Fréttablaðið - 10.11.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
70,7%
33,4%
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fr
ét
ta
bl
að
ið
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
10. nóvember 2008 — 308. tölublað — 8. árgangur
fasteignir 10. NÓVEMBER 2008
Fasteignasalan Stakfell hefur til sölu einbýlishús á einni hæð við Fákahvarf með útsýni yfir Elliðavatn.
K omið er inn í flísalagða forstofu. Granít er á gólfi sem flæðir upp einn vegg og rennihurðir úr gleri inn í húsið sjálft. Granít er á öllum gólfnem í
en samliggjandi og er eldhús einnig opið við stofur. Fjögurra metra löng eyja er á milli eld-húss og borðstofu. Sama granít er á borðplötu og er á gólfum og er hún 10 sentimetra þykk. Gluggar í stofu ná niður í gólf enda útsýnið fallegt. Svefnher-bergin eru tvö og stór og rúm-góð. Inn af aðalsv f h
veggjum og granít er á gólfi í setustofu og fataherbergi en á baðherbergi er sama parket og er á svefnherbergjum. Gestasal-erni er með sturtu og er það í sama stíl og aðalbaðherbergi. Þvottahús er með hvítum háglansinnréttingum og er granít milli ef i
Setustofa, fataherbergi og bað inn af hjónaherbergi
Gott útsýni er úr stofu yfir Elliðavatn.
Grunnur að góðu lífi Fasteignasala :: Lágmúla 7 :: 108 Reykjavík :: sími 535_1000 Þorlákur Ó. Einarsson lögg. fasteignasali Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fasteignasali
Laugavegi 170, 2. hæð • Opið virka daga kl. 9:00-17:00
Sími 552 1400 • Fax 552 1405 • www.fold.is • fold@fold.is
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali
Þjónustusími sölumanna eftir lokun 694 1401
ÓSKUM EFTIR FYRIR FJÁRFESTA.. Einbýli, parhús, raðhús í 107, 101 og 170Verðbil 50-90 millj.Bein kaup engin eignaskipti
.. Einbýlishúsi á sjávarlóð á Arnarnesi.. Sérhæðum í austurbæ, miðbæ og vestur-
bæ Reykjavíkur – Verðbil 35-50 millj.
.. 3ja-4ra herbergja íbúðum í Reykjavík og
Kópavogi – verðbil 18-30 millj.
.. Einstaklings- og 2ja herbergja íbúðum
víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu – verðbil 10-20 millj.
VEÐRIÐ Í DAG
HÖGNI EGILSSON
Falskir en sjarmerandi
tónar frá Rauða október
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ágrafin silfurmedalía
Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur
hjá Bændasamtökum Íslands,
var nýlega heiðraður fyrir dygga
þjónustu og fræðilegt framlag á
800 manna ársfundi Búfjárræktar-
sambands Evrópu í Litháen.
TÍMAMÓT 16
FASTEIGNIR
Einbýlishús með góðu
útsýni yfir Elliðavatn
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég er ánægðastur með rússnesk-
an píanógarm sem heitir Rauði
október og var keyptur árið 1958
fyrir rússneskar rúblurmi Á
léki hann sjálfur á píanó,“ segir
tónlistarmaðurinn Högni Egilssí Hjaltalín þ
un sinni þótt töf
Píanógarmur frá Moskvu
Út um opna glugga snoturs húss í Norðurmýrinni berast eilítið falskir en afar sjarmerandi hljómar úr
víðförlu píanói sem fékkst fyrir ritlaun Árna heitins Böðvarssonar, málfræðings og orðabókarritstjóra.
GLUGGAR sem ekki eru alveg nógu þéttir geta safnað í sig raka þegar kalt er úti. Mikilvægt er að lofti
vel um gluggana og að öll bleyta sé þurrkuð reglulega
úr þeim svo sveppir nái ekki að myndast í þeim.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
Hér situr Högni Egilsson í Hjaltalín við Rauða október; píanóið sem í framleiðslu hlaut sérkennilega lakkmeðferð og er prýtt rússnesku letri.
