Tíminn - 13.03.1982, Síða 9
Laugardagur 13. mars 1982
9
menningarmál
Stórgód sýriing á Kjarvalsstöðum
KJARVALSSTAÐIR
STÍEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR
Myndlistarsýning.
Sk'úlptúr
27ifebr. —14. mars
■ Éitt vandræðaorð i móðurmál-
inu er heitið höggmynd, og
reyndar er orðið myndhöggvari
lika i þeim flokki. Orðið er mjög
lýsandi og maður sér fyrir sér
kraftalega menn er ráðast að
heljarstórum kletti með hamar
og meitil að vopni til að gjöra —
eða höggva til mynd. Þyrftu orða-
smiðir endilega að búa til nýtt
orð, sem nær yfir skúlptúr, eins
og menn nefna „höggmyndalist-
ina” núna, þvi þótt enn starfi
menn við grjóthögg, fer aðeins
litill hluti vinnunnar þannig fram
nú orðið, steinsmiði þessi er
neínilega á undanhaldi og „högg-
myndir” eru búnar til á allt
apnan hátt.
Éf til vill mætti nota orðið
skúlptúr og nefna islensku. Til er
sögnin að skúlpa og mun þýða að
bólgna, eða þrútna, sem er nú
hliðstæð meining.
Mér kom þetta i hug, þegar ég
kom á myndlistarsýningu Stein-
uþnar Þórarinsdóttur (f. 1955) en
þar sýnir hún skúlptúra, sem
gerðir eru úr brenndum leir,
gleri, járni, gifsi, plasti, lérefti
ogýmsum efnum öðrum, en
sýning hennar er á vesturgangi á
Kjarvalsstöðum, sem nú er að
verða einn viðfeldnasti sýningar-
staður þessa húss, og reyndar
austurgangurinn lika, það er að
segja fyrir hentugar sýningar á
svoleiðis stað, þvi þarna eru
veggir að mestu úr gleri.
Steinunn Þórarinsdóttir
Steinunn Þórarinsdóttir hefur
ekki verið fyrirferðarmikil i
myndheimi hér á landi, þótt verk
hafi hún átt á sýningum hér, svo
til nýverið en hún hélt einkasýn-
ingu i Galleri Suðurgötu 7 árið
1979 og tók þátt i sýningu mynd-
höggvarafélagsins á Korpúlfs-
stöðum þeirri er haldin var i til-
efni af listahátið.
Steinunn á að baki góðan náms-
feril erlendis. Nam á árunum
1974-1975 við Portsmouth College
of Art and Design, Foundation
Course og Portsmouth Poly-
technic, Fine-art department
1976-1979, en fór þá til Italiu eins
og allir sannir myndhöggvarar
verða endilega að gjöra og var
þar á Accademia Bella Arte i
Bologna sem gestastúdent 1979-
1980. Og nú er hún komin heim
með sin föng og sýnir okkur ellefu
verk sem ef til vill þykja nú ekki
margar myndir, en standa þó
býsna vel fyrir sinu vægast sagt.
Þótt það hljómi ef til vill eins og
þversögn að það sé list, svona i
sjálfu sér að halda myndlistar-
sýningu þá er það mesti mis-
skilningur. Auðvitað skiptir það
þó miklu máli að góð verk séu á
sýningu en sjaldgæfara er að sýn-
ing sé frumleg og vel sett upp.
Yfirleitt eru myndirnar i röðum,
oft allar af svipaðri stærð og
veggurinn litur út eins og járn-
brautarlest hafi verið parkerað
meðfram veggjunum. Allar
myndirnar i sömu hæð. Og fram-
haldið þekkjum við.
Sýningin
Steinunn fer öðruvisi að. Kjarni
i sýningu hennar eru hvitar
strengbrúður, eins konar
marionettur i hvitum fötum og
þær bera ógn og alla dul brúðunn-
ar og grimunnar. Og siðan koma
skúlptúrarnir, sem yfirleitteru úr
brenndum leir, þar sem sag er
notað til aðfá fram yfirborð eins
og oft er á veðruðum legsteini.
I raun og veru má segja að flest
verkin séu hin athyglisverðustu
og öll eru þau m jög sterk, nema ef
vera kynni maður með gasgrimu
og mæla á brjóstinu sem er verk
af annarri ætt og gæðagráðu.
Steinunn notar spegla og gler
með þessum leirmyndum og ef til
vill eru athyglisverðustu verkin
það sem er einskonar fóstur, en
þó fullvaxta vera. Mjög dularíull
og mögnuð mynd er kallar á hug-
leiðingar. Þá er að nefna leirbók,
þar sem önnur siðan er úr spegli
(gleri). Leir hefur nú ekki áður
þótt sérlega góður i bækur, en
þarna vinnur hann, ásamt
speglinum að frumlegri bók sem
auðveldara er að lesa en greina
frá efninu. I þessari bók stendur
nefnilega heilmargt sem erfitt er
að skrifa um svo skiljanlegt sé á
prenti.
Það efni stendur nefniiega i
þeirri bók einni.
Það má fjölyrða um svona sýn-
ingu en verður ekki gjört hér. En
listunnendum skal bent á að
þarna er spennandi og einkar vel
gjorð sýning er sem flestir ættu
að sjá. Ekki aðeins til að fagna
listamanni, heldur til að fagna
farangri listamannsins sem er
óvenjumikill að þessu sinni.
Storbætt aðstaða
og ankin þjóntista
Laugarnesútibú Iðnaðarbankans að Dal-
braut 1 hefur nú flutt starfsemi sína um set í ^
sama húsi. Við það stórbatnar öll aðstaða íSb^/.
fyrir viðskiptavini okkar og starfsfólk.
Við bjóðum nú næturhólf (innkast) og
geymsluhólf fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Verið velkomin í rúmgóð húsakynni okkar.
Iðnaðarbankinn
Sundlaugarvegur
Laugarnesútibú. Dalbraut 1. sími 85250