Tíminn - 30.06.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 30.06.1982, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1982 17 HM- PUNKTAR Italir og Argentínumenn eru með óvenju marga leikmenn i sinum herbúðum, sem þátt tóku i HM 1978, eða 11 hvor þjóð. Vestur-Þjóðverjar eiga þann vafasama heiður að hafa fengið á sig Oest mörk i HM, 68 stykki. Englendingurínn Geoff Hurst hefur skorað flest mörk i úrsiitaleik HM. Hann skoraði „hattrick", þrennu, þegar Englendingar sigruðu Vestur-Þjð- veija árið 1966. Maurízo Rodríguez er yngsti „stjórinn“ i HM að þessu sinni, 365 ára starfsmaður. Hann sér um lið El Salvador. Velgengni Belgiumanna í HM hefur vakið verðskuldaða athygli. Einn þeirra sem ietlaði að vera með i slagnum er Andcrlechtleikmaðurínn Juan Lozano. Jón er fæddur á Spáni, en fékk belgískan rikisborgararétt fyrir nokkru og átti að vera „leynivopn“ Belgiumanna í HM. En þvi miður, Nonni slasaðist rétt fyrir keppnina og situr nn heima raeð sárt ennið. Fjögur af hinum 24 löndum i HM notast aðeins við „heimaspilara“, þ.e.a. s. leikmenn sem leika i viðkom- andi löndum. Löndin fjögur eru Spánn, Ítalía, Kuwait og Sovét- ríkin. Forstjóri Fiat-verksmiðjanna og Juventus- félagsins i Torino, Giovanni Agn- eli, er karl ákvcðinn og sjálfum- glaður. Hann er svo öruggur á þvi, að Itaiir leiki til úrslita í HM, að hann hefur tekið sér á leigu heljarstóra villu i Madrid undir lok HM. Landsliði Skotlands var fagnað mjög er það kom heim til Glasgow frá HM af þúsundum stuðningsmanna. Voru Skotar á einu máli um að frammistaða liðsins hafi verið betri en vonir stóðu til þó að þvi hafl ekki telust að komast i milliriðil. Engar myndir af Argentinumönnum, er mottóið hjá bresku sjónvarpsstöðv unum BBC og ITV þessa dag- ana. Enginn leikur Argentinu- manna skal á skerma Breta, en vandrxðin eru nú fólgin i hvað gera skal ef Argcntínustrákamir leika gegn breskum þegar fram í sælcir... Leikur V-Þýskalands og Englands í HM í gærkvöldi: Varnarleikurinn í fyrirrúmi, 0:0 Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tímans á Spáni: ■ Leikur Vestur-Þjóðverja og Eng- lendinga í Madrid olli nokkrum von- brigðum, einkum þó vegna þess að hvorugu liðinu tókst að skora mark. Jafnteflið var reyndar sanngjarnt i leik þessara tveggja sterku varnarliða. Fyrri hálfleikurinn var fremur tíðinda- lítill. Bæði lið léku undir því sem kalla má eðlilegri getu, en Englendingar höfðu þó frumkvæðið. Það voru þeir Robson og Francis sem sköpuðu oftast usla i vörn þýskra. Bæði liðin léku maður-á-mann leikaðferð og var þvi heldur þröngt um leikmenn. T.d. var Rummenigge í strangri gæslu Terry Butcher. Varnarleikurinn var einnig í fyrirrúmi i seinni hálfleiknum og voru leikmenn ekki nærri þvi að skora, utan á lokamin. leiksins þegar Rummenigge skaut i slá enska marksins. Úrslitin voru sanngjörn, að flestra dómi. Bestu menn i þýska liðinu voru Briegel, Breitner og Rummenigge. í liði Englendinga léku best þeir Robson, Coppell, Francis og Butcher. EM/IngH ítalir lögðu Argentínumenn ■ Argcntinumaðurinn Maradona var oft hart leikinn i leiknum i gær. Frá Erik Mogcnsen, fréttamanní Timans á Spáni ■ Hið þunglamalega lið ítala kom heldur betur á óvart hér i HM i dag (þriðjudag) er það lagði að velli sjálfa heimsmeistara Argentínu með 2 mörk- um gegn 1, eftir grófan og ruddalegan leik. Allan fyrri hálflcikinn var mikið um Ijót brot af beggja hálfu, en litið um góða knattspyrnu. Var Maradona algjör- lega tekinn úr umferð af Gentile og mátti sig litt hræra. Oft á tíðum var Ijótt að sjá hvernig hann var leikinn. Þá var sterkur vamarleikur hafður i fyrirrúmi. 