Tíminn - 23.05.1982, Qupperneq 28
Sunnudagur 23. mai 1982
Arkilekt
Hitlers
■ Ariö 1944 voru erfiðleikar l»jóöverja orönir óyfirstiganlegir. Hitler
og Specr fóru þá oft f langar gönguferöir saman og hugsaöi hvor sitt. **
Litið var um sainræður.
— Albert Speer
teiknaði ekki
aöeins fyrir
Hitler byggingar
sem standa áttu í
þusund ár heldur
stjórnaði hann
einnig hergagna-
framleiðslunni og
skipulagði þrælk-
unarvinnu fanga.
Var hann „góði
nasistinn”?
■ Kominn i fangelsi áriö 194(1.
■ Þessar vikumar getum viö
fylgst meö þvi i islenska sjón-
varpinu hvaö Albert Speer var
vænn maöur og vel innréttaður
andlega. Anthony Hopkins leikur
Hitler nokkuö vel i þáttunum um
„Byrgið” en aö ööruleyti viröast
þeir harla litils viröi, og einkum
og sér i' lagi gaf fyrsti þátturinn
ranga mynd af Speer. Viö réttar-
höldin í Nurnberg eftir siðari
heimsstyrjöldina var Albert
Speer eini leiötogi Þjóöverja sem
játaöi aöild slna aö striösglæpum
og æsiöan var hann óþrey tandi aö
ásaka sjálfan sig bæöi i ræöu og
riti. Fyrir þetta hefur Speer i vit-
und margra orðið „góði nasist-
inn” og vissulega höfum viö ekk-
ertleyfi til aö draga i efa einlægni
hans og sinnaskipti. En þaö er
heldur ekki ástæöa til aö þaö
gleymist aö þaö var Speer sem
stjórnaöi hergagnaframleiöslu
Þjóöverja siöari styrjaldarárin,
þaö var hann sem umfram alla
aöra hélt striðsvélinni gangandi
svo varnir Þýskalands hrundu
ekki miklu fyrr en raun varö á, og
þaö var hann sem skipulagði
þrækunarvinnu útlendra fanga i
verksmiöjum Þjóöverja þar sem
segir sig sjálft aö aöbúnaður var
mjög slæmur og vinnuharka mik-
ii. Þaö var lika Speer sem lokaði
augunum fyrir öllum þeim ótrú-
legum glæpum sem nasistar
frömdu allt i kringum hann, hann
neitaöi aökynna sér (segir hann)
hvort rétt væri að milljónir Gyö-
inga og annarra fanga væru
myrtar i útrýmingarbúðum, og
hann lést ekki sjá ruddaskapinn,
ofstækið og lögleysurnar sem ein-
kenndu stjórnarár Hitlers og
ftíaga. Tilraun, gerö meö hálfum
huga, tilaö veita eiturgasi niöur i
byrgi Hitlers nægir ekki til aö
þurrka útofangreint syndaregist-
ur — eins og Speer sjálfur benti
margoft á. Breski sagnfræöingur-
inn Hugh Trevor-Roper hefur tek-
iö svo djúptíárinniaö fullyröa aö
á vissan hátt hafi Albert Speer
veriö mesti glæpamaður Þriöja
rikisins. Hann var hinn eini nas-
istaleiötoganna sem segja má aö
hafi haft óskerta siöferöisvitund
— þvi hann var ekki blindaöur af
taumlausum metnaöi, hégóma-
skap, heimsku, grimmd eöa
hreinlega geðsýki eins og flestir
hinna, og þvi heföi honum átt að
vera ljóst frá upphafi hvað var aö
gerast, hvllika glæpi var verið aö
drý gja. En hann bældi allar slikar
tilfinningar niöur i huga sér, gekk
nasismanum — eöa réttara sagt
Hitler — glaöur á hönd, og geröi
allt sem hann gat til að leggja
honum liö. Og vegna þess aö
Speer var frábær skipuleggjandi
hergagna- og vopnaframleiöslu
var þaö hann sem framlengdi
striöiö um marga mánuöi.ef ekki
ár. Hann geröi ekkerttil aö taka I
taumana, þó hann væri í ákjósan-
legri aöstöðu til þess, og þannig
séö berhann ábyrgö á öllum þeim
moröum og hryöjuverkum sem
framin voru af Þjóöverjum sein-
asta hluta striösins.
Enginn áhugi
á stjórnmálum
Albert Speer var af gömlum og
grónum þýskum ættum, fæddur
19. mars 1905. Faðir hans var
auðugur arkitekt, frjálslyndur í
pólitik en hélt uppi gamaldags
þýskum aga á heimilinu. Speer
fékk heföbundiö uppeldi betri
borgara svokallaöra og fyrri
heimsstyr jöldin megnaöi ekki aö
raska þeim heföum verulega.
