Fréttablaðið - 10.11.2008, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 10. nóvember 2008 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 10. nóvember
➜ Fyrirlestrar
12.30 Sólveig Aðalsteinsdóttir mynd-
listamaður verður með fyrirlestur um
myndlistaverk sín í húsnæði myndlista-
deildar Listaháskóla Íslands, stofu 024m
Laugarnesvegi 91.
➜ Norræn bókasafnsvika
Norræna húsið
10.00 Sigurður Helgason les Ástar-
sögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helga-
dóttur.
17.50 Kór Norræna félagsins Vox
Borealis flytur tónlist og Hjalti Rögn-
valdsson les texta dagsins eftir finnsku
skáldkonuna Eevu Kilpi.
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1.
16.30 Guðrún
Helgadóttir les úr
bók sinni Ástarsaga úr
fjöllunum.
18.00 Rannveig Rist
les texta dagsins eftir
finnsku skáldkonuna
Eevu Kilpi.
➜ Uppboð
18.00 Listmunauppboð í Galleríi Fold,
Rauðarárstíg 12-14.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Robin Williams kveðst aldrei ætla
að gifta sig aftur. Leikarinn skildi
við aðra eiginkonu sína, Marsha
Graces, eftir átján ára hjóna-
band, en Marsha sótti um skilnað
í maí síðastliðnum sökum
óviðunandi ágreinings.
Í viðtali við breska dagblaðið
Daily Mail segir Robin það ekki
koma til greina að ganga í
hjónaband í þriðja sinn. „Það er
ekki aðeins af fjárhagslegum
ástæðum sem ég ætla ekki að
gifta mig aftur. Fólk myndi hugsa
sig tvisvar um áður en það skilur
ef það þyrfti að gefa líkamspart í
staðinn fyrir helminginn af
aleigunni,“ segir leikarinn.
Giftir sig
ekki aftur
SKILINN Í ANNAÐ SINN Leikarinn Robin
Williams segist ekki vilja ganga í hjóna-
band í þriðja sinn eftir skilnað við aðra
eiginkonu sína, Marsha Graces.
Anne Hathaway fékk óvenjulegt
bréf frá einum aðdáanda sínum á
dögunum, þar sem hann óskaði
þess að hún tæki myndir af berum
fótum sínum. Þetta mun ekki vera
í fyrsta sinn sem aðdáandi biður
Anne um mynd af fótum hennar,
en hún segist reyna að taka slík
bréf ekki of alvarlega.
Leikkonan, sem opinberaði
nýlega samband sitt við leikarann
Adam Shulman, segir flest
aðdáendabréfin sem henni berast
vera vingjarnleg. Hún viðurkenn-
ir þó að útlit hennar kalli stundum
á neikvæða athygli og segist hafa
fengið nokkur skrítin bréf frá
aðdáendum sem hún hefði síður
viljað lesa.
Skuggalegur
aðdáandi
ÓVENJULEG BÓN Nokkrir aðdáendur
Anne Hathaway hafa óskað eftir mynd-
um af berum fótum leikkonunnar.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Fréttablaðið er með 112% meiri lestur en Morgunblaðið
Fréttablaðið stendur upp úr
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins
með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sína eins
og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir.
Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða
árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér
forskotið okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft... ...alla daga
70.7%
33.4%
Hafi einhvern dreymt um að
skilnaður Guy Ritchie og
Madonnu myndi fara fram á frið-
samlegum og rólegum nótum var
það óskhyggjan ein. Þau hjóna-
korn hafa verið dugleg að senda
hvort öðru duldar pillur með
einum eða öðrum hætti. Guy
stendur hins vegar ekki einn því
leikstjórinn og leikarinn Sean
Penn lýsti því á verðlaunahátíð
að hann hefði fulla trú á Guy Rit-
chie.
Penn tók á móti BAFTA/LA-
Stanley Kubrick-verðlaunum á
fimmtudaginn og sagði þá að
hann byggist við því að nú myndi
ferill Guy hefjast fyrir alvöru.
Og vísaði þar til þess að hann
væri nú loks laus undan Madonnu
og gæti einbeitt sér að eigin verk-
um. „Hvað get ég eiginlega sagt á
ensku? Guy Ritchie snýr aftur,“
sagði leikarinn og uppskar mikið
lófaklapp. Penn og Madonna
voru, eins og mörgum ætti að
vera kunnugt um, gift í þrjú ár.
Sambandið þótti heldur storma-
samt og endaði með miklum
hvelli. En síðan Penn og Madonna
skildu hefur leikarinn átt góðu
gengi að fagna. Og auðvitað söng-
konan líka.
Madonna hefur ekki verið
þekkt fyrir að fara fínu leiðina í
að losa sig við ástmenn sína.
Frægt er þegar hún stakk puttan-
um ofan í kok sitt og gerði sig lík-
lega til að kasta upp eftir að
þáverandi ástmaður hennar,
Warren Beatty, hafði heimsótt
hana baksviðs. Því sambandi
lauk fljótlega eftir að mynd-
brotið var sýnt í kvikmynd-
inni In bed with Madonna.
Madonna hefur verið dug-
leg við að senda Guy tóninn
á tónleikum og lét meðal
annars að því liggja að
hann hefði haldið fram hjá
henni.
Sean Penn styður Guy Ritchie
STYÐUR GUY Sean Penn
styður Guy Ritchie og telur
að hann eigi eftir að ná ferli
sínum á flug eftir skilnað-
inn.