Tíminn - 04.04.1982, Side 17
Sunnudagur 4. aprll 1982
ato'Ai'A'if
17
Alfreð þurfti ekki að hugsa sig
um tvisvar.
„Langar þig ekki að fara i
mark, Arfur? Eddana vantar
mann i mark,” sagði hann mjúk-
máll.
Arfur vissi aö nú var hann
glataður.
Nokkrum stundum siðar náði
Arfur Kelti, plástraður og marinn
i bak og fyrir, að króa Alfreð af
úti einu horni laufskálans.
„Heyrðu, Alfreð, é-ég er héddna
með soldiö góða hugmynd,” sagði
hann rogginn.
„Jæja,” ansaði Alfreð fálátur.
„Þá held ég að ég loki nú bara
eyrunum. Siðasta hugmyndin þin
gekk næstum af okkur öllum
dauðum,” sagði hann og hugsaði
með hryllingi til fyrirtækisins
Svörtu svipunnar, sem nú var bú-
ið að strika út af firmaskrá.
„En... en... en, sjáöu...” byrjaöi
Arfur, Bóbó greip fram i fyrir
honum.
„Hei, vá, sjáiði strákar, nú kýl-
um við i Glæsibæ. Þaö er algjört
möst. Nei, þetta er sko ekkert
aprilgabb, nei, þessar piur eru
sko for real. Þessi dansflokkur,
sko, og þær eru eilea ekki i neinu,
bara einhverjum pjötlum og
sokkaböndum, og leðri, maður,
plenti af leðri, og svo dansa þær
og skaka sér. Ekkert smá
getnaðarlegt böns af pium. Þetta
er sko eins og að vera kominn aft-
ur á Istedgade, maður, nema
gæsirnar þar jafnast ekkert á við
þetta, sko, þessar hafa þetta allt á
hreinu, brjóstin og allt, og svo er
þetta allt bleikt, og fjólu...”
„Nei, nei, Bóbó! Ekki orð
meir!” sagði Alfreð Alfreðsson
myrkur i máli. „Engin smáatriði
hér. Við erum kúltiveraðir menn
og höfum engan áhuga á svona
skemmtunum. Þetta er ekki held-
ur samboðið þér siðan ég hækkaði
þig I tign.”
Uxaskalli var i þungum þönk-
um. „Er það satt, eru þær alveg
allsberar,” spurði hann gáttaður.
„Nei, Uxi, þær eru ekki i nokkr-
um sköpuðum hlut,” sagði Alfreö
hæðnislega. „En það kemur þér
bara ekkert við.” Þar með var
málið útrætt. Það sló þögn á hóp-
inn, loks herti Arfur upp hugann á
nýjan leik.
„Má ég núna segja þér frá hug-
myndinni, Alfreð?”
Alfreð fann til óvæntrar samúð-
ar með þessum fyrrverandi óvini
sinum, og þar áöur vini, svo hann
sagði: „Haltu bara áfram, Arfur
minn.”
„Sko, ég var að lesa i Alþýðu-
blaðinu um einhver rithöfunda-
laun eða eitthvað svoleiðis, ein-
hver starfslaun. Það er sko fullt
af fólki sem lifir á þessu, maður
þarf ekki annað en að skrifa tvær
bækur með einhverju rugli og svo
er maður bara á fullum launum
við að gera ekki neitt og...”
„Hvað meö það,” sagði Alfreð
höstuglega, samúðin með Arfi
var gufuð upp og honum fariö að
leiðast þófið.
„Ja, mér datt héddna i hug að
við gætum... við gætum
héddna...sest niður og skrifaö
eins og tvær ljóðabækur... það er
enginn vandi... bara eitthvað bull,
þú veist... og svo getum við gefið
þær út undir einhverju nafni...”
„Einhverju nafni?” spurði Al-
freð og hnykklaði brúnir. „Ja,
þinu nafni auövitað, og svo getum
við héddna sótt um þessi laun, við
gætum örugglega fengiö laun i
þrjá mánuði...”
„Við? En sagðirðu ekki að
ljóðabækurnar væru eftir mig?”
„Ja, Jú, jú, auðvitað, þú fengir
þetta, hvaö annað, ég átti nú eilea
einmitt við það, sko...”
„Þú segir nokkuö, Arfur,”
sagði Alfreð móttækilegur.
„Mann hefði nú ekki nema gott af
smávasapening. Og ég hef sosum
alltaf verið hneigöur til skáld-
skapar, ég neita þvi ekki. Sko,
það er vegna þess aö innst inni er
ég ákaflega tilfinninganæmur. Ég
hef bara aldrei haft tima fyrir
svonalagað. A ég að fara með
soldið sem ég orti um daginn?”
Alfreð beið ekki eftir svari.
Hann var þegar sestur á bak
skáldfákinum. Andi hans hækk-
aði óöum flugið og hann þuldi eins
og i leiðslu.
í næstu viku vonumst við til að
geta birt sýnishorn af ljóðagerð
Alfreðs Alfreðssonar og félag-
anna hans knáu.
GOÐAR WPSKRIFTIRs
Súkkulaðidrykkir Krem fyrir tertur og kökur
°MEÐ MÓNU
TERTCI
HJÚP
1
1.
I líter mjólk
100 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað saman, gott að láta aðeins sjóða,
einnig má drýgja mjólkina með .vatni, salt
eftir smekk.
2.
I líter mjólk
150 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað á sama hátt og no. 1, en þeyttur rjómi
borinn með, eða látinn í hvern bolla.
Bræðið TERTU HJÚP við vægan hita og
hrærið stöðugt í á meðan. (Ekki er nauðsyn-
legt að nota vatnsbað).
SÚKKULÍKI
1.
100 gr. smjör
100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt.
4 eggjarauður hrærðar út í, ein í einu og
60 gr. flórsykur, hrært vel, má þeyta.
2.
100.gr tertu-hjúpur
2 eggjarauður
2 matsk. rjómi
2 matsk. fíórsykur
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman,
bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í.
Súkkulaðibráð.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega, hrært
stöðugt í, síðan er I matskeið af smjöri
(mjúku) hrært saman við (má vera meira),
látið volgt á kökuna.
Skrevtikrem.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við vægan hita,
síðan er 1/4 teskeið af vatni hrært vel
saman við. Síðan er þetta látið í sprautu
eða sprautupoka, og er þá tilbúið til skreyt-
inga, látið ekki bíða.
mona
SÆLGÆTISGERÐ
STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIROI
S(MI 50300 - 50302
ÐEEyTTHP
TÍM4P
sUÍAAfhf
w
1 ' : 1
1 * Í'
j jj 1 A i