Tíminn - 18.05.1982, Page 7
Þriðjudagur 18. mai 1982
erlent yfirlit
■ MARGT bendir til að til ti'ð-
inda dragi við Falklandseyjar i
þessari viku. Sennilega fæst Ur
þvi skorið i dag eða á morgun,
hWtsáttaviðræður undir forustu
Sameinuðu þjóðanna bera árang-
ur.
Ef árangur næst i þessum við-
ræðum, þykir Uklegast að báðir
aðilar kveðji heri sína heim.
Hingað til hafa viðræðurnar
byggzt á þeim grundvelli. Hvorki
Bretar eða Argentinumenn munu
þá taka við stjórn Falklandseyja,
heldur munu þær settar undir
alþjóölega stjórn. t kjölfar þess
munu hefjast viðræður milli
stjórna Argentinu og Bretlands
um framtiðarstjórn á Falklands-
eyjum.
Það bendir til að viöræðunum
hafi heldur þokað i sam-
komulagsátt að helztu samnings-
menn beggja héldu heim fyrir
helgina til viðræðna við rikis-
stjórnir sinar og til að fá nánari
fyrirmæli um áframhaldið. Þeir
eru nú aftur komnir á vettvang
hjá Sameinuðuþjóðunum.
Miýg atriöi munu enn óleyst.
Mestu deiluefnin munu þau,
hvernig hin alþjóðlega stjórn,
sem á að fara með bráöabirgða-
stjórn á Falklandseyjum, veröur
samansett, og hvort væntanleg-
um samningaviðræðum Breta og
Argentfnumanna verði sett tima-
takmörk.
Argentfnumenn eru sagðir
Xavier Perez de Cuellar framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og
Eduardo Roca sendiherra Argentinu hjá Sameinuðu þjóðunum.
Verður innrás
í þessari viku?
Thatcher verður að hrökkva eða stökkva
leggja mikla áherzlu á hið siðar-
nefnda, þvi að þeir óttast, að ella
dragi Bretar viðræðurnar á lang-
inn eins og þeir hafa gert hingað
til. Bretar munu ófúsir til að fall-
astá tfmatakmörk.
Ýmsar hugmyndir hafa verið
uppi um, hvernig bráðabirgða-
stjórn Falklandseyja skuli hátt-
að. Það voru upphaflega hug-
myndir Haigs utanrikisráðherra,
að hún yrði mynduð af Banda-
rikjamönnum, Bretum og Argen-
tinumönnum. Eins og kunnugter,
runnu sáttatilraunir Haigs út i
sandinn.
Stjórnin í Perú reyndi næst að
koma á sáttum. Hugmyndir
hennar munu hafa verið þær, að
hvorki Argentfnumenn eða Bret-
ar ættu aðild að bráðabirgða-
stjórninni heldur yrði hún skipuð
fulltrúum frá Brasilfu, Perú,
Vestur-Þýzkalandi og Bandarikj-
unum.
Samkomulag náðist ekki um
sáttatillögurPerústjórnar, og hóf
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Perez de Cuellar, þá
tilraunirtilaðkoma á sáttum.
PEREZ de Cuellar hefur lýst
yfir þvi, aö úr þvi þurfi að vera
skorið um miðja þessa viku, hvort
sáttatilraunir hans bera árangur.
Bretar munu hafa sett honum
þennan frest.
Astæðan er sú, að Bretar geta
ekki dregið innrásina öllu lengur,
ef til hennar á að koma. Vetur
gengur nú i garð á suðurhöfum,
og telja flestir, að eftir miðjan
júni megi búast við veðráttu, sem
hindri verulegar hernaðarað-
gerðir. Fyrir þann tima, þurfi
Bretar að vera búnir að ljúka öll-
um meiri háttar hernaðaraðgerð-
um, ef til þeirra á að koma.
Enn virðist almenningsálitið
þaö i Bretlandi, að innrás sé
óhjákvæmileg, ef samkomulag
næst ekki. Þjóðarstolt Breta
krefstþess.
Nær allir bandamenn Breta
leggja hins vegar hart að þeim að
reyna að komast hjá meiri háttar
hernaðaraðgerðum. Mestur
■ John Nott hermálaráðherra
Breta
þrýstingurinn kemur frá Banda-
rikjastjórn, enda þótt hún hafi
lýst yfir formlegum stuðningi við
málstað Breta.
Þetta hefur þegar vakið mikla
andúöaröldu gegn Bandarikjun-
um í Suður-Ameriku og bendir
allt til, að hún muni vaxa um
allan helming ef til meiri háttar
hernaðaraðgerða kemur.
Takist Bretum aö sigra i bili og
ná Falklandseyjum má búast við
margra ára styrjöld um eyjam-
ar. Sú styrjöld væri likleg til að
gerspilfa sambúð Bandarikjanna
og Suður-Ameriku.
