Tíminn - 14.03.1982, Page 24
Sunnudagur 14. mars 1982
nútiminnl
■ bá er lokið vinsældakosningu
Nútimans þetta árið, við lofum
engu um framhaldið. Kosið var
um vinsælustu LP-plöturnar, inn-
lendar sem erlendar, og vinsæl-
ustu lögin, einnig bæði innlend og
erlend. tmtttaka var mikil að
okkar dómi, það voru hátt i
hundrað seðlar sem bárust
hvaðanæva af af landinu og ftfr
langt fram úr okkar björtustu
vonum. Við þykjumst sjá að það
hafi einkum verið aldursflokkur-
inn 15—20 ára sem tók þátt i kosn-
ingunni og teljum okkur aukin-
heldur geta fullyrt að þessi þver-
skurður gefi að minnsta kosti a 11-
góöa mynd af smekk þessa ald-
ursflokks. Samantekin ráð voru
ekki um kosninguna, svo mikið er
víst. En víkjum nú nánar aö
hverri kosningufyrirsig.
Þess skal getið að við ákváðum
að taka „litlar stórar” plötur
gildar sem LP-plötur, teljum að
hér á landi sé litið á þær sem slik-
ar, þótt eflaust megi deila um þá
ákvörðun.
Innlendar LP-plötur
Bubbi Morthens var ótviræður
sigurvegari hérinnanlands. Plata
hans Plágan varð yfirburðasigur
vegari ihópi innlendra LP-platna
og flestöll lögin af plötunni kom-
ust auk þess á lista yfir vinsæl-
ustu lög ársins. Svo miklir voru
yfirburðirPlágunnar að hún fékk
þvi' sem næst helmingi fleiri stig
INNLEND LoG
1. Segulstöðvarblús, Bubbi Morthens
2. Bjór, Fræbbblarnir
3. Plágan, Bubbi Morthens
4. Ulfur, Þeyr
5. Sekur, Start
6. Bolivar, Bubbi Morthens
7. -8. Chile, Bubbi Morthens
7. -8. Tedrukkinn, Þeyr
9. Himinn og jörð, Gunnar Þórðarson o.fl.
10. Gullúrið, Grylurnar.
INNLENDAR LP-PLoTUR
1. Plagan, Bubbi Morthens
2. Mjötviður mær, Þeyr
3. Ekki enn, Purrkur Pilnik
4. Himinn og jörö, Gunnar Þorðarson o.fl.
5 i upphafi skyldi endinn skoða, Utangarðsmenn
6.-7. Grylurnar, Grýlurnar
.0.-7. En hún snyst nú samt, Start
3. 9. Tass, Johann Helgason
8. -9. 45 rpm, Utangarðsmenn
10. Sumargleðin syngur, Sumargleðin
ERLENDAR LP PLoTUR
1. Dare, Human League
2. -3. Chosts in the Machine, Police
2. 3. Sandinista, Clash
4. Greatest hits, Queen
5. Architecture and morality, Orchestral Manu-
veures in the Dark
6. For Those about to rock, AC/DC
7. Tattoo you, Rolling Stones
8.10. Time, Electric Light Orchestra
8.10. Still, Joy Division
8. 10. Best of Blondie, Blondie
ERLEND LoG
1. Don't you want me, Human League
2. Magnificent seven, Clash
3. -4. Radio Clash, Clash
3.-4. Start me up, Rolling Stones
5.-7. Hold on tight, Electric Light Orchestra
5.-7. Physical, Olivia Newton-John
5.-7. Souvenir, Orvhestral Manuveurs in the Dark
8.-12. Every little thing, Police
8.-12. Hands up, Ottawan
8.-12. Golden Brown, Stranglers
8.-12. The Voice, Ultravox
8.-12. Ghost Town, Specials
en næsta plata á eftir, Mjötviður
mær, með hljómsveitinni Þey, en
spölkornþar á eftirkom Ekki enn
með Purrki Pilnikk.
Himinn og jörð Gunnars Þórð-
arsonar var ekki langt undan, og
þarrétt fyrir neðan var safnplata
Utangarðsmannanna sálugu, í
upphafi skyldi endinn skoða. Þá
var dálitið bil niður í plötur Starts
og Grýlanna en næstu plötur voru
nokkuð jafnar.
Næstar þvi að komast á Kstann
voru plötur Þeys, Iður til fóta,
Bara-flokksins, Mikka Pollock,
Take Me Back, og þeirra bræðra
Gisla og Amþórs Helgasona, i
Bróðerni. Alls voru það rúmlega
tuttugu plötur sem fengu atkvæði
i þessari könnun, athygli vakti
slæm Utreið Brimklóarplötunnar
Glimt við þjóðveginn, sem fékk
aðeins þrjú stig en mun þó hafa
selstallvel — þá væntanlega ekki
meðal þess aldursflokks sem
helst tók þátt i þessari könnun.
Innlend lög
Hér var það Bubbi, Bubbi og
aftur Bubbi! Segulstöðvarblúsinn
fékk um það bil helmingi fleiri
stig en næstvinsælasta lagið, B jór
með Fræbbblunum, og aöeins
munaði þremur stigum að Plága
BuggaMorthens velti Bjórnum Ur
sessi. Úlfur Þeys kom þar
skammt áeftir, einnig Sekurmeð
Start, og siðan var aðeins ör-
skammt niður i þriðja Bubbalag-
ið, Bólivar.