STIGARAllar mögulegar gerðir og stærðirsmíðað eftir óskum hvers og eins
Beygjanlegir Handlistar & GólflistarLoftastigar, Innihurðir, GereftiGólflistar, Franskir gluggar í hurðirSmíðum Harmonikkuhurðir eftir máliBílkerrur úr Áli frá Anssems í HollandiMex - byggingavörurSími 567 1300 og 848 3215www.byggingavorur.com
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000www.sminor.is
Í hlutverki
sáttasemjara
Baltasar Kormákur
reynir að sætta
stórstjörnurnar í
Brúðgumanum
FÓLK 26
Tekur upp eftirstríðs-
mynd í Tékklandi
Karl Óskarsson hefur
fengið að kynnast
magnaðri sögu tékk-
nesku þjóðarinnar.
FÓLK 26
SNJÓR EÐA SLYDDA NYRÐRA
Í dag verða norðlægar áttir, 8-15
m/s hvassast á annesjum nyrðra
og norðvestan til. Snjókoma eða
slydda norðan og austan til en bjart
með köflum syðra. Kólnandi veður.
VEÐUR 4
4
1
1
4
5
FÓLK Guðmundur Páll Óskarsson,
hákarlsverkandi í Hnífsdal, er
ekki bjartsýnn á að honum takist
að anna spurn eftir kæstum
hákarli á þorrablót landsmanna.
Guðmundur Páll segir sjómenn
ekki vilja veiða hákarl þrátt fyrir
gylliboð. Aðrir hákarlsverkendur
eru ekki jafnsvartsýnir en segja
þó að ekki sé mikið um gott
hráefni á markaðinum. Guðmund-
ur Páll reiknar með að verðið á
þeim hákarli sem til er verði í
hærra lagi. - fgg / sjá síðu 26
Útlitið dökkt fyrir þorrablótin:
Hákarlsskortur
yfirvofandi
Chelsea á toppinn
Tvö mörk frá
Nicolas Anelka
gegn Blackburn
skutu Chelsea á
topp ensku úr-
valsdeildar-
innar.
ÍÞRÓTTIR 22
GÓÐUR ÁRANGUR Fimleikakappinn Viktor Kristmannsson úr Gerplu varð í þriðja sæti í fjölþraut á Norður-Evrópumótinu í áhalda-
fimleikum sem fram fór í Gerpluhúsinu um helgina. Íslenska karlaliðið var í fimmta sæti á mótinu og kvennaliðið í því sjötta. Er
þetta stærsta mót sinnar tegundar sem haldið hefur verið hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EFNAHAGSMÁL Evrópusambandið
hefur gefið til kynna að við séum
velkomin í sambandið og að við
getum þá tekið upp evru eftir gild-
andi leikreglum en ef við tökum
evru upp einhliða kallar það á hörð
viðbrögð frá sambandinu,“ segir
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur Alþýðusambandsins.
Í Fréttablaðinu í dag bregst hann,
ásamt Eddu Rós Karlsdóttur hag-
fræðingi og Manuel Hinds, fyrrum
efnahagsráðgjafa Alþjóðabankans,
við grein sem Heiðar Már Guðjóns-
son, framkvæmdastjóri hjá Novat-
or, og Ársæll Valfells, lektor við
Háskóla Íslands, rituðu í blaðið um
helgina. Þeir Heiðar Már og Ársæll
færðu rök fyrir því að Ísland taki
einhliða upp aðra mynt en krónu.
Edda Rós Karlsdóttir er í grund-
vallaratriðum sammála greiningu
Ársæls og Heiðars á vandanum.