Ljóst viröist, að Argentinu-
menn munu aldrei semja um að
afsala Bretum eða öðrum Falk-
landseyjar. Sennilegt er, að
stjórn Galtieris falli, ef Bretum
heppnaðistað hertaka Falklands-
eyjar. Hin nýja stjórn, sem yrði
annað hvort ný hershöfðingja-
stjórn eða róttæk vinstri stjórn,
myndi ekki semja um frið, heldur
herða baráttuna gegn Bretum.
Þjóðarstolt Argentfnumanna er
ekki minna en Breta. Þeir telja
lika hinn sögulega, landfræðilega
og siðferðilega réttsin megin.
Það styður lika þessa ste&iu
Argentfnumanna, að henni er
stöðugt að vaxa stuðningur, ekki
aðeins f Suður-Ameríku, heldur
yfirleittiþriðjaheiminum.
BANDAMENN Breta i Vestur-
Evrópu óttast afleiöingarnar af
innrásBreta, eftil hennar kemur,
ekki siður en Bandaríkjamenn.
Þetta sést á tregðu Efnahags-
bandalags Evrópu til að sam-
þykkja áframhaldandi refsiað-
gerðirgegn Argentinumönnum.
Meðal bandamanna Breta er
yfirleitt vaxandi skilningur á þvi,
að málin komist i enn meiri
ógöngur.efinnrásin heppnast. Þá
er langvinn styrjöld framundan,
sem myndi ljúkameð þvi aöBret-
ar yrðu aö hrökklast burtu að lok-
um. Breta skortir bæði siðferöi-
legan og landfræðilegan rétt til aö
heyja slika styrjöld og efnahagur
þeirra þyldi hana ekki heldur.
Fyrir Bandarikin og Vestur-
Evropu yrði þaö þó alvarlegast,
að slikt stríð yki enn deilurnar,
sem eru kenndar við norður og
suður. Það gæti orðið ærið vatn á
myllu Rússa, sem fara sér nú
hægt og minna helzt á púkann á
fjósbitanum.
„Tir-ý
Þórarinn Þórarinsson, h 7/ f i
ritstjóri, skrifar
Utboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um i eftirfarandi:
RARIK—82027. Aðveitustöð á Akureyri,
byggingarhluti, stækkun 1982.
RARIK—82028. Aðveitustöð að Brúarlandi
i Þistilfirði, byggingarhluti.
Verkið á Akureyri felur i sér jarðvinnu og
undirstöður vegna stækkunar útivirkis.
Að Brúarlandi skal byggja 58 fermetra
stöðvarhús (1 hæð og skriðkjallari).
Verklok:
Akureyri 16. ágúst 1982
Brúarland 31. ágúst 1982.
Opnunardagur: fimmtudagur 3. júni 1982
kl. 14.00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik, fyrir opnunartima, og verða
þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðend-
um er þess óska.
Útboðsgögn verða seld frá og með mið-
vikudegi 19. mai 1982 á skrifstofum Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik og að Glerárgötu 24, 600 Akur-
eyri.
Verð útboðsgagna:
RARIK—82027 200 kr. hvert eintak
RARIK—82028 200 kr. hvert eintak.
Reykjavik 14. mai 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Öldungadeild -
Kvöldskóli F.B.
Umsóknir um öldungadeild Fjölbrauta-
skólans i Breiðholti skulu berast skólanum
fyrir 7. júni næstkomandi. Innritun nýrra
nemenda fer fram i Miðbæjarskólanum i
Reykjavik 1. og 2. júni, en i Fjölbrauta-
skólanum i Breiðholti 3. og 4. júni. Boðið
er fram nám á þrem námssviðum sér-
staklega, tæknisviði, viðskiptasviði og
listasviði, en auk þess i almennum grein-
um. Hægt er að stefna að sérhæfðum próf-
um en einnig stúdentsprófi. Var nýnema
svo og eldri nemenda öldungadeildarinn-
ar fer fram siðari hluta ágústmánaðar. Þá
verða prófgjöld svo og efnigjöld innheimt.
Skólameistari
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum isskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
ÍÍTOslvBrk
REYKJAVIKURVEGI 25 Hafnarfirði sími 50473
Laus staða
Staða lektors i félagsfræði i Kennaraháskóla tslands er
laus til umsóknar. Lektornum er ætlað að kenna bæði i
kjarna og valgrein kennaranámsins. Umsækjendur þurfa
að hafa lokið háskólanámi i uppeldisfræðum er veiti
kennsluréttindi i framhaldsskólum.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo
og námsferil sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 13. júni n.k.
Menntamálaráðuneytið 13. mai 1982.