0-0 í hálfleik. Seinni hálfleikur var mun liflegri en sá fyrri, en litið dró úr hörkunni. Á 56. mín. skoraði Tardelli fallegt mark fyrir ítala, eftir skemmtilegt samspil. Argen- tinumenn sóttu nú mjög i sig veðrið og áttu m.a. skot í stöng (Maradona). Rúmum 10 min. síðar bættu ítalir við öðru marki og var þar Cabrini að verki, 2-0. Var hinn megnasti rangstöðufnykur af marki þessu. Aðeins 7 min. fyrir leikslok minnkaði fyririiði Argentinumanna, Pasarella, muninn, 2-1. Gullfallegt mark beint úr aukaspyrnu. Harður leikur og vafasamur sigur Itala. En það eru mörkin sem gilda. Bestu menn i ítalska liðinu fannst mér Tardelli og Antognioni. í liði Argentinu bar mest á Pasarella, Bertoni og Ardiles. Áhorfendur voru 44 þúsund. Nú hefur hagur Brasiliumanna, sem eru með ítaliu og Argentínu i riðli vænkast mjög og virðist fátt geta komið í veg fyrir sigur þeirra. Þó er aldrei að vita hvað skeður, það sýna úrslitin i leik Ítalíu og Argentínu. EM/IngH. Bjórþyrstir Englendingar Frá Eika Mogens í sólinni á Spáni. ■ Áhangendur enska landsliðsins eru fyrir nokkru komnir til Madrid og halda þeir til i nágrenni Bernadeau-leikvangs- ins, hvar þeirra menn eiga að skeppa i milliriðlinum. Þeir drepa timann með þvi að syngja, dansa, drekka bjór og sleikja sólina á stuttum buxum. Ælu- pollar og brotin glös eru ummerkin sem þeir skilja eftir sig. Eigendur baranna, þar sem þeir ensku svala þorsta sinum, treysta sér ekki til þess að telja lítrana af bjórnum (og öðru rennandi, þaðan af sterkara) sem þeir ensku innbyrða. Eini útreikningurinn sem staðfestur hefur verið er að á einum barnum, þar sem 50 enskir stuðnings- starfsmenn voru samankomnir, hafi klárast tvær 60 litra tunnur bjórs á hálfri klukkustund. EM/IngH ■ Einn hinna þyrstu Englendinga sýpur hér mjög. SLAGSMÁL HJA IRSKUM Ekkert leikið á HM í dag ■ Enginn leikur verður i HM i dag og nota liðin væntanlega tímann til þess að safna kröftum fyrir næstu umferð i milliriðlunum, sem hefst á morgun. Þá leika Norður-írar og Austurrikismenn i Madrid og Pólverjar og Sovétmenn i Barcelona. Það má búast við jöfnum og spennandi leikjum þegar þessi lið leika. Þess má geta i framhjáhlaupi að keppni í milliriðlum lýkur nk. mánudag. “IngH Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tímans á Spáni: ■ Tveir leikmenn írska landsliðsins, Campell og Nelson, lentu í slagsmálum á hóteli því sem landsliðið þeirra dvelst á hér á Spáni. Skeði þetta árla sl. laugardagsmorgun. Aðdragandinn var sá að annar hellti úr bjórglasi hins, óviljandi væntanlega, og þar sem báðir kapparnir voru við skál skiptust þeir á nokkrum hressilegum höggum áður en þeir voru skildir að af starfsmönnum hótelsins. EM/lngH. Afarnir í HM Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tim- ans á Spáni: ■ ítalski leikmaðurinn Zoff, Belginn Van Moer og írinn Jennings eru afarnir hér í HM. Dino Zoff er 40 ára gamall og er þetta hans þriðja HM. Van Moer er 37 ára og Jennings nokkrum mánuðum yngri. Þegar þessir kappar spiluðu sinn fyrsta landsleik voru sumir þeirra leikmanna sem hér spila, eins og t.d. írinn Whiteside (17 ára) vart byrjaðir að ganga. ■ Trevor Franris áttí enn einn stórleik- inn i enska liðinu í gærkvöldi. Síöustu fréttir frá HM V* Frá Erik Mogensen, fréttamanni Tfmans á Spáni, f gærkvöldi: Sex gul spjöld og brott - rekstur ■ í hinum harða leik ítala og Argentinumanna i gær fengu 6 lcikmenn að lita gula spjald dómar- ans, Rossi og Tendile, ítaliu og Argentinumennimir Ardiles, Mara- dona, Kempes og Gallego. Sá siðastnefndi var síðan xckinn af leikvelli undir lok leiksins. Rummenigge bestur, Zico næstbestur ■ Vestur-Þjóðverjínn Karl Ilcinz Rummenigge hefur verið valinn besti leikmaðurinn í 1. uraferð HM. Fyrir valinu stóðu iþróttafréttamenn hér á Spáni, frá ýntsum löndum. Brasiliski lcikmaðurinn Zico var næstur i atkvæðagreiðslunni, aðeins 1 stigi á eftir Rumma. Maradona sparkaöur 20 sinnum niður ■ Argentinumaöurinn Maradona I var hart lcikinn af ítölum i leik liðanna í HM i gær. Eftir leikinn tóku 'starfsmenn spænska sjónvarpsins sa.nan hve oft hann var sparkaður niður og reyndist niðurstaðan vera 20 aukaspymur sem dæmdar vora ' eftir brot á Maradona. Eftirsóttur Brasilfumaður ■ Dirceau, leikmaður brasillska j landsliðsins, er i leit að nýjum félaga til að leika með næsta vetur. Hefur I hann þegar fengið tilboð frá frönsk- um, hollenskum,x itölskum og | spænskum félögum, þannig að úr vöndu er að velja fyrir þennan kunna kappa. Keegan ekki með ■ Kevin Keegan lék ekki með enska liðinu gegn Vestur-Þjóðverj- um i gærkvöldi. Vitað er að hann er á batavegi, en Ronni Græniskógur, þjálfari enskra, hefur ekkert viljað gefa uppi hvort Kcegan muni leika með gegn Spánveijum eða ekki. Blaðamenn á Spáni þykjast þó vissir um að Keegan leiki þann leik, hvað i hver segir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.