Tíminn - 13.05.1982, Side 7
Fimmtudagur 13. mai 1982
7
erlent yfirlit
■ MARGT bendir til, aö sam-
stjórnartimabili sósialdemókrata
og Frjálslynda flokksins i Vest-
ur-Þýskalandi sé aö ljúka. Þetta
timabil hefur staöiö óslitiö siöan
haustiö 1969 og á þvi 13 ára af-
mæli á þessu ári. Haldist þaö til
loka kjörtimabilsins hefur þaö
staöiö i 15 ár. Þaö væri ekki óeöli-
legt, þótt kjósendur vildu fá ein-
hverja breytingu.
Þess gætir einkum oröiö innan
flokks sósialdemókrata aö yngri
kjósendur eru orönir þreyttir á
þessu langa samstarfi. Þeir telja
stjórnina of ihaldssama bæöi i
innanlandsmálum og utanrikis-
málum. Komiö hefur til verulegs
ágreinings á þingum flokksins, en
meö þvi aö standa saman hefur
flokksstjórninni tekizt aö halda
velli undir forustu þeirra Willys
Brandt og Helmuts Schmidt.
Þeir hafa skipt þannig meö sér
verkum, aö Brandt hefur reynt aö
róa vinstri arm flokksins en
Schmidt hægri arminn.
Þetta hefur þó ekki tekizt til
fulls. Nýlega hafa vinstri sinnar
sem áöur voru i flokki sósial-
demókrata, stofnaö nýjan flokk,
sem sennilega gerir bandalag viö
flokk náttúruverndarmanna fyrir
næstu kosningar til þingsins i
Bonn. óliklegt er ekki, aö sliku
bandalagi takist aö fá þingmenn
kosna.
Ókyrröin i flokki sósialdemó-
krata hefur m.a. valdiö þvi aö
Frjálslyndi flokkurinn er farinn
aö efast um, aö samstarf flokk-
anna haldist til lengdar. Hann
■ Helmut Kohl
Mesta vandamál kristilegra demókrata
hefur þvi fariö aö búa sig undir
stjórnarslit. Samningar milli
flokkanna hafa þvi oft i seinni tiö
gengiö verr en áöur. Þetta viröist
heldur hafa styrkt Frjálslynda
flokkinn i sessi, en yfir honum
vofir stööugt sú hætta, aö hann
nái ekki þeim 5% greiddra at-
kvæöa I kosningum, sem þarf til
þess aö ná þingsætum.
ÝMSAR getgátur hafa veriö
uppi um framhaldiö, ef stjórnar-
samstarfiö rofnar. Um tvennt
viröist þá aö velja. Annaö er þaö,
aö Kristilegi flokkurinn sem veriö
hefur I stjórnarandstööu, og
Frjálslyndi flokkurinn taki hönd-
um saman. Hitt er þaö aö efnt
veröi til kosninga.
Kristilegi flokkurinn viröist enn
óráöinn i þvi, hvorn kostinn hann
eigi heldur aö kjósa. Sumir leiö-
togar hans viröast telja þaö
tryggja stjórnarforustu flokksins
til frambúöar ef hann nær sam-
starfi vib Frjálslynaa flokkinn.
Aðrir vilja freista gæfunnar og
reyna aö ná hreinum þingmeiri-
hluta i kosningum.
Þeir, sem velja siöari kostinn,
halda þvi m.a. fram aö Frjáls-
lyndi flokkurinn hafi reynzt ó-
traustur I samstarfi. Hann vann
um skeið meö Kristilega flokkn-
um, en gerðist svo kröfuharður aö
kristilegir demókratar rufu sam-
starfiö viö hann og mynduðu
stjórn meö sósialdemókrötum. Sú
stjórn fór meö völd 1966-1969.
Talið er aö Franz Josef Strauss
sé i hópi þeirra, sem vilja freista
striösgæfunnar og reyna aö ná
meirihluta flokksins á þingi.
Margt bendir til, að flokkurinn
eigi erfitt með aö gera þetta dæmi
upp og kjósi þvi aö fá lengri tima
til aö átta sig. Þetta er m.a. dreg-
iö af þvi, aö stjórnarandstaða
hans hefur verib meö daufara
móti um skeið.
Margir fréttaskýrendur telja,
að þetta stafi ööru fremur af þvi,
að flokkurinn er enn ekki búinn aö
velja nýtt kanzlaraefni fyrir
næstu kosningar. Mjög velti á þvi,
að flokkurinn geti teflt fram
sterkum foringja ef hann á að
reynast sigursæll. Enn ber Helm-
ut Schmidt höfuð og herðar yfir
aðra þýzka stjórnmálamenn og
hann gæti enn dregiö verulegt
fylgi aö sósialdemókrötum ef
kristilegir demókratar gætu ekki
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
■ Strauss vill reyna aftur
teflt fram sterkum keppinaut
gegn honum.
