Tíminn - 15.06.1982, Page 22
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1982
eftir helgina
flokksstarf
Striplast á
líkklædunum
■ Loksins er komiö sumar, sagði
maðurinn í bankanum við mig.
Verst að vera ekki í verkfalli i
sólskininu eins og hinir, bætti hann
við og brosti þreytulega, þvi það er
vont að reikna vexti í sólskini.
Flestir vinnustaðir landsins voru
lokaðir i tvo daga, nema á Vestfjörð-
um, þar sem þeir héldu áfram i fiski
og á öðrum vinnustöðum, því Vest-
firðingar vilja nú ekki lengur láta
reikna kaup sitt fyrir sunnan, þar
sem menn eru staðráðnir í að hækka
kaup, enda þótt þjóðartekjur fari
minnkandi og atvinnuvegimir séu á
hausnum.
Má segja sem svo, að það sé ekkert
nýtt. Tekjuleysi atvinnuveganna og
minnkandi þjóðartekjur á íslandi,
hafa ávallt þótt vera öruggt merki um
að laun eigi að hækka svo um muni.
Annars telja margir að sólskins-
verkfallið fyrir helgi hafi verið orðið
bráð nauðsynlegt vegna samtak-
anna, sumsér BSRB og ASÍ, því
uppsagnaleiðin, eða fjöldauppsagnir
starfshópa, hafa gefið mun betri
árangur, en bensinverkföll Alþýðu-
sambandsins. Er jafnvel talið að ef
fer sem horfir, þá muni ASÍ og
BSRB ekki verða lengur það afl, sem
það var á blómaskeiði sólstöðusamn-
inga á íslandi.
Þá mun hið mikla fylgistap
kommúnista i borgar- og sveitar-
stjórnarkosningunum hafa átt sinn
þátt í þeirri viðleitni, að hækka laun
í kronum, þvi það hefur til þessa
alltaf gefist vel að hækka laun í
krónum, því það hefur til þessa alltaf
gefist vel að hækka i krónum á
ísiandi, þótt lifskjör versni. Krónu-
hækkun skilar nefnilega alltaf fleiri
atkvæðum, en kaupmátturinn gjörir.
En það eru fleiri sem striplast nú
um á likklæðunum og reyna að finna
skýringu á tapi vinstri manna i
borgarstjórnarkosningunum, en
kommúnistar, eða leita skýringa á
því, hvers vegna Sjálfstæðisflokkur-
inn vann borgina aftur.
Alfreð Þorsteinsson skrifaði t.d
lærða grein um ófarir Framsóknar-
manna i kosriingunum. Vill kenna
þar um of nánu sambandi flokksins
við kommúnista i stjórn borgarinn-
ar. Framsókn lét aldrei brjóta á sér
þar i neinum málum, eins og það er
orðað. Og svo telur hann það líka
hæpið að fara út i kosningar með
stefnu, eða stefnuskrá.
Ekki gengur þetta þó alveg upp
hjá Alfreð. Framsókn bætti við sig
atkvæðum og borgarfulltrúa. Sjöfn
og Alþýðuflokkurinn stórtöpuðu
fylgi og voru þó á móti Ikarusvögn-
unum og friðun rottunnar. Mest
tapaði þó Alþýðubandalagið sjálft
og þá væntanlega af samstarfi við sig
sjálft og á sprungukerfinu, sam-
kvæmt rökfræði Alfreðs.
Það gefur auðvitað auga leið að
listar sem ekki eru rétt skipaðir, fá
færri atkvæði en góðir framboðs-
listar. En listar flokkanna voru samt
allir prófkjörslistar, þannig að það
eru flokksmenn sjálfir sem völdu sér
víkingasveitirnar er verja áttu borg-
ina.
Að vísu er forval kommúnista ekki
beinlinis prófkjör, heldur eru menn
teknir inn á listana með einskonar
félagsfræðilegri niðurdýfingu. Enda
ber mest á sálfræðingum og öðrum
vandamálafræðingum á listum
þeirra. Manna sem bókstaflega eiga
líf sitt og limi undir fornminjagerð,
skipulagsvinnu og bæklingum.
Verkamenn og eyrarkarlar fá svo að
vera neðarlega á listunum, svona til
skrauts.
Það kom öilum á óvart að íhaldið
tapaði borginni 1978. Það hafði ekki
gert nein sérstök axarsköft á kjör-
timabilinu þar á undan,. ef frá er
talin græna byltingin, þar sem reynt
var að telja mönnum trú um að
Sjálfstæðishúsið við Háaleitisbraut
væri göngustígur, eða reiðgata og
annað eftir því. Og á sama hátt komu
kosningaúrslitin i Reykjavík nú
heldur flatt upp á menn, einkum þá
sem voru i pólitískum andarslitrum
fyrir.
Og eitt er þó ljóst, að slagorð eru
betri í pólitík, en vandaðar stefnu-
skrár, alveg eins og fjöldauppsagnir
eru betri, en verkföll og peningalegir
samningar eru betri en vemdun
kaupmáttarins.
Skýringuna veit ég ekki.
Ég býst aðeins við löngu verkfalli
í sumar og háu kaupi, þvi þeir
sólstöðumenn eru byrjaðir að setja
á sig grímumar.
Jónas Guðmundsson.
Jónas Guðmundsson,
rithöfundur skrifar
ORÐSENDING
frá Yorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið verður i happdrættinu 16. þ.m. ogeruþeir, sem fengið hafa
heimsenda miða vinsamlega beðnir að gera skil næstu daga. Drætti verður
ekki frestað.
