Fréttablaðið - 28.11.2008, Side 60
36 28. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Listakonur eru fyrirferðar-
miklar í myndlistarsölum
þessa dagana og kennir í
verkum þeirra frá liðnu ári
margra grasa. Hér er líka
uppi athyglisverð sýning
hollenskrar listakonu þar
sem bent er á hlut horfinna
kvenna í myndlistinni.
Sigrún Eldjárn opnaði sýningu í
gær í StartArt við Laugaveg 12b
og eru það kyrralífsmyndir sem
hún sýnir, allar í grunninn unnar
með olíu, en listakonan blandar í
verkin póstkortum með vísanir í
eldri verk, umslögum, pappírs-
blöðum og minnismiðum, svona
eins og til áminningar því að „lífið
snýst meðal annars um að muna og
gleyma“ eins og segir í orðum
listakonunnar með sýningunni. Í
kynningu sinni segir Sigrún: „Á
tímum hrynjandi banka og fallandi
krónu er gott að staldra við
frammi fyrir kyrralífsmynd. Þar
eru engin læti á yfirborðinu en
undir niðri geta þó leynst heilu
sögurnar. Uppstillingar eða kyrra-
lífsmyndir hafa fylgt mannkyninu
um aldir, allt frá tímum Forn-
Egypta til okkar daga. Þær hafa
þróast á ýmsa vegu gegnum tíðina
og innihald þeirra og útfærsla er
fjölbreytileg.“ Sýning hennar í
StartArt verður uppi til 7. janúar.
Auk Sigrúnar eru fleiri listakon-
ur með sýningar í Start Art. Leik-
hlé – Time out, fimmtánda einka-
sýning Hrafnhildar Sigurðardóttur.
Á sýningunni getur að líta myndir
sem hún vann í tveggja mánaða
vinnustofudvöl sinni á Spáni vorið
2007 en þar vann hún eingöngu
með svart blek á japanskan pappír.
Eins og titill sýningarinnar gefur
til kynna var þessi vinnutími á
Spáni eins konar leikhlé – hlé frá
hversdagslegu amstri hér heima,
samþjappaður tími þar sem gefst
tækifæri til endurskoðunar og
jafnframt tími til að gera breyt-
ingar. Þessar breytingar felast
helst í því að undanfarin ár hefur
Hrafnhildur frekar unnið þrívídd-
arverk með þræði en málað með
pensli.
[spam] er heiti sýningar Sigrúnar
Sigvaldadóttur, þar eru textar
settir á ljósaperur. Textinn sem
upprunninn er úr rusl-tölvupósti
og flestir tengja áreiti, er settur í
nýtt samhengi á þrívíða hluti. Sig-
rún Sigvaldadóttir hefur unnið
sjálfstætt sem grafískur hönnuð-
ur undir nafninu „hunang • sig-
rún“ frá 1993. Þetta er fyrsta
einkasýning Sigrúnar.
Þá sýnir Lára Garðarsdóttir líka
í StartArt. Húnhefur stundað nám
við klassíska teikningu í The
Drawing Academy í Danmörku og
útskrifaðist með BA gráðu frá
Character Animation frá The
Animation Workshop.Á námsár-
unum og eftir skóla hefur Lára
kynnst hinum ýmsum hliðum fags-
ins og unnið við hreyfimyndagerð,
myndskreytingar og hönnun. Hún
vinnur nú sem animator fyrir Fra-
mestore Iceland. Myndirnar á
sýningunni eru veggverk unnin
með blandaðri tækni. Sýningin í
StartArt er fyrsta einkasýning
Láru
Í galleríinu 101 Projects sem
Birta Guðjónsdóttir myndlistar-
maður annast nú um stundir var í
síðustu viku sett upp sýning á inn-
setningu Mathilde ter Heijne, hol-
lenskrar listakonu. Hún er fædd
1969 í Strasbourg en býr og starfar
í Berlín. Ter Heijne vinnur með
ýmsa miðla en er einna þekktust
fyrir innsetningar sínar og mynd-
bandsverk. Verk Mathilde ter
Heijne „Woman to go“ er nú sýnt í
101 Projects en hún hóf vinnu við
það árið 2005 og er verkið í stöðugri
vinnslu. Titill verksins skírskotar
til stöðu kvenna í mannkynssög-
unni og er gestum sýningarinnar
boðið að taka með sér póstkort af
sýningunni, taka með sér kven-
fyrirmynd, minjagrip um merkar
konur, sem fallið hafa í gleymsku
en hafa sett mark sitt á heiminn.
pbb@frettabladid.is
Kvennasýningar blómstra
MYNDLIST Úr innsetningu hollensku listakonunnar Mathilde ter Heijne í gallerí 101 Projects milli Laugavegar og Hverfisgötu.