Óreiöan eftir fallÞýskalands áriö
1918haföi hins vegar djúp áhrif á
hann eins og alla hans kynslóö.
Rikiö rambaöi á barmi glötunar,
efnahagurinn var í rúst eftir
langa og hræöilega styrjöld og
ekki bætti úr skák aö Þjóöverjar
þurftu aö greiöa Bandamönnum
háar striösskaöabætur og sæta
ýmsum afarkostum. Þjóöin var
klofin I ótal fylkingar, stjórn-
málamennirnir reyndust ófærir
um aö taka ástandiö föstum tök-
um, Weimar-lýöveldiö riöaði
hvaö eftir annaö til falls og betri
tiö virtist ekki i sjónmáli. Viö-
brögö fólks voru annaðhvort
léttúðugt sinnuleysi eöa bölsýni
og reiði út i „óvini Þýskalands”
sem steypt höfðu því I þessa
niöurlægingu. Alla vega öfga-
hópar óöu uppi og fengu mikiö
fylgi vonsvikins fólksins — óttinn
viö kommúnista magnaöist og
Gyöingahatriö sem lengi hafði
blundaö meö þjóöinni rumskaöi
þegar finna þurfti sökudólg til aö
kenna um allt saman. Þaö var úr
þessum jarðvegi sem nasisminn
spratt og náöi aö blómgast undír
forystu Adólfs Hitlers. ÞaÖ var
lika þessi sami jarövegur sem Al-
bert Speer mótaöist I og dró dá m
af. Hann haföi ekki áhuga á
stjórnmálum I venjulegum skiln-
ingi þess orös en vildi eins og aör-
ir uppreisn Þýskalands aö það
yröi á ný öflugt og heilsteypt riki.
Hann fékk ekki betur séð en
st jórnmálamennirnir sem
körpuöu á þingi réöu engan veg-
inn viö aö leiöa landið út úr
ógöngunum, og þegar faöir hans
vildi ræða viö hann um stjórnmál
kom hann sér jafnan hjá þvf.
Siöar — I Spandau-fangelsinu —
geröi hann sér grein fyrir af-
leiöingum þessa áhugaleysis.
Hann vissi ekkert um stjórnmál,
þekkti litið til þeirra grundvallar-
lögmála sem þau byggjast á og
var þvi siðarmeir auöveld bráö
fyrir áróöursmenn nasista sem
hömruöu á þvi kerfi sem þeir
höföu spunniö upp og héldu sér
viö af ofurkappi. Speer var ekki
fær um aö greina veilumar i rök-
semdafærslu þeirra og þvi hlaut
hann að taka orö þeirra góð og
gild, aö svo miklu leyti sem hann
yfirleitt lagði viö eyrun. Sömu
sögu er aö segja af meirihluta
þýsku þjóðarinnar sem I
örvæntingusinni studdi sig viö þá
menn sem virtust hafa allt á
hreinu : Hitler og þá menn sem
lofuöu aö endurheimta dýrö
Þýskalands, og veittu óhóflegu
þjóðarstoltinu útrás uns þaö
nálgaöist mikilmennskubrjálæði
heillar þjóöar. Nasistaleiötogarn-
ir kunnu lika aö notfæra sér reiði
þjóöarinnar I garö raunverulegra
eöa Imyndaöra óvina, innanlands
sem utan og smátt og smátt náöu
þeir þvíliku tangarhaldi á lýönum
aö ekki varö aftur snúið. Nasist-
arnir voru sköpunarverk þjóðar í
vanda og þaö er segin saga aö
sjaldan fellur epliö langt frá eik-
inni. Þaö er lika segin saga aö
óskapnaöur af þessutagi er gjarn
á aö taka völdin af skapara sín-
um.
Hitler kom honum
þægilega á óvart
Enþað skal nú tekiö fram, svo
ekki fari milli mála, aö Albert
Speer var alls ekki meöal fyrstu
fylgismanna nasismans. Hann
gekk menntaveginn og varöarki-
tekt, gifti sig og stofnaöi heimili
og skipti sér sem áöur sagöi lítið
eöa ekkert af þjóöfélagsmálum.