Greiðslum má framvísa samkvæmt meðf. giróseðli i næsta pósthúsi eða
peningastofnun. Einnig má senda greiðslu til Happdrættisskrifstofunnar,
Rauðarárstig 18, Reykjavik. Þar eru einnig lausamiðar til sölu.
Vesturland
Viðtalstimar alþingismannanna Alexanders Stefánssonar og Daviðs
Aðalsteinssonar, verða sem hér segir á eftirtöldum stöðum:
Borgarnes 15.6. kl. 21.
Logaland 16.6 kl. 21.
Hellissandi 18.6. kl. 21.
Búðardal 19.6. kl. 21.
Breiðablik 20.6. kl. 21.
Ólafsvik 21.6. kl. 21.
Grundarfirði 22.6. kl. 21.
Stykkishólmi 25.6. kl. 21.
Hlaðir 28.6. kl. 21.
Auglýsing
um verkamannabústaði
Stjórn verkamannabústaða í Mosfellshreppi
auglýsir tvær íbúðir til sölu í Arnartanga,
Mosfellssveit.
Réttur til kaupa á íbúð í verkamannabústöðum
er bundinn við þá sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) Hafa átt lögheimili í Mosfellshreppi 1. maí
1982.
b) Eiga ekki íbúð fyrir, eða samsvarandi eign í
öðru formi.
c) Hafa haft í meðaltekjur þrjú síðustu árin áður
en úthlutun fer fram, eigi hærri fjárhæð en
91.500 krónur fyrir hjón eða einstakling og að
auki 8.100 krónur fyrir hvert barn á framfæri
innan 16 ára aldurs.
fbúðirnar eru í tveimur raðhúsum (1 íbúð í hvoru
húsi) og er stærð íbúðanna 93,8 ferm. Lágmarks
fjölskyldustærð er 2-4. Áætlaður afhendingartími
er 15. ágúst 1982.
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Kaupandi greiðir 20% af verði íbúðar og greiðist
í tvennu lagi. Fyrri helmingurinn greiðist innan sex
vikna frá dagsetningu tilkynningar um úthlutun
íbúðar, en síðari helmingurinn á 6. mánuðum
skv. samkomulagi. Áhvílandi skuldir verða
yfirteknar af kaupanda og auk þess lánar
Byggingarsjóðurverkamanna80% afverði íbúða
að frádregnum áhvílandi skuldum. Lánið er með
0,5% ársvöxtum og er afborgunarlaust 1. árið,
en endurgreiðist síðan með jöfnum greiðslum
vaxta og afborgana (annuitet) að viðbættum
verðbótum samkvæmt lánskjaravísitölu Seðla-
banka íslands á 42 árum. Umsóknareyðublöð
liggja frammi á skrifstofu Mosfellshrepps, Hlé-
garði, þarsemjafnframtfástnánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 1982.
Virðingarfyllst,
Stjórn verkamannabústaða
í Mosfellssveit.
Yinnuskúr óskast
Notaður vinnuskúr óskast til kaups hið
fyrsta.
Upplýsingar í síma 42612.
Kvikmyndir
Sími 78900
Patrick
Patríck cr 24 ára coma-sjúklingur sem
býr yfir miklum dulrænum hæfilcikum
sem hann nær fullu valdi á.
Mynd þessi vann til verðlauna á
Kvikmyndahátlðinni f Asíu.
Leikstjórí: Richard Franklin.
Aðalhlutverk: Robert Helpmann, Sus-
an Penhaligon og Rod Mullinar.
Sýnd Id. 5, 7, 9 og 11.
Eldribekkingar
(Seniors)
Stúdcntarnir vilja ekki útskrífast úr
skólanum vilja ekki fara út I hringiðu
lifsins og ncnna ckki að vinna hcldur
stofna félagsskap sem nefnist Kyn-
fræðsla og hin frjáKskólastúlka.
Aðalhlutvcrk: Priscilla Barncs, Jeffrey
Byron, Cary ImhofT
Sýndkl. 5, 7,9 og 11
Texas Detour
Spennandi ný amcrisk mynd um
unglinga scm lenda I alls konar klandri
við lögrcglu og ræningja.
Aðalhlutvcrk: Patríck Wayne, PrisdUa
Barnes, Anthony James
Bönnuð innan 12 ára
Sýnd U. 5, 7 og 11.20
Allt i lagi vinur
(Hallcluja Amigo)
Sérstaklega skemmtileg og spennandi
vestern grinmynd með Trinity holanum
Bud Spencer sem er f essinu sínu i
þessarí mynd.
Aðalhlutverk: Bud Spencer, Jack
Palance
Sýnd U. 5, 7 og 9.
Morðhelgi
(Dcath Weekend)
t»að er ekkert grin aö lenda i klón-
um á þeim Don Stroud og félög-
um, en þaö fá þau Brenda Vacc- |
! aro og Chuck Shamata aö finna
! fyrir. Spennumynd I sérflokki.
' AÖalhlutverk : Don Stroud,
Brenda Vaccaro, Chuck Sha- j
mata. Richard Ayres
, Isl. texti.
i Bönnuö innan 16 ára
Sýnd U. 11
Fram i sviðsljósið
(Being There)
(4. mánuður)
Grinmynd i algjörum sérflokki.
Myndin er talin vera sú albesta
sem Peter Sellers lék i, enda fékk
húntvenn öskarsverðlaun og var |
útnefnd fyrir 6 Golden Globe
Awards. Sellers fer á kostum.
Aöalhlutv.: Peter Sellers, Shirley
MacLane, Melvin Douglas, Jack
Warden.
tslenskur texti.
Leikstjóri: Hal Ashby.
l.Sýnd kl. 9
/