Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 2
2 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
Diddy.is
Faxafeni 14 • s: 588 8400
Fallegar vörur og frábært verð, sjón er sögu ríkari
ÚTSALAN ER HA
FIN
Þorvaldur, þarftu ekki að
hafa þykkan skráp fyrir þetta
hlutverk?
„Öllu heldur þykkan Láp.“
Ólafur S.K. Þorvaldz fer með hlutverk
Láps í leikritinu Lápur, Skrápur og jóla-
skapið. Ólafur reif liðþófa og lætur sig
hafa það að fara sárþjáður á svið.
STJÓRNMÁL Margir ráðherrar rík-
isstjórnarinnar hættu við að fara
úr bílum sínum við Ráðherrabú-
staðinn við Tjarnargötu í gær-
morgun.
Bústaðurinn var nærri
umkringdur mótmælendum og
ráðherrarnir brugðu á það ráð,
samkvæmt tilmælum lögreglu, að
láta aka sér í næstu götu fyrir
ofan, Suðurgötu. Þaðan klöngruð-
ust stjórnvöld niður hlíðina í
snjónum og í gegnum garð ráð-
herrabústaðarins. Umhverfisráð-
herra gekk þó Tjarnargötuna og
mátti þola ókvæðisorð.
Mótmælendur, sem voru um 100
talsins þegar mest var, öskruðu að
ríkisstjórninni að hún væri van-
hæf og ópin heyrðust allt niður í
Vonarstræti. Lögreglumenn voru
um allar trissur, minnst 50 tals-
ins.
Þegar ráðherrar höfðu gengið í
hús og fundur staðið í nokkurn
tíma fækkaði í hópi mótmælenda
og voru um 60 eftir. Stúlka ein
gerði sér þá lítið fyrir og braust í
gegnum gulan lögregluborða og
áleiðis niður Tjarnargötuna. Hún
vildi fara heim til sín sagði hún;
lögreglan gæti ekki komið í veg
fyrir það. En það gerði lögreglan
víst og bar þá fleiri að, stúlkunni
til aðstoðar.
Hópurinn krafðist þess að fá að
ganga niður Tjarnargötu og kom
til átaka þegar hann reyndi loks
að ganga í gegnum fylkingu lög-
reglumanna. En lögreglan stöðv-
aði framgönguna og virtist gæta
þess að fólk meiddist ekki. Að
lokum var samið um að mótmæl-
endur fengju að ganga framhjá
bústaðnum og í burtu. Enginn var
handtekinn. „Hér verður áramóta-
brenna,“ hrópaði mótmælandi að
lokum, um leið og hann steytti
hnefa að bústaðnum og gekk á
braut. klemens@frettabladid.is
Ráðherrarnir fara á
fund bakdyramegin
Margir ráðherrar ríkisstjórnarinnar máttu klöngrast frá Suðurgötu og í gegnum
garð ráðherrabústaðarins í gær til að forðast mótmælendur sem voru fleiri en á
síðasta ríkisstjórnarfundi. Til átaka kom en þau leystust með samningum.
FLESTALLAR LÖGGUR KALLAÐAR TIL
Hópurinn var stærri en búist var við, að sögn Arnars Rúnars Marteinssonar
aðalvarðstjóra. Hann vonar að þetta verði ekki fastur liður í starfi lögreglunn-
ar. Flestallir lögreglumenn af stöðinni hafi verið kallaðir að bústaðnum og
ekki hefðu margir getað brugðist við því ef fleiri stór útköll hefðu orðið.
„Það var enginn handtekinn en fólk ætlaði að ryðjast í gegnum lokanir
lögreglu og við líðum það ekki; þegar við erum búin að gera lokanir þá eiga
þær að halda. En svo náðist samkomulag um að fólkið gengi í gegn og við
treystum því.“ Samkomulagið hafi verið gert til að koma í veg fyrir ryskingar
og af sömu sökum hafi ráðherrum verið beint að koma frá Suðurgötunni.
EFNAHAGSMÁL „Hættan er sú að ef
þeir fá engan eignarhlut, eða eiga
ekki kost á því, hvort sem þeir
vilja það eða ekki, þá eru meiri
líkur á að þeir láti reyna á
lagasetninguna,“ segir Árni
Tómasson, formaður skilanefndar
Glitnis, um kröfuhafa gamla
bankans og vísar til neyðarlag-
anna svonefndu.
