Tíminn - 16.02.1982, Side 17
17
Þribjudagur 16. febrúar 1982
fþróttir
íslenska liðið
fékk aftur skell
— Rússar sigruðu 27-16 í síðasta
leiknum í Keflavík í gærkvöldi
■//Strákarnir byrjuðu
mjög illa í leiknum þeir
voru of ragir í sókninni og
Rússarnir komust i 6-0"
sagði Hilmar Björnsson
þjálfari íslenska lands-
liðsins í handknattleik
eftir að Rússar höfðu
sigrað íslenska liðið 27-16
i íþróttahúsinu i Keflavík
i þriðja og siðasta leikn-
um í gærkvöldi. Staðan í
hálfleik var 17-11 fyrir
Rússa.
,/Ætli það hafi ekki ver-
ið langt liðið á 10. mínút-
una er okkur tókst að
skora fyrsta markið.
Okkur tókst siðan að
skora þrjú mörk gegn að-
eins einu frá Rússum og
staðan breyttist í 7-4 fyrir
Rússa. Rússarnir fóru
síðan hægt og sigandi að
auka forskotið og í hálf-
leik höfðu þeir náð sex
marka forystu" sagði
Hilmar.
Rússar juku sföan enn foryst-
una i seinni hálfleik og undir
lokin náðu þeir ellefu marka
forystu og sá munur var i leiks-
lok 27-16.
„Okkur gekk illa aö stööva
hraðaupphlaupin hjá þeim.
Einnig létum við verja frá okk-
ur þrjú viti og nokkur færi tókst
okkur ekki að nýta, dauðafæri,”
Hilmar sagði að hann hefði
látið fimm leikmenn hvila i
leiknum, leikmenn sem hann
hyggst nota i leiknum gegn Svi-
um i kvöld. Þeir sem hvildu
voru Þorbergur Aðalsteinsson,
Kristján Arason, Steindór
Gunnarsson, Kristján Sig-
mundsson og Ólafur Jónsson.
Hilmar sagði að allir þessir
leikmenn myndu koma inn i liö-
ið i kvöld i fyrri leiknum gegn
Svium.
„Við leggjum áherslu á að ná
okkur upp og takast sem bes t
gegn Sviunum i kvöld”.
Sigurður Sveinsson var at-
kvæöamestur i leiknum i gær-
kvöldi skoraði sex mörk þar af
þrjú úr vitum. Þorbjörn Jensson
skoraöi 3, Páll og óttar tvö
hvor, Sigurður Gunnarsson, Al-
freð Gislason og Guðmundur
Guðmundsson skoruöu eitt
mark hver.
röp —.
samdS
viðKA
■ Samningar hafa nú tekist á
milli Danans Jan Larsens og
handknattleiksdeildar KA um að
Larsen taki að sér þjálfun meist-
ara og 2. flokks h já félaginu næsta
keppnistimabil. Þá mun Larsen
einnig þjálfa alla markverði
félagsins en Larsen léklengisem
markvörður, i danska handknatt-
leiknum áður en hann gerðist
þjálfari hjá danska félaginu Ribe.
Möguleiki er einnig á þvi að til
liðs við KA komi reyndur leik-
maður frá danska liðinu Ribe og
muni hann leika með KA næsta
keppnistímabil.
KA-menn vænta góðs af komu
danska þjálfarans til félagsins og
ætla sérað gera stdra hluti næsta
keppnistímabil.
GK-Ak/röp-.
TEKST STRAKUNUM VEL UPP GEGN SVÍUM?
Heiðursgestur: Ragnar Arnalds fjármáiaráðherra
Aógöngumióahappdrætti- glæsilegur vinningur
Dregiö / leikhléi
Handknatt/eikssambandió er handhafi /þróttastyrks
Sambands ís/enskra samvinnufélaga 1982
O&riNQ
«1
m
ýS2
■SwwSD SVÍMÓD
Laugarda/shöH: Þriðjud. 16.feb. k/.2030 / Fimmtud. 18.feb. k/.2030