Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 38
22 26. október 2008 SUNNUDAGUR HVAÐ SEGIR MAMMA? „Ég er voðalega ánægð með dóttur mína. Á þessum tímum er bara gott að eiga góð börn og fjölskyldu. Hún er alltaf að semja bæði lög og texta og það er vonandi að hún haldi þessu áfram því það er svo gaman að þessu.“ Hrönn Júlíusdóttir, móðir Halldóru Ársælsdóttur, sem sá bankahrunið fyrir með ljóði sem tryggði henni sigur í ljóða- samkeppni í desember. Hvað er að frétta? Allt gott. Frumsýn- ing á Dansaðu við mig á föstudag eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur í Iðnó. Augnlitur: Blár. Starf: Leikkona. Fjölskylduhagir: Á 7 ára son, hann Róbert Vilhjálm. Hvaðan ertu? Reykjavík. Ertu hjátrúarfull? Nei, ekkert sér- staklega. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Horfi of lítið á sjónvarp til að eiga uppá- halds svoleiðis. Uppáhaldsmaturinn: Lambakjöt og sushi. Fallegasti staðurinn: Borgarfjörð- urinn. iPod eða geislaspilari: Bæði. Hvað er skemmtilegast? Vinna að leiksýningu með frábæru fólki og hlæja með góðum vinum. Hvað er leiðinlegast? Að þurfa að flýta mér og stundum að elda mat. Helsti veikleiki: Meðvirkni. Helsti kostur: Jákvæðni og húmor. Helsta afrek: Að hafa alið barn í þennan heim. Mestu vonbrigðin? Að hafa ekki sjálf skrifað verkið Dansaðu við mig. Hver er draumurinn? Að lifa í núinu á hverjum degi. Hver er fyndnastur/fyndn- ust? Sonur minn, hann fær mig til að hlæja á hverjum degi og líka Inga María vinkona mín. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Tilgerð og óheið- arleiki. Hvað er mikilvægast? Vakna glöð með sól í hjarta. HIN HLIÐIN ÞRÚÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR LEIKKONA Dreymir um að lifa í núinu hverju sinni „Að vissu leyti kemur þetta andóf upp vegna þess að prestar hafa verið að spila sig svolítið stórt í kreppunni. Hafa verið í nánast öllum fréttatímum að segja fólki hvernig það eigi að haga sér,“ segir Matthías Ásgeirsson, rit- stjóri Vantrúarvefsins. Þar hefur verið rekin hörð gagnrýni á hend- ur Þjóðkirkjunni síðan efnahags- fárviðrið reið yfir landið. Vantrúar- menn gagnrýna kirkjunnar menn fyrir hræsni og græðgi og telja það tvískinnung að á meðan þeir fari í heimsóknir á vinnustaði, tali um nauðsyn þess að spara, séu þeir sjálfir meðal hæst launuðu embættismanna ríkisins. „Það er verið að tala um að hækka fram- lög enn frekar til kirkjunnar á meðan það vofir yfir að skera þurfi niður ríkisútgjöldin. Við telj- um að það væri réttast að byrja á kirkjunni í þeim efnum,“ segir Matthías og bendir á þar gæti sparast tveir og hálfur milljarður. Í nýlegri færslu á Vantrú birtir Þórður Ingvarsson, liðsmaður síð- unnar, lista yfir laun prestana. Þar kemur fram að laun þeirra geta numið frá hálfri milljón og upp í milljón á mánuði. Þar að auki vísar Þórður í launalista sem birtist á vefsíðunni fyrir tveimur árum með launum helstu presta landsins. Efstur þá var Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. „Þjóð- kirkjan er ekki rétti aðilinn til að segja fólki að spara á meðan starfsmenn hennar þiggja nánast ofurlaun,“ segir Matthías. „Óvissutímar eru þeirra sóknar- færi en okkur finnst eitthvað vit- laust við þetta.“ Matthías telur jafnframt lítið athugavert við færslu þar sem birt var glæsikerra þjóðkirkju- prests. „Þetta var reyndar ekki bíllinn hans sem sést á myndinni,“ segir Matthías. En Teitur Atlason, annar liðsmaður vefsíðunnar, tók sig hins vegar til og birti mynd af umræddum bíl og tilgreindi um hvaða prest væri rætt: séra Pálma Matthíasson, sóknarprest í Bústaðakirkju. Bíllinn er ekki af verri gerðinni: Mercedes Benz- jeppi. „Þeir eru bara að reyna að búa til leiðindi í garð presta og nota hvert tækifæri til þess. Það eru ekki við heldur kjararáð sem ákveður launin okkar. Ef það finn- ast hins vegar dæmi um presta sem berast á og fylgja ekki eigin sannfæringu þá er alveg sjálfsagt að Vantrú ræði við þá,“ segir Ólaf- ur Jóhannsson, formaður Presta- félags Íslands. freyrgigja@frettabladidi.is MATTHÍAS