Hugmyndir eru um að þeir sem
eiga kröfur í gömlu bankana gætu
fengið hlut í þeim nýju. Árni segir
óvíst að þeir vilji borga með sér.
Nýju bankarnir eiga að fá 385
milljarða króna. Ekki hefur
komið skýrt fram hvaðan féð á að
koma. - ikh / sjá Markaðinn
Kröfuhafar gömlu bankanna:
Kröfuhafarnir
gætu farið í mál
VIÐSKIPTI Í lok þarnæsta árs
verður heildarvirði félaga sem
hér verða skráð í Kauphöll komið
í 1.000 milljarða króna, gangi
eftir áætlanir forstjóra hennar.
Markaðsvirði skráðra félaga er
nú undir 250 milljörðum að því er
fram kemur í grein sem Þórður
Friðjónsson skrifar í Markaðinn í
dag. Fyrir fall bankans voru
skráð félög 1.500 milljarða króna
virði.
Þórður segir að gangi eftir
áætlanir um endurreisn efna-
hagslífsins nái skuldabréfamark-
aður hér sér að fullu á næsta ári
og hlutabréfamarkaður verði
kominn í ásættanlegt horf fyrir
lok árs 2010.
- óká / Sjá Markaðinn
Upprisa Kauphallar í spilunum:
Er 16 prósent af
stærð fyrir hrun
STJÓRNMÁL Aðeins 25 af 63
þingmönnum svara spurningum
Fréttablaðsins um það hverjir
hafi styrkt þá í prófkjörsbaráttu
þeirra fyrir síðustu kosningar.
Allir þingmanna Vinstri grænna
svöruðu en einungis tveir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Bæði stjórnarliðar og stjórnar-
andstæðingar hafa talað fyrir því
að almenningi verði veittar sem
mestar upplýsingar til þess að
sporna við tortryggni. Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
hefur til dæmis talað fyrir því að
bankaleynd verði afnumin.
- jse/ sjá síðu 12
Útgjöld vegna prófkjörs:
Meirihluti vill
ekki upplýsa
SAMFÉLAGSMÁL Niðjar Sigurgeirs
heitins Ólafssonar í Vestmanna-
eyjum, hafa sótt um það hjá
mannanafnanefnd að fá nafnið
Vídó viðurkennt en án árangurs.
Sigurgeir var þekktur undir
nafninu Sigurgeir Vídó eftir að
hann varði vítaspyrnu sem
markmaður í drengjaliði Þórs
fyrir seinna stríð en hann var
einnig frá Víðivöllum og þótti
viðurnefnið því vel við hæfi.
Nafnið festist einnig á eiginkonu
hans, Erlu Vídó, og svo á öllum
niðjum þeirra að sögn Kjartans
Vídó, barnabarni Sigurgeirs.
Reyndar segir hann eina undan-
tekningu á því en einn Sigurgeirs-
sonurinn gengur undir nafninu
Hestur.
Ástæðan fyrir höfnun manna-
nafnanefndar er sú að Vídó
beygist ekki samkvæmt íslenskri
málhefð. En nafnið er svo gott
sem orðið að ættarnafni.
- jse/sjá síðu 16
Vídófjölskyldan í Eyjum:
Sama gælunafn
í þrjá ættliði
ÍRAK Íraski blaðamaðurinn
Muntadar al-Zaidi er sagður illa
farinn eftir meðferð annaðhvort
öryggisvarða eða fangavarða.
Fréttastofa breska útvarpsins BBC
hefur þetta eftir bróður hans.
Zaidi er sagður bæði rifbeins- og
handleggsbrotinn, með innvortis
blæðingar og meiðsl á auga. Þetta
hefur þó ekki fengist staðfest.
Zaidi fleygði, sem frægt er orðið,
skóm sínum að George W. Bush
Bandaríkjaforseta á blaðamanna-
fundi í Bagdad á þriðjudag. Zaidi
hrópaði á Bush: „Þetta er kveðju-
kossinn til þín, hundurinn þinn.“
- gb
Skókastarinn í Írak:
Sagður særður
VAKTI ATHYGLI Skókastið vakti mikla
athygli í Mið-Austurlöndum og víða um
heim. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BORGARMÁL Ólafur F. Magnússon
borgarfulltrúi gerði meinta spill-
ingu og fyrirgreiðslupólitík meiri-
hlutaflokkanna að umræðuefni á
borgarstjórnarfundi í gær.
