Tíminn - 14.03.1982, Síða 13

Tíminn - 14.03.1982, Síða 13
Sunnudagur 14. mars 1982 Enginn vissi hvaö af Brandi hafði orðið Ekki vitnaðist að togarinn hefði strokið úr höfn fyrr en klukkan 6 um morguninn er tveir lögreglu- þjónar voru sendir til þess að leysa félaga sina af. Landhelgisgæslunni var þegar tilkynnt um atburðinn og hófst nú leit að Brandi. Enginn hafði hug- mynd um hvert skipið hafði farið eða hvað orðið hafði af lögreglu- mönnunum, sem ekki höfðu annað „vopna” en kylfu og hand- járn sin. Hið fyrsta sem fréttist af skipinu var það að um klukkan 2 um nóttina hafði bátur frá Akra- nesi séð til þess úti á Flóa en ekki þótt neitt grunsamlegt við feröir þess. Nokkur varðskip og flugvél- ar hófu mikla leit og um klukkan 10 á laugardagsmorgun þóttust menn orönir vissir um að ekki hefði „Brandur” farið suður fyrir Reykjanes, þvi þrautleitað hafði verið á Selvogsbanka og á Eld- eyjarbanka. Kl. 11.30 fann svo landhelgis- gæsluflugvélin Sif skipið þar sem það var á siglingu á Kolluál um 44 milur vestur af Snæfellsnesi. Sinnti skipið engum köllum gæslumanna og svaraði ekki i tal- stöðina. Var nú búið að breyta einkennisstöfum á stafni, skut og skorsteini og i staðinn fyrir GY-111 stóð nú H-255, eins og skipið væri frá Hull. Var varðskipið óðinn i grennd- inni og hélt það þegar á vettvang og dró „Brand” uppi kl. 12 á há- degi. 23 mannslíf fyrir fisk Kl. rúmlega 11 á laugardags- morgun heyrðu lögreglumennirn- ir um borð i „Brandi” flugvélar- dyn og skömmu siðar sáu þeir Sif. Skaut flugvélin stöðvunarljósum, en skipstjóri sagðist engin ljós sjá og hélt áfram. Rétt á eftir gekk Hilmar út á bakborðsvæng togar- ans og sá þá hvar Óðinn bar að. Sagði hann skipstjóra að nú væri varðskip einnig komið á vettvang og spurði hvort ekki væri nóg komið og rétt að stööva skipið. Fóru þá skipverjar að tinast niður úr brúnni. Togarinn sigldi enn áfram og spurði Hilmar hvort Newton ætlaði að hætta 23 manns- lifum fyrir nokkur tonn af fiski þvi liklega yrði skotið á skipið. Svaraði hann engu en gekk um gólf i brúnni, fölur og miður sin. Sögðu lögreglumenn skipverjum sem enn voru uppi við að fara niður áður en skothrið hæfist. Spurðu þeir skipstjóra einskis en fóru að orðum Hilmars. Nokkru siðar hrintu lögreglu- þjónarnir skipstjóra frá stýrinu hringdu niður i vélarrúm og stövuðu skipið. Fyrsti stýrimaður var einnig i brúnni en hafðist ekki að. Skömmu siðar komu varð- skipsmenn um borð. Hét auknum romm- skammti Það kom fram við réttarrann- sókn að Newton hafði talað við nokkra skipverja um það á föstu- deginum að vera mætti að hann legði úr höfn á föstudagskvöldið. Þá kom það einnig fram aö hann haföi lofað nokkrum skipverja sinna auknum rommskammti vegna flóttans frá Reykjavik. Hann hlaut þrjú hundruð þús- und króna sekt fyrir landhelgis- brot auk þess sem afli og veiðar- færi voru gerð upptæk, og þriggja mánaða varðhaldsdóm. Setti hann tryggingu fyrir sektinni og varðhaldinu og sigldi af stað áleiðis til Grimsby þann 5. mai. „Auðvitað kem ég aftur til veiöa við tsland”, sagði hann við blaðamann Timans að skilnaði. „Ég vil alltaf vera meðal vina minna”. Newton stóð við þessi orö og sigldi nokkrum sinnum á Islands- mið eftir þetta. Arið eftir lét hann þó af skipstjórn og þegar við hitt- um hann á Hótel Sögu sl. fimmtu- dag spurðum við hann hvort þessi atburöur fyrir 15 árum hefði átt þátt i að hann hætti skipstjórn. „Nei, hreint ekki”, sagöi þessi glaðbeitti ævintýramaður. „Eg hafði alltaf ætlað mér að hætta, þegar ég yrði 45 ára. Þetta breytti engu þar um”. —AM Texti: Atli Myndir: G.E. „Loftskeytamaðurinn kom upp um okkur, - annars hefðum við líklega sloppið” Newton skipstjöri rifjar upp hina sögulega atburði frá árinu 1967 ■ ,,Jú, sei, sei. Vfst er gott að vera kominn aftur til tslands og það ekki sist þar sem aðstæðurn- ar eru nú aðrar, en þegar ég var hér 1967”,segir