Tíminn - 15.06.1982, Blaðsíða 12
12
/0K
Lestunar-
áætlun
GOOLE:
Arnarfell 21/6
Arnarfell . . 5/7
Amarfell . . 19/7
Amarfell . . 2/8
ROTTERDAM:
Arnarfell . . 24/6
Arnarfell . . 7/7
Arnarfell . . 21/7
Arnarfell . . 4/8
ANTWERPEN:
Arnarfell . . 25/6
Arnarfell . . 8/7
Amarfell . . 22/7
Arnarfell . . 5/8
HAMBORG:
Helgafell . . 18/6
Pia Sandved . . 28/6
Helgafell . . 12/7
Helgafell . . 30/7
HELSINKI:
Pia Sandved . . 21/6
„SKIP“ . . 15/7
LARVIK:
Hvassafell . . 21/6
Hvassafell . . 5/7
Hvassafell . . 19/7
Hvassafell . . 2/8
GAUTABORG:
Hvassafell . . 22/6
Hvassafell . . 6/7
Hvassafell . . 20/7
Hvassafell . . 3/8
KAUPMANNAHÖFN
Hvassafell.............23/6
Hvassafell............. 7/7
Hvassafell.............21/7
Hvassafell............. 4/8
SVENDBORG:
Helgafell..............21/6
Dísarfell..............25/6
Hvassafell............. 8/7
Helgafell..............14/7
Hvassafell.............22/7
ÁRHUS:
Dísarfell..............26/6
Helgafell..............15/7
Helgafell.............. 3/8
CLOUCESTER, MASS
Skaftafell.............26/6
Skaftafell.............28/7
HALIFAX, CANADA:
Skaffafell.............29/6
Skaftafell.............30/7
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Auglýsið í
Tímanum
13
Sveit
Ég heitl Hlynur Jónsson, og óska eftir að
komast í sveit. Ég er á 13. ári, duglegur og
árrisull.
Ekki þætti mér verra að ungmenni á svipuðu
reki væri í grenndinni. Þeir sem þörf hafa fyrir
áhugasamann, afar ódýran kaupamann,
hringi í föður minn, Jón Hjaltason, í Óðali,
síminn er 91-11630.
■ „Kenndi mér allt sjálfur" segir Art Blakey um tonlist sma.
TbumyadFU
Gantast við Ijósmyndara Tímans, fyrst tungan og siðan er hlegið rosalega.
I Jazz Messengers. Hún er nú skipuð þeim Perence Blanchard trompet, BUl Pierce tenórsaxófón, Donald Harrisson altósaxafón. John ONeil pianó og Charel Farmbrogh bassa.
Á trommur er svo meistarinn sjálfúr Art Blakey.
Art Blakey ræðir málin við Vernharð Linnet i Jazzvakningu á Keflavikurflugvelli.
Timamynd FRI
■ „Við erum orðnir svolitið þreyttir enda
búnir að vera 10 vikur á hljómleikaferða-
lagi um Evrópu“ sagði jazzleikarinn Art
Blakey i samtali við Tímann er við hittum
hann út á Keflavíkurflugvelli um helgina
en hann og hljómsveit hans The Jazz
Messengers héldu eina tónleika hér og
voru það jafnframt siðustu tónleikar þeirra
á þessu mikla ferðalagi.
Létt var yfir mönnum í rútunni á leið i
bæinn. Tveir meðlima Jazz Messengers,
þeir Farmbrough og Blanchard höfðu
leikið einhvem timann i rikisfangelsinu í
Arizona og sögðu sögur af þvi.
„Þar vom nokkrir illvígir „kettir“
maður“ segir Farmbrough og félagi hans
bætir við... „sérstaklega einn maður sem
„pumpaði jámi“ allan daginn, annan hvem
dag, hundrað pund á hvomm handlegg."
„Já ég man eftir honum maður hann var
svo stór að þig munduð ekki trúa því þótt
þið sæjuð hann.“
„Af hverju annan hvem dag?“ spyr
einhver.
