Tíminn - 16.02.1982, Page 12
12
Þriöjudagur 16. febrúar 1982
Þriðjudagur 16. febrúar 1982
Jörð til sölu
Jörðin Burstarbrekka i Ólafsfirði er til
sölu, ef viðunandi verð fæst. Á jörðinni eru
nýlegar góðar byggingar og henni fylgir
veiðiréttindi i ólafsfjarðarvatni. Jörðin er
i 2ja km. fjarlægð frá bænum.
Allar upplýsingar veitir eigandi jarðar-
innar, Konráð Gottliebsson, Burstar-
brekku, simi 96-62462.
Rauði kross íslands heldur
NÁMSKEIÐ
i aðhlynningu sjúkra og aldraðra 8.-12.
mars næstkomandi i kennslusal Rauða
krossins i Nóatúni 21, R. Kennsla hefst kl.
18.00 á kvöldin.
Umsóknir sendist skrifstofu Rauða kross
íslands, Nóatúni 21, Reykjavik, fyrir 25.
febrúar nk. og þar eru veittar frekari upp-
lýsingar.
Skilti - IMafnnælur - Ljósrit
Nafnskilti á póstkassa og úti- og innihurðir
úr plastefni. Ýmsir litir i stærðum allt að
10x20 cm.
Nafnnælur i ýmsum stærðum og litum.
Ljósritum, pappirsstærð: A4, A5, B4.
Skilti og Ljósrit
Hverfisgötu 41. — Simi 23520
Land-Rover
Eigum ávallt mikið úrval af Land-
varahlutum á mjög hagstæðu verði
Girkassahjól Girkassaöxlar
Öxlar aftan öxulflansar
Kambur/Pinion Stýrisendar
Hurðarskrár Motorpúðar
Hraðamælisbarkar Pakkdósir
Tanklok o.mil.
Sendum i póstkröfu.
Bílhlutir h/f
Suðurlandsbraut 24 — Reykjavik.
S.38365.
SUNN-
LENDINGAR
Fjölbreytt úrval
Ýsa — Ýsuflök — Lúða
— Gellur — Kinnar —
ofl. ofl.
Tökum fisk í reyk
Fiskbúð Glettings
Gagnheiði 5, Selfossi
»?*au
13
fréttafrásögn
„ÞETTfl ER OFT SUKKSAMT I VETRARVEÐRUM”
Tíminn heimsækir hafnsögumenn við Reykjavíkurhöfn
■ 1 Eeykjavik hefur veriö fastur
lóðs frá þvi á slðustu öld og þenn-
an starfa höfðu jafnan með hönd-
um gegnir og góðir skipstjórnar-
menn, sem margir höföu dregið
nökkvann i naust að langri sjó-
mannsævi lokinni, likt og Þorgeir
i Vik i kvæði Ibsens. Þótt nú sé
starf lóðsins eða hafnsögumanns-
ins orðið meö öörum og nýtisku-
legri hætti, hafa hafnsögumenn-
irnir við Reykjavikurhöfn enn
langa skipstjórnarævi að baki
enda hefur skipum úr fjarlægum
heimshlutum jafnan verið vel
borgið i þeirra höndum. Við Tima
menn útum við hjá hafnsögu-
mönnum nýlega og áttum spjall
við þá um störf þeirra og fengum
að auki aö fljóta með hafnsögu-
bátnum Jötni um borð i leiguskip
„Hafskips”, Lynx.sem var rétt i
þvi að koma frá Haugasundi.
„Helsta breytingin sem orðið
I Rolf Flatset, skipstjóri og Páll Björnsson hafnsögumaður leggja sig allir fram við „navigasjónina”, en
þeir yngri fylgjast með af athygli. (Timamynd Róbert).
■ Lynx frá Bergen bfður eftir lóðsinum (Timamynd Róbert)
hefur á þessu frá þvi er ég byrjaði
hér árið 1955, er sú að skipin eru
sifellt að verða stærri”, segir
Einar Thoroddsen yfirhafnsögu-
maður við Reykjavikurhöfn frá
1962. Skipakomum hefur ekki
fjölgað svo mikið, en rúmlesta-
fjöldinn er þvi meiri. Sem betur
fererSundahöínnú komin i' gagn-
ið en án hennar væri ógjörningur
að anna þessu. Oftast nægir sá
bátakostur sem við höfum, en
þegar mest er um að vera er hann
of litill. Við erum nú með Magna
sem er fyrsta stálskip smiðað á
Islandi, en hann er byggöur i Sál-
smiðjunni 1955 og er 183 lestir.