MYND 101 PROJECTS/ MATHILDE TER HEIJNE
Menningar- og safnanefnd
Garðabæjar stendur á þessum
vetri fyrir klassískri tónleikaröð
í Kirkjuhvoli – safnaðarheimili
Vídalínskirkju – í Garðabæ. List-
rænn stjórnandi tónleikaraðar-
innar er píanóleikarinn Gerrit
Schuil en hann hefur fengið til
liðs við sig úrvalslið tónlistar-
fólks sem kemur fram á tónleik-
unum. Góð aðsókn hefur verið að
tónleikunum á þessari önn. Síð-
ustu tónleikarnir fyrir hátíðir
verða á morgun kl. 17.
Á tónleikunum flytur fiðluleik-
arinn Ari Þór Vilhjálmsson
Kreutzer-sónötuna eftir Beet-
hoven og verk eftir Mozart og
Chausson. Ari er eini Íslending-
urinn sem hefur verið konsert-
meistari Orkester Norden,
sumarhljómsveitar ungra tón-
listarnema á Norðurlöndum, og
leiddi hljómsveitina meðal
annars undir stjórn Esa-Pekka
Salonen árið 2002. Þessi ungi tón-
listarmaður hefur haldið ein-
leikstónleika í Salnum og leikið
einleik með fjölmörgum sinfón-
íuhljómsveitum. Tónlistarflutn-
ingur hans hefur fengið verð-
skuldaða athygli hjá bæði
áhorfendum og gagnrýnendum.
Píanóleikarinn og listræni
stjórnandinn Gerrit Schuil hefur
verið leiðandi í íslensku tónlist-
arlífi bæði sem píanóleikari og
stjórnandi, m.a. hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og Íslensku
óperunni. Gerrit starfar einnig
sem kennari hjá Listaháskóla
Íslands og söngskóla Sigurðar
Demetz. Miðasala fer fram á tón-
leikastað.
Ari í Kirkjuhvoli
TÓNLIST Ari Þór Vilhjálmsson spilar í
safnaðarheimili Garðakirkju á morgun.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ/
Í dag er opnuð sýning í Hafnarborg á nýjum myndskreytingum eftir
Brian Pilkington af íslensku jólasveinunum, foreldrum þeirra, Grýlu
og Leppalúða, þessari séríslensku vandamálafjölskyldu. Sýningin
mun standa fram á þrettándann og er tilvalið að fara með börnin í
Fjörðinn til að skoða þessar teikningar Brians.
Brian Pilkington er fæddur í Englandi 1950. Hann er þekktur fyrir
snjallar bókaskreytingar og hefur skrifað og myndskreytt fjölda
barnabóka, bæði fyrir íslenskan og erlendan markað. Meðal bóka
Brians má nefna Örkin hans Nonna (1988), Afi gamli jólasveinn
(1990), Ástarsaga úr fjöllunum (höfundur texta: Guðrún Helgadóttir
1981), Hundrað ára afmælið (höf. texta: Þráinn Bertelsson 1984) og
Blómin í túninu (höf. texta: Ingibjörg Sigurðardóttir, 1985). Árið 2003
hlaut Brian Dimmalimm,
íslensku myndskreyti-
verðlaunin, fyrir bók sína
Mánasteinar í vasa. Á
síðustu árum hafa bækur
Brians um íslenska
þjóðtrú og vættir vakið
athygli innanlands og utan
og eru myndskreytingar
hans af jólasveinunum
skemmtileg viðbót í þá
flóru.
Sýningin er í veitinga-
stofu Hafnarborgar sem
er opin alla virka daga frá
kl. 11-19, fimmtudaga til
kl. 21 og um helgar frá kl.
11-17. Veitingasala
Hafnarborgar er rekin af
Manni lifandi en fyrirtæk-
ið er þekkt fyrir frábæra
heilsurétti og kökur.
Grýla og familía
MYNDLIST Brian Pilkington
myndlistarmaður.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ekki missa af …
Síðustu sýningarhelgi í Norræna
húsinu á sérhönnuðum prjóna-
fatnaði frá norska hönnunarfyrir-
tækinu DUODU í Þrándheimi.
Henni lýkur nú um helgina en hún
er fyrsta sýningin í röð vest-
norrænna hönnunarsýninga í
húsinu. Lína sem sýnd er heitir
ICI.