Tíminn - 06.05.1982, Page 5
Fimmtudagur 6. maí 1982
5
Tæknileg mistök þegar 20 nýir Volvo-
vagnar voru pantaðir fyrir SVR:
SKIPT HEFIIR VERK) UM
DRIF í ÖLLUM VÖGNUNUM!
■ Mál Strætisvagna Reykjavíkur hafa verið aII mikið í
sviðsljósinu að undanförnu/ einkum vegna óánægju
starfsmanna fyrirtækisins með Ikarus vagnana. Tíminn
hafði samband við Leif Karlsson, stjórnarmann i SVR,
og spurði hann um álit á þvi máli.
„Rekstrarstjórinn, Haraldur
Þórðarson, og verkstæðisfor-
maðurinn, Jan Jansen, eru fyrir-
fram mjög neikvæðir i garð
þessara bila og vilja ekki að þeir
séu notaðir,” sagði Leifur i upp-
hafiogbættisiðanvið: „Haraldur
hefur lýst þvi yfir opinberlega að
hann telji þessa vagna alls óhaéfa
til notkunar.
Ég tel að Ungverjinn, sem er
hér á landi sem fulltrúi framleið-
enda til þess aö aðstoða eigendur
vagnana við viöhald og viðgerðir
á þeim, eigi við vanda að etja I
sambúð sinni við SVR, þrátt fyrir
góðan vilja forstjórans. Ég hef
enda látið bóka á stjörnarfundi að
ég tel rétt að láta rannsaka
hvernig þeim kvillum er háttað,
sem hrjá vagnana og láta gera
við þá, svo allir vagnstjórar geti
ekið þeim. Það má segja að
Ikarus sé ekki af sama gæða-
flokki og Volvo en það þýðir ekki
að þeir séu ónothæfir.
I þvi sambandi má benda
á að Volvo BIO M, þeir 20
sem voru keyptir á sama tima og
Ikarus vagnarnir voru siður en
svo gallalausir. Þetta var ný
framleiðsla hjá Volvo og ég hafði
vakiðathygliáþviístjórnSVR að
Reykjavikurborg er fyrsti aðilinn
sem kaupir þessa bila til að nota
þá sem strætisvagna.
Það sem fljótlega kom I ljós var
að þeir voru með of litla vél. Til
þess að þeir gætu sinnt sinu hlut-
verki var stillingu á oliugjöf
breytt þannig aö meiri snúnings-
hraði fékkst á vélina og þar meö
meira afl. Afleiðing þess var sú
að of mikið álag varð á drifið,
sem var pantað I samræmi við
styrkleik vélarinnar og það þoldi
ekki álagið. Þess vegna hefur
orðið að fá nýtt og stærra drif i þá
alla.
Þetta hefur að sjálfsögðu i för
með sér mikinn kostnað, en mér
tókst ekki að fá svör við spurn-
ingum minum á slðasta stjórnar-
fundi um hver borgaði þann
kostnað.
Samkvæmt skilningi minum á
viðskiptaháttum er mér mjög til
efs að framleiðandi taki á sig
þennan kostnað, þar sem tækni-
menn SVR höfðu valið þennan
búnað af þeim kostum, sem I boði
voru. Þeir lögðu að auki mikla
áherslu á það við stjórn SVR að
þessir vagnar, meö þennan búnað
og ekkert annað yrði valið.
Þessum skilningi minum til
stuönings má rifja upp viðbrögð
framleiðanda við vanda af svip-
uðu tagi, sem upp kom fyrir
nokkrum árum.
Vissulega eru Volvo og Ikarus
ekki i sama gæðaflokki, eins og ég
sagði áðan. En yms þau atriði
sem kvartað er undan nú hjá
SVR, eru tækjabúnaður sem
pantaður var i vagnana sam-
kvæmt skilgreiningu tæknimanna
SVR. Til dæmis var gefinn kostur
a að velja á milli mismunandi
drifa og kostaði ekkert aukalega
að fá drif, sem hentaði betur hér.
