Tíminn - 14.03.1982, Side 22

Tíminn - 14.03.1982, Side 22
Sunnudagur 14. mars 1982 22 á bókamarkaði acm THE FUJTE-PLAYER D M.THOMAS á D.M. Thomas: The Flute-Player, Picador 1982 ■ Bretar eru nú i sjöunda himni, bókmenntir viröastaft- ur eiga upp á pallboröið hjá lesendum, raunverulegar bók- maintir. Fjórar bækur hafa selst firna vel að undanfömu, eftir gömlu kempurnar Bur- gess og Golding, og nýliöana Salman Rushdie og D.M. Thomas. Engin seldist betur en bók Thomas, Hvíta hótelið, enda tóku Bandarikjamenn ástfóstri viö þær sálfræöilegu pælingar sem þar voru i bókarformi — hér er önnur bók eftir sama höfund. Flautuleikarinn kom fyrst út 1979 og gerist i borg sem aldrei er nefnd en ekki fer milli mála aðer Leningrað. Þetta er saga um listir, eða öllu heldur lista- menn, undir ráðstjórn, bókin er m.a. tileinkuð Pasternak og Osip Mandelstam. Einn dag- inn eru listamennirnir ofsótt- ir, þann næsta sleppa þeir rækilega fram af sér beislinu. Þungamiðja sögunnar, er flautuleikarinn Elena, gjaf- mild kona á fleiri en einn hátt, hún heldur hlutunum gang- andi þegar allt virðist vera að . hrynja til grunna, verða óreið- unni að bráð. D.M. Thomas ' virðist óðum að festa sig i sessi sem einn sérkennilegasti og athyglisverðasti höfundur á Englandi. TOH STOPPARD A'lapti'd frcm Kincn3uii Viillersich m.i.lion Tom Stoppard: On the Razzle, Faber & Faber 1982 ■ Stoppi karlinn hefur gert dálitið af þvi undanfarið að færa leikrit úr austur- risku/þýsku umhverfi i ensk- an búning. Hann samdi t.a.m. leikgerð af Das Weite Land eftir Arthur Schnitzler og var það sýntírómaðri uppfærslu i Olivier, hér hefur hann tekið Einen Jux will er sich machen eftir Johann Nestroy til með- feröar. En þar sem leikur Schnitzlers var i raun og sann ádeila á hnignandi þjóðlif er On the Razzle ekkert annað en skopleikur. Nestroy samdiein áttatiu leikritá sinni tið, feiki- vinsæla gamanleikien féll sið- an igleymsku. Þó hafa ýmsir leitað til hans, Thornton Wild- er samdi The Matchmaker upp úr Einen Jux... og úr þvi var siðan gerður söngleikur- inn Hello Dolly. Stoppard fer allt aðra leið. Hann heldur söguþræði Nestroys að mestu: tveir þjónar bregða á leik i Vin er húsbóndi þeirra er fjarri og verður úr þvi mikið vesin, en replikkureru allar hans eigin. Children Salman Rushdie ‘The litcrary map ítf toiiia isaboullohervdrawn-. iMidnigtn’s Cbildren suundslikeaconlinent linding itsvoice.An aulhortnwclcome tuwurldcompany' NCWWHKTIMES fiCóIS* ofthcKiSI I 'X*' $3r liookcr iVize Salman Rushdie: Midnight’s Childrcn, Picador 1982 ■ Likt og D.M. Thomas skaut Salman Rushdie allt i einu upp kollinum i enskum bdk- menntaheimi án þess að til- heyra honum i raun og veru. Rushdie er Ind ver ji en skrifar að sönnu á ensku. Hann fæddist i Bombay árið 1947 og hafði gefiö út eina skáldsögu á undan þessari, sú hét Grimus. Það voru aftur á möti Börn lágnættisins sem vöktu á honum þessa lika at- hygli, er bókin kom út i fyrra- sumar. Það er eng- inn leikur að ætla sér að lýsa þessari bók, margir gagnrýn- endur hafa þvi valið þánn kost að segja að hér sé Indland lif- andi komið. Bókin er fremur löng og frásögnin ekki ýkja hröð, hér segir frá ferðalagi um indverskt þjóðfélag og fyr- ir þann sem ekki þekkir til hlýtur bókin að verða sem opinberun. Stillinn er yfir- höfuð ljóðrænn og fallegur en Rushdie tekur undir sig mörg hliðarstökk til að varpa ljósi á hina og þessa þætti indversks þjóðli'fs, persónur eru fjölda- margar og höfundurinn auð- sæilega sagnameistari par excellance. One woman's ViArrowínj' expenencc became a sbocV l'cftscilcr AN AinDfflOGRAPHV LindaLovdace with MikcMcGrady Linda Lovelace + Mike Mc- Grady: Ordeal, Star 1982 ■ Assi sker þessi bók sig úr meðal hinna þriggja. Hér er komin sjálfsævisaga ,,klám- myndadrottningarinnar”, sem svo var eitt sinn kölluð, um það bil sem hún saug sig gegnum klámarann viöfræga Deep Throat... Varð aö sögn ekki betur séð en Linda hefði mestu skemmtun af öllu sam- an en að sjálfsögðu var maðk- ur í mysunni. Linda, sem hét ekki Lovelace heldur Bore- man, var i