Gamli Magni sem var þýskur
gufudráttarbátur var stærri, yfir
200 lestir og var búinn að duga
vel, þegar sá nýi leysti hann af
hólmi, en sá gamli var smiðaður
1923. Auk nýja Magna erum viö
með Jötunr sem byggður er 1965
og Haka sem er orðinn aldraður,
byggður 1947.
■ Tor Sörensen stýrimaður. Þeir
Rolf Flatset skiptast á um
skipstjórnina þegar annar tekur
sér fri.
(Tímamynd Róbert).
að lofa ykkur að vera meö út i
Lynx, sem liggur hér úti fyrir
núna, — ég held að tollararnir séu
búnir að kiarera skipið og óhætt
að leggja i hann”.
25 þusund tonna Rússar
A leið um borð í Jötunn stað-
festir Páll Björnsson sem verið
hefur hafnsögumaður frá 1960,
þau orð Einars að skipin fari si-
fellt stækkandi. „Rússarnir sem
hérna koma eru sumir 25 þúsund
lestir. Það eru þau skip sem koma
með dieseloliuna og þau losa hér i
úti i örfirisey. Þar eru nú verið að
gera sérstakan garð og bæta mót-
tökuskilyrði. Kannske verður
bensinið losað þar lika bráðum,
en það er nú losað i Skerjafirði.
Skipin sem fara i Skerjafjörð eru
ekki eins stór, þetta 16-20 þúsund
tonn. Það er ekki alltaf leikur
Oft sukksamt i
vetrarveðrum
„Við vinnum hér á þriskiptum
vöktum, hafnsögumennirnir, en
viö erum nú 6-7 talsins. A bátun-
um eru svo 10 menn og er sá hátt-
ur á haföur að tveir menn fylgja
hverjum hafnsögumanni aö störf-
um.
Við förum á móti skipum hér út
að dufli 7, en þó alla leið út að
Gróttu, ef þess er óskað. Þetta er
oft sukksamt starf i vetrar-
veðrum, þvi talsverð kólga og
sjór er oft hér úti fyrir”.
Þú ertsjálfur gamall skipstjóri,
Einar?
„Já, ég var skipstjóri frá 1942
til 1955. Siðast var ég með togar-
ana Pétur Halldórsson og áður á
Jóni Þorlákssyni frá B.Ú.R. Mitt
fyrsta skip var annars Baldur frá
Bildudal og Forseti en þessi skip
vorubæði i eigu „Hængs” hf. sem
Gisli Jónsson, alþingismaður átti.
En þið ætlið vist ekki að fara að
rekja garnirnar úr mér um minn
sjómehnskuferil? Það gæti orðið
efni i viðtal sem entist i nokkur
blöð. Hann Páll Björnsson ætlar
■ Slökkviliö og lögregla beiö eftir dynamitfarminum á kajanum
(Timamynd Róbert).
Einar Thoroddsen, yfirhafnsögumaöur. (Timamynd Róbert). “
fyrirokkurað „maneuvera með
þessi skip en þó er sú bót i máli aö
mörgerukomin meö hliðarskrúf-
ur sem létta verkið og nokkur
skip eins og hjá Eimskip eru meö
Becker-stýri, sem auðveldar
þeim mikið að athafna sig. f
vondum veðrum koma tal-
stöðvarnar lika að miklu haldi,
þvi þá getum viö látið skipin elta
okkur úr ólgusjó og innar, þar
sem lygnara er”.
Hafnsogumaður og
skipstjóri fylgjast að
Nú er komið niður á hafnar-
bakka og senn kemur Jötunn ösl-
andi upp að og við stigum um
borð. Með okkur Timamönnum
eruþrirnemar úr framhaldsdeild
Samvinnuskólans i starfskynn-
ingu og hitta um borö tvo jafn-
aldra sina, sem eru i starfskynn-
ingu lika og eru að kynna sér störf
hafnsögumanna. Það er þvi nokk-
ur þróng á þingi um borö í Jötni
sem þrátt fyrir nafnið er ekki
störskip. En Hreinn Sveinsson
skipstjóri og Páll hafnsögumaður
láta sem ekkert sé enda er mikiö
bliðskaparveður og litil hætta á
að menn falli fyrir borð þrátt
fyrir þröngina.
