti á úrslita-
keppni EM 2009 í dag en leikurinn
fer fram á Richmond Park-vellin-
um í Dublin og hefst kl. 15. Lands-
liðsþjálfarinn Sigurður Ragnar
Eyjólfsson telur Ísland vera með
sterkara lið en Írland á pappírun-
um en ítrekar að enginn leikur sé
unninn fyrirfram og öllu máli
skipti að íslensku stelpurnar mæti
tilbúnar til leiks.
„Við unnum þær 4-1 á Algarve
Cup í byrjun árs en gerðum 1-1
jafntefli við þær á sama móti ári
áður þar sem hvort liðið um sig
hefði getað unnið leikinn. Ég á því
von á að báðir leikirnir verði
spennandi og skemmtilegir. Írland
hefur verið að ná góðum úrslitum
upp á síðkastið og þær líta svolítið
á þennan leik eins og við að þetta
sé stærsti leikur í sögu kvenna-
knattspyrnunnar í sínu landi. Þær
munu því gefa allt sitt í leikina og
við verðum að gera slíkt hið
sama. Mér finnst við vera með
betra lið en þær, en maður
hefur aldrei unnið neitt í fót-
bolta bara á því að vera sterk-
ari á pappírunum. Við þurf-
um að mætta á fullu til
leiks og nýta okkar
yfirburði,“ segir Sig-
urður Ragnar.
Íslensku stelpurn-
ar voru grátlega
nálægt því að
tryggja sér farseðil-
inn á lokakeppnina í
Finnlandi þegar þær töp-
uðu, 2-1, í algjörum
úrslitaleik gegn Frakk-
landi um hvort liðið kæm-
ist beint upp úr riðlin-
um en Sigurður
Ragnar telur að sá
leikur geti hjálpað
liðinu fyrir leikina
gegn Írlandi.
„Frakklandsleik-
urinn fór í reynslu-
bankann hjá liðinu og
hefur tvímælalaust
hjálpað okkur í undir-
búningnum fyrir kom-
andi leiki og vonandi
verðum við því enn betri
núna gegn Írlandi en við
vorum gegn Frakklandi,“
segir Sigurður Ragnar von-
góður.
Varnarleikur Íslands hefur
verið sér í lagi frábær upp á síð-
kastið og Sigurður Ragnar leggur
áherslu á að stelpurnar haldi
áfram á sömu braut þar en liðið
fari hins vegar inn í leikinn til
þess að vinna og ekkert annað, vit-
andi að mark eða mörk á útivelli
geti reynst drjúg.
„Það hefur verið áhersluatriði í
öllum leikjum okkar að halda
markinu hreinu og það hefur geng-
ið vel en það er mikilvægt að hafa
það í huga að mark á útivelli getur
haft úrslitaáhrif í svona viður-
eignum. Annars förum við í þessa
leiki eins og aðra leiki sem við
höfum spilað með því hugarfari að
sigra,“ segir Sigurður Ragnar.
Sigurður Ragnar hefur ekki sér-
stakar áhyggjur af markmanns-
stöðunni þrátt fyrir að hin reynslu-
mikla Þóra Björg Helgadóttir hafi
ekki getað gefið kost á sér í leikina
gegn Írlandi.
„Við erum mjög vel mönnuð í
markmannsstöðunni og ég er með
tvær góðar stelpur sem eru báðar
klárar í slaginn og við skildum
líka meira að segja einn mjög
góðan markmann eftir heima.
Þannig að það er afar jákvætt
hversu mikil samkeppni er um
þessa stöðu í liðinu og við erum
með meiri breidd í henni en mörg-
um öðrum stöðum,“ segir Sigurð-
ur Ragnar að lokum.
omar@frettabladid.is
Þurfum að nýta okkar yfirburði
Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson er bjartsýnn fyrir umspilsleikina mikilvægu gegn Írlandi.
Hann telur íslenska liðið vera sterkara á pappírnum, en öllu máli skipti að sýna það inni á vellinum.
VONGÓÐUR Sigurður Ragnar
telur íslenska liðið vera sterkara
en það írska og stefnir ótrauður á
sigur í fyrri leiknum á útivelli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ALLT LAGT Í SÖLURNAR Kvennalandslið Íslands leikur mikilvægustu leiki í íslenskri knattspyrnusögu gegn Írlandi, en sigurveg-
ari einvígisins tryggir sér farseðilinn til Finnlands á lokakeppni EM 2009. Á myndinni má sjá, talið frá vinstri, Margréti Láru
Viðarsdóttur, Dóru Maríu Lárusdóttur og Ástu Árnadóttur einbeittar á svip í upphitun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Haukar og Valur höfðu
sætaskipti í N1-deild kvenna í
gær þegar Haukastúlkur skutust
upp í annað sæti eftir 22-24 sigur
gegn Valsstúlkum í gær.
Valsstúlkur réðu ferðinni allan
fyrri hálfleikinn og markvörður-
inn Berglind Íris Hansdóttir sá
til þess að Valur var alltaf skref-
inu á undan og varði sextán skot
í fyrri hálfleik. Staðan var 12-8
fyrir Val í hálfleik og liðið virtist
hafa leikinn í hendi sér.
Haukastúlkur mættu hins
vegar grimmar til leiks í síð-
ari hálfleik og náðu með
frábærri vörn og mark-
vörslu frá Guðrúnu
Bryndísi Jónsdóttur að
vinna sig aftur inn í leikinn.
Allt var í járnum á loka-
kaflanum en Haukastúlkur
innbyrtu að lokum sætan
sigur, 22-24.
Hjá Haukum var Tatjana
Zukovska atkvæðamest með sjö
mörk en Guðrún Bryndís var
einnig öflug í markinu og varði
22 skot. Hjá Val var hin reynslu-
mikla Hrafnhildur Skúladóttir
potturinn og pannan í sóknar-
leiknum og skoraði 13 mörk og
Berglind Íris átti einnig mjög
góðan leik og varði 25 skot.
„Þetta var vissulega sætur
sigur en mér fannst þetta ekki
sérlega góður leikur hjá
okkur sóknar-
lega, en varn-
arlega var
þetta fínt,“ segir
Díana Guðjóns-
dóttir, þjálfari
Hauka. - óþ
Haukar sóttu sigur gegn Val að Hlíðarenda í gær:
Sætur Haukasigur
DUGÐI EKKI TIL Stórleikur Berg-
lindar Írisar í markinu dugði Val
ekki til sigurs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM