Tíminn - 24.02.1982, Síða 11
Miðvikudagur 24. febrúar 1982
ÞEIR
Asgeir
Jón
Bjarni
Ingi
Oddur
Sigurður I
Ómar
Gisli
Kristján
I Siguröur S.
Finnur
Björn
„Arsenal eru
lerfiðir heim
að sækja”
— segir Ásgeir Gunnarsson sem spáir þeim
sigri gegn Swansea
Ásgeir Gunnarsson
bifvélavirki:
■ „Arsenal leikur á heimavelli
og þeir eru erfiðir heim að
sækja og ég á ekki von á þvi að
Swansea takist að sigra, heldur
spái Arsenal sigri i þessum
leik”.
Jón Hermannsson
prentari:
„Ég hef trú á þvi að Aston
Villa fari að rétta úr kútnum,
enda ekki seinna vænna ef þeir
ætla sér i toppbaráttuna. Ég hef
trú á að þeir sigri Coventry á
laugardaginn”.
Bjarni óskarsson
verslunarmaður:
,,Ég held að þetta séu mjög
áþekk lið, Brighton og W.B.A.
og ég spái þeim jafntefli”.
Ingi Jónsson
framkvæmdast jóri:
„Sem gamall West Ham að-
dáandi þá spái ég þeim sigri i
leiknum gegn Everton þó ég viti
það aö Everton verða eríiöir
heim að sækja”.
Oddur Eiriksson
húsasmiður:
„Stigataflan sýnir aö Liver-
pool er sterkara lið heldur en
Leeds og þvi spái ég þeim sigri i
þessum leik”.
Sigurður Ingólfsson
hljóðm.
„Ég hef ekki trú á öðru en að
Man. United vinni leikinn gegn
City á Old Trafford, annars yllu
þeir mér og Hemma miklum
vonbrigöum”.
Ómar Ragnarsson
fréttamaður:
„Maður er i heimasigrunum
og lætur ekki botnliðin komast
upp með neitt, og ég spái þvi
Nottingham Forest sigri gegn
Middlesboro”.
Gisli Hrafnsson
nemi:
„Southampton vinnur þennan
leik gegn Birmingham þeir eru
með mun sterkara lið og viö
þann sigur munu þeir áfram
halda efsta sætinú”.
Kristján Þorgeirsson
húsgagnasmiður:
„Tottenham vinnur þennan
leik gegn Stoke, þeir eru meö
miklu betra lið allavega eftir
þvi sem maöur hefur séð i sjón-
varpinu”.
Sigurður Sigurðsson
húsgagnasmiður:
„Ég ætla að spá Sunderland
sigri i þessum leik gegn Notts.
County, þeir eru með sterkara
lið aö minu mati”.
Finnur Sigurðsson
nemi:
„Ipswich vinnur þennan leik
gegn Wolves, þeir eru með
miklu sterkara lið”.
Björn Karlsson
húsgagnasmiður:
„Ég spái Norwich sigri i þess-
um leik gegn W.P.R. enda leika
þei á heimavelli”.
Steve Archibald sést hér I kröppum dansi.
Sjö af tólf þátttakendum
okkar tókst að spá rétt til um i
Getraunaleiknum hjá okkur i
siðustu viku. Bætast þvi að-
eins fimm nýir inn i leikinn að
þessu sinni.
Ekkert lát virðist vera á
snilli Ómars Ragnarssonar
sem hafði rétt fyrir sér sam-
kvæmt venju i siöustu viku.
Ómar er nú að fara að spá i 12 ■
skiptið og ber hann höfuð og
herðar yfir aðra i Getrauna-
leiknum. Næstu menn á eftir
Ómari eru þeir Jón Her-
mannsson og Sigurður
Ingólfsson sem eru að spá i
fjórða sinn. Hver veit nema
þar séu nýir snillingar á ferð-
inni. Þeir láta alla vegana litiö
yfir sér.
röp-.
Nafn 25 leikvika Leikir Spá
1. Asgeir Gunnarsson bifvélav. (3) Arsenal-Swansea i
2. Jón Hermannsson prentari (4) Aston Villa-Coventry i
- 3. Bjarni óskarsson verslunarm. (3) Brighton-W.B.A. X
4. Ingi Jónsson framkvæmdastj. (nýr) ' Everton-West Ham 2
5. Oddur Eiriksson húsasmiöur (nýr) Leeds-Liverpool 2
6. Siguröur Ingólfsson hljóöm. (4). Man.United-Man. City 1
7. Ómar Itagnarsson fréttamaöur (12) Nottingham F.-Middlesboro 1
8. Gisli Hrafnsson nemi (2) Southampton-Birmingham 1
9. Kristján Þorgeirsson húsgagnasm. (nýr) Stoke-Tottenham 2
10. Siguröur Sigurösson húsgagnasm. (nýr) Sunderland-Notts. C. 1
11. Finnur Sigurösson nemi (2) Wolves-Ipswích 2
12. Björn Karlsson húsgagnasm. (nýr) Norwich-Q.P.R. 1
. , . . - - -. . jT