Við leggjum þvi óhikaö i hann
og sjórinn er blár eins og á póst-
korti og stefnan er tekin á Lynx,
sem vaggar á lognöldunni úti á,
eldrauður á litinn.
Þetta er ekki löng sjóferð. Við
dokum við meðan Páll fer upp og
biður leyfis fyrir gestina að stiga
um borð og það er ekki löng bið,
þvi hinir norsku skipstjórnar-
menn hafa ekkert á móti heim-
sókn blaðamanna, þegar þeir
hafa sannfrétt að fulltrúar þess-
arar óútreiknanlegu starfsstéttar
hafa ekkert illt i huga. Okkur
verður hugsað til þess að Cook
skinstióri varð einnig að velta þvi
fyrir sér á ferðum sinum, hverju
frumbyggjar á óþekktum Suður-
hafseyjum byggju yfir, þegar
þeir komu róandi út i skip hans á
eintrjáningum sinum!
9 tonn af dynamiti
Rolf Flatset, skipstjóri og stýri-
maður hans, Tor Sörensen eru
ljúfir og brosmildir menn og
heilsa okkur komumönnum af
alúð. Sem fyrr segir er skipiö i
leigusiglingum fyrir Hafskip og
er nú að koma frá Haugasundi,en
annars er hin vanalega rúta þess
Kaupmannahöfn, Gautaborg,
Fredriksstad og Reykjavik.
Vanalegafara þeir beint til Kaup-
mannahafnar, þegar losun hér
lýkur en að þessu sinni munu þeir
fara norður fyrir og koma við á
Húsavik, áður en kúrsinn er tek-
inn á Danmörku. Farmurinn er
„general cargo”, sem sé allra
handa varningur. „Við erum
meira að segja með 9 tonn af
dýnamiti, liklega til þess að
sprengja upp herstöðina i Kefla-
vik”, segir skipstjóri og hefur
greinilega sannfrétt af langvinn-
um væringum landans vegna
þessa hitamáls. Hann bendir upp
i sigluna — og mikið rétt: Þar
hangir eldrautt flagg sem þýðir
sprengiefni um borö þótt þaö
hefði lika getað sómt sér sem fáni
þeirra striðsmanna, sem viljað
hefðu gera alvöru úr hugdettu
skipstjóra.
Lynx er eitt þeirra skipa sem
vel er búið hliðarskrúfum og
öðrum hjálparbúnaði enda er
áhöfnin ekki nema 8 manns. Þvi
er hlutverk Páls létt að þessu
sinni og fyrr en varir er skipið
komið upp að kajanum viö
Grandann. Þar biður slökkvilið
og lögregla, vegna hins ógnvæn-
lega farms og fylgist fránum aug-
um með öllu sem fram fer svo lik-
lega fer dynamitið ekki hávaöa-
laust i hendur einhverra ofstopa-
manna.
Við gestirnir kveðjum hina
norsku yfirmenn og þiggjum enn
■ Hreinn Sveinsson skipstjóri á Jotni. (Tlmamynd RóoertK
far með Jötni yfir að Verbúðar-
bryggjunum, þar sem við stigum
á land. Þetta verður stuttur stans
hjá Jötni, þvi nú biður afgreiðslu
finnskt oliuskip sem komiö er
með bensinfarm frá Portúgal og
Páll á fvrir höndum hina mestu
glæfraför upp kaöalstigann á
skipshliðinni sem er á viö meðal
fjölbýlishús á hæð. Þar sem les-
endur skilja að okkur blaðamenn
fýsti ekki að klifra þetta á eftir
honum, varð dagurinn með hafn-
sögumönnum Reykjavikurhafnar
ekki lengri en þetta að þessu
sinni. Þvi þökkuðum við fyrir
þessa skemmtilegu sólskinssigl-
inguog kvöddum þá skipsmenn á
Jötni.
—AM