verunni fangi skúrks nokkurs sem hafði af henni gögn og gæði og leigði Ut til ýmissa hluta sem fæstar stúlkurkynnast. Eftir margra ára baráttu tókst henni loks að sleppa endanlega frá honum og skrifaði þá þessa bók, ásamt blaðamanninum Mc- Grady, til að ,,set the record straight”. Og það lukkast bærilega. Bókin ber furðu lit- inn svip af æsiblaðamennsku, fyrir báðum vakir sýnilega að varpa ljósi á hlutskipti þeirra stúlknasemlenda afeinhverri slysni i net klámmangara, sem kunna aö haga hlutunum svo að þeir hafa i raun öll ráð fórnarlambanna I hendi sér, þeirhirða gróðann —sem oftá tiðum er gifurlegur — og niðurlægja og kúga stúlkurnar á allan hugsanlegan máta. Ordeal er réttnefni á bókinni! Nöldur nóbelshafa PATRICK WHITE REKUR ÓTRÚLEGAR RAUNIR SÍNAR ■ Nóbelsverölaunahöfundurinn Patrick White hefur nýlega sent frá sér æviminningar sínar sem vakið hafa furðu bókmenntamanna. Bókin er sem- sé nöldur frá upphafi til enda, skrifuð af hams- lausri fýlu og að því er virðist fyrirlitningu á sam- ferðamönnum rithöfundarins. Boris Pasternak sagði eitt sinn að kosturinn við að vera rithöfundur væri „að þó listamaðurinn deyi þá er ánægjan sem hann hefur haft af lífinu ódauð- leg, bundin í persónulegt en þó alþjóðlegt form, svo aðrir geta endurupplifað gleði hans". I hinni bitru en hreinskilnu ævisögu Whites finnur maður á hinn bóginn litla lífshamingju. White f jölyrðir um allan þann vonda mat sem hann hefur étið á ævinni, alia þá f jaðralausu strætisvagna sem hann hefur ekið i öll þau biluðu klósett sem hann hefur skitið í og allt það hvimleiða fólk sem hann hefur hitt á lífsleið- inni. Hann er jafnvel pirraður á þvi að hafa hlotið Nóbelsverðlaunin, segir að það hafi verið álíka þreytandi og að hafa læst lyklana inní bil sínum í þrumuveðri. ■ Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Tekiö skal fram að um kynningar er að ræöa en öngva rltdóma. Glæsilegir hæfileikar þeirra til að láta mér leiðast" White fékk verðlaunin árið 1974 og alla tið siðan hefur hann haldið dyggan vörð um einkalif sitt. Hann veitir ekki viðtöl og segist ekki mundu hafa tima til að lifa eða vinna ef hann gerði ekkert annaö en blaðra um sjálfan sig og verk sin. Or ævisögunni má hins vegar lesa sitt af hverju. Lesari kemst til að munda að þvi að White er kynvillingur, sem að visu hefði mátt giska á eftir siöustu bók hans, The Tayborn Affair — hann kemst aukinheldur að þvi að hann fæddist áriö 1912 i London sonur auðugra Astraliu- búa og að hann var sendur aftur til Englands til að ganga i einka- skóla og siðan til Cambridge að lesa nýmál. Hann var haldinn astma og litill fyrir mann að sjá, ekki sá kröftugi erfingi sem hann efar ekki að foreldrar hans hafi vonast eftir. Um foreldra sina rit- ar hann af mikilli fyrirlitningu: „Ég þoldi ekki glæsilega hæfi- leika þeirra til að láta mér leiðast, né heldur þráláta viðleitni móður minnar til að ákveða hvað mér væri fyrir bestu en meðal þess var að senda mig i fangelsi i skóla nokkrum hinum megin á hnettinum”. Eina ánægjan sem White fékk út úr lifinu siðarmeir var ást hans á Grikkja nokkrum sem hann hitti i siðari heims- styrjöldinni. Sá hét Manoly Las- caris og stóð samband þeirra i 40 ár. Einnig hafði V/hite nokkra gleði af ritstörfum sinum og trú- hneigður var hann og er þóti hann skilgreindi trúarhugmyndir sinar ekki nákvæmlega. Tækni móðurinnar með svipuna óaðfinnanleg 1 ævisögunni segir White frá ýmsu þvi sem seinni tima ævi- söguritarar eiga áreiðanlega eftir að gera sér mat úr, ekki sist þeir sem gaman af af sálfræði. Faðir Whites, „pervisinn og mildur”, lét móðurina um að hýða dreng- inn, „en tækni hennar með svipuna var óaðfinnanleg”. Hann hefur enn ekki fyrirgefið þeim, er ennþá reiður vegna þeirrar skemmtunarsem þau höfðu af til- raunum afkvæmisins til að tjá hugmyndir sinar. Vænta má hins vegar að almennum lesara þyki bók Whites nokkuð erfið aflestr- ar. Svo virðist sem White ögri beinlinis lesara sinum með þvi að sneyða af miklum hroka hjá réttri timasetningu, kynna mjög form- lega allar persónur til sögunnar og