Ólafur mælt-
ist til þess að
upplýsingar um
fjárframlög
vegna prófkjöra
borgarfulltrúa
yrðu lagðar
fram. Óviðun-
andi væri að
fulltrúarnir
upplýstu ekki
um „framlög
verktaka og
auðmanna“.
Hann hefði mætt „feiknarlegri
andstöðu“ sjálfstæðismanna við
að gera aðgengilegri upplýsingar
um Orkuveitu Reykjavíkur. Þar
teldi hann að spilling hefði verið
„mjög alvarleg“ í áraraðir.
„Það er ekki líðandi að það sé
legið á upplýsingum sem varða
alla borgarbúa,“ sagði hann.
Einnig lagði Ólafur til að fallið
yrði frá áformum um byggingu
Listaháskóla við Laugaveg og
spurði hvort afstaða sjálfstæðis-
manna skýrðist með þrýstingi frá
auðmönnum.
Júlíus Vífill Ingvarsson, for-
maður skipulagsráðs, rifjaði þá
upp gömul ummæli Ólafs um að
hann væri alls ekki mótfallinn
byggingunni. Hann væri hins
vegar orðinn hallur undir popúl-
isma, „skæting og skítkast“.
Afstöðu flestra borgarfulltrúa
til Reykjavíkurflugvallar telur
Ólafur dæmi um takmarkalitla
„þjónkun við byggingarverktaka,
ýmsa fjárfesta og auðmenn“.
- kóþ
Ólafur F. Magnússon gerði gegnsæi og þjónkun við auðmenn að umræðuefni:
Telur meirihlutann spilltan
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, gerði flokksræði að umræðu-
efni í tengslum við drög að siðareglum borgarfulltrúa, sem hann annars
fagnaði, á fundinum í gær. Í drögunum stendur að fulltrúarnir skuli bundnir
að sannfæringu sinni.
„Ég held að borgarfulltrúar þekki það flestir að hafa greitt atkvæði sem er
í bága við eigin sannfæringu,“ sagði Kjartan og vísaði til þess að stundum
þyrfti að standa með samherjum og fara eftir „flokkssannfæringu“.
FLOKKSSANNFÆRING
BORGARMÁL „Við í minnihlutanum
vorum talsvert hissa á að fulltrúar
meirihlutans væru tilbúnir að
leggja fram þessa bókun og þrýsta
á aðgerðarhópinn að koma þessum
málum inn í fjárhagsáætlunina. Ef
það gengur eftir er það sigur full-
trúa meirihlutans í ráðinu. Ef ekki
þá lítur þetta dálítið vandræðalega
út. Þeir hafa sex daga til umráða,“
segir Marsibil Sæmundardóttir,
fulltrúi óháðra í velferðarráði
Reykjavíkurborgar. Sá fátíði
atburður átti sér stað á fundi í gær
að fulltrúar meirihluta og minni-
hluta ráðsins lögðu fram sameigin-
lega bókun. Í henni er beint tilmæl-
um til þverpólitísks aðgerðarhóps
vegna efnahagsástandsins, um þau
þrjú mál sem ráðið telur mest knýj-
andi að verði innifalin í fjárhags-
áætlun aðgerðarhópsins. Sú áætlun
verður kynnt mánudaginn 22.
desember næstkomandi.
Í bókuninni er því meðal annars
beint til aðgerðarhópsins að grunn-
fjárhæð fjárhagsaðstoðar og heim-
ildargreiðslur vegna barna verði
hækkaðar. Marsibil segir áhuga-
vert að atriðin sem bókuð voru í
gær hafi ekki enn verið sett inn í
fjárhagsáætlun hópsins. Ef atriðin
fari ekki inn fyrir mánudaginn sé
meirihlutinn í borginni klárlega
klofinn.
Jórunn Frímannsdóttir, fulltrúi
Sjálfstæðiflokks og formaður vel-
ferðarráðs, segist treysta því að
atriðin nái inn í áætlunina. „Ég get
ekki lofað því, en rökin verða að
vera ansi sterk fyrir því að atriðin
fari ekki inn. Það er mjög mikil-
vægt að samstaða náist um hækkun
fjárhagsaðstoðar,“ segir Jórunn.
- kg
Meirihluti og minnihluti í velferðarráði þrýsta sameiginlega á aðgerðarhóp:
Hópurinn hefur sex daga
FULLTRÚI ÓHÁÐRA
Marsibil segist
hafa orðið talsvert
hissa á því að
meirihlutinn hafi
tekið þátt í sam-
eiginlegri bókun.
SPURNING DAGSINS