Bernard Newton, sem varð alfrægur á Islandi og i heimalandi sinu það árið þegar hann stakk af úr höfn i Reykjavik með tvo islenska lögregluþjóna um borð. Þetta var lika .hinn sögulegasti viðburður og þegar horfter tilbaka er þrátt fyrir allt svo að sjá sem öllum sé skemmt bæði Newton skipstjóra og hinum islensku lögreglumönnum, sem eru orðnir ágætir vinir hins breska sægarps. Newton kom hingaö til lands sl. þriðjudag og með honum i för eru sonur hans, Clifford og kunnur út- varps og blaðamaður, Tony van den Bergh, sem jafnframt því að gera útvarpsprógram fyrir BBC hér á landi þessa dagana er að rita ævisögu Newtons. Þar er enginn hörgull á söguefni enda er Newton ágætur frásagnamaður, höfðinglegur og hinn vörpulegasti og glettnin skin Ur augunum. „Ég hef stundað sjó frá 1942 til 1968”, segir Newton þegar spyrj- um hann um sjómennskuferil hans. „Frá 1948 var ég skipstjóri. Já, já, á ýmsum togurum. Þeirra á meðal voru „The Eagle”, „The Northern Jewel” og „Lifeguard”. Hann var mitt uppáhaldsskip. Jú, það errétL Ég þóttiaflasæll skipstjóri. 1 Grimsby kölluðu þeir mig „The King”. — Þú hefur lengst af fiskað viö Islandsstrendur? „Já, lengst af. Ég kynntist Is- lendingum nokkuð eins og gengur i mörgum ferðum hingað að ströndinni. Jú,mérféll vel við þá. Ég vissi að hér bjó þjóð sem vann hörðum höndum og við slíkt fólk hefur mér alltaf fallið vel. Ég er ekki að segja að það hafi breyst, eða að ég sé að skjóta eitthvað á ungu kynslóðina en nú eru timarnir aðrir. Aðrar eins kempur og voru uppi hér fyrr á árum finna menn ekki lengur, — hvorkiá IslandinéiEnglandi. Ja, drottinn minn! þar er nú munur á orðinn! Bresku sjómennirnir sem ég hafði um borð voru yfirleitt úr- valsmannskapur, harðduglegir menn. Auðvitað fundust innan um menn sem ég kalla „scallywags”. Hvað það þýðir? Það þýðir ein- faldlega „bloody idiots!” — En 99% voru þetta góðir menn”. — Þú hefur þá verið oröinn kunnugur á tslandsmiðum? „Já, það er nú h'kast til. Ég var vanur að fiska úti af Snæfellsnesi i janúar en hélt mig á Eldeyjar- banka og við Vestmannaeyjar i mars til april. 1 mai var svo skarkað við Færeyjar. Þegar haustaði var oft ágætt fiskiri úti af Vestfjörðum, gjarna gott fiskiri af kola á nóttinni. Hvort við fiskuðum ilandhelgi? Það var ekki eins algengt og fólk imyndar sér. Auövitað kom það fyrir, en það varinnan við 10% af veiðitimanum. Það skal ég ábyrgjast. En skipstjórinn verður að gera það sem hann getur til þess að standa i stykkinu og þeg- ar menn höfðu stundum ekkert fengið i einhverja daga, — ja, hvað átti þá að gera”. — En svo viö hverfum aftur til 1967. Hvað hafðir þú hugsað þér að gera við þessa Islensku lög- regluþjóna? „Já, það er nú það. Ég bauð Hilmari reyndar að setja hann af, þegar viö kæmum til Færeyja, en sagði jafnframt að honum væri velkomið að koma með til Eng- lands og njóta þess að eiga „weekend” i Grimsby. Til þessa kom nú þó aldrei. Ég reyndi aö gera lögregluþjónunum lifið sem þægilegast áður en úr höfn var haldið ogbauð þeim upp á tebolla að góðum breskum sið þvi ekki gat ég boðið lögregluþjónum neitt stcrksr h ^ Já það kom ágæt skopmynd hér Enannars hafði ég góð kynni af Islendingum. Ég byrjaði meö Páli Aðalsteinssyni á sjó og „Brandur” var að hálfuleytii is- lenskri eigu. Já, um Islendinga er margt gott aö segja. En ekki leist mér á matargerðina þeirrai tugt- húsinu hérna. Þetta fina hráefni en alveg hræðilega matreitt! — Hver er hugur breskra togarasjómanna til islendinga nú? „Ég get vel skiliö aö þeir séu ekki ánægðir með sinn hlut, það er eðlilegt. Skipin verða nú að sigla út um öll höf, til fjarlægra staða og mega varla nokkurs staðar vera. Auðvitað eru menn ekki ánægðir. