Tíminn - 30.06.1982, Qupperneq 11

Tíminn - 30.06.1982, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1982 i'ií'Miii 15 tekinn tali Samningurinn um efnahagssamvinnu við Sovétrfkin: STJORNMAIAÞRASI OG VHJSKIPTfl- HAGSMUNUM ER BIANDAD SAMAN fj segir Halldór ■ Morgunblaðið lætur móðan mása vegna fyrirhugaðs samnings um efna hagssamvinnu, sem kynntur var í utanríkismálanefnd s.l. mánudag. Þar gerðu Þórhallur Ásgeirsson ráðuneyt- isstjóri og Haraldur Kröyer ambassador grein fyrir samningnum og lesin var yfirlýsing frá forstöðumönnum margra fyrirtækja sem viðskipti eiga við Sovétríkin og mæltu eindregið með því að samningurinn yrði samþykktur. Geir Hallgrímsson lýsir þvi yfir í Morgun- blaðinu að sjálfstæðismenn séu eindreg- ið á móti samþykkt samningsins og Albert Guðmundsson taldi fyrrgreinda aðila þrýstihóp og væri ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins talsmaður þrýsti hópa, en Albert gekk út af fundi utanríkismálanefndar. Halldór Ásgrímsson alþingismaður á sæti í utanríkismálanefnd og varð hann við þeirri beiðni Timans að skýra frá afstöðu sinni til samningsins og þeirra viðbragða sem sjálfstæðismenn hafa sýnt. Halldór sagði að afstaða þessi væri næsta furðuleg. „Við höfum gert marga samninga við Sovétríkin um menningar- mál og viðskiptamál. Það hefur þótt sjálfsagt að gera þessa samninga og við höfum siður en svo skaðast á þeim. Það hefur staðið alllengi til að gera þennan samning um efnahagssamvinnu og þeir aðilar sem við höfum sýnt trúnað í utanrikisþjónustunni og i öðrum ráðuneytum og unnið hafa að undirbún- ingi samningsins eru nú að sögn Alberts Guðmundssonar allt í einu orðnir fulltrúar þrýstihópa og þeir menn sem unnið hafa að sölu íslenskrar útflutnings- vöru á erlendri grund og staðið að samningum þar um orðnir að þrýstihópi. Nú má vel vera að það sé óþarfi að gera samning sem þennan, og fljótt á litið gæti ég verið þvi sammála. Hitt er svo annað mál að maður verður að skilja það að Sovétrikin búa við allt annað þjóðskipulag en við. Þar er allt annars konar pappírsvinna allt önnur skriffinn- ska en við búum við, og það sem hentar þessu kerfi getur sýnst ónauðsynlcgt í okkar augurri: Það sem hefur gerst er einfaldlega það að þeir menn sem gleggst til þekkja telja sjálfsagt að við gerum þennan samning við Sovétríkin. Ég sé það hins vegar á ummælum sjálfstæðismanna að þeir þykjast ekki þurfa að ráðgast við einn eða neinn þeirra aðila sem best eru að sér i þessum málum og gera lítið úr reynslu þeirra og ráðleggingum. Ég held að allir íslendingar geti verið sammála um það, að við eigum að skapa okkar atvinnufyrirtækjum cgframleiðslu eins góð skilyrði gagnvait erlendum þjóðum og frekast er unnt. Það er okkur mikilvægt að selja okkar fisk, ull og aðrar útflutningsvörur og að við búum við sem hagstæðust skilyrði á erlendum mörkuðum. í sambandi við svona samning verða menn að varast að dæma um það hvort þeim líkar betur eða ver við það stjómarfyrirkomulag sem ríkir • Öll almenn prentun • Litprentun • Tölvueyðublöð • Tölvusettir strikaformar • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð Prentun • Bókband PRENTSM IÐ JA KUd,Y) / / N C^ClcLc Ct HF. SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 45000 alþingismaður hjá viðskiptaþjóðum okkar. Við samningsgerð verðum við að treysta þeim sem best þekkja til mála og fara að þeirra ráðum. Ég tel að það hafi verið fullt samkomulag um það meðal islenskra stjómmálamanna að viðhalda þessum viðskiptum og því sambandi sem við höfum átt við Sovétríkin undangengna áratugi. Það voru menn eins og Bjami