Nokkurt bil var ofani næstu lög,
Bubbi var enn á ferðinni og nU
með Chile sem varð jafnt Te-
drukkinn með Þey. Himinn og
jörð af plötu Gunnars Þórðarson-
ar var skammt undan en Grýl-
umar náðu tiunda sætinu með
söng sinum um Gullúrið.
Ekki er öll sagan sögð af Bubba
Morthens. Rétt fyrir neðan list-
ann með tiu efstu lögunum voru
tvö lög enn af Plágunni að flækj-
ast, Blús fyrir Ingu og Heróin.
Bubbi fer þvi langbest út Ur þess-
ari könnun.
önnur lög sem litlu munaði að
kæmust á lista Guöir hins nýja
timameð Taugadeildinni, Égfer i
friið sem Þorgeir Ástvaldsson
syngur (Já! Hvenær fer Þorgeir i
frlið?), Bás 12meðÞey, Skólaball
með Brimkló, og Af litlum neista
með Pálma Gunnarssyni. Það
vakti nokkraathygli okkar að það
lag, sem var langmest spilað i
Rikisútvarpinu á sfðasta ári,
skyldi ekki komast hærra á list-
ann. Annað sem vekur athygli er
að f æs t þessara la ga sem n áðu inn
á listann okkar reyndust mikið
spiluð i útvarpinu.
Þá vekur einnig eftirtekt að
ekkert laga Purrks Pillniks náði
inn enda þótt Purrkurinn ætti
þriðju vinsælustu plötuna. Það
lag Purrksins sem næst var þvi að
komast á lista var Hvað get ég
gert? og siðan Gluggagægir en
lög hljómsveitarinnar dreifðust
allmikið. Sömu sögu er reyndar
að segja af Þey sem átti mörg lög
neðarlega á listanum.
Erlendar LP-plötur
Hér dreifðust atkvæði mun
meira en raunin var i innanlands-
kosningunni, enda fengu hátt i' 50
plötur atkvæði. Dare með Human
League náði nokkuð öruggri for-
ystu en þó var ekki mjög langt
niður i næstu plötur sem urðu
jafnar i öðru til þriðja sæti, nýj-
ustu plötur Police og Clash. Safn-
plata Queen kom þar i humáttina
áeftirogsiðanOMDogAC/DC.
Það gladdi okkur gamlingjana
ósegjanlega að Rollingarnir
skyldu ná inn á lista með nýjustu
atkrð sina, Tatto You, en annars
munar ekki miklu á plötunum
sem eru neðarlega á listanum.
Þærplötur sem næstar eru voru
meðal annarra Solid Gold með
Gang of Four, Visitor með ABBA,
Prince Charming með Adam og
maurunum, La Folie með
Stranglers, safnplata Pink Floyd,
Rage in Eden með Ultravox, Get
Lucky meö Loverboy, 7 með
Madness, og What’sThis For með
Killing Joke.
Erlend lög
Hérdreifðustatkvæði geysilega
mikið, einsog raunarsést berlega
á listanum, f jöldi laga hefur feng-
ið jafn mörg atkvæði. Þó var
Human League nokkuð öruggt I
efsta sætinu, næstu þrjú lög komu
fremur skammt á eftir en siðan
var nokkuð langt niður i næstu
lögin.
Það voru rúmlega sjötiu lög
sem fengu atkvæði. Þau sem
komust næst þvi að ná á lista, og
voru sannlega ekki langt undan,
voru Stand and Deliver með Ad-
am og maurunum, Centrefold
með J.Geil’s Band, Invisible Sun
meðPolice ogLet’sGetlt Up með
AC/DC.
Nokkuð bar á þvi i þessari
kosningu að menn greiddu eld-
gömlum lögum atkvæði, einkum
af safnplötum Blondie og Queen
og þau atkvæði gátum við að
sjálfsögðu ekki tekið gild. Hins
vegar tókum við Radio Clash með
enda þótt það muni hafa komið út
á þessu ári en ekki i fyrra.
Svo dragi hver sinar ályktanir
af þessu s em han n vi 11...
Verðlaunahafarnir
— Fá plötu að eigin vali
■ Eins og við Benni pis margtók-
um fram áttu þeir sem tóku þátt i
vinsældakosningu Nútimans
möguleika á að hreppa dálitinn
glaðning, plötu aö eigin vali frá
Fálkanum. Við Benni erum menn
orðheldnir og höfum nú dregið úr
búnkanum sem okkur barst.
Fjórir lukkunnar pamfilar skulu
þvi setja sig i samband við okkur
á Helgar-Timanum, Siðumúla 15,
Reykjavik, simi 91-86300, og við
munum siðan sjá um að koma
plötum þeirra til þeirra með ein-
hverjum hætti. öllum hinum
þökkum við þátttökuna.
Verðlaunahafarnir eru:
Stefán Guðmundsson,
Hrisalundi 16 e,
Akureyri.
Sæunn Guðmundsdóttir,
Skálholtsskóla,
Biskupstungum,
Arnessýlu.
Helga Vala Helgadóttir,
Suðurgata 31,
Reykjavik.
Kristján Guðmundsson,
Barónsstig 61,
Reykjavik.