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að við hefðum átt að þiggja boðið um 60 þúsund tonnin á sfnum tima og halda dyr- unum þannig opnum til samninga um frekari veiðar siðar. En það er annað mál”. — Þegar þú litur til baka. Hvernig ævi var þessi togara- mennska? ,,Ó, alveg dásamleg. Maður er alls staðar búinn aö vera, sigla um aliar mögulega fiskislóðir, við tsland, Labrador og Hvitahaf. Minnstu ekki á það. Ógleyman- legar minningar. — Reynir jafn mikið á skipstjórann nú og var, þegar skipin eru orðin svona fullkomin? „Engin tæki eöa skip leysa góöan togaraskipstjóra af hólmi. Aivegsama hvað þeir finna upp. t gamla daga var það svoleiðis að sumir f iskuðu og fiskuöu en næsti maður ekki. Menn þurfa aö kunna á trollið, kunna að toga, hafa þetta i blóðinu. Sumir læra það aldrei”. — Nú hefur þú hætt skipstjórn og rekur skemmtistaði i Grims- by? „Já, ég á fjóra skemmtistaði i Grimsby. Þar er bingó, billiard ogennfremur (81 greiðasala,kaffi sterkir drykkir og hvað eina. Til minkoma 18 þúsund gestir á viku. Þorkell annar lögreglumann- anna frá þvi á árunum hefur komið i heimsókn til min og næsta sumar á ég von á að Hilmar liti við hjá mér. Af þessum ágætu vinum hef ég þegið gjafir i þess- ari ferð minni núna, þessi vönduðu ullarteppi og það sem gladdi migekkiminna, — sli'paöa hvaltönn með merki lögreglunnar á tslandi”. —AM ■ „Ef eitthvað var, þá fannst mér tslendingar almennt full alvörugefnir. Mér fannst þvi ekki til of mikils mælst þótt þeir reyndu að taka gamni svona einu sinni”. ■ i för með Newton nú eru þeir van Bergh, útvarps og blaðamaður, sem er aðrita ævisögu hans og Clifford sonurhans. i islensku blaöi af þessu. Þar var ég sýndur i brúarglugganum að bjóða lögregluþjónunum i teboll- ana, meðan strákarnir hömuðust við að mála yfir nafn og númer. Æ, égvildiaðég ætti þessa mynd enn. Ég lánaði hana blaðamönn- um og vitanlega var henni aldrei skilað aftur”. — Nú var um það rætt aö þú kynnir að fá ákæru i Englandi fy rirað mála yfir nafn og númer? „Já, eitthvað var um það rætt, ensvo fór nú samt að ekkert varð úr neinu sliku. Raunin var lika sú að þetta hefði breytt afar litlu. Ég vissi að ensku og islensku togar- arnir voru að fiska við Eldey og Eyjar og auövitað hefðu þeir þekkt skipið hvortsem var. Þetta var eiginlega ástæðan fyrir þvi að ég fór vestur fyrir Snæfellsjökul en ekki suður fyrir þvi ég vissi að þar var mest hættan á að ég þekktist”. — Þú hefur þá gert þér raun- verulegar vonir um að sleppa úr greipum Islenskra yfirvalda? „Já, það geröi ég. Ég vissi það hérna og hérna (nú bendir New- ton á höfuö sér og hjartastað) að þetta átti að geta tekist. Það var snjókoma og afar slæmt skyggni þennan dag og möguleikar mínir voru þvi hreint ágætir á að kom- ast undan. Ég haföi ákveðið að fara vestur á Dohrnbanka og fiska þarum hrið og halda svo til Englands. Ég verð að segja að það kom mér ákaflega mikið á óvart þegar flugvélin birtist skyndilega beint yfir okkur. Nú hef ég komist að þvi að það átti sínar skýringar...” — Ilverjar voru þær? „Jú, þvi miður var það svo aö Quisling var um borð, — loft- skeytamaðurinn. Þessu komst ég að nú á dögunum. Hann hafði á laun samband við Islensku land- helgisgæsluna og sagði þeim á hvaða rás þeir gætu miðað mig út. Þannig var nú það. Ég minnist þess núna að ég sá islensku lögregluþjónana inni hjá loftskeytamanninum, en klefi hans var undir brúnni. Ég sagði lögregluþjónunum að þeir mættu ekki vera hérog fékk þau svör hjá „Quisling” að þetta væri allt i lagi. Þeir væru bara að spjalla saman. Ja, hefði maður vitað þetta þá!” — Þegar lesnar eru frásagnir Islenskra blaða frá þessum at- burði er samt ekki að sjá að þú hafir veriö sérlega hnugginn þrátt fyrir allt? „Nei, það var nú eitthvað annað. Auðvitað var þetta mest grin í aðra röndina. Þú spurðir áðan hvernig mér hefði fallið við Islendinga. Ef eitthvað er þá fannst mér þeir stundum ánum of alvffl’ugefnir. Þvi fannst mér ekki tíl of mikils mælst að þær gætu tekið gamni svona einu sinni!

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.