Tíminn - 10.06.1982, Page 1
iþróttakennaraskólinn brautskráir 30 nemendur-bls. 11
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Fimmtudagur 10. júní 1982
129.tölublað-66. árg.
„Hugmyndir” formanns byggingameistara sem VSÍ skýrði frá í fyrradag:
9% MEIRI HÆKKIIN EN
STRflX, OG 20% NÆSTU
■ „Ég ber mér ekki í munn, hvað VSÍ
telur að þetta sé mikil hækkun til
byggingamanna, það er svo hrikalegt“,
sagði einn samninganefndarmanna ASÍ
i gær. En samkvæmt traustum heimild-
um er þar rætt um 9% hækkun á
reiknitaxta akkorðsvinnu, auk þess sem
ASÍ kemur almennt til með að semja
um, eða t.d. 13% ef gengið er út frá 4%
samningi við ASI, og siðan 20% i viðbót
í 3ja ára samningstíma, eða samtals
35-36%.
„Þetta eru hrein skemmdarverk, að
láta sér detta i hug að koma fram
með þetta meðan við erum að fitla við
0 -punktinn. En þetta kerfi er svo
fáránlegt, að báðir samningsaðilar -
meistarar og sveinar - skuli hafa beina
hagsmuni af að hækka þetta sem mest,
en þeir sem kaupa af þeim vinnuna -
aðilar eins og ég og þú - fáum ekkert
um málið að segja, nema bara borga“,
sagði þessi ASÍ-samningamaður enn-
fremur. Tekið skal fram, að ekki mun
þarna um neitt formlegt tilboð meistara
að ræða, heldur skýrslu um þær línur,
sem Meistarasamband byggingamanna
taldi að Ijúka mætti samningum á við
byggingamenn eftir að aðrir samningar
hefðu verið gerðir. Með þessu hafa allar
viðræður siglt í strand að sinni.
Allir þeir, sem Tíminn ræddi við í gær
- úr herbúðum beggja aðila, töldu hins
vegar samningaviðræður við Verka-
mannasambandið komnar á góðan
rekspöl, þannig að þeir ættu ekki að vera
þrándur í götu samninga.
Sáttanefnd kom saman i gær til að
leita einhverra leiða út úr þessari
„samningakreppu", sem menn voru
sammála um að væru vandfundnar.
„Alltént er engin leið til út úr þessu
nema slæm, þær eru kannski aðeins
mismunandi slæmar", sagði einn af
samningamönnum ASÍ. -HEI
Borgarspftalinn
símasambandslaus í gær:
UTLU MUNAÐI
AÐ ILLA FÆRI
— þegar kalla þurfti út aukalið
vegna stórslyss eftir að
símasamband komst aftur á
■ Litlu munaði að iUa færi i gær þegar
simastrengur með um tvö hundruð
simalinum var slitinn af gröfu rétt fyrir
utan Borgarspitalann i Reykjavík með
þeim afleiðingum að sjúkrahúsið var
gjörsamlcga sambandslaust fyrir utan
tvo neyðarsima sem lagðir eru annars
staðar frá.
Viðgerð strengsins tók um 4-5
klukkustundir. Stuttu eftir að símasam-
band komst á að nýju um kl. 17.30 i gær,
þurfti að kalla út aukalið á sjúkravakt
vegna stórslyss. Hefði það ekki tekist
þrautarlaust, og getað haft geigvænlegar
afleiðingar í för með sér, ef simasam-
band hefði ekki verið komið á að nýju.
„Þetta er óskaplegt og á ekki að geta
komið fyrir. Þarna mun verktaki hafa
verið að verki sem vinnur við vegagerð
norð-austan við Borgarspitalann, og var
að tengja saman holræsi. Það hlýtur að
þurfa að gera þá kröfu til þessara manna
að þeir viti hvað þeir eru að gera og gæti
vel að sér i þessum efnum", sagði
Jóhannes Pálmason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans, í samtali
við Tímann í gær.
Beinar linur milli spitalans og lög-
reglu og slökkviliðs slitnuðu einnig við
óhappið og þurfti að gera sérstakar
ráðstafanir vegna þess. Einnig var
dagskrá rikisútvarpsins rofin síðdegis til
að koma að tilkynningum um símasam-
bandsleysið.
Auk Borgarspitalans var hluti nær-
liggjandi íbúðarhverfa einnig símasam-
bandslaus. Bilunarinnar varð vart fljót-
lega upp úr hádegi. Eftir að vegsum-
merki eftir gröfuna fundust var hafist
handa við viðgerðina, og lauk henni á
tilsettum tíma, enda mátti ekki tæpara
standa. -Kás
■ Starfsmenn Pósts og sima höfðu
nýlokið við viðgerð á simastrengnum,
þegar kalla þurfti út aukastarfslið vegna
stórslyss, sem ekki hefði tekist ellegar.
■ Bella Kortsnoj, eiginkona Viktors
Kortsnoj skákmeistara og sonur þeirra
Igor hafa fengið leyfi til að flytja á brott
frá Sovétrikjunum.
Sem kunnugt er hefur Viktor Korts-
noj verið landflótta frá Sovétríkjunum
frá þvi 1976. Siðan hefur hann sótt mjög
stíft að fá til sín fjölskyldu sina. Hann
hefur m.a. notið aðstoðar FIDE,
Alþjóðaskáksambandsins i þessu bar-
áttumáli sinu. Tíminn talaði við Friðrik
Ólafsson, forseta FIDE í gærkvöldi.
„Ef allt stenst sem sagt hefur verið þá
er ég afar ánægður með þessa lausn.
Þetta kemur til með að sætta alla aðila
og hreinsa andrúmsloftið," sagði Frið-
rik.
- Kemur þetta á óvart?
„í sjálfu sér ekki. Maður gerir nú
alltaf ráð fyrir því að það sem við mann
er sagt standist."
- Verður þessi lausn þér til framdrátt-
ar i forsetaframboði FIDE í haust?
„Ég get nú i fljótu bragði ckki séð að
það verði mér til trafala, enda fór ég
ekki út í þetta sjálfum mér til
framdráttar. Mér, sem forseta FIDE,
bar skylda til að gera allt sem i minu
valdi stóð til að leysa þetta mál. Það er
búið að vera til trafala alltof lengi. Það
hefur eiginlega rikt óviðunandi ástand i
skákheiminum vegna þessa. Hvort sem
þetta er sigur fyrir mig eða ekki þá er
ég ánægður með lyktirnar,“ sagði
Friðrik. - Sjó.