Fréttablaðið - 26.10.2008, Síða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Við erum hagkvæm og leiðandi í framboði ódýrra fargjalda.
Frábært verð, þægindi og góð þjónusta eru órjúfanleg
heild hjá Iceland Express.
Bókaðu ferðina þína á www.icelandexpress.is
Þegar þú brosir,
þá brosum við!
Fyrir nokkrum árum átti ég afar eftirminnilegt spjall við gamla
frænku mína. Við ræddum haustið
1918 og atburði þess, en þá var hún
nýskriðin af barnsaldri. Þetta haust
gekk á með einhverjum mestu
frosthörkum í manna minnum. Þá
var húsakostur landsmanna mun
lakari en nú. Heilu fjölskyldurnar
hírðust í þröngum kytrum þar sem
einangrun var bágborin og hita-
veita var auðvitað með öllu óþekkt.
ÞETTA haust geisaði spænska
veikin. Hún lagðist þungt á Íslend-
inga. Þegar verst lét voru tveir af
hverjum þremur Reykvíkingum
rúmfastir. Öll lyf kláruðust,
athafnalíf lamaðist og jafnvel sam-
skipti við útlönd féllu niður. Erfitt
var að anna líkflutningum og gripið
var til þess ráðs að jarða fólk í
fjölda grafreit. Tæplega 500 Íslend-
ingar dóu í spænsku veikinni, þar
af 258 í Reykjavík. Þá er ekki tekið
tillit til fósturláta sem töluvert var
um.
ÉG vissi um spænsku veikina því
ég hafði lesið um hana. Það sem sló
mig var að hún skyldi ekki heyra
sögunni til, heldur vera lifandi fólki
í fersku minni. Ég hafði ekki gert
mér grein fyrir því hve stutt var í
raun síðan og hve lífsskilyrðum
þjóðarinnar hefur fleygt fram á
ekki lengri tíma en tæpum manns-
aldri.
FLEIRI hörmungar hafa dunið á
Íslendingum síðan þá. Þjóðin fór
ekki varhluta af blóðtöku seinni
heimsstyrjaldarinnar, en hún kost-
aði ríflega 200 Íslendinga lífið. Árið
1995 var þjóðarsorg þegar 34
Íslendingar létu lífið í tveimur snjó-
flóðum. Sá harmur er engum
gleymdur.
HAUSTIÐ 2008 kom síðan kreppa.
Fullt af fólki tapaði miklum pening-
um og margir misstu vinnuna. Í
umræðunni hafa einhverjir leyft
sér að kalla þetta mestu hörmungar
sem dunið hafa á þjóðinni. Ég er
hins vegar ansi hræddur um að
frænku minni sálugri þætti lítið til
þessara þrenginga koma. Hvar eru
líkin? Hvar eru fjöldagrafirnar?
ÁSTÆÐULAUST er að gera lítið
úr þeim erfiðleikum sem við stönd-
um núna frammi fyrir. En við
höfum séð það svartara. Gleymum
ekki að við erum rík þjóð með
góðan húsakost, hátt menntunar-
stig og gnægð náttúrulegra auð-
linda. Mér finnst því að við ættum
að sýna þeim fjölmörgu Íslending-
um, sem misstu annað og meira en
peninga í þeim raunverulegu hörm-
ungum sem dunið hafa á þjóðinni,
þá virðingu að gæta tungu okkar
þegar við börmum okkur yfir
blankheitum.
Hörmungar
Í dag er sunnudagurinn
26. október, 300. dagur ársins.
8.53 13.12 17.29
8.46 12.56 17.06