„Pað er þannig maður að ef hann hefði
verið að þessu hvem dag þá hefði hann
eyðilagt á sér vöðvana, eitthvað i sambandi
við sýrumyndun i þeim.“
„Hey, strákar muniði eftir John í
Alabama?11 spyr Pierce og nokkrir játa því.
„Hafiði nokkum tíma verið i mat hjá
honum?“ heldur hann áfram.
„Ég var það einu sinni og allir urðu að
fara með eina ritningargrein úr biblíunni
áður en við gátum snúið okkur að steikinni.
Einhverjum tókst að stela frá mér stystu
ritningargreininni sem finnst en það er
„Jesú grét“, ég hafði ætlað mér að segja
hana og þegar kom að mér gat ég ekki sagt
annað en „Þakka þér Jesú“.
Aðrir brosa að þessu og segja að
máltíðimar hjá þessum náunga hafi alltaf
verið nokkuð sérstakar.
Art Blakey hefur fylgst með umræð-
unum með öðm eyranu en allt í einu rekur
hann augun i gufuna frá Svartsengi.
„Þið hafið mikið af heitum hvemm
hér er það ekki“? spyr hann blaða-
manninn sem segir að svo muni vera.
„Af hverju fyllið þið 'ekki allt af
hótelum og ferðamannastöðum í kringum
þessa heitu hveri og græðið billjónir. Eg á
japanska konu og hef verið í Japan 37
sinnum. Þar er allt fullt af heitum hvemm,
maður fer niður í þá og kemur upp og liður
eins og 15 ára unglingi. Það em miklir1
peningar í þessu“ segir hann.
Kemur úr fjölskyldu tón-
listarmanna
„Ég byrjaði að leika er ég var 13 ára
og þá strax sem atvinnumaður" segir
Blakey eða Boo eins og félagar hans
kalla hann í rútunni.
„Þannig að ég hef verið yfir 40 ár í
þessu, fyrst á píanó og siðan á trommur."
„Það má segja að ég komi úr
fjölskyldu tónlistarmanna, allir bræð-
ur hans pabba vom tónlistarmenn, ég
man eftir einum þeirra sem var allur á
kafi í Dixieland-tónlistinni. Pabbi hafði
ekkert álit á þessu, hann var allur
i viðskiptum og sagði mér eitt sinn að
ég yrði sami ónytjungurinn og hann
frændi minn“ segir Blakey og brosir.
„Ég man eftir því að eitju sinni sagði
hann við mig...Enginn fær nokkum
tímann nokkuð upp úr því að sitja á
rassgatinu og berja á efni sem skór em
búnir til úr“
„Er ég byrjaði fyrst var ég með sveit
með mér. Við lékum allsstaðar sem við
fengum inni, á knæpum, næturklúbb-
um, hómhúsum, bæði i Pittsburgh þar
sem ég er fæddur og allsstaðar um
Bandarikin."
Kenndi mér allt sjálfur
„Ég er ekkert lærður í þessu, ég
kenndi mér allt sjálfur. Móðir mín dó
er ég var ungur og faðir minn skipti
sér ekkert af mér Dg bjó ég á munaðarleys-
ingjahæli er ég byrjaði að spila og hafði
mestar tekjur allra sem bjuggu þar.“
Aðspurður um afhverju hann
breytti frá píanáoi og yfir í trommur
segir Blakey: Ég skipti um þar sem ég
leik betur á trommur.“
Art Blakey stofnaði Jazz Messeng-
ers árið 1955 en hafði áður verið með
Big band með sama nafni. Hann hefur
verið höfuð JM síðan þá og alltaf haft
með sér unga og efnilega spilara sem
síðan hafa farið annað og orðið frægir.
„Ég lit á Jazz Messengers sem skóla“
segir hann... „Inn í sveitina koma
ungir og efnilegir spilarar, taka fyrstu
tónana ef svo má að orði komast og
fara siðan og gera sína eigin hluti.“
Meðal þeirra sem alist hafa upp hjá
Blakey eru menn eins og Wayne Shorter,
Freddie Hubbard, Wynton Marshalis,
Jackie MaLean og Johnny Griffin en um
þessa menn og aðra sem leikið hafa með
honum segir Blakey: „Þetta voru allt
frábærir menn og það var unun að spila
með þeim“.