ÁSGEIRSSON: GRÆÐGI OG HROKI EINKENNA ÞJÓÐKIRKJUNA Gagnrýna ofurlaun presta OSCAR BJARNASON Oscar, sem hefur verið tvöfaldaður á myndinni, hefur vakið athygli víða fyrir hönnun sína. „Ég vona að Gordon Brown hætti að nota Ísland til að afvegleiða fólk frá vandamálinu sem snertir í raun alla Vestur-Evrópu. Græðgin kom okkur á þennan stað en nú þarf að stoppa og byrja að hugsa upp á nýtt,“ segir Emilíana Torrini í viðtali við breska blaðið The Sun. Torrini segir að aðstæðurnar á Íslandi séu í raun harmleikur. „Ísland hefur sterka vinnu-siðferðiskennd. Við gleymdum því hins vegar að maður þarf að vinna hörðum höndum til að afla sér fjár. Það er ekki hægt með því að vera breyta tölum í tölvu og reyna að láta sig líta út fyrir að vera stærri en maður er í raun og veru,“ bætir Emilíana við. Söngkonan er að kynna plötu sína Me and Armini sem hefur fengið prýðisgóða dóma og þykir fylgja Fisherman‘s Woman, sem kom út fyrir þremur árum, vel eftir. Emilíana er spurð hvað hafi staðið upp úr frá uppvaxtar- árunum á Íslandi. „Stjörnubjartur himinn þegar maður var á leið í skólann, mamma að skauta eftir götunni þegar þær voru ísi- lagðar. Sumrin fyrir austan hjá afa og svo sunnudagsbíltúrarnir með pabba og mömmu.“ Emilíana upplýsir jafnframt að hún hafi ætlað að syngja annað lag í söngkeppni framhaldsskólanna en I Will Survive. „Ég hálf skammaðist mín í raun fyrir það,“ segir hún. „Ég var svo mikið fyrir indie-tónlist á þessum tíma og hafði sungið lag eftir Mazzy Star (amerísk hljómsveit) í undankeppninni,“ heldur Torrini áfram. „En ég fékk ekki að flytja það og var eiginlega bara sagt að syngja I will Survive. Vinur minn þýddi síðan lagið yfir á íslensku og við fengum tvo vini okkar til að dansa. Annar var Íslandsmeistari í dansi en hinn var algjörleg taktlaus. Okkur fannst þetta alveg drepfyndið og bjuggumst alls ekki við að vinna.“ - fgg Emilíana Torrini biðlar til Browns HARMLEIKUR Emilíana Torrini segir ástandið á Íslandi vera harmleik. Menn hafi gleymt vinnusiðferðinu. Grafíski hönnuðurinn Oscar Bjarnason hefur að undanförnu unnið þrenn verðlaun fyrir hönnun sína. Fyrst ber að nefna Wolda-verðlaunin þar sem bestu lógóin og vörumerkin í heimin- um voru valin. Vann Oscar fyrir hönd Íslands með lógó sem hann bjó til fyrir byggingafyrirtækið Birkifell frá Akureyri. „Þarna er þrískipt dómnefnd. Fyrst gefa hönnuðir einkunn, svo markaðsstjórar og svo almenn- ingur og þess vegna var fínt að vera svona ofarlega,“ segir Oscar, sem var tilnefndur í fyrra fyrir lógó sitt fyrir veitingastað- inn Domo. Oscar vann einnig samkeppni sem Hönnunarmiðstöð Íslands efndi til um merki félagsins en alls voru 180 merki send inn. Tók Oscar á móti verðlaununum úr höndum sjálfrar Dorritar Moussaieff. „Ég hafði aldrei verið það heppinn að vera í sama herbergi og hún. Hún er indælis kona og það er eitthvað krútt- legt við hana.“ Sama kvöld var honum síðan tilkynnt um að hann hefði unnið lokaða keppni um merki fyrir Sjúkratrygging- ar Íslands, sem kom honum skemmtilega á óvart. Oscar fékk verðlaunafé fyrir tvær síðastnefndu keppnirnar og er sérlega þakklátur fyrir það. „Það er betra að fá pening en ekki verðlaunaplagg í þessu ástandi sem er í dag,“ segir hann. Oscar hefur áður vakið athygli fyrir hönnun sína því fyrir ári var hann á meðal átta sérfræð- inga sem heimasíða dagblaðsins New York Times leitaði álits hjá um nýtt merki hjá leigubílum New York-borgar. Einnig keypti japanski fataframleiðandinn UNIQLO af honum merki hans Systm fyrir fatalínu sína. - fb Þrenn Oscars-verð- laun í höfn á árinu ÓSÁTTIR Matthías Ásgeirsson og Vantrúar-menn eru ósáttir við presta Þjóðkirkjunnar og telja að þeir ættu að líta eigin barm áður en þeir tjá sig um kreppuna. Ofurlaunin svipti þá trúverðugleika. Ólafur Jóhannsson bendir hins vegar á að kjararáð ákveði laun presta. Ef það finnist hins vegar prestar sem berist á og fylgi ekki eigin sannfær- ingu sé alveg sjálfsagt fyrir Vantrú að ræða við þá. 31. 03. 1973

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.