Hún telur gjaldeyrisvaraforðann
duga til að skipta út mynt og seðl-
um í umferð, en að auki þyrfti að
hafa til reiðu evrur til að afhenda
erlendum eigendum ríkisskulda-
bréfa, íbúðabréfa og innstæðu-
bréfa. Mikilvægt sé einnig að hægt
sé að auka lausafjárfyrirgreiðslu
hratt og vel ef kerfislæg vandamál
koma upp. Edda telur afar mikil-
vægt að uptaka evru gerist með
fullum stuðningi Evrópska seðla-
bankans.
Manuel Hinds segist hafa mælt
með upptöku evru, til að koma í veg
fyrir þá alvarlegu peningakreppu
sem vofði yfir framtíð landsins, í
ágúst á síðasta ári. Því miður hafi
veruleikinn orðið enn svartari en
hann hefði búist við.
„Í stað þess að spyrja af hverju
Ísland ætti að taka upp evru ætti
spurningin að vera af hverju landið
ætti að halda í krónuna sem hefur
reynst Íslandi dýr og mun reynast
enn dýrari í framtíðinni,“ segir
Hinds.
- kg sjá síðu 14
Óttast hörð viðbrögð
við einhliða upptöku
Hagfræðingur Alþýðusambandsins telur einhliða upptöku evru kalla á hörð
viðbrögð ESB. Fyrrum efnahagsráðgjafi Alþjóðabankans segir krónuna hafa
reynst Íslandi dýr og að hún muni reynast enn dýrari í framtíðinni.
ORKUMÁL „Okkur þótti óráðlegt að
opna tilboðin meðan staðan er
svona,“ segir Friðrik Sophusson
forstjóri Landsvirkjunar en
útboðum í Búðarhálsvirkjun sem
átti að opna í haust hefur verið
seinkað fram í mars.
Öll leyfi fyrir Búðarhálsvirkj-
un eru til staðar. Framkvæmdir
hófust haustið 2002 en var frestað
árið 2003, í sumar var síðan
ákveðið að hefja þær að nýju.
Undanfarna áratugi hafa fram-
kvæmdir sem þessar verið fjár-
magnaðar með erlendum lánum
en slíkt stendur ekki til boða nú.
Friðrik segir það vissulega von-
brigði enda hefðu nýjar virkjanir
hleypt lífi í verktakamarkaðinn.
Spurður hvort Landsvirkjun
hafi rætt við lífeyrissjóðina um
hugsanlega fjármögnun verk-
efna segir Friðrik engar formleg-
ar samræður hafa átt sér stað.
„Ég bað um að rætt yrði við
fulltrúa lífeyrissjóðanna almennt
svo við gætum áttað okkur á því
hvort þeir hefðu einhver tök á að
koma að fjármögnun. Við erum
alltaf í góðu sambandi við lífeyr-
issjóðina en það eru engar við-
ræður í gangi,“ segir Friðrik.
- þo
Landsvirkjun ræðir óformlega við lífeyrissjóðina um fjármögnun virkjana:
Útboðum í Búðarhálsvirkjun seinkað
BANDARÍKIN Bandarískur maður,
Timothy Ryan Richards, hefur
verið dæmdur í 16 ára fangelsi
fyrir vörslu og dreifingu barna-
kláms. Upptökur af hótelherbergi
í Reykjavík voru meðal sönnunar-
gagna í málinu.
Richards, sem er 27 ára gamall,
átti í kynferðissambandi við pilt
sem var fjórum árum yngri en
hann sjálfur. Meðan pilturinn var
enn undir lögaldri heimsóttu þeir
Ísland og þar tók hinn dæmdi upp
myndband sem sýnir piltinn í
kynferðislegum athöfnum.
Richards var handtekinn árið
2005. Þá bjó hann með 13 ára
gömlum dreng. - þo / sjá síðu 4
Sönnunargögn frá Íslandi:
Barnaklámsmál
teygir anga sína
hingað til lands
HÁKARLAVERKANDI Guðmundur Páll
Óskarsson, hákarlaverkandi í Hnífsdal.