Tíminn - 06.07.1982, Síða 1
Blaðauki um íþróttir - bls. 11, 12, 13 og 14
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Þriðjudagur 6. júlí 1982,
150. tbl. 66. árg.
Níu ára stúlka finnur óvænt hluta þýfisins úr Þorláksmessu-
innbrotinu í Bílaleigu Akureyrar í vetur:
FANN FJÖLDA ÍVÍSANA
í REIÐGILI
UNDIR
■ Níu ára gömul stúlka sem var á
ferðalagi um Oxnadalsheiði um helg-
ina fann þar kassa sem innihélt mikinn
fjölda ávisana. Talið er fullvist að
ávisanirnar séu hluti þýfisins sem
stoUð var í innbrotinu í BQaleigu
Akureyrar, sem framið var aðfaranótt
Þorláksmessu í vetur.
HRÆÐILEGT
BANASLYS
— á Sandskeiði
í gærkvöldi
Stúlkan var ásamt móður sinni og
fleira fólki að fylgja hestamönnum frá
Akureyri að Vindheimamelum í
Skagafirði. Mæðgurnar voru saman í
bíl og þar sem heitir Reiðgil, efst á
heiðinni, stöðvuðu þær. Neðan þjóð-
vegarins riðu hestamennirnir. Stúlkan
ætlaði til fundar við þá og á leiðinni
þurfti hún að fara undir brú sem er i
gilinu. Þar undir fann hún kassann.
Hljóp stúlkan þegar til móður sinnar
og sýndi henni innihaldið.
Ávísanirnar voru þegar afhentar
rannsóknarlögreglunni á Akureyri.
Ekki hefur verið skýrt frá því hversu
há upphæð ávisananna er.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
biður alla þá sem geta gefið upplýs-
ingar um grunsamlegar mannaferðir
um Reiðgil að láta sig vita.
gk/- Sjó.
Sauðfé þarf
að fækka
um 100
þúsund
■ „Ef tekið er mið af þvi kjötmagni
sem útlit er fýrir að verði óselt i haust,
þá cruþað afurðir eftir u.þ.b. 100 þús.
fjár. Eg álit að sauðfénu þurfi að
fækka eitthvað nálægt þvi. Eins og nú
er komið er ekki annað að gera. Það
er beint fjárhagslegt tjón fyrir bændur
að halda áfram óbreyttri framleiðslu“,
sagði Hákon Sigurgrimsson, fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands
bænda, i samtali við Tímann.
Þessi mál hafa verið mikið til
umræðu hjá bændasamtökunum síð-
ustu mánuðina, og eru nú að mótast
ákveðnar tillögur um aðgerðir. Þær
miða að því að fækka fénu um 50 þús.
nú i haust“, sagði Hákon.
Sjá viðtal bls. 8-9 - Kás
A leið á landsmót
■ Hestamenn af öllum landshomum riða nú fjöll og byggðir og stefna á Vindheimamela i Skagafirði, þar sem landsmót
hestamanna er um það bil að hefjast. Meða) þeirra sem fcrðast með þessum foma hætti er þessi unga stúlka úr
Mosfellssveitinni, sem hefur lent í mývargi á leið sinni um Þingvebi. Meira um ferð Mosfellinga er á bls. 6. Tímamynd G.T.K.
.......
Demökrat-
ar í USA:
■ HræðUegt banaslys átti sér stað
upp á Sandskeiði i gærkveldi. Varð
það með þeim hætti að maður gekk
fyrir hreyfil á flugvél sem var þar í
gangi. Er talið að hann hafi látist
samstundis af þeim áverkum sem af
þvi hlaust.
Það var kl. 21.10 i gærkveldi sem
lögreglunni i Reykjavik barst tilkynn-
ing um slysið. Maðurinn sem lést var
á fertugsaldri. Var hann upp við
Sandskeið í gærkveldi við kennslu i
fallhlifarstökki. Mun hann hvorki hafa
heyrt i hreyflinum né aðvörunarhróp
nærstaddra manna vegna höfuðhjálms
sem hann bar á sér vegna fallhlífar-
stökksins, en meðal þeirra sem vitni
urðu að slysinu voru eiginkona hans
og sonur. Rannsókn slyssins hófst í
gærkveldi og hafa hana með höndum
Rannsóknarlögregla rikisins og flug-
öryggiseftirlitið. Er þetta i fjórða
sinn á nokkurra ára timabili sem
banaslys hlýst af með þessum hætti.
-Kás.
Á móti
kjarna-
vopnum
- bis. 7
Ný
stjarna
— bls. 2
Fylltar
paprikur
— bls. 16
Villti
Max
— bls. 23