með þvi að snúa setningunum á alla kanta og nota óvænt likingamál. Bókin hefst að visu i æsku hans. Hann var „grænn, veikludrengur drengur sem sá og vissi of mik- ið”. Hann fjölyröir um alla hugsanlega ættingja sina og fer ómildum höndum um þá flesta, siðan er hann sendur i skólann sem hann hataöi. f skólunum á Englandi var White sifellt minntur á „vansköpun mina — uppruna minn i Ástraliu”. Það er ekki fyrr en sögusviðið verður London og siðan New York i seinni heimsstyrjöldinni sem auðvelt er að lesa. Það er þó eink- um vegna þess að við könnumst fyrirfram við umhverfið og getum þvi metið lýsingar hans sjálfs — eins og: „málmregnið i London” eða: „hin leiðinlegu Alexandriu, kramin milli sjávar og eyðimerkurinnar svo undan- komuleiðir voru engar nema framhjáhald og bridge-spil”. Fýlan er ótrúleg! White var i leyniþjónustu breska flughersins i heimsstyrj- öldinni og hafði meðal annars þann starfa að leita i likum flug- manna sem skotnir höfðu verið niður svo og að lesa og ritskoða bréf sem flugmennirnir sendu til ættingja sinna og vina. Þau bréf svo og bréfaskipti hans við Manoly segir White að hafi verið einu tengsl sin við raunveruleik- ann og liklegt má telja að bréfa- lesturinn hafi ekki haft slæm áhrif á rithöfundargáfu Whites. Annars eru lýsingarnar á þessu timabili þunglyndislegar, eins og striðið gaf tilefni til. Þó tekur steininn úr þegar White tekur til við að lýsa ferðalögum þeirra Manolys um Tyrkland og Grikk- land, svo og vinum sínum og óvin- um i Astraliu. Það fer i taugar lesara þegar hann þarf stöðugt að lesa um vondan mat slæmt lofts- lag, ljót hús og svo framvegis. Fýlan er ótrúleg. Ekki bara i óeiginlegri merkingu. White virðist einnig hrifinn af að lýsa svitafýlunni af fólkinu sem hann hitti eða táfýlu. Og hann talar álika óvirðulega um lesendur sina. „Mann langar að æla..." Raunar segir White berum orðum að án algerrar einangrun- ar gæti hann ekki skrifað. Kritikerinn George Steiner hefur enda lýst White sem „meistara einsemdarinnar. bæði i landslagi og innra með manninum”. Af ævisögunni má ráða að þær manneskjur sem White getur þolað að hafa kringum sig séu harla fáar. „Ég segi sjálfum mér að ég megi ekki hata fólk”, skrif- ar hann. „Ég verð að töfra upp raunverulegt landslag og það fólk sem þar býr. En það er erfitt fyrir imyndir að þrifast i plastveröld nútimans er maskari drýpur úr smurðum augum og ofmálaðar varir gleypa i sig fjöldafram- leiddan mat. Mann langar að æla”. Þrátt fyrir allt væri synd ef þessi ævisaga sem heitir Flaws in the Grass, fældi fólk frá að lesa smá- sögur og skáldsögur Whites. A Fringe of Leaves og Voss eru einkum frábær lesning. Báðar eru sagnfræðilegar skáldsögur um strauma i bókmenntum fremur en sálfræði. 1 skáldsögum sinum hefur White auk þess tekist að vinna bug á ógeði sinu á öllu þvi sem hann hatar, þótt vissulega skini það sums staðar i gegn. Og þrátt fyrir allt virðist White enn- þá telja manneskjur þess virði aö skrifa um þær þó hann þoli þær ekki. Hann fjallar dálitið um mis- muninn á þvi að skrifa ævisögu og skáldsögu og segir meðal annars að hann lesi aldrei bækur sinar eftir að hann hefur lokið prófarkalestri. „Slysist ég til að lita I þær furðar mig á að finna þar hluti sem ég fæ ekki séð að ég hafi skrifað nema þá undir dá- leiðsluáhrifum. Sumt kannast ég við af eigin reynslu, annað minnist ég ekki að hafa skrifað”. Ekki allt sem sýnist Titill bókarinnar, Flaws in the Glass kemur úr gamalli endur- minningu Whites af gömlum spegli og virðist gefa til kynna að varlegt sé að treysta endurminn- ingunni um of. Og vissulega gefur þessi bók alis ekki rétta mynd af White þeim sem skrifaö hefur skáldsögurnar sem halda munu nafni hans á lofti. Og þótt hann virðist fúll og bitur og vondur út i mennina hefur White gert ýmis- legt fyrir meðreiðarsveina sina. Hann hefur stutt ýmsa skóla i Astralíu dyggilega og féð sem hann fékk með Nóbelnum notaði hann til að setja á stofn verð- launasjóð fyrir óþekkta ástralska rithöfunda. Þýtt —ij

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.