Benediktsson og fleiri af forystumönn- um Sjálfstæðisflokksins sem stuðluðu að þessum viðskiptum og skildu þessa hluti. Ég fæ ekki betur séð en að núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins sé á vissan hátt að breyta um stefnu og vilji, gera áratuga samskipti okkar við Sovétríkin tortryggileg og blanda þeim saman við stjómmálaágreining sem hlýtur að vera á milli lýðræðisríkis eins og íslands og kommúnistaríkis eins og Rússlands. Menn hafa verið sammála um að gera það ekki og halda i horfinu i sambandi við viðskiptamál. Þá tel ég það alvarlegt mál, að erindi sem lagt er fyrir utanrikismálanefnd á mánudegi, eins og yfirlýsing þeirra manna sem um getur á baksíðu Mbl. á þriðjudag, skuli birtast. Ég veit ekki hvaðan Morgunblaðið fær þessar upp- lýsingar. Það er mikilvægt að mál sem koma fyrir utanríkisnefnd, sem oft eru viðkvæm séu ekki kunngerð i blöðum á meðan enn er verið að fjalla um þau. Utanrikismálanefnd er ráð- gefandi nefnd fyrir rikisstjórnina. Það hefur verið regla, mikilvæg regla, að þeim sem sitja í utanrikismálanefnd er óheimilt að segja opinberlega frá því sem fram fer á fundum nefndarinnar, nema skoðunum sjálfs sin en ekki að opinbera það sem aðrir leggja fram í nefndinni. Hins vegar kemur það fram í Morgunblaðinu að Albert Guðmunds- son skýrir frá þvi hvað ráðuneytisstjór- inn i viðskiptaráðuneytinu sagði á fundinum og lagði út af þvi á sinn veg. Þeirri útleggingu er ég algjörlega ósammála. Ráðuneytisstjórinn flutti mál sitt mjög skilmerkilega og höfðum við hið mesta gagn af að hlýða á rök hans sem og málflutning sendiherra okkar i Moskvu." - Eru einhver ákvæði i þessum samningi sem hugsanlega gætu skaðað hagsmuni okkar eða bundið hendur okkar á óeðlilegan hátt? „Það tel ég fráleitt, að halda þvi fram að þarna séu ákvæði sem geta skaðað okkar hagsmuni. Ég tel sjálfsagt að samþykkja hann og finnst mjög miður að verið skuli að blanda saman viðskiptum okkar við erlendar þjóðir og stjórnmálaþrasi hér innanlands. Það gerðist fyrir nokkrum árum þegar oliuverð hækkaði hvað mest að upp ruku aðilar hér á landi og töldu olíuviðskipti okkar við Sovétríkin vera mjög óhagstæð og kröfðust þess að fram færi athugun á þvi hvort við ættum ekki að beina þessum viðskiptum okkar eitthvað annað. Það var gert vegna þrýstings frá sjálfstæðismönnum. Mér er hins vegar kunnugt um að olíuverð er hér nokkru hærra i dag, en það væri ef við hefðum haldið áfram þeim olíuviðskiptum sem við höfðum á sama grundvelli. Oliufélögin hér gerðu samninga við aðra aðila og útkoman varð sú að hagsmunir landsins biðu nokkum hnekki. Það verða sjálfstæðismenn að hafa i __huga þegar þeir eru að blanda saman viðskiptahagsmunum Islands og Sovét- rikjanna við almenna heimspólitík, að þeir gæti sin á að skaða ekki hagsmuni landsins i einhverri áróðursherferð. Samningur sá sem hér er til umræðu er mjög almenns eðlis og í samræmi við samninga sem aðrar Norðurlandaþjóðir hafa gert við Sovétríkin, og gengur okkar samningur eitthvað skemmra ef eitthvað er. Samningur þessi er almennt . orðaður rammasamningur um viðskipti _ milli landanna og samkvæmt honum er það ákvörðun beggja aðila á hverjum tima hvernig hann skal uppfylltur. Þetta er enginn nauðungarsamningur sem bindur hendur okkar á einn hátt eða annan .“. OÓ VAKA Á VEGI Á NÓTTU SEM DEGI Gerum til boð í að sækja bila hvert á land sem er. Sími 33700, Reykjavík. á kynningarverði 2 trommlur - Vinnslubr. 1.65 m. Verð kr. 18.350.- Góð greiðslukjör unn SUNDABORC Klettagörðum I - Simar 8-66-55 S 8-66-80

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.