Aldrei aftur til Pittsburgh
{viðtalinu kemur fram að Blakey býr nú
i New York, nánar tiltekið i Greenwich
Village. „Ég fer aldrei aftur til Pittsburgh
þar sem ég fæddist enda er sú borg
eingöngu fyrir vinnandi fólk i stál og
kolaiðnaði*1 segir hann.
„Ég hef búið víða en helst vildi ég setjast
að í Brasilíu, það er besta land sem ég hef
komið til. Fólkið þar er gott, það á fætur
í afrískri menningu og svo er þar nóg al
sandi og sól sem er gott fyrir heilsuna og
sálina".
Þetta er í annað sinn sem Blakey kemur
hingað til lands, kom síðast 1979. Hann er
spurður um álit sitt á landinu.
„Það hefur breyst gifurlega á síðustu
fjórum árum, þú mundir ekki þekkja til
þess þvi þú býrð hér“ segir hann við
blaðamanninn og brosir.
„Það er gott að koma hingað, fólkið er
vinalegt en hinsvegar haftð þið engin tré
hér, ég sakna þeirra“
„Hey Boo þama eru nokkur tré“ segir
Blanchard er rútan keyrir fram hjá
Hafnarfirði, og út um gluggana má sjá litið
rjóður af jólatrjám.
„Já mikið rétt, kannski er þetta einhver
framkvæmd sem er i gangi hér“ segir
Blakey.
Blakey var hér i rúman sólarhring að
þessu sinni. Tónleikar hans voru haldnir í
Háskólabíói fyrir fullu húsi og var honum
ákaft fagnað að þeim loknum. Hann kom
hingað á vegum Jazzvakningar sem á
þakkir skilið fyrir, því jazz-númer Listahá-
tíðar fór vist í vaskinn eins og kunnugt er.
Texti FRI
Myndir GE
Kælitækjaþjónustan
Rcykjavíkurvcgi 62, Hafnarfirði, simi 54860.
Önnumst alls konar nýsmíði. Tökum að
okkur viðgerðir á: kæliskápum,
frystikistum og öðrum kælitækjum. Fljót
og góð þjónusta.
Sendum I póstkröfu um land allt
Akureyrarbær
Tæknifræðingur
Starf byggingatæknifræðings á skrifstofu
byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar er laust
til umsóknar.
Upplýsingar um starfið og launakjör eru veittar
á skrifstofu byggingafulltrúa. Umsóknir skulu
sendar byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9 Akureyri fyrir 25. júní n.k.
Byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar.
Notaðir /yftarar
í miklu úrvafí
2. t raf/m. snúningi
2.5 t raf
13 t pakkhúslyftarar
23 t disil
3.2 t dísil
4.3 t disil
43 t disil
5.0 t dísil m/húsi
6.0 t dlsil m/húsi
eigum ennfremur
fyrirliggjandi litla
rafm.lagerlyftara.
K. JÓNSSON&CO. HF.
Vitastfg 3
Súni 91-26455
Til sölu:
Tilboð óskast í pramma ætlaðan til hreinsunar
olfu af yfirborði sjávar, 3.15 rúmlestir,
smfðaður úr áli 1972
í prammanum eru eftírtalin aðaltæki:
1 st. Hatz diesel vél, gerð Z 782-18 hp.
1 st. Olíudæla, Cassappa, gerð 2 C 17.
1 st. Olíudæla, Cassappa, gerð 2 C 23.
1 st. Dæla 3”, Viking, gerð LL 124 m/tengi.
1 st. Pendelmotor
m/tengi.
Ýmis fleiri tæki eru í prammanum.
Óskað er eftir heildartilboði, en þó er einnig
heimilt að bjóða í einstaka hluti.
Útboðsgögn m/nánari upplýsingum eru afhent á
skrifstofu vorri.
Tilboð skulu berast oss sem allra fyrst og eigi
síðan en kl. 11:00 f.h. þann 25. júní, þ.m.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006