Aftur á móti las hann Oswald
Spengler sem jók bölsýni hans á
framtlðina og varð aukinheldur
fyrir áhrifum af vaxandi þjóö-
ernishyggju I kringum sig, en
með þvi er ekki sagt aö hann hafi
veriö hallur undir kynþáttafor-
dóma. Rúmlega tvitugur skrifaði
hann tilvonandi konu sinni: ,,Dá-
litil blöndun milli kynþátta er
alltaf til góös. Og ef viö erum á
niöurleiöum þessarmundir þáer
þaö ekki vegna blöndunar kyn-
þátta í landi okkar. Þjóðin var
mjög blönduö á miööldum en
þrátt fyrir þaö var hún öflug og
sterk. Þá rákum við Slava út úr
Prússlandi og siöar fluttum viö
þýska menningu til Ameriku. Viö
erum á niöurleiö nú vegna þess aö
orka okkar er þorrin: þetta er
sami hluturinn og henti Egypta,
Grikki og Rómverja i fortfðinni.
Þaö er ekkert viö þvl aö gera.”
En svo geröistþaö að Speerfór aö
halda aö f landinu væri einn
maöur sem gæti snúiö þróuninni
viö. Adólf Hitler. Speer komst i
fyrsta sinn i kynni viö þennan
Mefistóteles sinn (og þýsku
þjóöarinnar) árið 1930, er Hitler
hélt ræðu viö háskólann I Berlln
þarsem Speer var viöframhalds-
nám. Faðir Speers var ákafur
andstæöingur nasista, vegna þess
að honum þtítti þeir vera
sóslalistar i eðli sinu og haföi
reyntaövara son sinn viöþeim,en
nú lét Speer undan þrýstingi
skólafélaga sinna sem voru nas-
istar og fór að hlýöa á ræðuna.
Hitler kom honum þægilega á
óvart. Hann haföi heyrt áróöur
andstæöinga Hitlers um aö hann
væri snaróöur uppskafningur I
einkennisbúningi en Hitler kunni
aö hegöa sér miöaö viö þá áheyr-
endur sem hann taldi til: var
fremur hófsamur i málflutningi,
lagði megináherslu á endurupp-
byggingu Þýskalands en talaði
litið um „Gyöingavandamáliö” —
hann var borgaralega klæddur og
bauö af sér góöan þokka. Speer
þótti mikiö til hans koma,
skynjaöi eins og fleiri þann
óhemju kraft sem fólginn var i
Adólf Hitler ogfannst ekkert frá-
leitt að þarna væri kominn sá sem
gæti bjargaö Þýskalandi. Hann
sagöi siöar aö hann heföi á hinn
btíginn aldrei ky nnt sér kenninga-
kerfi nasismans til neinnar hlltar
ogtaliö til dæmis aö kynþáttafor-
dómar Hitlers og nasismans væru
bernskubrek sem myndu hverfa
meö tlmanum. Það var sem sé
eingöngu persóna Adólfs Hitlers
sem laöaöi Speer til fylgis viö
nasista og þaö var sama persóna
sem hélt honum föngnum næsta
hálfan annan áratug. Nokkru
eftir aö hafa hlýtt á ræöu Hitlers
hlustaöi Speer á Goebbels tala en
fylltist i þetta sinn andúö:
Goebbels var lýöskrumari og
æsingamaöur sem vakti and-
styggö hins raffineraöa yfir-
stéttarmanns sem Speer var. A
hinn bóginn kunni Goebbels sitt
fag, hann hreif áheyrendur meö
sér og Speer varð sannfærður um
að I fjöldahreyfingu nasismans
væri eina von Þýskalands. Eins
og af rælni sótti hann um inn-
göngu i Þjóöernisjafnaðar-
mannaflokk þýskra verkamanna
eftir þessa ræöu, og i janúar 1931
föck hann papplr upp á aö hann
væri nasisti númer 474.481.
Gæðingur Hitlers
Speer hafði alls ekki ætlaö sér
aö taka þátt i flokksstarfi nasista,
hann sagöi síðar aö hann hefði
gengiö I flokkinn til þess eins aö
sýna samstöðu meö Hitler og þvi
sem Speer áleit aö hann stæöi
fyrir. Þó leiö ekki á löngu áöur en
flokkurinn leitaði aðstoöar hans.
Þannig var mál meö vexti aö
Speerátti ágætan bll en bilaskort-
ur háöi mjög starfsemi flokksins
þar sem flestir félaganna voru úr
lágstéttunum og höföu ekki efni á
aö reka bil. Speer sinnti ýmsum
verkefnum fyrir flokkinn og er
Karl Hanke, einn flokksbrodd-
anna i Berlin, komst aö þvi aö
hann væri arkitekt fékk hann
Speer til að innrétta fyrst sína
eigin fbúö, þá aðalstöövar flokks-
ins iBerlin og aö lokum var Speer
farinn aö skipuleggja útifundi
nasista. Smátt og smátt var at-
hygli Hitlers vakin á honum.
Hitler var eins og allir vita mis-
heppnaöur listamaður og álfka
misheppnaður arkitekt, sem meö
semingi haföi viöurkennt fyrir