Helmut Kohl, sem er formaður
landssamtaka flokksins þykir
ekki nógu sterkur leiötogi, enda
tapaði hann sem kanzlaraefni i
kosningum 1976. t kosningunum
1980 var Frans Josef Strauss teflt
fram sem kanzlaraefni, þvi aö ó-
umdeilanlega fullnægöi hann
kröfum um sterkan leiðtoga.
Hann reyndist ekki sigursæll.
Yfirleitt var þá taliö aö Strauss
væri endanlega úr leik. Þaö þykir
nú ljóst, að hann er ekki þeirrar
skoðunar og vill þvi gjarnan
reyna aftur, þegar hann telur aö-
stæöur betri. Kohl vill einnig
reyna, þvi aö sigurhorfur séu nú
meiri en 1976.
Þegar þeim Strauss og Kohl
sleppir koma allmargir aörir
leiötogar flokksins til greina, en
enginn þeirra þykir þó skara
fram úr og fulinægja myndinni
um sterkan foringja.
Þannig eiga kristilegir demó-
kratar i miklum vandræðum, þótt
illa gangi á stjórnarheimilinu og
þaö sé vatn á myllu þeirra.
EN HVAÐ tekur viö i Vestur-
Þýskalandi ef núverandi stjórn
fellur og kristilegir demókratar
taka við forustunni? Þetta er
vissulega mikilvæg spurning, þvi
aö Vestur-Þýskaland er orðið á-
hrifamesta rikið i Vestur-Evrópu.
Von margra er sú, að breyting-
arnar verði meira i oröi en á
boröi. Kristilegir demókratar
muni taka upp þraöinn frá Aden-
auer og Erhard og fylgja raun-
særri stefnu og ævintýralausri.
Bregöist þetta, getur það haft
mikii áhrif á málefni Evrópu.
Rússar viröast búa sig öðrum
þræöi undir stjórnarskipti i Bonn.
Þvi óskaöi Brésnjef sérstaklega
eftir aö hitta Frans Josef Strauss,
þegar hann heimsótti Bonn sið-
astliöiö haust. Gunnar Thorodd-
sen geröi það einnig.
Leit að sterkum
flokksleiðtoga
Félagsmálastofnun Reykjavíkurbörgar
Félagsstarf eldri borgara
í Reykjavík
Sýning á ýmsum munum sem hafa verið
unnir i Félagsstarfi eldri borgara verður
opnuð að Kjarvalsstöðum föstudaginn 14.
mai 1982, kl. 16:00. Lúðrasveit Laugarnes-
skóla leikur fyrir utan við opnunina.
Sýningin verður opin frá kl. 16.00 til 22:00
föstudaginn og frá kl. 14:00 til 22:00
laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. mai.
F élgsmálastofnun Reykjavikurborgar.
SSl Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Félagsstarf eldri borgara
í Reykjavík
Sala á munum unnum i Félagsstarfi eldri
borgara, verður að Norðurbrún 1 laugar-
daginn 15. og sunnudaginn 16. mai n.k. frá
kl. 13:00 til 18:00 báða dagana
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar.
Útboð
Tilboð óskast i byggingu Verkstæðis- og
skrifstofuhúss Vegagerðar rikisins á Sel-
fossi.
Skrifstofuhúsið er tvær hæðir, hvor 155
ferm að flatarmáli, og verkstæðishúsið er
370 ferm á einni hæð, vegghæð 6-7 m.
Útboðið nær til uppsteypu húsanna, frá-
gangs að utan og frágangs verkstæðis að
innan.
Útboðsgögn verða afhent frá og með
föstudeginum 14. mai n.k. á verkfræðistof-
unni Fjarhitun h.f. Borgartúni 17, Reykja-
vik og á skrifstofu Vegagerðar rikisins,
Eyrarvegi 21, Selfossi, gegn 1000 kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Vegagerð-
ar rikisins, Borgartúni 7, Reykjavik,
föstudaginn 28. mai 1982 kl. 14.00.
Bændur
Ég er 12 ára drengur.
Vill ekki einhver góður bóndi leyfa mér að
vera hjá sér i sumar. Er duglegur.
Þarf ekkert kaup.
Upplýsingar i sima 91-54429 eftir kl. 6 á
kvöldin.
Eftirfarandi vátryggingafélög hafa
ákveðið að frá 15. mai til 1. september
verði opnunartimi þeirra frá kl. 8 til kl. 16,
en nauðsynlegri afgreiðslu þó sinnt á milli
16 og 17.
Ábyrgð hf.
Brunabótafélag
íslands
Trygging hf.
Almennar
Tryggingar hf.
Sjóvátryggingar-
0
félag Islands hf.
Trygginga-
miðstöðin hf.
Kælitækjaþjónustan
Rcykjavíkurvcgi 62, Hafnarfirði, sími 54860.
Önnumst alls konar nýsmíði. Tökum að
okkur viðgerðir á: kæliskápum,
frystikistum og öðrum kælitækjum. Fljót
og góð þjónusta.
Sendum I póstkröfu um land allt