Enn sem komið er hafa þó engir
þeir gallar komið fram i Ikarus
sem eru neitt i likingu við mistök-
in við drifið i Volvo vögnunum.
Eins og málin standa nú, tel ég
að verösamanburður milli
þessara tveggja gerða, eins og
hann kom fram I tilboðunum, sé
enn i fullu gildi.
Aö sjálfsögðu er mér annt um
að starfsmenn SVR hafi góða
vinnuaðstöðu. Mér ber einnig,
sem stjórnarmanni i SVR, að
gæta fjárhagslegra hagsmuna
skattgreiðenda, sem eiga SVR og
þurfa að reiða fram 30 milljónir
króna i beinan styrk til fyrir-
tækisins á þessu ári. Þess vegna
get ég ekki fallist á að kröfur
starfsmannanna um að kaupa
eingöngu það dýrasta séu rétt-
lætanlegar, enda tiðkast það
hvergi að starfsmenn ráði einir
fjárfestingu fyrirtækja,” sagði
Leifur. SV
Framboösfundur í sjónvarpssal
Sumarid á
Akureyri!
■ t>ótt við á höfuð-
borgarsvæðinu höf-
um ekki beinlinis
getað státað af
sumarbliðunni und-
anfarna daga má
það þó vera huggun
liarmi gegn að það
hafa Norðanmenn
ekki getað heldur
eins og þessi mynd
frá Akureyri sýnir
glögglega. Mynd:
gk/ Akureyri
■ Fyrsti framboðsfundurinn i
sjónvarpssal hefst á sunnudaginn
kemur, 9. mai, klukkan 16.00. Þá
fá borgarstjórnarkandidatarnir i
Reykjavik að spreyta sig og
fyrstir á mælendaskrá eru full-
trúar byrjendanna, kvennafram-
boðsins eða V-listans.
Fundurinn stendur i tvo tima og
er skipt i þrennt. Á fyrsta hálf-
timanum verða framsöguræður
eða framboðsræður, eftir þvi sem
menn vilja kalla það, og fær hver
listi sex mínútur til umráða.
Röðin verður þessi: Kvenna-
framboð, Framsókn, Kratar,
Allaballar og Sjálfstæðið.
Annar þáttur stendur i einn
klukkutima og fer þannig fram að
fundarstjórinn Helgi E. Helgason
leggur spurningar fyrir fundar-
menn, sem verða einn eða tveir
frá hverjum lista, i þeim hluta
fundarins. Þá verður röð listanna
þessi: A-D-V-B-G.
Siðasti hálftimi fundarins fer
svo i ræðuhöld, þar sem mönnum
gefst kostur á að hreinsa and-
rúmsloftið og leiðrétta það sem
aðrir kunna að hafa missagt fyrr
á fundinum.
Þessi fundur er eins og reyndar
allir framboðsfundirnir i sjón-
varpinu i beinni útsendingu.
Næsti fundur i sjónvarpinu
verður á laugardaginn 15. mai
klukkan 15.00. Þá eigast Kópa-
vogskandidatarnir við i tvo tima.
Fyrst flytja þeir ræður hver af
öðrum og fara þrjár umferðir. í
fyrstu umferð fær hver listi sjö
minútur til umráða en i hinum
tveim eru fimm minútur. Þetta á
að taka 70 minútur. Að þvi loknu
setjast menn við hringborðið og
rabba saman i 50 minútur.
Hafnfirðingar fá sjónvarpið til
umráðp á milli klukkan 14-16 dag-
inn eftir, sunnudaginn 16, 5. Þeir
haga sinumfundi á svipaðan hátt
og Reykvikingar. Þegar þeir
hætta, klukkan 16, taka Akureyr-
ingar viðog halda sinn fund næstu
tvo tlmana. Þeir velja sér svipað
fundarform og Kópavogsbúar.
Siðasti þáttur framboðsfunda i
sjónvarpssal er svo á föstudags-
kvöld 21. mai kvöldið fyrir
kosningar. Þá kemur einn fulltrúi
frá hverjum lista i Reykjavik og
halda uppi hringborðsumræðum i
einn og hálfan klukkutima.
Sjónvarp frá talningu atkvæða
verður svo með nokkuð hefð-
bundnu sniði.
SV
Kísilmálmur
kominn til
efri deildar
■ F’rumvarp um kisilmálm-
verksmiðju á Reyðarfirði var
afgreitt frá neðri deild i gær og
fyrsta umræða um málið hófst i
efri deild og var stefnt að þvi að
afgreiða málið þar til nefndar i
gærkvöldi eða nótt. Væntanlega
hlýtur það lokaafgreiðslu efri
deildar i dag.
Talsverðar sviffingar urðu
um frumvarpið I iönaðarnefnd
neðri deildar i fyrrakvöld og
miklar umræður voru um það á
næturfundi og aftur á fundi i
gær. Horfið vár frá þvi ráði að
leggja fram nýtt frumvarp eins
og skýrt var frá i Timanum i
gær, en sú frétt var skrifuð áður
en málið hlaut lokaafgreiðslu i
nefndinni. Heldur voru þær
miklu breytingar sem gerðar
voru settar fram sem
breytingartillögur við frumvarp
iðnaðarráðherra og er það aö
mestu samhljóða þvi frumvarpi
sem iðnaðarnefnd var búin að
ganga frá.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
i nefndinni lögðu fram breyting-
artillögu þar sem kveðið var á
um að rikið þurfi ekki að verá
meirihlutaaðili að verksmiöj-
unni. Magnús H. Magnússon
skilaði séráliti sem gerði ráð
fyrir að kosinn yrði sérstök
undirbúningsstjórn á meðan
samið verði nýtt frumvarp um
kisilmálm verksmiðjuna á
grundvelli starfs þeirrar stjórn-
ar. Báðar breytingartillögurnar
voru felldar.
Neðri deild samþykkti frum-
varpið með 32 atkvæðum en 6
þingmenn greiddu ekki atkvæði.
Meðal þeirra sem sátu hjá voru
tveir flokksbræður iðnaðar-
ráöherra þeir Guðmundur J.
Guðmundsson og Garðar
Sigurösson.
Ekki er búist við að frum-
varpið mæti neinni mótspyrnu i
efri deild. Oó
Sextíu
milljónir í
járnblendi
■ A sama fundi og neðri deild
afgreiddi kisilmálmverksmiðj-
una á Reyðarfirði samþykkti
hún lög um viðbótarhlutafé úr
rikissjóði til Járnblendiverk-
smiðjunnar i Hvalfirði. Nemur
framlagið um 60 millj. kr.
OÓ
Stríð milli
stjórnar og
stjórnar-
andstöðu?
■ „Það stefnir i aigjört striö
milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu”, sagði Karvel Pálmason
á þingi i gær, „ef ekki verður
gefinn eðlilegur timi til að ljúka
málum á eölilegan hátt.”
Hann minnti á að lög um
vinnuvernd væru i landinu og
krafðist hann þess að löggjafar-
samkundan héldi þau lög er hún
setti sjálf.
Astæðan til aö vinnuverndar-
laga er ekki gætt þegar þing-
menn eiga i hlut er sú að kvöld-
fundir hafa verið alla þessa viku
og stundum þingað fram á
rauða nótt. 1 gær héldu stjórnar-
andstæðingar uppi málþófi
vegna þessara vinnubragðá og
mótmæltu kvöldfundum sem
boðaðir voru i báðum deildum.
Vildu þeir fresta þinglausnum
eins lengi og þörf þykir, en
nokkur hinna stærri mála eru
enn óafgreidd. Tóku margir til
máls og bentu á þeir hygðust
ræða vel og lengi um hin ýmsu
mál, sem eftir er að afgreiða.
OÓ